Morgunblaðið - 27.01.2001, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra leggur í næsta mánuði
fram frumvarp á Alþingi um sölu á
49% hlutafjár í Landssímanum á
þessu ári. Hann leggur áherslu á að
aðstæður á fjarskiptamarkaði hafi
breyst frá því að umræða um sölu
Landssímans hófst og þess vegna
sé hægt að ná öllum markmiðum
um samkeppni og jöfnuð í verðlagn-
ingu þjónustunnar án þess að
skipta fyrirtækinu upp. Sturla
kynnti málið á ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun.
Sturla sagðist vera ánægður með
skýrslu einkavæðingarnefndar um
sölu Landssímans sem lögð hefur
verið fram. Í henni væri gert ráð
fyrir að selja Landssímann tiltölu-
lega hratt. Strax í vor yrðu 15%
hlutfjár seld til starfsmanna og al-
mennings. Í framhaldinu yrðu 10%
seld til meðalstórra fjárfesta þar
sem hver og einn keypti 2-3% hlut.
Í öðrum áfanga, sem farið yrði út í
síðari hluta árs 2001, yrði 25% hlut-
ur seldur til kjölfestufjárfesta að
undangengnu forvali. Hann sagði
að fyrirtækin myndu keppa inn-
byrðis og síðan yrði þessi hlutur
seldur til eins aðila.
Hollt og nauðsynlegt
fyrir fyrirtækið
„Við fyrstu sýn líst mér mjög vel
á þessar hugmyndir. Starfsmanna-
félagið fagnar einkavæðingu
Landssímans og telur að hún sé
mjög svo holl og nauðsynleg fyrir
fyrirtækið til lengri tíma litið,“
sagði Davíð Scheving Birgisson, for-
maður Starfsmannafélags Lands-
símans hf., í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann sagðist telja þá niðurstöðu
einkavæðingarnefndar skynsam-
lega að skipta fyrirtækinu ekki upp.
Það að skipta upp fyrirtækinu hefði
veikt það, auk þess sem það hefði
haft í för með sér að starfsfólk sem
unnið hefði árum og jafnvel áratug-
um saman hlið við hlið hefði verið
skilið að en það hefði getað orðið
mjög neikvætt fyrir andann innan
fyrirtækisins.
Hjálmar Árnason, þingmaður
Framsóknarflokksins og fulltrúi í
samgöngunefnd, sagðist líta svo á
að með tillögum einkavæðingar-
nefndar væri tryggð samkeppni á
fjarskiptamarkaði. Það væri einnig
mikilvægt að ríkið yrði áfram gild-
andi eigandi að dreifikerfinu.
Formenn Samfylkingarinnar og
Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs, Össur Skarphéðinsson
og Steingrímur J. Sigfússon, lýsa
mikilli óánægju með skýrslu einka-
væðingarnefndar um sölu Lands-
símans og hvernig salan á að fara
fram. Gagnrýna þeir að selja eigi
dreifikerfi og grunnnet Landssím-
ans og formaður VG telur að Fram-
sóknarflokkurinn hafi orðið að
beygja sig undir einkavæðingar-
stefnu Sjálfstæðisflokksins. Sverrir
Hermannsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, segist hins vegar
vera ánægður með einkavæðingar-
áformin, við fyrstu sýn, og ætlar
ekki að leggjast gegn þeim þegar
málið kemur til kasta Alþingis.
Einkavæðingarnefnd hefur skilað af sér skýrslu um einkavæðingu Landssímans
Tæpur helmingur Sím-
ans verður seldur í ár
Sala Landssímans/12, 34–35
KYLFINGAR víða um land hafa
nýtt sér veðurblíðuna á þorranum
og tekið léttar sveiflur sem alla
jafna hefur aðeins mátt taka innan-
húss á þessum árstíma. Á Hvaleyr-
arvelli Golfklúbbsins Keilis í Hafn-
arfirði voru fjölmargir kylfingar
að leik. Þeir nutu útiverunnar í rík-
um mæli og þeirrar gleði sem golf-
ið veitir iðkendum íþróttarinnar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Í góðri sveiflu á þorra
ÁÆTLAÐ umfang framkvæmda
hins opinbera á vegum Fram-
kvæmdasýslu ríkisins á þessu ári
verður 1,2 milljörðum lægra en á síð-
asta ári að því er Jóhanna Hansen,
staðgengill forstjóra Framkvæmda-
sýslunnar, sagði á Útboðsþingi Sam-
taka iðnaðarins og Félags vinnuvéla-
eigenda í gær.
Á þinginu kom hins vegar fram hjá
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
borgarstjóra að framkvæmdir á veg-
um borgarinnar aukist um 3,5 millj-
arða milli ára, úr 8,8 milljörðum í
12,3 milljarða.
Þá sagði Agnar Olsen, fram-
kvæmdastjóri hjá Landsvirkjun, frá
því að ef ákvörðun verður tekin fljót-
lega um fyrirhugaðar framkvæmdir
Norðuráls og Reyðaráls megi gera
ráð fyrir útboðum Landsvirkjunar
vegna framkvæmda þessu tengdu
fyrir um 20 milljarða króna, jafnvel
næsta haust.
Útboðsþing 2001
Ríkið dreg-
ur úr fram-
kvæmdum
á þessu ári
Hugsanlegt 20 milljarða/18
♦ ♦ ♦
reyktum eða soðnum kjötvörum til
Noregs frá Íslandi er því ekki leyfð-
ur. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur reglum um innflutn-
ingsbannið ekki verið framfylgt til
hins ýtrasta í Noregi undanfarin ár
og því hefur fengist leyfi fyrir inn-
flutningi á kjöti fyrir þorrablót Ís-
lendingafélaganna. Að þessu sinni
varð yfirvöldum hins vegar ekki
hnikað og hafa viðræður íslenska
sendiráðsins við yfirvöld engan ár-
angur borið en unnið er áfram í mál-
inu.
Fjölmennasta Íslendingafélagið í
Noregi, í Ósló, sem heldur þorrablót
17. febrúar, brást við ákvörðunum
norskra yfirvalda eftir reynslu ann-
arra félaga, með því sækja ekki um
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD í Nor-
egi hafa staðið í veginum fyrir því að
Íslendingafélög í Noregi, sem hyggj-
ast halda þorrablót á næstunni, afli
sér matfanga frá Íslandi, vegna
EES-reglna um bann við innflutn-
ingi á íslenskum unnum kjötvörum.
Íslenska sendiráðinu í Noregi hefur
ekkert orðið ágengt í viðræðum sín-
um við norsk heilbrigðisyfirvöld
vegna málsins.
Nokkur Íslendingafélög í Noregi,
þ.á m. í Björgvin og Stavangri hafa
reynt að fá leyfi fyrir innflutningi á
kjöti en verið synjað. Ástæðan mun
vera sú að viðurkennd sláturhús hér-
lendis hafa einungis leyfi til að flytja
út ferskt kjöt til Evrópska efnahags-
svæðisins. Innflutningur á söltuðum,
leyfi en setti þess í stað af stað neyð-
aráætlun sem miðaði að því að fá vini
og vandamenn á leið til Noregs til að
flytja með sér leyfilegt magn af kjöti,
allt að 3 kg, í farangri sínum. Hörður
Sverrisson, formaður skemmti-
nefndar Íslendingafélagsins í Ósló,
sagði að búið væri að útvega nægt
kjöt fyrir þorrablótið þar á bæ. „Við
fengum fullt af fólki sem var á Ís-
landi til að taka með sér tollinn og
eina og eina rúllu og erum búin að fá
allan matinn inn,“ sagði Hörður.
Önnur Íslendingafélög eru verr
sett með aðföng en að sögn Jóns
Árnasonar, varaformanns Íslend-
ingafélagsins í Stavangri, verður
e.t.v. gripið til sama ráðs og heppn-
aðist hjá Íslendingafélaginu í Ósló.
Fá ekki að flytja inn
þorramat til Noregs
MIKLAR vonir eru bundnar við að
Íslandslax fái leyfi til að stunda lax-
eldi í Klettsvík í Vestmannaeyjum en
starfsemin gæti skapað tugi starfa í
bænum.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, sagði að bæjar-
stjórn hefði samþykkt að veita Ís-
landslaxi leyfi til þess að hefja til-
raunaeldi í Klettsvík. Málið er nú til
skoðunar í landbúnaðar- og um-
hverfisráðuneytinu en ekki liggur
fyrir hvort framkvæmdin þurfi að
fara í umhverfismat.
Fjórir af þingmönnum Suðurlands
funduðu með bæjarstjórn Vest-
mannaeyja, Þróunarfélaginu og
verkalýðsforystunni í gær um at-
vinnuástandið og framtíðarhorfur.
Laxeldi í Eyjum
Gæti skapað
nokkra tugi
nýrra starfa
Vonir bundnar/6