Morgunblaðið - 01.02.2001, Side 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
REYKJAVÍKURBORG ætlar að greiða niður
skuldir um 2,6 milljarða kr. á næstu þremur árum,
samkvæmt þriggja ára áætlun um rekstur, fram-
kvæmdir og fjármál borgarinnar. Jafnframt er
gert ráð fyrir því að rekstrarútgjöld málaflokka
verði u.þ.b 76% af tekjum á tímabilinu og á næsta
ári, árinu 2002, verður gerð krafa um 2% hagræð-
ingu í óbundnum rekstrarútgjöldum allra mála-
flokka.
Síðari umræða um þriggja ára rekstraráætl-
unina fer fram í dag, en samkvæmt sveitarstjórna-
lögum er slík áætlun um rekstur, framkvæmdir og
fjármál sveitarfélaganna rammi um árlegar fjár-
hagsáætlanir þess.
Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg
af þessu tilefni að sú stefna hafi verið mörkuð á yf-
irstandandi kjörtímabili að setja þau mál í fyr-
irrúm sem lúti að menntun og aðbúnaði barna. Það
endurspeglist í þessari áætlun, því hlutdeild
fræðslumála haldi áfram að vaxa og samanlagt
vaxi hlutdeild leik- og grunnskóla í rekstri borg-
arsjóðs úr tæpum 48% í 50% á tímabilinu. Þá taki
byggingar grunn- og leikskóla til sín um 63% af
því fé sem ætlað sé til byggingaframkvæmda á
vegum borgarsjóðs á árunum 2002-2004.
Þá kemur fram að í skipulagsmálum verði lokið
við nýtt aðalskipulag sem unnið sé á grundvelli
þess svæðisskipulags sem nú sé í burðarliðnum.
Aukin áhersla verði lögð á þéttingu byggðar og
samhliða uppbyggingu í Grafarholti verði skipu-
lögð ný byggð í Höllum, Hamrahlíðarlöndum og
Norðlingaholti. Stefnt sé að því að úthluta lóðum
fyrir að meðaltali 650 íbúðir í Reykjavík árlega.
Einnig kemur fram að gert er ráð fyrir að
álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt á næsta
ári og sama gildi um álagningarhlutföll fasteigna-
gjalda.
Gert er ráð fyrir að heildarskuldir borgarsjóðs
verði komnar niður í rösklega 30% af skatttekjum
í árslok 2004, en þegar hlutfallið hafi verið hæst
árið 1994 hafi það verði 123,7%. Í ár stefni þetta
hlutfall niður fyrir 50%.
Skuldir samstæðunnar hækka
um 1.300 milljónir króna
Ef hins vegar litið er til heildarskulda samstæð-
unnar, þ.e. borgarsjóðs og fyrirtækja í eigu borg-
arinnar, er gert ráð fyrir að heildarskuldirnar
hækki frá árslokum 2001 til ársloka 2004 um 1.300
milljónir kr. og fari úr 32,8 milljörðum kr. í 34,1
milljarð króna.
Þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborgar
Skuldir borgarsjóðs greiddar
niður um 2,6 milljarða króna
GUÐNI Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra telur að miðað við breytt-
ar aðstæður þurfi íslenskir kúa-
bændur að endurskoða þau áform
sín að flytja inn fósturvísa úr norsk-
um kúm. Kúabændur þurfi að gera
upp hug sinn áður en hann fari að
afturkalla það leyfi sem kúabænd-
um var veitt í nóvember sl. til að
flytja inn fósturvísa í tilraunaskyni.
Þetta kom fram í máli hans á fundi
með fréttamönnum í gær um álits-
gerð Eiríks Tómassonar lagapró-
fessors um kjötinnflutning frá kúa-
riðulandinu Írlandi.
„Kúabænda vegna hef ég áhyggj-
ur af þessum málum,“ sagði Guðni
og átti allt eins von á að kúabændur
hættu við þessi áform í bili.
Fulltrúaráð Landssambands kúa-
bænda kemur saman fljótlega til að
ræða fósturvísana og einnig hefur
tillögu stjórnar Bændasamtakanna
um frestun á innflutningnum verið
vísað til Búnaðarþings, sem haldið
er í byrjun mars næstkomandi.
Búkolla fær æ fleiri liðsmenn
Guðni minnti á að hann hefði á
sínum tíma tekið sér langan um-
hugsunarfrest undir feldinum fræga
um það hvort innflutningur fóstur-
vísanna skyldi heimilaður. Hann gaf
í skyn að hefði hann tekið sér lengri
tíma til umhugsunar, kannski á
annan mánuð, hefði hann jafnvel
komist að annarri niðurstöðu, þ.e.
að heimila ekki innflutninginn.
Fram hefur komið í Morgun-
blaðinu að andstaða við innflutning
fósturvísanna fer vaxandi meðal
kúabænda hér á landi og bænda al-
mennt. Þannig hafa stöðugt fleiri
gengið til liðs við Búkollu, félag
áhugamanna um íslensku kúna. Í
félagatali Búkollu voru í gærkvöldi
komnir um 1.600 manns, þar af fjöl-
margir kúabændur, og bættist stöð-
ugt við töluna á meðan þessi frétt
var skrifuð. Fyrir fáum dögum voru
um 1.300 manns skráðir í félagið. í
félaginu. Kannanir Búkollu meðal
kúabænda víða um land hafa sýnt
mikla andstöðu við innflutninginn
og er andstaðan einkum af völdum
kúariðufársins í Evrópu. Kúabænd-
ur
Landbúnaðarráðherra um innflutning fósturvísanna
Kúabændur þurfa að
endurskoða hug sinn
Andstaða við innflutninginn fer vaxandi
ÍSLENSKA ríkinu var í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur gert í
gær að greiða konu 200 þúsund
krónur í miskabætur vegna
gæsluvarðhalds sem hún var
úrskurðuð í vegna fíkniefna-
máls. Konan var sýknuð af því í
Héraðsdómi á sínum tíma. Fór
hún fram á rúmlega 8 milljónir
króna í bætur.
Konan sat í gæsluvarðhaldi í
11 daga 1999 og var sett í far-
bann í sjö mánuði. Hún var
ákærð fyrir aðild að smygli á
tæplega þúsund e-töflum, en
var sýknuð í Héraðsdómi og
var málinu ekki áfrýjað til
Hæstaréttar. Hún gerði kröfu
um skaðabætur að fjárhæð kr.
8.065.000 með dráttarvöxtum
frá þingfestingardegi 29. júní
sl. til greiðsludags.
Stefnandi krafðist bóta
vegna gæsluvarðhalds að
ósekju, en konan sat í gæslu-
varðhaldi frá 9. júlí 1999 til 20.
júlí sama ár. Þá krafðist hún
bóta vegna farbanns sem hún
sætti frá 20. júlí sama ár til 24.
febrúar 2000. Stefnandi krafð-
ist annars vegar bóta vegna
tekjutaps og hins vegar miska-
bóta.
Tekjutap ekki sannað
Samkvæmt 2. mgr. 175. gr.
laga nr. 19/1991 skal bæta fjár-
tjón og miska, ef því er að
skipta. Þóttu miskabætur til
stefnanda hæfilega ákveðnar
200.000 krónur með dráttar-
vöxtum samkvæmt III. kafla
vaxtalaga frá 29. júní s.l. til
greiðsludags. Stefnandi þótti
ekki hafa lagt fram þau gögn
sem nægðu til að staðreyna
tekjutap hennar meðan hún sat
í gæsluvarðhaldi. Var stefndi
því sýknaður af kröfu stefn-
anda að þessu leyti.
Málskostnaður milli aðila var
felldur niður og allur gjafsókn-
arkostnaður stefnanda af mál-
inu, þar með talinn málflutn-
ingsþóknun lögmanns hennar,
300.000 krónur að meðtöldum
virðisaukaskatti, greiðist úr
ríkissjóði.
Hjörtur O. Aðalsteinsson
héraðsdómari kvað upp dóm-
inn.
Fær miska-
bætur
vegna
gæsluvarð-
halds að
ósekju
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra hefur skipað Má Vilhjálmsson,
sérfræðing í menntamálaráðuneyt-
inu, í embætti skólameistara
Menntaskólans við Sund til fimm ára
frá 15. febrúar 2001 að telja.
Fjórar umsóknir bárust um emb-
ættið sem sendar voru skólanefnd
Menntaskólans við Sund til umsagn-
ar. Skólanefndin mælti einróma með
því að Má Vilhjálmssyni yrði veitt
embættið.
Skipun í emb-
ætti skóla-
meistara MS
STEINÞÓR Júlíus-
son, fyrrverandi bæj-
arstjóri í Keflavík,
lést á heimili sínu 24.
janúar síðastliðinn.
Hann var fæddur á
Siglufirði 4. apríl 1938
og var því á 63. ald-
ursári.
Foreldrar Steinþórs
voru hjónin Ingibjörg
Guðmundsdóttir og
Júlíus Einarsson.
Steinþór missti föður
sinn ungur og ólst upp
hjá móður sinni, sem
ferðaðist víða um land
vegna starfa sinna sem ráðskona.
Sótti Steinþór barnaskóla m.a. á
Siglufirði, Akureyri, í Reykjavík
og Keflavík.
Steinþór lauk prófi frá Versl-
unarskóla Íslands vorið 1958 og
eftir nám starfaði hann hjá Magn-
úsi Z. Sigurðssyni við fiskútflutn-
ing. Hann var bæjar-
ritari hjá
Keflavíkurbæ árin
1967 til 1980 er hann
gerðist bæjarstjóri og
gegndi því embætti til
ársins 1986. Eftir það
hóf hann ásamt fjöl-
skyldu sinni undir-
búning að stofnun
Flughótels í Keflavík.
Rak hann það til árs-
ins 1999.
Steinþór tók þátt í
félagsmálum, var
félagi í Oddfellow-
stúkunni Nirði og
Lionsklúbbi Keflavíkur. Einnig
starfaði hann mikið fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn, var m.a. í stjórn
Heimdallar og SUS og gegndi öðr-
um trúnaðarstörfum fyrir flokkinn.
Eftirlifandi kona Steinþórs er
Sigrún Hauksdóttir og eignuðust
þau fjögur börn.
Andlát
STEINÞÓR
JÚLÍUSSON
FRAMKVÆMDIR við nýjan Barna-
spítala Hringsins á lóð Landspítala
– háskólasjúkrahúss við Hringbraut
ganga vel. Samkvæmt upplýsingum
frá spítalanum er sjálf uppsteypan
örlítið á eftir áætlun en verktakinn
á að skila húsinu fullkláruðu að ut-
an síðla sumars, ásamt fullfrágeng-
inni lóð. Bjóða á innréttingar og
uppsetningu búnaðar út í vor og
stefna framkvæmdaaðilar að því að
taka nýjan barnaspítala í notkun 1.
ágúst árið 2002.Barnaspítalinn er
6.800 fermetrar að stærð á fjórum
hæðum og kjallara. Heildarkostn-
aður við bygginguna, ásamt öllum
tækjabúnaði, er á bilinu 1.300 til
1.400 milljónir króna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Byrjað var að steypa upp nýjan barnaspítala á lóð Landspítala – háskólasjúkrahúss við Hringbraut vorið 2000
og á verktakinn, Ólafur og Gunnar ehf. byggingarfélag, að skila byggingunni fullfrágenginni að utan seinni
hluta sumars í ár. Taka á spítalann í notkun um mitt næsta ár.
Framkvæmdir ganga vel
HÉRAÐSDÓMUR Austurlands hef-
ur dæmt karlmann á fimmtugsaldri
til greiðslu 200.000 króna sektar fyrir
að skjóta tvo hreindýrstarfa á Skjöld-
ólfsstaðaheiði fyrrihlutann í ágúst á
síðasta ári. Maðurinn játaði sök sína
fyrir dómi. Hann hafði ekki veiðileyfi
fyrir dýrunum og var ekki í fylgd með
eftirlitsmanni með hreindýraveiðum.
Þá hafði hann ekki veiðikort.
Auk sektarinnar var manninum
gert að greiða allan sakarkostnað auk
þess sem riffill hans var gerður upp-
tækur. Logi Guðbrandsson kvað upp
dóminn.
200.000
króna sekt
fyrir hrein-
dýrsdráp
♦ ♦ ♦