Morgunblaðið - 27.01.2001, Blaðsíða 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Síðla kvölds
(Late Last Night)
G a m a n m y n d
Leikstjórn og handrit: Steven Brill.
Aðalhlutverk: Emilio Estevez, Stev-
en Weber, Kelly Rowan. (94 mín.)
Bandaríkin, 1999. Myndform. Bönn-
uð innan 16 ára.
EMILIO Estevez er leikari sem
munað hefur sinn fífil fegurri. Hann
var einn af unglingahetjum níunda
áratugarins og lék meðal annars, eins
og margir muna eftir, í Morgunverð-
arklúbbnum. Hann
hefur leikið í fremur
rislitlum myndum
undanfarið en Síðla
kvölds kemur
skemmtilega á
óvart. Söguþræðin-
um svipar nokkuð til
hinnar ágætu
myndar Swingers
frá árinu 1996. Segir
hér frá lögfræðingnum Dan sem lend-
ir í miklum erjum við heittelskaða eig-
inkonu sína og ráfar út í næturlífið
með brostið hjarta. Í fylgd með eilífð-
artöffaranum Jeff kynnist Dan síðan
hverjum kima skemmtanalífs Los
Angeles-borgar. Þetta er fín mynd,
sem hefur gott innsæi á mannleg sam-
skipti, jafnframt því sem hún dregur
upp nokkuð skarpa mynd af skemmt-
analífinu. Emilio Estevez er stórgóð-
ur, hefur nægilegan sjarma til að gefa
áhorfanda nauðsynlega samúð með
aðalpersónunni, og Steven Weber er
líka góður í hlutverki hins dularfulla
vinar Jeff. Húmorinn er líka bráð-
hnyttinn á köflum – þetta er sem sagt
mynd sem kemur á óvart.
Heiða Jóhannsdótt ir
MYNDBÖND
Hringiða
nætur-
lífsins
Á MIÐVIKUDAGINN var frum-
sýndi Stjörnubíó myndina Verti-
cal Limit, æsispennandi mynd um
ofurhuga sem hætta lífi sínu á
fjallinu K2, sem er viðurkennt
sem annar hæsti tindur veraldar.
Af því tilefni stóðu klifurmið-
stöðin Vektor og útilífsbúðin
Everest fyrir óvæntum uppá-
komum; vanir klifrarar óðu upp
um alla veggi og vel dúðaðir fjall-
göngukappar kíktu í heimsókn.
Klifur og
klöngur
Morgunblaðið/Ásdís
Reffilegir fjallgöngumenn ráðast til inngöngu í Stjörnubíó. Valdimar Björnsson hangir í loftinu, en Henning Úlfarsson passar að
hann detti ekki í gólfið.
Vertical Limit forsýnd