Morgunblaðið - 01.02.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„MÁLIÐ er ekki flóknara en það
að sonur minn þarf sálfræðimeð-
ferð, sem kostar hálfa milljón
króna fyrsta árið, og hann þarf að-
hald og stuðning meðan á henni
stendur,“ segir Einar Kristjáns-
son, faðir 25 ára ungs manns sem
hefur viðurkennt íkveikju og
skemmdarverk við Hvalnes í Lóni
og hefur áður hlotið dóma fyrir af-
brot. Farið var fram á gæsluvarð-
hald yfir unga manninum til 28.
febrúar en ekki var orðið við þeirri
kröfu sýslumanns.
Einar Kristjánsson segir að son-
ur hans hafi ekki verið greindur
með brennusýki heldur úrskurð-
aður með einhvers konar sjálfs-
eyðingarhvöt og sé hann haldinn
mikilli reiði út í samfélagið og allt
og alla. Við drykkju magnist þessi
reiði og geti þá brotist út í af-
brotum.
Lenti í sjóslysi fyrir áratug
Fyrir áratug lenti sonur Einars
í sjóslysi á skólabáti í Hornafjarð-
arósi. Hann náði að synda í land
ásamt fjórum félögum sínum en
tveir fórust. Segir Einar son sinn
hafa sýnt mikla rökhugsun og þeir
allir raunar búið yfir líkamlegum
burðum til að geta synt í land sem
var um hálf sjómíla við mjög erf-
iðar aðstæður. Einar segir að eftir
þennan atburð hafi hegðan sonar
hans gerbreyst en hann kveðst
ekki geta útskýrt það nánar.
Einnig komust foreldrarnir að
því þegar hann var 12–13 ára að
hann hafði lent í alvarlegu einelti í
skóla og segir faðirinn miður að
það skyldi ekki hafa uppgötvast
fyrr og geti það einnig átt þátt í
ástandi hans í dag.
„Eftir sjóslysið fer hann að
drekka og sýna slæma hegðun en
aldrei fengum við hjálp þótt við
leituðum eftir henni. Þá höfðum
við löngu áður áttað okkur á því að
hann þurfti aðstoð. Þegar hann svo
brýtur fyrst af sér 17 ára gamall
leituðum við til geðdeildar Land-
spítalans en komum þar að lok-
uðum dyrum. Á fimm mínútum er
úrskurðað að sonur minn eigi ekki
erindi þangað. Geðlæknir ræddi
við son okkar og eftir tiltölulega
stutt viðtal, trúlega kringum fimm
mínútur, segir hann að hann eigi
bara að fara í afvötnun og hætta
að drekka. Það kom ekki til greina
að setja hann í neina meðferð hjá
geðlækni og þá var heldur ekki
rætt neitt um réttargeðdeild eða
annað.
Við leituðum áfram og komum
honum hins vegar inn á Tinda þótt
hann væri að verða of gamall þar,
nærri 18 ára. Þegar hann kom
þaðan var enga eftirmeðferð að fá
og hann leiddist út í afbrot. Þá
voru einu úrræðin að setja hann
inn.“
Verði honum og
öðrum til góðs
Faðirinn segir að pilturinn hafi
verið dæmdur síðar með skilorði
og hafi þá átt að setja honum til-
sjónarmann til stuðnings. Það hafi
ekki gengið og engin úrræði hafi
fundist honum til hjálpar. Faðirinn
segir Kvíabryggju vera mannúð-
legan stað en þar afplánaði sonur
hans um tíma. Það sé Litla-Hraun
hins vegar ekki. Hann segir son
sinn smám saman vera að átta sig
á því að hann þarfnist hjálpar og
meðferðar og því sé hann nánast á
byrjunarreit aftur. Núna fyrst sé
hann tilbúinn í meðferð og það
sem vanti sé aðhaldsmeðferð sem
fremur sé fáanleg hjá sálfræðing-
um og geðlæknum.
„Sálfræðiaðstoðin er bæði hon-
um og okkur foreldrunum ofviða
fjárhagslega en það er eina hjálpin
sem myndi duga honum. Þurfi
menn meðferð hjá sálfræðingi
verða viðkomandi að greiða hana
sjálfir.
Það sem ég vil er að þetta sam-
tal leiði af sér er eitthvað gott fyr-
ir son minn og aðra sem ég veit að
eru í sömu sporum en ég þykist
vita að þeir eru margir,“ sagði
Einar Kristjánsson að lokum.
Faðir unga mannsins, sem játað hefur íkveikju í Hvalnesi í Lóni, um feril sonarins
Þarf sálfræðimeðferð
og frekari stuðning
SEX tonna trilla, Sigtryggur ÍS
284, strandaði utan við eyrina við
Sandgerðishöfn um kl. 3.30 í nótt.
Báturinn var að koma úr línuróðri
er hann steytti á eyrinni. Tveir
menn voru í bátnum og sakaði þá
ekki.
Björgunarsveitin Sigurvon fór á
Björgunarskipinu Hannesi Hafstein
bátnum til aðstoðar ásamt dótt-
urbátnum Sigga Guðjóns, sem kom
taug í Sigtrygg og dró hann á flot.
Þó nokkur hreyfing var á strand-
stað og mikill leki í vélarrúmi báts-
ins. Siggi Guðjóns dró Sigtrygg til
hafnar í Sandgerði en þar á bryggj-
unni beið Slökkvilið Sandgerðis
með dælur og dældi sjó úr vél-
arrúmi bátsins þar til öflugur krani
kom og hífði bátinn á land.
Töluverðar skemmdir urðu á
skrúfum og stýrisbúnaði bátsins
auk skemmda í vélarhúsi sem fyllt-
ist af sjó.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Siggi Guðjóns kom með Sigtrygg að bryggju í Sandgerði.
Strandaði við Sandgerði
Sandgerði. Morgunblaðið.
HÉRAÐSDÓMUR Austur-
lands hafnaði í gær gæsluvarð-
haldskröfu sýslumannsins á
Höfn í Hornafirði yfir karl-
manni á þrítugsaldri sem hefur
játað á sig skemmdarverk að
bænum Hvalnesi í Lóni og hafa
orðið valdur að bruna bæjarins.
Sýslumaður fór þá fram á að
maðurinn væri úrskurðaður í
nálgunarbann að jörðinni Hval-
nesi og féllst héraðsdómur á þá
kröfu. Manninum er þó heimil
för um þjóðveg 1 sem liggur um
jörðina.
Krafan um gæsluvarðhald
byggðist á því að maðurinn
væri líklegur til að halda áfram
afbrotum á meðan mál hans
væri í rannsókn. Gæsluvarð-
hald væri nauðsynlegt til að
verja aðra fyrir árásum sak-
borningsins. Á þetta féllst hér-
aðsdómur ekki.
Gert að
sæta
nálgun-
arbanni
Kröfu um gæslu-
varðhald hafnað
ÁRVISSAR pestir eru nú að ganga
yfir landið og hafa margir vinnustað-
ir fundið fyrir því, að sögn Sigurðar
Guðmundssonar landlæknis. Hann
sagði að samt væri ekki enn búið að
greina inflúensu ársins, en þó mætti
gera ráð fyrir því að hún myndi herja
á landsmenn á næstu dögum eða vik-
um.
Aðspurður sagði Sigurður að fyrir
utan það að láta bólusetja sig á
haustin, væri harla lítið sem fólk
gæti gert til þess að forðast inflúens-
una. „Nema hugsanlega eitt og það
er að gæta þess að þvo sér vel um
hendurnar reglulega,“ sagði Sigurð-
ur. „Því gagnstætt því sem margir
telja þá er ýmislegt sem bendir til
þess að svona pestir smitist jafnvel
frekar við snertingu en með hósta
eða úða.“
Sigurður sagði að athyglisverð til-
raun sem gerð hefði verið í Háskól-
anum í Wisconsin í Bandaríkjunum
hefði sýnt fram á þetta. Þá hefði hóp-
ur stúdenta verið sýktur í nef með
kvefveiru og nemendurnir síðan
settir í sal með öðrum stúdentum
sem ekki hefðu verið sýktir. Hann
sagði að eftir að hafa verið saman í
sólarhring hefðu nánast allir í saln-
um verið búnir að sýkjast af kvef-
veirunni.
Að sögn Sigurðar var sama tilraun
endurtekin, nema hvað að sérstakur
kragi var settur á þá sem voru sýktir
í nefið með kvefveirunni, þannig að
þeir gátu ekki snert á sér andlitið.
Hann sagði að eftir sólarhring hefði
smittíðnin verið miklu minni hjá
þessum hópi en þeim fyrri, sem benti
til þess að snerting hefði mikil áhrif á
smit.
„Þannig að það er ekki slæmt hjá
fólki sem er með kvefpestir að gæta
þess að þvo á sér hendurnar reglu-
lega.“
Landlæknir segir inflúensuna
vera á leiðinni til landsins
Veikindi farin
að segja til sín á
vinnustöðum
OLÍUFÉLÖGIN hafa öll
ákveðið að breyta verði á
eldsneyti frá og með deginum
í dag, 1. febrúar, vegna þró-
unar á heimsmarkaði. Bens-
ínlítrinn hækkar um 2,50
krónur þar sem verð á heims-
markaði hefur hækkað að
undanförnu. Hins vegar
lækkar verð á dísilolíu og
flotaolíu um 1,60 kr. á lítra
sökum verðþróunar niður á
við á sömu mörkuðum. Svart-
olíuverð helst óbreytt.
Eftir verðbreytingarnar er
almennt lítraverð á 95 oktana
bensíni, miðað við fulla þjón-
ustu á bensínstöð, 94,30 krón-
ur og 99 krónur á 98 oktana
bensíni. Dísilolía fer niður í
45,70 krónur á hvern lítra og
flotaolía í 33,10 krónur.
Bensín
hækkar
en dísilolía
lækkar
VERÐ á áfengi og tóbaki hækkar
núna um mánaðamótin hjá Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins, ÁTVR.
Bjór hækkar að meðaltali um 0,20%
og annað áfengi að meðaltali um
0,71%. Samkvæmt tilkynningu frá
ÁTVR stafa þessar verðhækkanir af
nýju verði innflytjenda á áfengi.
Verð á tóbaki hækkar í dag að
meðaltali um 1,88%. Sígarettur
hækka um 1,84% að meðaltali og
vindlar um 3,20%. Að sögn ÁTVR er
þessi hækkun rakin til gengishækk-
unar dollars og evru.
Tóbak og
áfengi hækkar