Morgunblaðið - 27.01.2001, Blaðsíða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 13
TOYOTA Land Cruiser 70 hefur
hækkað um nálægt 300.000 krónur
í verði vegna misræmis í túlkunum
Skráningarstofunnar hf., sem
byggir á reglugerð um gerð og
búnað ökutækja, og Tollstjóraemb-
ættisins á því hvað teljist vera
jeppi og hvað teljist vera sendibíll.
Fluttir hafa verið inn á bilinu 50-60
Land Cruiser 70 jeppar og voru
greidd aðflutningsgjöld af þeim
eins og um sendibíla væri að ræða,
eða 20% vörugjald eins og heimilt
er samkvæmt reglugerð og evr-
ópsku skráningarkerfi bíla. Nú hef-
ur Tollstjóraembættið ákvarðað að
bílarnir teljist vera jeppar og
leggst því á þá 45% vörugjald. P.
Samúelssyni hf., umboðsaðila Toy-
ota, hefur verið gert að greiða mis-
muninn.
Skráningarstofan ákveður hvort
bílar eru skráðir fólksbílar, sendi-
bílar, jeppar, rútur o.s.frv. og
hvernig þeir lúta að lögum um virð-
isaukaskatt og vörugjald. Skúli
Skúlason, sölustjóri P. Samúelsson-
ar, segir að Toyota Land Cruiser
falli í flokk N1 sem er sendibíla-
flokkur. Samkvæmt reglugerð
dómsmálaráðuneytisins um gerð og
búnað ökutækja uppfyllir hann öll
skilyrði til þess. Til þess að falla í
flokk N1 þarf flutningsrými og
burðargeta bíls að vera meiri fyrir
farm en farþega.
Skúli segir að Tollstjóraremb-
ættið staðhæfi nú að hér sé um
jeppa að ræða og virðir embættið
að vettugi skráningarreglur Skrán-
ingarstofunnar. Skúli segir að rök-
semdir Tollstjóraembættisins séu
m.a. þær að Land Cruiser 70 er
með glugga í afturrýminu, aftur-
sæti og bílbelti. Hann bendir á að
það eigi einnig við um svokallaða
Double Cab-bíla sem að auki eru
með fjórar hurðir í stað tveggja
eins og Land Cruiser 70 og þar að
auki mun betur búnir til fólksflutn-
inga hvað þægindi og aðbúnað
varðar. Double Cab-bílar eru engu
að síður tollaðir sem sendibílar.
Skúli segir að eigi að fara eftir rök-
um Tollstjóraembættisins séu 60–
70% allra bíla sem nú eru skráðir
sendibílar skráðir í rangan flokk.
P. Samúelsson hefur endurgreitt
mismuninn og hyggst ekki sækja
þessa fjárhæð til kaupenda bílanna.
Skúli segir að þetta hafi áhrif á
sölu á bílnum. Fyrirtækið hefur
ákveðið að sækja málið frekar með
því að skjóta því fyrir dómstóla.
Farið eftir Evrópu-
bandalagsreglum
Lárus Sveinsson hjá Skráning-
arstofunni segir að mál af þessu
tagi hafi áður komið upp. Hann
segir að reglugerð um gerð og bún-
að ökutækja fari ekki alltaf saman
við þær reglur sem Tollstjóraemb-
ættið styðst við. Hann segir að
Skráningarstofan vinni algerlega
eftir Evrópubandalagsreglunum.
Þar er m.a. kveðið á um að bíll sem
er með tiltekna stærð af farangurs-
rými og burðargetu sem er meiri
fyrir farm en farþega teljist örugg-
lega til sendibíls. Lárus segir að
slíkur bíll geti jafnvel talist vera
vsk.-bíll. Lárus bendir á að fyrir
nokkrum árum hafi verið flutt inn
nokkurt magn af Nissan Patrol-
bílum sem voru án aftursæta. Þeir
fengu skráningu sem sendibílar
enda höfðu þeir bæði meiri burði
og rými fyrir farm en farþega. Toll-
stjóraembættið gjaldlagði bílana
hins vegar sem fólksbíla.
Lárus segir að á hinn bóginn geti
skráningin breyst úr sendibíl í
fólksbíl sé bílunum breytt á þann
veg að flutningsrými og burðargeta
verður meiri fyrir fólk en farm.
Ekki náðist í talsmann Toll-
stjóraembættisins í gær.
Reglugerð um gerð og búnað ökutækja og reglur Tollstjóraembættisins stangast á
Morgunblaðið/RAX
Bíllinn sem styrinn stendur um, Toyota Land Cruiser 70.
Skráðir sem sendibílar
en tollaðir sem jeppar
TVEIR unglingar voru staðnir
að verki við að kveikja í vinnu-
skúr á athafnasvæði Vita- og
hafnarmálastofnunnar við
Vesturvör í Kópavogi í fyrra-
kvöld.
Slökkvilið höfuðborgarsvæð-
isins var kallað á staðinn en
skúrinn hafði þá orðið eldinum
að bráð. Að sögn lögreglunnar í
Kópavogi hafa báðir ungling-
arnir játað á sig verknaðinn og
telst málið upplýst.
Brennu-
vargar staðn-
ir að verki