Morgunblaðið - 01.02.2001, Qupperneq 46
UMRÆÐAN
MARGIR eru þeir,
sem fylgst hafa náið
með þjóðkunnum fyr-
irætlunum forsvars-
manna Svínavatns-
hrepps í Austur-Húna-
vatnssýslu um að reisa
við fyrsta tækifæri
stórhýsi – svonefnda
Svínvetningabúð – inni
á miðhálendi Íslands,
nánar tiltekið á Hvera-
völlum. Einu gildir þá,
að mati hreppsstjórn-
enda, þótt Hæstiréttur
hafi staðfest með eft-
irminnilegum hætti, að
sveitarfélagið eigi
hvorki Auðkúluheiði né
Hveravelli. Misvitur löggjafinn
hefur hins vegar mælt fyrir um, að
hreppurinn hafi engu að síður
skipulagsvald inni á reginöræfum
og í skjóli þeirra umdeildu laga
vilja ráðamenn þessarar fámennu
byggðar nú reisa mikil mannvirki
(sem vegna stærðar virðast fremur
munu hæfa þursum en mönnum)
handa hreppnum sjálfum á hinum
fornu slóðum Fjalla-Eyvindar og
um leið ryðja burt litlum en vinsæl-
um skálum Ferðafélags Íslands,
sem þar hafa lengi staðið öllum
góðum gestum (þar á meðal Svín-
vetningum) til nota.
Allar eru þessar hug-
myndir Svínvetninga
að sjálfsögðu í opinni
andstöðu við yfirlýst
álit og stefnu stjórn-
valda ferðamála og
náttúruverndarmála
og jafnframt félaga-
samtaka, sem láta sig
varða útiveru og nátt-
úruvernd, sem og
fjölmargra einstak-
linga, er beita sér
fyrir umbótum í um-
hverfismálum. Er
þetta reyndar kunn-
ara en frá þurfi að
segja og jafnframt
það andóf, byggt á fullum rökum,
er skipulagshugmyndir hrepps-
stjórnenda hafa mætt á formlegum
vettvangi, því að æðri skipulags-
yfirvöld hafa hvað eftir annað vísað
klúðurslegum tillögum þeirra heim
til föðurhúsanna í kjölfar rétt-
mætra kvartana.
Óþarfi ætti að vera að fjalla hér
um þau hrapallegu umhverfis-
spjöll, sem af þessum klúru stór-
framkvæmdum munu hljótast, svo
mjög hafa þau verið til umræðu
manna á meðal um langan tíma
meðan beðið hefur verið eftir
„stóradómi“ í þessu dapurlega
skipulagsmáli.
Nú hillir hins vegar undir þann
langþráða árangur Svínvetninga,
að tillögur þeirra að skipulagi á
Hveravöllum hljóti, að loknu marg-
víslegu kæruferli, endanlegt sam-
þykki þar til bærra yfirvalda, er
starfa á landsvísu, enda verður
vart lengur varist ofurvaldi hinna
stórgölluðu laga, sem skiptu há-
lendinu upp í tugi furðulegra
skækla, hvað skipulagsstarf varð-
ar. Virðist þá blasa við, að nú muni
stjórnarherrar í hreppnum senn
láta kné fylgja kviði og hefja stór-
framkvæmdir sínar í hjarta öræf-
anna eftir að hafa áður rifið hina
látlausu ferðamannaskála, sem þar
eru fyrir. Vart ætti að skorta fé til
framkvæmdanna, því að svokallað-
ar „Blöndubætur“, sem lengi hafa
legið lítt notaðar á sparisjóðsbók-
um, verða nú loksins nýttar sem
byggingarfé. Fari svo sem nú horf-
ir hafa umhverfisverndarmenn, um
allt land, beðið nokkurn ósigur í
baráttu sinni við meingerðarmenn
gegn lítt snortinni náttúru hálend-
isins, því að þar með hefur bersýni-
lega einnig verið opnuð leið fyrir
jarðvöðla, sem spilla vilja öðrum
öræfasvæðum í hinum og þessum
tilgangi, án þess að mannvit eða
Auðkúlufjandinn
Páll
Sigurðsson
ÞEGAR gestir koma til
Reykjavíkur reka þeir
fljótlega augun í dimmt og
drungalegt hús, Náttúru-
vísindahúsið, sem stendur
hálfkarað í boga utan um
hið fagra og stílhreina
Norræna hús Alvars Aal-
tos í Vatnsmýrinni.
Ástæðan fyrir því að Nátt-
úruvísindahúsinu er ólokið
er að nær allt fjármagn
sem Háskóli Íslands hefur
til húsbygginga kemur frá
Happdrætti Háskólans.
Það mun vera einsdæmi í
heiminum. Erlendir há-
skólar fá stundum aukafé
úr happdrættum, en yfir-
leitt kemur fjármagn til húsbygginga
háskóla beint frá ríkinu, og auk þess
eru byggingarnar styrktar með gjöf-
um frá fyrirtækjum og einkaaðilum. Í
Kaliforníu, þar sem ég þekki best til
mála, er byggingarféð lagt í sjóð og
síðan hafist handa við bygginguna
þegar allar framkvæmdir hafa verið
rækilega undirbúnar. Eins og nærri
má geta eru húsbyggingar við Kali-
forníuháskóla óstöðvandi eftir að þær
hefjast. Byggingarnar eru tilbúnar á
réttum tíma og þær þurfa aldrei að
standa, hálfkláraðar, opnar fyrir
veðri og vindum, eða ónotaðar eins og
Náttúruvísindahúsið í Vatnsmýrinni.
En af hverju er mikilvægt að ljúka
Náttúruvísindahúsinu tímanlega? Nú
á dögum á mesta verðmætasköpunin
sér yfirleitt stað í hátækniiðnaði. En
hátækniiðnaður verður ekki til á einni
nóttu. Þróun og undirbúningur hans
krefst áratuga grunnrannsókna sem
eiga sér stað innan háskóla. Nýja
tækni er aðeins hægt að byggja á víð-
um þekkingargrunni sem verður til í
óheftum grunnrannsóknum í háskól-
um. Einnig sjá háskólarnir um að
mennta nægjanlegan fjölda fólks í
þessum grunnrannsóknum til þess að
skortur á menntuðu vinnuafli standi
ekki nýjum hátæknifyrirtækjum fyr-
ir þrifum. Öflugur hátækniiðnaður
skapar síðan verðmæti, sem nýtast
samfélaginu í heild. Hátæknifyrir-
tækin greiða starfsmönnum sínum
góð laun og fjárfesta í auknum vexti
fyrirtækisins eða í nýjum fyrirtækj-
um á svipuðu sviði. Endanlega hagn-
ast samfélagið og aðrir launþegar á
þessu, vegna aukinna skatta sem fyr-
irtækin og starfsmenn þeirra greiða.
Gott dæmi um efna-
hagsleg áhrif há-
tækninnar er hug-
búnaðariðnaðurinn í
Bandaríkjunum.
Nú um aldamótin
var vöxtur fyrir-
tækja í Bandaríkjun-
um sem tengdist þró-
un netsins svo mikill
að hann stóð að
stórum hluta undir
hagvextinum í
Bandaríkjunum. Ef
hátækniiðnaður nær
að vaxa á Íslandi þá
mun hann hafa miklu
meiri áhrif á lífskjör-
in en framfarir í fisk-
iðnaði, við vatnsvirkjanir og í stóriðju.
Framleiðslan er einfaldlega miklu
verðmætari, störfin mörgum sinnum
fleiri og launin hærri. En það skiptir
höfuðmáli að ráðamenn hafi framsýni
til að leggja grunninn að rannsóknum
og skapa iðnaðinum rétt vaxtarskil-
yrði.
Ráðamenn í Kaliforníu eru allir
sammála um eflingu Kaliforníuhá-
skóla hvar í flokki sem þeir standa.
Íbúar ríkisins og ráðamenn eru sér
mjög meðvitandi um að grunnrann-
sóknirnar í háskólunum lögðu grunn-
inn að hugbúnaðar-, smára- og líf-
tækniðnaðinum, sem velmegun
ríkisins byggist á. Þessi tækni hefur
líka nýst skemmtiiðnaðinum í Holly-
wood. Það er tekjuafgangur í ríkisbú-
skapnum í Kaliforníu og nú ætlar
stjórn Kaliforníu að leggja stórfé í
grunnrannsóknir í nanótækni sem
sameinar ofangreindar iðngreinar.
Allar líkur benda til þess að líf-
tækniiðnaðurinn á Íslandi geti vaxið á
svipaðan hátt og hugbúnaðariðnaður-
inn í Bandaríkjunum, á næstu tveim
áratugum. Íslendingar eru að mörgu
leyti vel undir það búnir að þróa öfl-
uga líftækni en þá skortir meiri
grunnrannsóknir og meira menntað
vinnuafl. Það þarf því að efla grunn-
rannsóknirnar og stórauka fjölda
menntaðs fólks, en það gerist ekki
fyrr en byggingu Náttúruvísinda-
hússins í Vatnsmýrinni er lokið og
það getur hafið starfsemi sína af full-
um krafti. Hver dagur sem það stend-
ur ófullbúið er dagur glataðra tæki-
færa og glataðra tekna.
Það er núna tekjuafgangur í rík-
isbúskapnum á Íslandi alveg eins og
ríkisbúskapnum í Kaliforníu. Ríkis-
stjórn Íslands mundi gera framtíð
þjóðarinnar mikinn greiða ef hún
verði hluta af tekjuafganginum til
þess að hjálpa háskólanum til þess að
ljúka Náttúruvísindahúsinu í Vatns-
mýrinni. Ég skora því á ríkisstjórn
Íslands og borgaryfirvöld í Reykjavík
að veita byggingu Náttúruvísinda-
hússins algjöran forgang og vekja
það til lífsins.
Ef allt fer að óskum mun Náttúru-
vísindahúsið ekki aðeins nýtast líf-
tækniiðnaði á Íslandi, heldur líka líf-
tækni í Kaliforníu sem væntanlega
skilar sér aftur til Íslands. Nýlega
undirrituðu Henry Yang, kanslari
Kaliforníuháskóla í Santa Barbara,
og Páll Skúlason, rektor Háskóla Ís-
lands, samstarfssamning milli há-
skólanna. Samningurinn hljóðar upp
á að nemendur og kennarar skólanna
geti farið á milli þeirra og stundað
nám og rannsóknir sem eru að fullu
viðurkenndar af skólunum báðum. Til
dæmis geta nemendur við Háskóla
Íslands farið til Kaliforníu, tekið þar
námskeið sem ekki eru boðin við Há-
skóla Íslands og fengið þau viður-
kennd til þess að útskrifast frá Há-
skóla Íslands. Svipað á við um
kaliforníska nemendur sem geta
komið til Íslands og tekið námskeið
sem ekki er boðið upp á í Kaliforníu.
Kalifornískir nemendur hafa sýnt
sérstakan áhuga á jarðfræði og líf-
fræði Íslands, en þessar greinar á
einmitt að kenna í Náttúruvísinda-
húsinu.
Náttúruvísindahúsið
í Vatnsmýrinni
Björn
Birnir
Höfundur er prófessor í stærðfræði
við Kaliforníuháskóla í Santa
Barbara og stjórnandi rannsóknar-
stöðvar í ólínulegum vísindum.
Háskólinn
Ég skora á ríkisstjórn
Íslands og borgar-
yfirvöld í Reykjavík,
segir Björn Birnir, að
veita byggingu
Náttúruvísindahússins
algjöran forgang.
46 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ