Morgunblaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 68
FÓLK Í FRÉTTUM 68 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í kvöld VINIR DÓRA Vesturgötu 2, sími 551 8900 SÍÐUSTU mánuði hef-ur lítið borið á sýn- ingum í Gula húsinu svo- kallaða sem stendur á horni Lindargötu og Frakkastígs, eftir stíft sýningarhald þar nánast allt síðasta ár. Nokkrir listamenn tóku húsið traustataki í febrúar á síðasta ári en þá hafði það staðið autt um nokk- urt skeið. Framtakið vakti mikla athygli enda er það ekki á hverjum degi sem hús- næði er yfirtekið án þess að spyrja nokkurn mann hér á Íslandi, þótt það þyki ekkert tiltökumál annar staðar í heiminum. Húsið sem er í eigu Eim- skipafélags Íslands hefur verið miðstöð óteljandi menningarviðburða á þessu tæpa ári sem liðið er frá yfirtökunni. Þar hafa verið haldnar mynd- listarsýningar með bæði þekktum og óþekktum myndlistarmönnum, ótal tónleikar verið haldnir, einnig leiksýningar, danssýningar, kvik- myndasýningar, bóka- kynningar og svo mætti lengi telja, allt ókeypis fyrir gesti og gangandi. Síðustu þrjá mánuði hefur húsið verið notað undir vinnustofur fyrir bæði myndlistarmenn, tónlistarmenn og hönn- uði en nú er stefnt að áframhaldandi sýning- arhaldi og útgáfu sýning- arskrár yfir atburði síð- asta árs allt þangað til húsið verður að víkja fyr- ir nýrri íbúðarbyggð á svæðinu. Þá er bara að fylgjast með og mæta á svæðið áður en húsið og andinn sem því fylgir eru horfin. Á laugardaginn verður opnuð í Gula húsinu sýn- ing fjögurra ungra ljós- myndara, þeirra Halldóru Ólafsdóttur, Guðrúnar Valdimarsdóttur, Brynjars Ágústssonar og Ólafs R. Ólafssonar. Þau hafa öll verið að taka ljósmyndir í þó nokkurn tíma en þetta er í fyrsta skipti sem þau sýna saman. „Ég fékk þessa hug- mynd að halda sýningu með þemanu „Fjöl- skylda“ og setti saman hópinn til að vinna út frá þeirri hugmynd,“ segir Halldóra. Myndirnar á sýningunni eru bæði svarthvítar, í lit, slides- myndir, polaroid og staf- rænarmyndir, nánast öll form ljósmyndunnar. Fjölskylda er tengingin á milli þeirra allra. Hall- dóra skýrir það nánar: „Við nálgumst þetta útfrá ólíkum forsendum, allt frá því að gramsa í fjölskyldualbúminu, til þess að stilla upp fyr- irmyndarfjölskyldunni eða lýsa daglegu lífi inni á heimilinu. Fjölskylda er eitthvað sem allir geta unnið út frá og nálgast pesónulega þannig að það verður gaman að blanda öllum þessum fjölskyldum saman á sýn- ingunni.“ Ljósmynd- ararnir sem taka þátt í sýningunni hafa allir haldið nokkrar sýningar og verið meðlimir í ljós- myndaklúbbum en eru allir sjálflærðir ljós- myndarar og komast langt á því. Sýningin verður opnuð á laugardaginn klukkan fimm og eru allir vel- komnir á opnunina en svo er sýningin framvegis opin milli fjögur og sjö fimmtudaga og föstudaga en eitt og fimm laug- ardaga og sunnudaga. Sýningin stendur fram til 11. febrúar. Halldóra, Guðrún og Brynjar opna sýningu um helgina ásamt Ólafi sem er staddur í Kaupmannahöfn. Morgunblaðið/Kristinn Ljósmyndasýning verður opnuð í Gula húsinu á laugardaginn Fjölskyldu- myndir í Gula húsinu Hopp heitir þessi fjöl- skyldumynd eftir Halldóru Ólafsdóttur. NÚ ERU fimm ársíðan nemenda- gallerí Listaháskóla Ís- lands, Gallerí Nema hvað?!, var stofnað en þar hafa verið haldnar ótal sýningar á verkum nemenda úr skólanum. Galleríið var fyrst í Þingholtsstræti en flutti fyrir um þremur árum að Skólavörðu- stíg 22c þar sem það hefur verið síðan. Margir myndlist- armenn hafa haldið þar sínar fyrstu sýningar og er óhætt að segja að þetta gallerí sé eitt það áhugaverðasta í Reykjavík. Það er rek- ið af nemendum skól- ans og algjörlega stjórnað frá þeirra hendi með stuðningi skólayfirvalda. Núna hefur nýrri sýningaraðstöðu verið bætt við í galleríinu sem kallast INNSÝNI og er í einum af glugg- um þess sem að snýr út að Skólavörðustígnum. Markmiðið er að í glugganum verði unnið með texta og verður sýningarfólki falið að vinna með orð og setn- ingar. „Fjölmargir mynd- listarmenn vinna mikið með texta og er þetta framtak hugsað til að bjóða þeim vettvang fyrir verk sín ásamt því að gefa þeim sem lítið hafa unnið með þennan miðil tækifæri á að til- einka sér orð og texta,“ segir Tómas Lem- arquis, einn af aðstand- endum gallerísins. Fjölmargir ganga um Skólavörðustíginn dag hvern og verkin í glugganum fá því mikla athygli. Það eru ekki ein- göngu nemendur LHÍ sem fá að sýna í þessu nýja galleríi því fyrstur til að ríða á vaðið með sýningu er hollenski myndlistarmaðurinn Aernout Mik. Hann hefur aðallega unnið að hugmynda- og mynd- bandaverkum og var nýlega gestakennari við LHÍ. Aernout Mik er einn af virtustu myndlistarmönnum Hollendinga og hefur meðal annars sýnt fyr- ir Hollands hönd á Feneyjartvíæringnum sem er ein af stærstu myndlistarmessum í heiminum, haldin á tveggja ára fresti. Sýningar í INN- SÝNI standa yfir í einn mánuð í senn og koma sýnendur úr öllum átt- um. Glugginn er auð- vitað opinn sýning- argestum allan sólarhringinn. Sýning allan sólarhringinn Morgunblaðið/Jim Tómas kynnir stoltur INNSÝNI. Morgunblaðið/Jim Smart Ný hlið á Nema hvað?! Nokkrir af aðstand- endum Nema hvað?!; Gunnhildur, Tómas, Gísli og Geirþrúður FILMUNDUR ætlar að skemmta sér og öðrum með Coen-bræðrum næstu vikuna. Nýjasta mynd þeirra, O Brother, Where Art Thou, var forsýnd fyrir fullu húsi síðastliðinn fimmtudag við góðar undirtektir en hún verður frumsýnd föstudaginn 7. febrúar. Enginn skal þó örvænta því þang- að til verður ekkert Coen-bræðra- leysi í sýningarsölum Háskólabíós. Því að á einni viku, frá og með deg- inum í dag, verða sýndar fimm myndir af þeim átta sem bræðurnir hafa gert hingað til. Blood Simple verður sýnd á hverjum degi út næstu viku en það var fyrsta kvikmynd bræðranna, gerð árið 1984. Myndin var tilnefnd til fjölda verðlauna og var m.a. valin sú besta í flokki leikinna kvikmynda á Sundance-kvikmyndahátíðinni ár- ið 1985. Hún segir frá forríkum mið- aldra bareiganda í Texas sem upp- götvar að eiginkona hans, sem er töluvert yngri, heldur framhjá hon- um með einum starfsmanna hans. Heltekinn af afbrýðisemi ræður hann leigumorðingja til þess að ráða elskendurna af dögum. The Hudsucker Proxy verður sýnd í kvöld og á sunnudagskvöldið. Myndin er gamanmynd með alvar- legum undirtóni og var m.a. tilnefnd til verðlauna á Cannes-kvik- myndahátíðinni. Óskarsverðlaunamyndin Fargo verður svo sýnd á föstudags- og mánudagskvöldið. Hinni frábæru Big Lebowski verður varpað upp á hvíta tjaldið á laugardags- og þriðjudagskvöldið. Hún segir frá því á gamansaman hátt hvernig slæpinginn „the Dude“ flækist inn í mannránsmál. Coen-veislan endar svo á frum- sýningu O Brother, Where Art Thou á miðvikudagskvöldið. Í henni strjúka þrír samhlekkjaðir fangar úr fangavist með það fyrir augum að nálgast þýfi sem einn þeirra, Ulys- ses Everett Mcgill (George Cloo- ney), hefur falið heima hjá sér. Þeir verða að hafa hraðann á því að stífluframkvæmdir munu eyða hús- inu hans innan nokkurra daga. Handritið er lauslega byggt á Ódysseifskviðu Hómers og þurfa fangarnir líkt og Ódysseifur að kljást við hinar ýmsu hindranir til þess að ná markmiði sínu. Þeir lenda í hverju ævintýrinu á fætur öðru og þurfa m.a. að eiga við þokkafullar sírenur, eineygðan bibl- íusala, ofurviðkvæman bankaræn- ingja og hjörð Ku Klux Klan-manna. Frances MacDormand í hlutverki óléttu lögreglukonunnar í Fargo. Filmundur sýnir myndir Coen-bræðra í heila viku Fimmfaldur Coen-bræðingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.