Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 62

Morgunblaðið - 01.02.2001, Síða 62
62 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ                          ! "  #     BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. EINS OG aðrir í íslensku þjóðfélagi hef ég undanfarnar vikur fylgst með öryrkjamálinu svokallaða. Ekki síst þar sem málið snertir mig alltof vel persónulega. Ég ætla ekki að tjá mig neitt frekar um mínar persónu- legu aðstæður enda virðist kaldur raunveruleiki alltof margra þegna þessa þjóðfélags ekki ná að brjóta sér leið gegnum hjörtu úr steini. Ég vil aðeins koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra fjölmörgu manna og kvenna, sem staðið hafa í eldlínunni og miðri orrahríðinni allri undanfarið og hafa þurft að standa undir hroka og fúkyrðum sem gjör- samlega hafa gengið fram af mér. Garðar Sverrisson, Helgi Seljan og fleiri aðilar innan Öryrkjabanda- lagsins eiga alla mína aðdáun og virðingu. Ég hef af eigin reynslu fengið að sjá að þar fara menn sem hafa til að bera einstaka mann- gæsku og samhygð með fólki sem daglega þarf að takast á erfiðleika, sem eru þeim sem ekki þekkja af eigin raun með öllu óskiljanlegir. Ég hef ekki aðeins fylgst með um- ræðum síðustu vikur í gegnum frétt- ir sjónvarps og útvarps eða með lestri dagblaða, heldur einnig með því að fylgjast beint með ræðuhöld- um frá Alþingi. Þetta hefur gert mér kleift að sjá óklipptar útgáfur af því orðaskaki sem fram hefur farið undanfarið á hinu „háæruverðuga“ Alþingi. Orðum stjórnarþingmanna um ómálefnalega umræðu og gíf- uryrði stjórnarandstöðunnar get ég því með góðri samvisku vísað til föð- urhúsanna. Framkoma þingmanna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hefur mér blöskrað fullkomlega, svo ég stilli mig og noti „pen“ orð. Menn eins og Steingrímur J. Sigfússon, Össur Skarphéðinsson og Ögmund- ur Jónasson sýndu mér aftur á móti með málflutningi sínum að þar fara menn sem hafa til að bera mikinn skilning á kjörum þeirra sem minnst mega sín í þessu þjóðfélagi okkar. Forystumenn Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks, sem fyrir síðustu kosningar töldu landsmönnum trú um að fjölskyldan yrði í fyrirrúmi, að ógleymdum málefnum öryrkja, og sem nú hrósa sigri hafa aftur á móti heldur betur verið að sýna kjósendum sitt rétta andlit undan- farið. Við kjósendur getur ekki leng- ur velkst í vafa um hvað þeir í raun áttu við með innantómum kosninga- loforðum sínum. Síðast en ekki síst vil ég nefna Ástu Ragnheiði Jóhann- esdóttur en þar eiga öryrkjar og aðrir þeir, sem á einhvern hátt eiga undir högg að sækja, sér dyggan stuðningsmann. Ásta Ragnheiður hefur mörgum öðrum þingmönnum fremur þurft að þola algjörlega ólýð- andi skítkast frá samstarfsmönnum sínum. Fyrir Ástu Ragnheiði ber ég ómælda virðingu. Ég dáist að þing- mönnum stjórnarandstöðunnar fyrir störf sín undanfarið þó að ég sé ekki alltaf sammála þeim í pólitík. Við forsætisráðherra, aðra ráðherra ís- lensku ríkisstjórnarinnar og þá þingmenn sem studdu nýsett lög, og vil ég þá sérstaklega og ekki að til- efnislausu nefna Pétur Blöndal, hef ég aðeins þetta að segja: Mér flökr- ar við ykkur. GERÐUR HARÐARDÓTTIR, Skarphéðinsgötu 12, Reykjavík. Þakkir til fólksins í eldlínunni Frá Gerði Harðardóttur: EINS og ykkur öllum er að sjálf- sögðu kunnugt hafa möguleikar til gistingar og veitingasölu á Blönduósi farið mjög minnkandi á undanförnum misserum, eftir að Hótel Blönduós nánast hætti sinni starfsemi. Nú er svo komið að vandamál skap- ast þegar aðkomufólk þarf að dveljast hér, t.d. vegna funda og námskeiða- halda, hvað þá að hinn almenni ferða- maður geti talið mögulegt að stoppa hér þótt hann hefði löngun til. Ég tel að staðan í þessum málum sé orðin það alvarleg að bæjarstjórn Blönduóss verði að bregðast við og það strax. Til að opna umræðuna geri ég eftirfarandi að tillögu minni. Bæjarráð haldi fund með stjórn Félagsheimilisins ehf. og kanni við- horf hennar til að setja á fót starfshóp sem fengi það verkefni að kanna alla möguleika á að fá fjármuni og sam- starfsaðila til að byggja ca. 50 her- bergja hótel við Félagsheimilið á Blönduósi, en nýta að sjálfsögðu danssal, eldhús og skjól við hótel- reksturinn, en skerða á engan hátt núverandi leikhúsaðstöðu í bíósaln- um. Vinnu þessari verði hraðað eftir því sem nokkur kostur er. Eins og málefni Hótels Blönduóss hafa þróast er það skoðun mín að stjórn Byggðastofnunar sé annað- hvort markvisst eða með röð tilviljana búin að koma málefnum hótelsins í þá stöðu, að það sé að verða nánast úti- lokað að það verði rekstrarhæft aftur, í tví- eða þrígang hefur hótelið verið afhent aðilum sem ekki virðast hafa haft það sem hagsmunamál að halda rekstri þess gangandi. Ég tel að Byggðastofnun, sem langstærsti kröfueigandinn, hefði getað stýrt málinu heimamönnum í vil ef áhugi hefði verið fyrir hendi. Þeim var ljós áhugi heimamanna, t.d. eigenda Glað- heima, á að semja um kaup á hótelinu. Einnig finnst mér athugandi fyrir Blönduóssbæ að kanna möguleika á samstarfi við menntamálaráðuneytið hvort menningarhús sé ekki betur staðsett á Blönduósi heldur en í jað- arbyggð í nýju kjördæmi. Ágæti bæjarfulltrúi, látum ekki ut- anaðkomandi aðila ræna frá okkur tækifærunum, snúum vörn í sókn og sýnum samstöðu. VALDIMAR GUÐMANNSSON, Hlíðarbraut 1, Blönduósi. 50 herbergja hótel Frá Valdimar Guðmannssyni: Opið bréf til bæj- arráðs Blönduóss

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.