Morgunblaðið - 27.01.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 11
SIGURÐUR B. Valdi-
marsson, forstöðumað-
ur víxla- og verðbréfa-
sviðs Íslandsbanka,
lést 26. janúar sl. á
Landspítalanum 63
ára að aldri.
Sigurður var fæddur
17. júlí 1937, sonur
Valdimars Þórðarson-
ar stórkaupmanns
(Silla og Valda), ættað-
ur frá Rauðkollsstöð-
um á Snæfellsnesi, og
Sigríðar Elínar Þor-
kelsdóttur frá Eyrar-
bakka.
Sigurður var Verzlunarskólageng-
inn og stundaði framhaldsnám í
Englandi. Hann starfaði hjá Út-
vegsbankanum og síðar Íslands-
banka og var yfirmaður víxla- og
verðbréfasviðs frá árinu 1970. Sig-
urður starfaði mikið að félagsstörf-
um, m.a. í Gideon-
félaginu og Frímúrara-
reglunni og sat í stjórn
Verðbréfastofunnar og
Fríkirkjunnar. Sigurð-
ur var mikill ættfræði-
áhugamaður og tók
saman bók um Rauð-
kollsstaðaætt sem er í
vinnslu.
Sigurður var kvænt-
ur Þórunni Bryndísi
Friðþjófsdóttur, þau
skildu. Dætur þeirra
eru Þórunn, Anna
María og Elín.
Eftirlifandi sambýlis-
kona Sigurðar er Ingibjörg Daníels-
dóttir. Fóstursynir Sigurðar eru
Sveinbjörn Ársæll og Gunnar Daníel
Sveinbjörnssynir.
Útför Sigurðar fer fram kl. 13.30
föstudaginn 2. febrúar frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík.
Andlát
SIGURÐUR B.
VALDIMARSSON
SLÁTURFÉLAG Suðurlands hefur
framleiðslu íslensks lambakjöts í
neytendapakkningum í nýrri kjöt-
vinnslu í Videbæk á Jótlandi í apríl
næstkomandi. Fest hafa verið kaup á
530 fermetra húsi, 8 ára gömlu, sem
byggt var fyrir matvælavinnslu.
Einnig 14 þúsund fermetra lóð við
hlið vinnsluhússins til frekari upp-
byggingar í framtíðinni. Þá stefnir
Goði að því að tvöfalda útflutning á
fersku lambakjöti til Bandaríkjanna í
ár.
Söluáætlun fyrsta starfsárs verk-
smiðjunnar hljóðar upp á 160–200
tonn af lambakjöti sem unnið verður í
smásölupakkningar. Mest verður selt
af marineruðu kjöti samkvæmt upp-
skriftum sem SS hefur þróað hér á
landi. Í fyrra fékk SS danskan verk-
taka til að framleiða þessa vöru og var
henni vel tekið, að sögn Steinþórs
Skúlasonar, forstjóra SS.
Framkvæmdastjóri kjötvinnslunn-
ar á Jótlandi verður Leifur Þórsson,
kjötiðnaðarmeistari, sem hefur verið
verksmiðjustjóri SS á Hvolsvelli í 12
ár. Við starfi Leifs á Hvolsvelli tekur
Oddur Árnason kjötiðnaðarmeistari.
Reiknað er með að 6–10 starfsmenn
vinni í verksmiðjunni fyrsta árið.
Markmið SS með starfseminni á
Jótlandi er að komast nær dönskum
neytendum og að geta boðið vörur
sem ekki er hægt að flytja frá Íslandi
vegna geymsluþols eða tollamála.
Vörurnar verða seldar undir vöru-
merkjum SS sem þegar hafa verið
skráð ytra. Vinnslan á að geta þjónað
markaði í Danmörku, Suður-Svíþjóð
og Norður-Þýskalandi.
„Það er innlendri sauðfjárrækt
mjög mikilvægt að þróa útflutnings-
markaði sem kaupa íslenskt lamba-
kjöt vegna verðleika þess og stuðla að
hækkun skilaverðs til bænda og þar
með viðgangi greinarinnar,“ sagði
Steinþór í samtali við Morgunblaðið.
Hann taldi að búast mætti við aukinni
spurn eftir íslensku kjöti í kjölfar kúa-
riðufársins í Evrópu. Ætla mætti að
þegar fólk sneri baki við nautakjöti þá
færi það að neyta annarra kjötteg-
unda. Ísland ætti að njóta þess, því
uppruni kjötsins væri þekktur og
engin kúariða hér. „En þetta eru
kannski skammtímaáhrif og ekki
hægt að byggja markaðssetningu á
þeim,“ sagði Steinþór.
Ferskt kjöt til Bandaríkjanna
Heimir Már Helgason, sölustjóri í
útflutningi hjá Goða, segist ekki hafa
orðið var aukins áhuga á íslensku
lambakjöti erlendis í kjölfar umræðu
um kúariðu. Hann sagði að Goði sé að
byggja upp útflutning til Bandaríkj-
anna. „Þeir vilja eingöngu ferskt kjöt
sem við getum einungis afgreitt í slát-
urtíðinni. Einnig hefur örlítið verið
flutt þangað af frosnu kjöti,“ sagði
Heimir. Hvað Evrópu varðar sagði
hann minna hafa verið að gerast. Þar
væri mjög mikið af ódýru lambakjöti
á boðstólum.
„Við erum að vinna í að komast inn í
sælkeraverslanir þar sem vel stæðir
viðskiptavinir versla. Við höfum lagt
áherslu á að markaðssetja kjötið sem
gæðavöru, besta kjöt sem fólk á völ á.
Það hefur gengið vel í Bandaríkjun-
um en hægar í Evrópu.“
Heimir sagði stefnt að því að kynna
kjötið betur í Bandaríkjunum á þessu
ári. „Við erum mjög bjartsýnir varð-
andi Evrópumarkað og höfum fulla
trú á honum. Í fyrra voru seld um 50
tonn til Bandaríkjanna, umreiknað í
skrokka. Okkur langar að tvöfalda
það í ár, ef allt gengur upp,“ sagði
Heimir.
Búist við aukinni sölu íslensks lambakjöts erlendis
SS opnar verk-
smiðju í Danmörku
Matvælavinnsla SS í Videbæk á Jótlandi. Húsið er 530
fermetrar og á fyrirtækið einnig 14 þúsund fm lóð við
hliðina þar sem hægt er reisa viðbyggingu ef þörf er á.
Oddur Árnason (t.v.) tekur við stjórn SS á Hvols-
velli en Leifur Þórsson (t.h.) verður fram-
kvæmdastjóri verksmiðju SS í Danmörku.