Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KJARAMÁL allmargra félaga
eru til meðferðar hjá ríkissátta-
semjara. Félag flugmálastarfs-
manna á í viðræðum við samn-
inganefnd ríkisins og nýlega
kom til ríkissáttasemjara
kjaradeila Verkalýðsfélagsins
Bjarma á Stokkseyri við hjúkr-
unarheimilið Kumbaravog.
Á morgun verður fundur í
kjaradeilu félagsráðgjafa hjá
Reykjanesbæ og hjá ríkissátta-
semjara eru ennþá mál sál-
fræðinga hjá Reykjanesbæ og
bifreiðastjórafélagsins Sleipn-
is. Boðaður er fundur í síðar-
nefndu deilunni nk. fimmtudag.
Þá hafa borist nýlega til ríkis-
sáttasemjara mál verkfræðinga
hjá Reykjavíkurborg og há-
skólakennara. Alls voru fimm-
tán fundir ráðgerðir í gær, m.a.
með póstmönnum, sjúkraþjálf-
urum, leikstjórum, hljómlistar-
mönnum í Þjóðleikhúsinu, nátt-
úrufræðingum, flugmála-
starfsmönnum og fleiri aðilum.
Margar
deilur bíða
úrlausnar
GUÐMUNDUR Eyjólfsson skíða-
göngumaður hefur lokið tæplega
einum sjötta hluta leiðangurs síns
„Frá strönd til strandar 2001“. Um
helgina gekk hann yfir Drangajök-
ul og var staddur á Steingríms-
fjarðarheiði þegar Morgunblaðið
náði sambandi við hann síðdegis í
gær. Þá hafði hann gengið 23 km.
Í gærkvöldi fréttist síðan að hann
hefði bætt við 7 km áður en hann
tjaldaði á Vaðalfjallaheiði. Hefur
hann því gengið 92 af 600 km.
„Þetta hefur gengið mjög vel í
dag, enda var meðvindur og mjög
gott færi, þannig að ég gat notað
segl í tvær klukkustundir,“ sagði
Guðmundur. Hann hefur verið á
ferðinni í sex daga og segir fyrstu
dagana hafa verið mjög erfiða.
„Ég lenti í heilmiklu púli fyrstu
dagana og varð að selflytja bún-
aðinn sex eða sjö sinnum yfir
nokkur skörð. Nú er ég hins vegar
farinn að skila miklu meiri dags-
vegalengdum.“
Að sögn Guðmundar hefur veðr-
ið leikið við hann frá upphafi leið-
angursins og allur búnaður hefur
reynst vel. Frost hefur mest verið
um 10 stig frá því Guðmundur
lagði af stað úr Hornvík. Veðurspá
er hagstæð Guðmundi næstu daga
og vonast hann til að hann geti
notið þess uns hann kemst niður
að Brú í Hrútafirði í lok vikunnar.
Þar bíða hans nýjar vistir sem
eiga að duga þar til komið verður
að Hveravöllum.
Sjötti hluti
leiðarinn-
ar senn að
baki
Morgunblaðið/Guðmundur Eyjólfsson
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÁsthildur Helgadóttir ekki með í nýju
bandarísku deildinni/B3
Viðtal við Hermann Hreiðarsson í
Ipswich/B4
16 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
SIV Friðleifsdóttur umhverfisráð-
herra var afhentur fyrsti Toyota
Prius-umhverfisbíllinn til reynsluaf-
nota í gær. Umhverfisráðherra hef-
ur bílinn til notkunar fram í októ-
ber á þessu ári. Bíllinn er sérlega
umhverfisvænn og sagður menga
40% minna en sambærilegur bens-
ínbíll og er auk þess sparneytnari.
Engu að síður er hann sambæri-
legur að afli og hefðbundnir bílar
með sprengihreyfli, eða 116 hestöfl
undir fullu álagi.
Prius er jafnframt kominn í al-
menna sölu en verður einvörðungu
fáanlegur í rekstrarleigu til fyrir-
tækja vegna krafna frá framleið-
anda. Verðið á bílnum er um 2,3
milljónir kr. eða 53.000 kr. á mán-
uði í rekstrarleigu. Almenningi mun
einnig gefast kostur á því að kynn-
ast Prius á næstu vikum því Olís,
samstarfsaðili P. Samúelssonar,
umboðsaðila Toyota á Íslandi, í
þessu tilraunaverkefni, býður við-
skiptavinum sínum reynsluakstur á
tíu bensínstöðvum fyrirtækisins
meðan verið er að setja eldsneyti á
þeirra bíla. Bílarnir verða síðan
teknir í notkun hjá Olís og munu
sölumenn fyrirtækisins aka þeim
næstu tvö ár. Prius er með THS-
aflrás sem notar háþróaðan bensín-
og rafmótor. Eldsneytiseyðsla hans
er talsvert minni en eyðsla sam-
bærilegs fjölskyldubíls, eða 5,1 lítri
fyrir hverja 100 km.
Prius er fyrsti bíllinn á almenn-
um markaði bæði með bensín- og
rafmótor. Af þessum sökum hefur
hann verið kallaður „blendingur“
eða „tvinnbíll“. Hann hefur verið á
markaði í Japan síðan 1997 og er
þegar kominn á markað í Banda-
ríkjunum.
Bogi Pálsson, forstjóri P. Samú-
elssonar ehf., umboðsaðila Toyota,
sagði þegar hann afhenti umhverf-
isráðherra bílinn, að tvinnbílar, eins
og Prius, væru eini raunhæfi kost-
urinn fyrir almenning og fyrirtæki
hvað varðar nýja umhverfisvæna
tækni í bílrekstri. Hann sagði að
THS-tæknin væri hlekkur milli
hefðbundinna brennsluvéla og
framtíðartækninnar, t.a.m. vetnis
og metans.
Sjálfum sér nægur
um raforku
Bíllinn er sjálfum sér nægur um
raforku og þarf ekki að hlaða raf-
geymana sérstaklega eins og gera
þarf í flestum hefðbundnum rafbíl-
um. Bíllinn nýtir alla umframorku
bensínvélarinnar til þess að fram-
leiða rafmagn svo og orku sem í
öðrum bílum fer til spillis við heml-
un.
Hægt verður að fylgjast með
gengi Toyota Prius bílanna hjá Olís
og umhverfisráðuneytinu á heima-
síðu sem opnuð var í gær. Þar verð-
ur að finna upplýsingar um bílinn
en auk þess akstursdagbók, sem
starfsmenn umhverfisráðuneytis og
Olís fylla út. Slóðin er www.-
toyota.is/prius.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Bogi Pálsson, forstjóri P.
Samúelssonar, við Prius-bílana en ráðherrann fær einn til reynslu.
Prius-umhverfisbíll á götuna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
NÝHAFNAR framkvæmdir við
gerð mislægra gatnamóta á
Reykjanesbraut og Breiðholts-
braut ganga samkvæmt áætlun
og var á laugardag lokið við upp-
steypu á miðjustöpli brúar yfir
Reykjanesbraut. Í stöpulinn fóru
120 rúmmetrar af steypu, en til
samanburðar má nefna að tæpir
5 þúsund rúmmetrar af steypu
fara í allt mannvirkið, sem er í
grundvallaratriðum sömu gerðar
og gatnamót Vesturlandsvegar
og Höfðabakka.
Framundan er vinna við upp-
steypu á endastöplum brúarinnar
en fyrst verður unnið að því, í
þessari viku og þeirri næstu, að
færa Reykjanesbraut nær miðju-
stöplinum, þegar steypumót hafa
verið fjarlægð. Í maí hefjast síð-
an framkvæmdir við brúardekkið
sjálft. Nú vinna 30 til 40 manns
við framkvæmdirnar en búist er
við að sá fjöldi tvöfaldist í vor. Á
meðan á brúarsmíðinni stendur
mun umferð um Reykjanesbraut
verða órofin.
Að loknum framkvæmdum í
október mun Reykjanesbraut
liggja hindrunarlaust í gegnum
gatnamótin, tvær akreinar í
hvora átt, en Nýbýlavegur/Breið-
holtsbraut munu liggja þar yfir á
brúnni. Nýbýlavegur/Breiðholts-
braut verða lögð upp á nýtt frá
Stekkjarbakka og upp á brekku-
brún skammt austan Skemmu-
vegar. Dalvegur og Skemmuveg-
ur verða lagðir upp á nýtt með
tilliti til nýrra gatnamóta og
snjóbræðslukerfi verður sett í
neðsta hluta Skemmuvegar. Álfa-
bakki verður lagður í suður frá nú-
verandi stað enda við verslunar-
miðstöð.
Það er Ístak hf. sem vinnur
verkið fyrir Vegagerðina, en Ístak
átti lægsta tilboðið í verkið, 931
milljón króna, eða 39 milljónum
undir kostnaðaráætlun Vegagerð-
arinnar.
Framkvæmdir við mislæg gatnamót við Reykjanesbraut eru á áætlun
Lokið við steypu
á miðjustöpli
Morgunblaðið/Tómas Tómasson
Milli 30 og 40 manns vinna nú á vegum Ístaks við brúargerðina.