Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 54
MINNINGAR
54 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Ingólfur H.H.Isebarn fæddist í
Bergen í Noregi 14.
október 1915. Hann
lést á Landspítalan-
um í Fossvogi 25.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Hans Isebarn
kaupsýslumaður, f.
12.5. 1894, og Sigur-
veig Sveinsdóttir
matreiðslukona, f.
10.1. 1887, d. 21.3.
1972. Systkini Ing-
ólfs eru: Baldur Jo-
hnsen læknir, f.
22.10. 1910, sem er hálfbróðir
hans; Clara Isebarn afgr.st., f.
26.2. 1914, d. 29.10. 1987; Júlíana
Isebarn húsmóðir, f. 20.1. 1917.
Önnur hálfsystkini hans eru: Bryn-
dís Björnsdóttir sjúkraliði, f. 10.3.
1924; Sveinn Björnsson listm. og
lögregluþjónn, f. 19.2. 1925, d.
28.4. 1997, Sæmundur Björnsson
þeirra eru: Sigfús Reynir, Sigrún
Ósk, Hermann, Jón Björgvin og
Dagbjört Heiða. 3) Ingvar Isebarn
múrarameistari, f. 1.10. 1946. Eig-
inkona hans er Sigurlaug Árna-
dóttir bréfberi. Börn þeirra eru
Guðrún Ósk, Ingvar Árni og
Sunna Karen. 4) Sveinn B. Isebarn
bifreiðastjóri, f. 12.8. 1949. Eigin-
kona hans er Ingibjörg Lovísa
Magnúsdóttir fulltrúi. Dætur
þeirra heita Jórunn Lovísa, Bergl-
ind Lovísa og Sólrún Lovísa. 5)
Hans Óskar Isebarn múrarameist-
ari, f. 12.5. 1951. Eiginkona hans
er Katrín Guðmundsdóttir. Þau
eiga börnin Kjartan og Klöru. Fyr-
ir á Katrín dótturina Dagmar.
6) Sigurveig Erna Ingólfsdóttir
hjúkrunarfræðingur, f. 10.1. 1954.
Fyrri eiginmaður hennar er Bjarni
Kristinsson jarðfr. Börn þeirra eru
Áslaug Sóley, Kristinn og Bergdís.
Sambýlismaður Ernu er Bolli
Kjartansson viðsk.fr., fyrir á Bolli
synina Ásgeir og Kjartan. Barna-
börn Ingólfs og Guðrúnar Óskar
eru orðin 17. Ingólfur rak bygg-
ingarfyrirtæki í Reykjavík.
Útför Ingólfs verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
flugumsjónarmaður,
f. 31.10. 1926; Elín
Björnsdóttir vefari, f.
24.7. 1928, og Knútur
Björnsson læknir, f.
1.5. 1930.
Eftirlifandi eigin-
kona Ingólfs er Guð-
rún Ósk Sigurjóns-
dóttir, húsmóðir, f.
23.11. 1920. Þau
gengu í hjónaband
17.10. 1942. Börn
þeirra eru: 1) Örn Ise-
barn húsasmiður, f.
24.6. 1940. Fyrri eig-
inkona hans er Margr-
ét Eiríksdóttir húsmóðir. Börn
þeirra eru: Eiríkur, Ingólfur, Örn,
Sveinn, Hekla og Kristín. Sam-
býliskona Arnar er Hrönn Hauks-
dóttir sölumaður. Þau eiga soninn
Hauk. Fyrir á Hrönn soninn Hlyn.
2) Hermann Isebarn tæknifræð-
ingur, f. 5.2. 1944. Eiginkona hans
er Ólafía K. Jónsdóttir ritari. Börn
Hinn 25. janúar síðastliðinn lést
faðir minn, Ingólfur H.H. Isebarn,
85 ára gamall.
Hjá honum vann ég sem ungur
maður. Ég man eftir því þegar
pabbi var að byggja Háaleitisbraut
38, 40 og 42 að við bræðurnir (Her-
mann, Ingvar og ég sem var aðeins
11 ára) fórum í verkfall. Hermann
og Ingvar sáu um að handlanga
fyrir fjóra múrara en ég sá um að
hreinsa til á byggingarstað. Öll
vinna lagðist niður múrararnir
biðu á vinnupöllunum eftir að
samningar næðust. Pabbi samdi
við Hermann og Ingvar um 30%
launahækkun. Þá ætluðu allir að
fara að vinna þó að eftir væri að
semja við mig. Ég kallaði því upp
með grátstafinn í kverkunum:
„Það má enginn byrja að vinna
fyrr en búið er að semja við mig.“
Hvaða kröfur gerir þú, Hans?“
spurði pabbi. „Ég vil fá helmingi
hærra kaup en ég hef haft.“ Um
það var samið og allir byrjuðu að
vinna.
Oft var ég kylfusveinn fyrir
pabba og hann kenndi mér golf.
Oft var það skemmtilegt, sérstak-
lega ef honum gekk vel. Hann varð
meistari GR þrisvar sinnum og
fleiri sigra vann hann, einnig í öðr-
um íþróttagreinum. Hann var lið-
tækur í fótbolta, lék með Víkingi,
einnig varð hann Íslandsmeistari í
bridge 1949 og lék með landsliðinu
í bridge á Norðurlandamóti 1951.
Mér er minnisstætt þegar Golf-
klúbbur Reykjavíkur flutti úr
Öskjuhlíðinni upp í Grafarholt. Það
var mikið stökk fyrir GR að byggja
18 holu golfvöll og nýjan golfskála.
Landið var mjög erfitt til rækt-
unar og peningarnir sem fengust
fyrir gamla völlinn og golfskálann
hurfu fljótt í verðbólgu og fram-
kvæmdir. Frá 1958 til 1978 (en þá
held ég að hafi verið haldið Evr-
ópumót unglinga á vellinum) unnu
margir mjög mikið starf í sjálf-
boðavinnu, bæði við fjáröflun og
framkvæmdir, m.a. vann pabbi
töluvert. Hann var í stjórn u.þ.b.
frá 1960 til 1966, og var m.a. for-
maður húsbyggingarnefndar og
kappleikjanefndar. Hann átti smá-
hlut í ásamt fjölda annarra að
þetta 20 ára stríð vannst svona
glæsilega.
Landsmótin í golfi voru töluvert
öðruvísi áður fyrr en nú. Lands-
mótið 1964 var haldið í Vestmanna-
eyjum. Á þeim tíma þekktust svo
til allir kylfingar landsins, golf-
klúbbar voru á Akureyri, í Vest-
mannaeyjum og í Reykjavík. Menn
komu á landsmót, reyndu með sér
og héldu hátíð í eina viku einu
sinni á ári. Margir skemmtilegir
karakterar voru þar mættir, menn
voru nátengdari í Vestmannaeyj-
um en annars staðar. Við pabbi
spiluðum báðir illa, en það var
gaman að fylgjast með Magnúsi
Guðmundssyni spila 10 höggum
undir pari að því er mig minnir, 72
holur. 270 högg sem er líklega met.
Kveð ég nú föður minn með ást
og virðingu.
Hans Óskar.
Elsku afi, takk fyrir allar góðu
stundirnar. Við munum alltaf
minnast stærðfræðiþrautanna sem
þú lagðir fyrir okkur og golf-
kennslunnar á teppinu heima í Bú-
landi.
Send mér eld í anda
eilífðar úr heimi,
Drottinn. Lífs af lindum
ljós þitt til mín streymi.
Grafist gamlar sorgir.
Gleymist dagsins mæða.
Sé mín þrá og sigur
sókn til þinna hæða.
Kom þú, Kristur hæða,
kom í dýrð og veldi.
Hjarta heimsins skírðu
himnakrafti og eldi.
Boðskapur þinn breiðir
blessun löndin yfir.
Þúsundfaldar þakkir
þér, sem í oss lifir.
(E.M. Jónsson.)
Elsku amma, guð verndi þig,
blessi og styrki.
Áslaug Sóley, Kristinn
og Bergdís.
Okkur systrunum er ljúft að
minnast afa okkar. Margar góðar
stundir höfum við átt í Búlandinu
heima hjá þér og ömmu. Sérstak-
lega er okkur minnistætt þegar við
púttuðum á stofugólfinu og þú leið-
beindir okkur. Með þessari bæn
kveðjum við þig hinstu kveðju.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar sofna fer
sitji guðs englar yfir mér.
(H. Pét.)
Elsku amma, pabbi og ástvinir,
megi guð styrkja ykkur á þessum
erfiða tíma.
Jórunn, Berglind og
Sólrún Sveinsdætur.
INGÓLFUR
ISEBARN
! "
#
$
$%%&
!" # "$"%# &
'" !" #
" !" # "(&(
) * !" # "(+!(
'#!'
'
#
,
-.// ( )
)
"
) *
%
$+&&
,-
!
! +) $ #
*
0-120-0
% " 3
&4&
( ! . /# "
0 & '
!""0
4
,
)0
5
)4 " 67
&"
"
1-
!
$%%&
0
!4$" !" #
!! .
"0! #
#!'
'
0
& 5 $4$
0 5 ! 3
&4&
"
,"
!
$&&
2*
3
3
"
"
4
(
!4"
!"
" # !4"
"( !
+!8
# ! "!
!$+ #"
9 !4$"
#
'
# *
*
*
+
:/;0<-.//)
0
=(&"
#
'"$3>
&4&
( . /#
5
!
"
$%%&
2* "
3
3
"
4
(
$$ . /#
?' #
!4
1 '% # !") $
!* @ A8"%9 #
!* 0 4&
+ 4 !4 14'
1# $ #
"1 ' @ 1 '
?'A8" #
B/0@9
?"= 46C
&4&
"4"/ $
=' #
% ' #
"' #