Morgunblaðið - 01.02.2001, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 65
DAGBÓK
Við myndum líka Nörda
Gerðu verðsamanburð. Hjá okkur eru allar
myndirnar sem þú færð í myndatökunni, stækkaðar
og fullunnar. Innifalið í myndatökunni:
12 stækkanir 13x18 cm, 2 stækkanir 20x25 cm
og ein stækkun 30x40 cm í ramma.
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020
Við erum F.Í.F.L.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert útsjónarsamur og
lætur einskis ófreistað til
þess að ná þínu fram en gæt-
ir þess þó alltaf að vera inn-
an settra marka.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þótt þig langi mest til þess að
herða á hlutunum skaltu láta
það ógert og gefa þeim þess í
stað tíma til þess að ganga yfir
með eðlilegum hætti.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að leggja sérstaklega
hart að þér til þess að hreyfa
við þeim málum sem þú berð
fyrir brjósti. Sparaðu þig
hvergi því aðeins þannig
nærðu árangri.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Árangur er það sem allir horfa
til en sumir leggja minna upp
úr því hvernig hann næst. Þú
skalt samt ekki falla í slíka
gryfju því óvönduð meðul
munu koma þér í koll.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú kannt svo sannarlega að
eiga góða stund og mátt ekki
láta nokkurn hlut koma í veg
fyrir að þú getir fagnað þeim
árangri sem þú hefur náð.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Stundum erum við ósköp varn-
arlaus gagnvart umheiminum
en þá er björgin fólgin í því að
finna sér haldreipi í sínum
innri manni. Þessvegna er mik-
ilvægt að rækta hug sinn og
hjarta.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hafðu augun hjá þér því það er
aldrei að vita hvenær hentugt
tækifæri kemur upp í hendurn-
ar á þér en bráðnauðsynlegt að
þú sért þá viðbúinn til athafna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er engin skömm að því að
leita sér aðstoðar þegar verk-
efnið er margþætt og flókið.
Vertu því ekkert að baksa einn
í þessu heldur hafðu strax
samband við sérfræðinga.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Fátt er eins gefandi og að sjá
athafnir sínar leiða til já-
kvæðra breytinga. Nýttu hæfi-
leika þína til slíkra verka og þá
mun þér vel farnast.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Miklu skiptir að þú sért sáttur
við framgang þinn og þurfir
ekki að burðast með einhverja
sektartilfinningu gagnvart
mönnum og málefnum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu það eftir þér að taka ást-
fóstri við einhvern eða eitthvað
því sá sem aldrei upplifir þá til-
finningu fer mikils á mis í þess-
um heimi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það hefnir sín oft illa að reyna
að komast hjá því að vinna
nauðsynlega undirbúnings-
vinnu áður en farið er út í viða-
mikil verkefni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú virðist sigla lygnan sjó
þessa dagana og er sjálfsagt að
þú njótir þess. Láttu bara ekki
andvaraleysið ná tökum á þér
því skjótt geta veður skipast í
lofti.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MATTHEW Granovetter er
atorkusamur bridshöfund-
ur. Hann hefur skrifað
margar bækur, gefur út
tímaritið Bridge Today og
skrifar auks þess greinar í
ýmis tímarit. Á Netinu er
hann með þátt á vegum OK-
bridge og þar gerir hann að
umtalsefni spil úr úrslitaleik
Ítala og Pólverja á ÓL í Ma-
astricht í haust. Granovetter
kallar það „vellíðunarspil“
fyrir hinn „almenna spil-
ara“, því það sýnir og sannar
að jafnvel þeir bestu gera
sig seka um klaufaleg mis-
tök:
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ Á
♥ ÁKDG6
♦ Á1054
♣ G74
Vestur Austur
♠ 8543 ♠ K92
♥ 1084 ♥ 9753
♦ D73 ♦ G8
♣Á96 ♣KD83
Suður
♠ DG1076
♥ 2
♦ K962
♣1052
Vestur Norður Austur Suður
– 1 lauf Pass 1 tígull
Pass 1 hjarta Pass 1 spaði
Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar
Pass 2 grönd Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Þetta eru sagnir Pólverja í
NS: fyrst sterkt lauf, svo af-
melding, síðan tvær bið-
sagnir og loks taka við eðli-
legar sagnir sem enda í
þremur gröndum. Ítalinn í
austur kom út með hátt lauf
og spilaði aftur laufi á ás
makkers. Þriðja laufið kom
til austurs og „nú fóru
merkilegir hlutir að gerast“,
segir Granovetter.
„Þú, ég og amma hefðum
tekið fjórða laufið, en Ítalinn
í austur var hræddur um að
þrengja um of að makker og
þar sem hann bjóst við að fá
slag á spaðakóng ákvað
hann að bíða með laufið og
spila hlutlaust hjarta. Sagn-
hafi átti þann slag og dúkk-
aði síðan tígul yfir til vest-
urs. Og fékk níu slagi!“
Spilið var ekki síður klúð-
urslegt á hinu borðinu. Þar
var suður sagnhafi í þremur
gröndum eftir að NS höfðu
sagt alla liti nema lauf. Vest-
ur ákvað að koma út með
laufníuna, en þeirra stíll er
að spila öðru, fjórða og
sjötta hæsta frá lengd. Aust-
ur mislas útspilið hins vegar
og lét lítið lauf í fyrsta slag-
inn!? Og þá var vandalaust
fyrir sagnhafa að taka níu
slagi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 1.
febrúar, verður sextugur
Finnbogi S. Jakobssson,
Holtastíg 20, Bolungarvík.
Eiginkona hans er Erna
Hávarðardóttir. Þau verða
með opið hús og taka á móti
gestum í Víkurbæ, Bolung-
arvík föstudaginn 2. febrúar
kl. 19–22.
50 ÁRA AFMÆLI.Fimmtugur er í dag,
fimmtudaginn 1. febrúar,
Halldór Ólafsson verk-
stjóri, Laufskógum 8,
Hveragerði. Halldór tekur á
móti ættingjum og vinum í
veitingahúsinu Básnum í
Efstalandi, Ölfusi, sunnu-
daginn 4. febrúar nk. kl. 17.
torskildar en hann hafði
svart gegn Loek Van Wely
(2700). 15...Re5! 16. Rxf5
Hugmynd svarts eftir 16.
Rxg2 var að máta hvítan
með 16...Rf3+ 17.
Ke2 Bd3+! 18. Kxf3
Dh3+ og ekkert get-
ur forðað hvíta
kóngnum frá því að
vera feigur eftir tvo
leiki. 16...Rd3+! 17.
Kf1 Hxf2+ 18. Kg1
Kb8! 19. De6 19. Be6
gekk ekki upp sökum
19...Dc6 og svartur
vinnur. 19...Hxf5 20.
h4 Bd6 21. Hf1 Hg8+!
Og hvítur gafst upp
enda verður hann mát
eftir 22. Bxg8 Dg7#.
Þessi fjöruga skák
tefldist svona í heild sinni: 1.
d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.
Rc3 dxc4 5. a4 c5 6. d5 Bf5 7.
e3 e6 8. Bxc4 exd5 9. Rxd5
Rc6 10. Db3 Dd7 11. Rxf6+
gxf6 12. Bd2 Hg8 13. Bc3 O-
O-O 14. Bxf7 Hxg2 15. Rh4
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
STAÐAN kom upp á Corus-
ofurskákmótinu í Wijk aan
Zee sem lauk nýlega. Rúss-
inn Alexander Morozevich
(2745) þykir með frumlegri
skákmönnum í bransanum
og eru skákir hans einatt
DEMANTSBRÚÐKAUP. Í dag fimmtudaginn 1. febrúar
eiga 60 ára hjúskaparafmæli hjónin Svanfríður Þorkels-
dóttir og Eyjólfur Gumundsson, Hvassaleiti 58, Reykja-
vík.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira
lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
KIRKJUSTARF
Áskirkja: Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14–17. Söngstund kl. 14–15.
Kaffispjall. Biblíulestur kl. 20:00.
Fjallað verður um bréf Páls postula.
Hallgrímskirkja: Kyrrðarstund kl.
12:00. Orgelleikur, íhugun. Léttur
málsverður í safnaðarheimili að
stundinni lokinni.
Háteigskirkja: Foreldramorgunn –
opið hús kl. 10:00. Stúlknakór kl.
16:00. Jesúbæn kl. 20:00. Taizé-
messa kl. 21:00. Þangað sækir mað-
ur frið og kyrrð, staldrar við í asa
lífsins, tekur andartak frá til þess að
eiga stund með Guði. Lifandi ljós og
reykelsi bjóða mann velkominn.
Tónlistin fallin til að leiða mann í
íhugun og bæn. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja: Morgunbænir kl.
6:45–7:05. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12:00. Tónlist, bæn og léttur máls-
verður. Samvera eldri borgara kl.
14:00. Kósý í kirkju kl. 20:30. Opinn
saumaklúbbur.
Langholtskirkja: Foreldramorgunn
– opið hús kl. 10–12. Fræðsla: Af-
brýði eldri barna, Sigríður Jóhann-
esdóttir hjúkrunarfræðingur. Svala
djákni les fyrir eldri börnin. Söng-
stund með Jóni organista. Lang-
holtskirkja er opin til hljóðrar
bænagjörðar í hádeginu.
Neskirkja: Unglingaklúbbur Nes-
og Dómkirkju kl. 20:00 í safnaðar-
heimili Neskirkju. Opið hús kl. 16:00
Myndasýning: Fossaföll.
Seltjarnarneskirkja: Starf fyrir 9–
10 ára börn kl. 17:00.
Árbæjarkirkja: TTT-starf f. 10–12
ára í Ártúnsskóla kl. 17–18.
Breiðholtskirkja: Mömmumorgunn
föstudag kl. 10–12.
Digraneskirkja: Leikfimi ÍAK kl.
11:00. Foreldramorgnar kl. 10–12.
Helgistund kl. 11. Kvöldbænir kl.
18. Alfa-námskeið kl. 19.
Fella- og Hólakirkja: Starf fyrir 11–
12 ára drengi kl. 17–18.
Grafarvogskirkja: Foreldramorgn-
ar kl. 10:00–12:00. Fræðandi og
skemmtilegar samverustundir,
heyrum Guðs orð og syngjum með
börnunum. Kaffisopi og spjall, alltaf
brauð og djús fyrir börnin.
Hjallakirkja: Kirkjuprakkarar.
Starf fyrir 7–9 ára kl. 16:30.
Kópavogskirkja: Samvera eldri
borgara í dag kl. 14:30–17:00 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Kyrrðar- og
bænastund í dag kl. 17:00. Fyrir-
bænaefnum má koma til sóknar-
prests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja: Fundir fyrir 9–12 ára
stráka kl. 17.00 í umsjá KFUM.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir
ung börn og foreldra þeirra kl. 10–
12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 10–12 ára kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 9–12
ára krakka kl. 17–18.30.
Vídalínskirkja. Æskulýðsfélag
Garðakirkju heldur fundi kl. 19.30–
20.30. Unglingar hvattir til þátt-
töku. Umræðu- og leshópur,
fræðslustarf fyrir alla í Bræðrastofu
kl. 21–22. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Koma má bænar-
efnum til presta og starfsfólks safn-
aðarins. Allir velkomnir.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
kl. 10.00 Foreldramorgun, árrisular
mömmur með ungabörn sín eiga
gott
spjall yfir molasopa. Kl. 14:30 Helgi-
stund á Heilbrigðisstofnun, setu-
stofu 3. Hæð. Allir velkomnir. kl.
17:30 TTT, tíu til tólf ára. Skemmti-
legasti TTT-fundur frá upphafi.
Óvissuferð með öllu tilheyrandi.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundir-
búningur kl. 14:50–16:15 í Kirkju-
lundi.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Fyrirbæna-
samvera. Fimmtudaginn 1.febrúar
kl.18.30. Fyrirbænarefnum er hægt
að koma áleiðis fyrir hádegið virka
daga milli kl.10-12. í síma 421-5013.
Biblíulestrar.Fimmtudaginn
1.febrúar kl.20. í umsjá Ástríðar
Helgu Sigurðardóttur. Farið verður
í Lúkasarguðspjall.
Spilakvöld aldrðra. Fimmtudaginn
1.febrúar kl.20.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl.
18.30. Beðið fyrir sjúkum og sorg-
mæddum.
Útskálakirkja. Fundur með foreldr-
um fermingarbarna í Garði kl. 20:30.
Morgunblaðið/SverrirHallgrímskirkja
Safnaðarstarf
LJÓÐABROT
Kötludraumur
Már hefir búið,
manna göfgastur,
nýtur höfðingi
á nesi Reykja.
Hans frá eg kona
Katla héti.
Sú var menjaskorð
manna stórra.
Þau frá eg unnust
allt hið bezta.
Hugði hjóna
hvort öðru vel.
Þókti Katla
kvenna allra
(vífið vitra)
vera skrautlegust.
Már bjóst heiman
við mæta drengi
ör að ríða
alþingis til.
En vandlega
vildi á meðan
skorða gulls honum
skikkju sauma.
---