Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 47
prúðmennska þurfi þar endilega að
koma við sögu. Sannarlega eru
Hveravellir ekki einir í húfi, sé til
lengri tíma litið, enda þótt vanda-
málið birtist nú einkar skýrlega
þar.
Utan marka Svínavatnshrepps
er almennt sammæli meðal manna
um það, að hvað sem öðru líður
muni óhjákvæmilega frá upphafi
verða mikið fjárhagslegt tap á
stórþjónustunni í Svínvetningabúð,
og liggja til þess óhrekjanleg rök. Í
því sambandi er rétt að minna á þá
staðreynd, að enn hefur Svínvetn-
ingum ekki tekist að fá neinn
rekstraraðila á landi hér til að deila
með þeim fyrsta gjaldþroti hinnar
tröllslegu öræfasjoppu, þótt eftir
því hafi vissulega verið leitað.
Þessar drungalegu og jafnframt
háskalegu hugmyndir um bygg-
ingu Svínvetningabúðar á Hvera-
völlum má, að því er best verður
séð, rekja til svo furðulegra og
áberandi, en um leið afmarkaðra,
truflana á dómgreind og skertrar
ályktunarhæfni þeirra, sem með
völdin fara í þessu fámenna en
volduga sveitarfélagi – þar sem svo
margt ágætismanna og jafnvel af-
reksmanna hefur búið fyrr og síðar
– að kalla hlýtur á sérstaka leit að
skýringu. Hefur þá m.a. komið
fram sú kenning, sem sumir telja
sennilegasta, að hér sé um að ræða
eins konar reimleika í sálarlífi
ráðamannanna, sem lengst af hafa
að öðru leyti verið kunnir af góðum
gáfum, drengskap, ráðvendni og
siðprýði, og að rammur og andfúll
draugur (fremur en loftandi) hafi,
a.m.k. um stundar sakir, læst kjúk-
um sínum af fítonsafli og með
hrottagalsa um þá anga vitsmuna-
lífs þeirra, sem helst ættu að tengj-
ast umhverfismálum. Og hver er þá
þessi afvegaleidda eilífðarvera, er
ókyrrðinni og skaðanum veldur? –
kynnu sumir að spyrja. Því verður
ekki svarað með neinum vísinda-
legum rökum, miðað við núverandi
stig þekkingar á yfirskilvitlegum
fyrirbærum, en böndin berast þó
óneitanlega að hinum svokallaða
„Auðkúlufjanda“, sem fyrir nokkr-
um misserum olli stórtjóni á sam-
nefndum bæ (fornfrægum kirkju-
stað) þar í sveit. Þá meiddi fjandi
sá og aflífaði fjölmarga sundmerði,
sem aldir voru þar á bænum, með
hroðalegum hætti og af fullkomnu
virðingarleysi við dýraverndunar-
löggjöfina. Er það mál enn mörg-
um í fersku minni úr líflegri fjöl-
miðlaumfjöllun á þeim tíma. Svo
má virðast, þó að leitt sé til frá-
sagnar, að ekki hafi tekist að kveða
fjanda þennan niður, þótt ýmissa
ráða muni hafa verið leitað, og er
ástæða til að ætla að hann flökti
enn um byggðina og valdi usla þar
sem síst skyldi – þ.e. í sálarlífi
hreppsstjórnenda. Skal hér, úr því
sem komið er, fremur mælt með
mildum fyrirbænum til lækningar
heldur en harðorðum særingum, ef
takast mætti að beina vominum á
vegi ljóssins með mætti bænarinn-
ar. Dugi það ekki er hins vegar
hætt við því, að þegar á næsta
sumri verði framin mikil umhverf-
isspjöll á Hveravöllum, sem vel er
hugsanlegt að rekja megi til þeirra
firna, sem hér voru nefnd. Enn
leyfa umhverfisverndarmenn sér
þó að vona, að handhafar ríkisvalds
– sem æðstu verðir lands í al-
mannaeign – veiti þrátt fyrir allt
ekki byggingarleyfi af hálfu land-
eiganda til þessara framkvæmda á
Hveravöllum, enda þótt svæðið
hafi nú verið skipulagt. Fari hins
vegar svo, að Svínvetningabúð hin
mikla rísi þar senn, verður hún í
sumra augum ekki einvörðungu
minningarmark um heiti hrepps-
félags, er brátt mun hverfa af
landabréfinu við löngu tímabæra
sameiningu sveitarfélaga, heldur
einnig – og ekki síður – minnis-
merki um sjálfan Auðkúlufjand-
ann.
Umhverfismál
Nú hillir undir þann
langþráða árangur
Svínvetninga, segir Páll
Sigurðsson, að tillögur
þeirra að skipulagi á
Hveravöllum hljóti end-
anlegt samþykki.
Höfundur er prófessor í lögfræði við
Háskóla Íslands.
Bæjarlind 6, sími 554 6300
www.mira.is
ÚTSÖLUNNI
FER AÐ LJÚKA
ENN MEIRI
AFSLÁTTUR
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16,
sunnudaga kl. 13-16
®
AB-SHAPER
T A K T U Á M E Ð
AB-SHAPER er frábær magaþjálfi, gefur
árangur fljótt. Styrkir kviðvöðvana.
á ótrúlega stuttum tíma
Kennslumyndband
fylgir
13
æ
fin
gam
öguleikar
Fyrirferðarlítill
K
O
R
T
E
R
POWER A.
FOR EYES
FYRSTA RETINOL
KREMIÐ FYRIR
AUGNSVÆÐIÐ
MEÐ STÖÐUGRI DREIFINGU
DREGUR ÚR HRUKKUM
Á ÁHRIFARÍKAN HÁTT
HÁMARKS VIRKNI OG ÞOLGÆÐI
Eftir 4 vikur hefur greinilega
dregið úr hrukkum og
ójöfnum litarhætti.
fimmtudag, föstudag
og laugardag
Laugavegi 23, s. 511 4533
föstudag og laugardag
Boðið er upp á förðun í Hygea Kringlunni í dag.
Hægt er að panta tíma.
HELENA RUBINSTEIN
Veglegir kaupaukar
Kringlunni, s. 533 4533