Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 9
SENDINEFND frá Þróunarsam-
vinnustofnun Íslands er nú stödd í
Namibíu í sinni árlegu kynnisferð
um samstarfslönd stofnunarinnar.
ÞSSÍ hefur starfrækt verkefni í
landinu síðan 1990, einkum í sjáv-
arútvegsgeiranum en einnig verk-
efni í félagsmálum, á sviði fullorð-
insfræðslu sem og fræðsluverkefni
fyrir börn og unglinga. Þessum
verkefnum er ætlað að styðja við
fátækustu hópa samfélagsins.
Þann 19. febrúar skrifaði ný-
skipaður framkvæmdastjóri ÞSSÍ,
Sighvatur Björgvinsson, undir
samning við bæjarstjórann í þorp-
inu Usakos um byggingu félags-
og barnaheimilis í útjaðri þorpsins.
Frumkvæðið kom frá þremur kon-
um sem starfrækt hafa barnaheim-
ili undir tré í þorpinu síðastliðin
tvö ár við afar frumstæðar að-
stæður. Markmiðið er að bæta að-
stöðu og fræðslu fyrir börn undir
skólaaldri í hverfinu Hakhaseb þar
sem fátækt er mikil. Félagsheim-
ilið er einnig ætlað fyrir fullorð-
insfræðslu og aðra starfsemi.
ÞSSÍ mun fjármagna bygg-
inguna og leggja til húsgögn og
kennsluefni fyrir barnaheimilið.
Bæjaryfirvöld í Usakos leggja til
lóð og munu síðan sjá um allan
rekstur á starfseminni. Áætlað er
að framkvæmdum verði lokið á 4-5
mánuðum og að starfsemin verði
komin í hús seinna á árinu.
Í bænum Lüderitz í Suður-
Namibíu var þann 20. febrúar tek-
in skóflustunga að félagsheimili
sem á að hýsa fullorðinsfræðslu
fyrir íbúa í Benguela-hverfi, þar
sem fátækustu íbúar bæjarins búa.
Þessi starfsemi fer nú fram í
félagsheimili sem löngu er orðið of
lítið vegna mikillar fólksfjölgunar í
hverfinu. Starfsemin er fólgin í
forskóla fyrir yngstu börnin þar
sem þau læra að lesa, skrifa og
reikna og kennslu fyrir börn og
unglinga sem einhverra hluta
vegna hafa fallið út úr hinu hefð-
bundna skólakerfi. Auk þess er
boðið upp á fullorðinsfræðslu,
handavinnu og fleira sem nýtist í
atvinnuskyni. Íslenskar konur bú-
settar í Lüderitz hafa unnið afar
óeigingjarnt starf við félagsheim-
ilið og hafa m.a. staðið fyrir söfn-
unum á efni sem notað er í handa-
vinnu. Í dag eru um 90 konur og
börn sem taka þátt í verkefninu.
Þróunarsamvinnustofnun mun,
ásamt Rotary-klúbb bæjarins,
fjármagna bygginguna og hafa
umsjón með framkvæmdunum og í
samráði við yfirvöld á staðnum
móta og þróa starfsemina en þau
munu taka við eignarhaldi hennar
eftir 5 ár. Gert er ráð fyrir að
framkvæmdum ljúki í ágúst á
þessu ári.
Fræðslumiðstöð afhent
22. febrúar fór svo fram formleg
afhending á húsnæði fyrir fræðslu-
miðstöð sem ÞSSÍ lét reisa í Walv-
is Bay fyrir 4 árum. Miðstöðin
hýsir „Help Yourself“-verkefnið
sem ætlað er að veita atvinnulaus-
um konum með litla menntun
tækifæri til að auka þekkingu sína
og færni. Í miðstöðinni fer fram
lestrarkennsla, enskukennsla,
handavinnukennsla og námskeið í
eldamennsku, barnaumönnun og
fleira. Í húsinu er einnig rekið
barnaheimili fyrir mæðurnar sem
stunda námskeiðin. Samtök í bæn-
um sem starfa að félagsmálum
hafa tekið þátt í starfseminni.
Namibíska mennta- og menningar-
málaráðuneytið leggur fram
kennsluefni ífullorðinsfræðsluna
og þeir sem standa að skipulagn-
ingunni hafa staðið fyrir söfnun á
öðru efni sem notað er við kennsl-
una. Nærri 60 konur taka þátt í
verkefninu og eru þær flestar ein-
stæðar mæður, atvinnulausar og
margar koma frá afskekktari
svæðum í nágrenninu. Sex starfs-
menn starfa við fræðslumiðstöðina
og er stefnt að því að hún hýsi í
framtíðinni einnig annars konar
starfsemi.
ÞSSÍ semur um
verkefni í Namibíu
Ljósmynd/Elín Sigurðardóttir
Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri ÞSSÍ, og Michael Goreseb,
bæjarstjóri Usakos, innsigla samninginn. Til vinstri situr Björn Dag-
bjartsson, fráfarandi framkvæmdastjóri ÞSSÍ.
annan hvern miðvikudag
TÖLVUR OG TÆKNI
mbl.is
! "!#$ % !$#$
Full búð
af glæsilegum, spennandi
vorfatnaði við öll tækifæri
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Smáskór
sérverslun með barnaskó
Suðurlandsbraut 52 – í bláu húsi við Fákafen – Sími 568 3919
Skriðskór
Teg. 400
Stærðir 18-20
Bláir – rauðir – hvítir
Verð kr. 3.590
Ný antikverslun í Bæjarlind 1-3
opnuð laugardaginn 24. febrúar
Í tilefni opnunarinnar um helgina
verður antikklukku- og húsgagnasýning
í versluninni Antik & úr og hjá
Guðmundi Hermannssyni úrsmið.
Opnunartímar eru eftirfarandi: Laugardaga 11-16, sunnudaga 13-16, virka daga 11-18. Sími 544 2090.
Ath. verslunin Antik & úr og
Guðmundur Hermannsson úrsmiður
eru hlið við hlið í Bæjarlind 1-3 og
gengt á milli þeirra.Antik&úr
B I K A R I N N
Náttúruleg lausn fyrir konur
www.eddaborg.is - Sími 896 4662
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík , sími 562 2862
Vorsendingin komin
Opið laugardag frá kl. 12-15