Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 44

Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 44
UMRÆÐAN 44 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ GAMLA sovétkerfið með forsjárhyggju og miðstýringu allrar starfsemi var lagt af fyrir meir en áratug. Hérlendis hefur síðan verið aukin miðstýring í heilbrigðisþjónustunni. Öllum stóru hátækni- væddu sjúkrahúsunum var steypt í einn ríkis- spítala. Nauðsynlegt aðhald fæst því ekki lengur með samanburði um tilkostnað, gæði eða viðbragðsflýti þeirra. Neikvæð áhrif á starfs- lið eru augljós, spurn- ingar vakna um metnað til að skapa því hvetjandi og þrosk- andi starfsumhverfi og um stjórnun- arhætti við ákvarðanir og mat á frammistöðu. Auðvelt er að rekja neikvæð við- brögð við hugmyndum þeirra sem vilja eigin fyrirtæki í heilbrigðisþjón- ustu, við umræðu samtaka heilbrigð- isstétta um fjölbreytt rekstrarform, við hugmyndum um sameiningu læknastofa í einkarekið sjúkrahús og við umsóknum heimilislækna um starfsleyfi á eigin stofum en stöð- ugildum á heilsugæslustöðvum ríkis- ins er ekki fjölgað til samræmis við íbúafjölgun. Fáeinir öldrunarlæknar starfa hjá hjúkrunarheimilum sjálfs- eignastofnana sem allar kvarta undan fjárhagslegum samskiptum við ríkið, segja mælikvarða ýmist skorta eða ekki eftir þeim farið og stofnunum mismunað. Örfáir læknar í sérfræði- greinum starfa á eigin stofum. Eng- inn skilur lengur hvers vegna. Þeir gætu hafa gleymst. Krabbameinssjúklingar í skotlínu Skipan ábyrgðar í lyfjamálum er á sömu bókina. Formaður nefndar um hvaða lyf fá markaðsleyfi og skrán- ingu þeirra er jafnframt formaður nefndar um lyfjakaup ríkisspítalans. Hann ræður „samkeppni“ lyfjafram- leiðenda og lyfsala í viðskiptum við langstærsta lyfjanotanda landsins og hverjir mega selja önnur lyf og öðrum notendum. Nýleg ákvörðun af svipuðum toga birtist í reglugerð nr. 948 um greiðslur almannatrygginga í lyfja- kostnaði, frá 20. des. sl. Þar segir í fyrstu grein: „Tryggingastofnun rík- isins tekur þátt í lyfjakostnaði sjúkra- tryggðra einstaklinga skv. reglugerð þessari þegar um er að ræða nauð- synleg lyf sem læknir (tannlæknir) hefur ávís- að og afgreidd eru í lyfjabúð eða hjá öðrum þeim sem hafa leyfi til lyfjasölu, skv. lyfjalög- um nr. 93/1994 með síð- ari breytingum. Skil- yrði er að veitt hafi verið markaðsleyfi fyrir lyfið á Íslandi, sbr. þó 11. gr., sbr. 3. gr.“ Í ní- undu grein segir: „Tryggingastofnun rík- isins tekur ekki þátt í kostnaði lyfja sem eru S-merkt í gildandi lyfja- skrám sbr. 8. gr. lyfja- laga nr. 93/1994 með síðari breytingum.“ Ég efa að þetta ákvæði standist lög um almannatryggingar. Skrá um S-merkt lyf hefur nú verið kynnt. Augljóst er að hún er samin undir tónlistinni „það verður að koma böndum á þetta fólk“. Alvarlegast er að krabbameinssjúklingum er gert erfiðar fyrir að fá nauðsynleg lyf, því öll S-merkt lyf eru notuð af þeim, þ.m.t. velgjulyfin sem nú heita „melt- ingarlyf“. Í bréfi ráðuneytisstjóra frá 23. jan. sl. segir að fjárveiting vegna þessara lyfja verði flutt til Landsspít- alans og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA) „eftir því sem við á“ en ekki til annarra heilbrigðisstofn- ana. Fleiri bréf hafa verið gefin út til kynningar á þessari ákvörðun, m.a.s. af Tryggingastofnun ríkisins, sem er óskiljanlegt þar sem hún hefur ekkert lengur með þessi lyf að gera. Í þeim segir m.a.: „Lyfjastofnun lítur svo á að ekki þurfi að sækja um undanþágu til notkunar S-merktra lyfja, enda er um sjúkrahústengda meðferð að ræða, á ábyrgð viðkomandi læknis og kostnaðurinn greiddur af því sjúkra- húsi sem hann tengist.“ Einnig: S- merkt lyf eru „Lyf sem eingöngu á að nota á eða í tengslum við sjúkrahús/ sjúkrastofnun.“ Og: „Flutningur á fjármagni mun eiga sér stað frá TR til Landsspítala vegna S-merktra lyfja.“ Víða þætti aðferðafræðin við að móta og innleiða þessar reglur frem- ur gamaldags enda í kansellístíl stjórnarhátta fyrri alda. Ekki var haft samráð við samtök þeirra sem við eiga að búa, ekki við þá lækna sem verið er að setja undir fjárhagslega ábyrgð án þess að hafa minnstu áhrif á kostnaðarorsakir, tekjuflæði eða möguleika til að standa undir útgjöld- um. Eftir að fram komu efaraddir og athugasemdir vegna afleiðinga þeirra og áhrifa á sjúklinga, lækna og lyfsala hefur verið hafnað viðræðum og fund- um með þeim sem sýndu af sér þá ós- vinnu að mögla. Hvaða fólk á að setja í bönd? Það er venjulegt fólk sem fær krabbamein, fólk sem stundar ýmis störf, býr víðs vegar um landið og á þar fjölskyldur sínar. Mér sýnist nú sé því gert að fá lyfjameðferð sína ein- ungis fyrir tilstilli Landsspítalans. Þessi ráðstöfun vekur alvarlegar spurningar um afleiðingar og áhrif á þá krabbameinssjúku sem búa ann- ars staðar á landinu. Eiga íbúar á Suðurnesjum, Suðurlandi, Vest- mannaeyjum, Austurlandi, Vestur- landi og stærstum hluta Norðurlands að flytja fái þeir krabbamein eða kosta fjarlægðir þá ekkert í fé eða tíma? Hvað verður um fjármagnið sem á að flytja til Landsspítalans, verður það sérstaklega tilgreind fjár- veiting eða hverfur hún í hítina al- ræmdu (sem merkir að fjármagnið hafi verið notað til annars)? Hver er munurinn á sérfræðingum Lands- spítalans og annarra sjúkrastofnana? Hvers vegna á núna að hverfa frá því að TR kaupi sjúkraþjónustu og lyf fyrir sjúkratryggða einstaklinga burtséð frá búsetu? Er þessi ráðstöf- un í samræmi við lög um almanna- tryggingar? Hver er munurinn á krabbameinssjúklingum og sjúkdóm- um þeirra og öðrum? Hafa iðgjöldin ekki verið greidd af störfum krabba- meinssjúkra? Með þessum ráðstöfunum er sjúk- lingum mismunað um lyf og sjúkra- þjónustu á grundvelli búsetu, og þá til lítils nýleg löggjöf um réttindi sjúk- linga. Læknum sem annast krabba- meinssjúka er mismunað á grundvelli starfsstöðvar og sama á við um lyf- sala. Felld er niður hagræn skilvirkni í ákvæðum laga og reglna um greiðslur almannatrygginga í lyfja- kostnaði. Viðkomandi læknar verða ábyrgir fyrir því hvaða sjúklingar fá lyf og hverjir ekki, en ráða engu um hvaða verkefni þeir taka að sér og hafa engin áhrif á fjárhagsleg úrræði. Það samhengisleysi ábyrgðar og ákvörðunarvalds er óboðlegt í mann- legu samfélagi. Það eina sem þessi ráðstöfun tryggir er meira pappírs- flóð. Hert á miðstýringu Árni Ragnar Árnason Lyf Sjúklingum, segir Árni Ragnar Árnason, er mismunað um lyf og sjúkraþjónustu á grund- velli búsetu. Höfundur er alþingismaður. VAFALAUST mun þriðjudagur- inn 23. janúar árið 2001 verða tal- inn ömurlegasti dagurinn í sögu ís- lenzka lýðveldisins fram til þessa. Dagurinn, þegar hrokagikkir fram- kvæmdavaldsins óðu á skítugum skónum yfir dómsvaldið, og unnu því skaðvænlegt tjón. Raunar má segja að þeir hafi einnig sett óafmáanlegan blett á forsetadæmi Alþingis. Morgunblaðið segir í leiðara sl. sunnudag, að enginn dragi í efa rétt forseta Alþingis til að senda forseta Hæstaréttar umrætt bréf, né heldur rétt forseta Hæstaréttar til að svara slíku bréfi. Það gerir svo sann- arlega sá, sem hér heldur á penna. For- seti Alþingis hefir engan rétt til þess að fórna virðingu Alþingis með málatilbúnaði á borð við þann sem fólst í erindi hans til Hæsta- réttar. Honum hefir verið fullljóst hvaða leik ríkisstjórnarmenn voru að leika. Hann er forseti alls Al- þingis, en ekki handbendi stjórn- armeirihlutans. Hann var til þess kvaddur á vettvang að framkvæma hulduverk forsætisráðherra og skósveina hans, enda lét hann varaforsetana sverja sér eiða að ljóstra ekki upp um gerninginn fyrr en fullframinn væri. Forseti Hæstaréttar lét draga æðsta rétt þjóðarinnar niður í póli- tíska forarvilpu stjórnarherranna með svarbréfi sínu. Til þess hafði hann engan rétt, hvorki einn né með meirihluta réttarins að baki sér og eigi að heldur þótt allir átta dómarar Hæstaréttar hefðu gengið undir jarðarmenið með honum. Það blasir við þeim sem sjá vilja, að allt er málið soðið saman í eldhúsi Sjálfstæðisflokksins, og er þá svo komið að forseti æðsta réttar þjóð- arinnar telur í sínum verkahring að annast þjónustustörf í þeim her- búðum. Það hlýtur að vera lág- markskrafa að sá maður segi af sér dómarastörfum þegar í stað, enda getur hann þá helgað sig hinum verkunum óáreittur. Raunar sýnist nauð- synlegt að allir dóm- ararnir, sem sam- þykktu pólitísku afskiptin, segi af sér, svo dómstóllinn eigi auðveldara með að ná vopnum sínum á nýj- an leik. Framhaldssaga málsins sýnir forherð- ingu klíkuveldis- manna. Helzti ráða- bruggsmaðurinn, Jón Steinar, háyfirdómari, fer með slúður um einn af dómurum Hæstaréttar, sem ekki var tilbúinn að samþykkja svarið til forseta Al- þingis og hafði auk þess leyft sér að dæma öryrkjum í vil. Og forsætisráðherrann bætti um betur hjá Agli Helgasyni og tuttl- aði við æru dómaranna. Er nú öll- um brögðum beitt til að reyna að komast úr niðurlægjandi sviðsljósi – og beina því að öðrum. Minnir þetta að sínu leyti á kennara við Lærða skólann, sem batt skærlitan klút um hattinn sinn til að beina athygli frá forugum fótum. Tjónið, sem Hæstarétti hefir verið unnið, er ef til vill óbæt- anlegt. A.m.k. mun rétturinn ekki bíða þess bætur um langa hríð. Hitt er og grafalvarlegt mál, ef æðstu menn framkvæmdavaldsins eru orðnir svo óvandir að með- ulum, sem þessi dæmi sanna. Svo er að sjá sem mönnunum sé ekki með öllu sjálfrátt. Þeir sem ráða þurfa að þola mótbyr einnig, án þess að missa stjórn á sér en beita þess í stað óyndisúrræðum og hefna þess í héraði, sem hallaðist á Alþingi. Að biðja Hæstarétt um að- stoð í pólitískri úlfakreppu er frá- leitasta uppátæki, sem um getur í íslenzkri stjórnmálasögu fyrr og síðar. Á hinn bóginn má svo sem segja að lýðræðisþjóð sitji uppi með þá ríkisstjórn sem hún á skilið, enda stjórnarumboðið frá þjóðinni runn- ið. Íslenzki kjósandinn hefir löngum þótt svifaseinn til breyt- inga, en nú hafa ríkisstjórnarflokk- arnir framið þau afglöp að ólíklega þarf um að binda. Afglöp Sverrir Hermannsson Bréfaskriftir Er nú öllum brögðum beitt, segir Sverrir Hermannsson, til að reyna að komast úr nið- urlægjandi sviðsljósi – og beina því að öðrum. Höfundur er alþingismaður og formaður Frjálslynda flokksins. ÁBYRGIR bifreiða- eigendur láta fylgjast reglulega með smurolí- unni á bifreið sinni, fara með hana í smurningu á réttum tíma og skrá í þar til gerða bók. Í bókinni er ástand bifreiðar skráð til að eftirlit verði sem nákvæmast. Eftir því sem bifreiðin er verð- mætari þeim mun ábyrgari er eigandinn hvað varðar viðhald og eftirlit. Atvinnubif- reiðastjórar eru sér- staklega ábyrgir. Þeir fara ekki einungis með bílinn í smurningu á réttum tíma, heldur bóna þeir hann reglulega svo hann ryðgi ekki, tékka á rúðupiss- inu, skipta um tímareim, bremsuk- lossa og fleira. Skiljanlega, þetta er atvinnutæki sem ekki má fara illa með. Þegar bifreiðin er farin að gefa sig þá er endurnýjað og nýr bíll keyptur. Sá bíll verður undir ná- kvæmara eftirliti og viðhaldi. Súper- gæðaolía, 97 oktan bensín eða hvað þetta nú heitir. Mengað, óhreint eldsneyti kemur ekki til greina. Aðeins það besta er nógu gott fyr- ir bílinn. Svo er það annað „tæki“ sem allir eiga, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Það sem meira er þá er ekki hægt að skipta og fá sér nýtt þegar það er farið að gefa sig. Eigandinn situr uppi með það alla ævi. Sum- ir fá upphaflega rosa- lega fínt, fullkomið og gott „tæki“, aðrir ekki eins fullkomið. En það er svo merkilegt með þetta „tæki“ að þótt eigandinn fái bara eitt tækifæri og bara þetta eina „tæki“ þá eru margir sem hugsa ekki vel um það hvað varðar viðhald og eftirlit. Þetta „tæki“ er líkaminn okkar. Skyldum við vera jafn ábyrg og nat- in við okkar eigin líkama eins og bíl- inn okkar? Þennan líkama fengum við í vöggugjöf og var okkur falið að eiga hann og passa allt okkar líf. Hvernig er með eftirlitið? Hvern- ig hugsum við um hann? Hvað lát- um við ofan í okkur, er það ómengað og hreint? Það er vinna að hugsa vel um eigin líkama. Framkvæmdin þarf ekki að vera flókin. Eftirfarandi atriði skipta máli hvað varðar „viðhald“ og „eftirlit“. Í fyrsta lagi: Hugsum um hvað við látum ofan í okkur. Við þurfum að forðast meira en sýkt nautakjöt. Fólk lætur ofan í sig alls konar rusl- fæði. Aukum neyslu grænmetis og ávaxta. Drögum úr kaffidrykkju og nofærum okkur hreina vatnið sem við eigum. Höldum okkur sem næst kjörþyngd. Offita og fylgikvillar hennar eru að verða eitt af stærstu heilbrigðisvandamálum Vestur- landabúa. Í öðru lagi: Reykleysi er það mik- ilvægasta sem hver og einn gerir fyrir sína heilsu. Gerum allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir að börnin okkar byrji að reykja. Verum þeim góð fyrirmynd og sleppum reykingum. Í þriðja lagi: Hreyfum okkur reglulega! Gangið stigana, sleppið lyftunni, gangið út í búð, hendið fjarstýringunni á sjónvarpinu og standið upp úr sófanum! Hreyfing í samtals 30 mínútur daglega skiptir máli. Í fjórða lagi: Eftirlit. Mælt er með að fólk eftir fertugt láti fylgjast með blóðþrýstingi, blóðfitu og blóð- sykri. Ef þessir þættir mælast inn- an eðlilegra marka er gott að vita af því. Öllu mikilvægara er að vita af því ef blóðþrýstingur, blóðfita eða blóðsykur mælast hækkuð. Þá er hægt að grípa inn í með viðeigandi aðgerðum eins og breyttu líferni og stundum lyfjameðferð, áður en þessir þættir ná því að valda óaft- urkræfum skaða. Hugsum jafnvel um ,,tækið“ okk- ar eins og það væri nýjasta árgerðin af Mercedes Benz. Er smurolían í lagi? Ástrós Sverrisdóttir Hjartavernd Hugsum jafnvel um ,,tækið“ okkar, segir Ástrós Sverrisdóttir, eins og það væri nýjasta árgerðin af Mercedes Benz. Höfundur er hjúkrunarfræðingur, fræðslufulltrúi Hjartaverndar. G læ si le ga r gj af av ör ur Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14 Ávaxtapressa kr. 4.600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.