Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
skrifstofanna. Aðrir hafa ekki að-
gang að þeim upplýsingum. Ef
skráður er t.d. eftirlýstur einstak-
lingur sem óskast handtekinn og
framseldur fer af stað starf hjá
SIRENE-skrifstofunni í framhaldi
af því. Hún sendir viðbótarupplýs-
ingar, t.d. um fyrir hvaða brot
maðurinn er grunaður eða dæmd-
ur, hvenær handtökuúrskurður
hefur verið gefinn út, dóm sem
kveðinn hefur verið upp yfir
manninum o.s.frv. Sendar eru upp-
lýsingar um einstaklinginn og af-
brot hans í smáatriðum á sérstök-
um formum, sem eru svo varðveitt
hér undir sérstöku Schengen-núm-
eri. Þetta hefur þá þýðingu að
þegar „smellur“ hjá lögreglu við
uppflettingu í kerfinu sjá þeir í
rauninni eingöngu nafn viðkom-
andi manns, tilteknar persónuupp-
lýsingarnar og t.d. hvort á að
handtaka manninn. Við höfum hins
vegar allar viðbótarupplýsingarn-
ar,“ segir Smári.
Skrá öll
glötuð vegabréf
Frá áramótum hafa fjórir eft-
irlýstir Íslendingar verið skráðir
inn í upplýsingakerfið, en þeir
höfðu áður verið eftirlýstir á Int-
erpol-netinu. „Það er í ákvörðun-
arvaldi hvers ríkis hvað skráð er í
kerfið. En það hvíla á okkur skyld-
ur um að ef við t.d. lýsum eftir
manni til handtöku og framsals, þá
ber okkur að skrá það fyrst inn í
Schengen-kerfið,“ segir Smári.
Aðspurður segir Smári ef menn
týna vegabréfi sínu og tilkynna
það verði það skráð í upplýsinga-
kerfið. „Lengst af hefur ekki verið
til nein miðlæg skrá á Íslandi um
glötuð skilríki. Það ætti því að
skrá glötuð vegabréf inn í Scheng-
en-upplýsingakerfið. Það er nú
þegar töluvert af skráningum á
stolnum íslenskum vegabréfum og
öðrum skilríkjum í kerfinu, sem
stolið hefur verið af Íslendingum í
öðrum löndum og skráð þar.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu hafa þrír óæskileg-
ir útlendingar komið fram í kerf-
inu þegar flett hefur verið í því við
landamæraeftirlit á Keflavíkur-
flugvelli og við skoðun á útlend-
ingum hér á landi. Einn Íslend-
ingur hefur einnig fundist við
uppflettingu í SIS, sem á að mæta
fyrir dómi erlendis. Hefur viðkom-
andi ríki verið gert viðvart að
maðurinn sé hér á landi en lög-
reglan hefur engin afskipti af
manninum nema fram komi sér-
stök beiðni um það, að sögn
Smára. Einnig hefur komið í ljós
að átta Íslendingar hafa verið
skráðir óæskilegir einstaklingar af
öðrum ríkjum. Verða þeir vænt-
anlega teknir af listanum þegar Ís-
land gengur í Schengen, þar sem
borgarar Schengenlanda eru ekki
skráðir óæskilegir útlendingar í
SIS. Að sögn Smára þarf alls ekki
að vera að þessir menn hafi framið
nein afbrot. Hins vegar birtast
ekki upplýsingar í kerfinu um
ástæður þess að mennirnir voru
lýstir óæskilegir.
„Það fylgja ekki form með við-
bótarupplýsingum sjálfkrafa nema
mönnum sem eru eftirlýstir og
óskast handteknir. Menn sem lýst-
ir eru óæskilegir eru ekki hand-
teknir en ef þeir koma fram á
landamærum er þeim vísað frá,“
segir hann.
Ekki liggur ljóst fyrir hvað gert
verður í málum þeirra útlendinga
sem hafa fundist hér á landi frá
áramótum skráðir sem„óæskilegir
útlendingar“ í SIS. Smári telur
ólíklegt að ástæða þess að menn-
irnir voru skráðir sé sú að þeir
hafi framið alvarleg afbrot. „Það
er hins vegar svo að ef viðkomandi
ríki kjósa að halda ríkisborgurum
landa utan Schengen sem skráðir
eru óæskilegir, áfram inni í kerf-
inu, þá eiga þeir engra kosta völ.
Fari þeir út af Schengen-svæðinu
geta þeir ekki komið inn á það aft-
ur.
Það þarf alls ekki að vera að
þeir hafi framið alvarleg afbrot til
að verða skráðir óæskilegir út-
lendingar. Menn geta t.d. hafa ver-
ið í heimildarleysi í viðkomandi
landi og verið vísað brott. Þeir
þurfa ekki að hafa gert neitt annað
af sér,“ segir hann.
Hvattir til að nota
kerfið sem mest við
dagleg lögreglustörf
Að sögn Smára lagði eftirlits-
nefnd Schengen-landanna, sem
gerði úttekt á SIRENE-skrifstof-
unni og upplýsingakerfinu hér á
landi, mikla áherslu á að lögreglan
notaði kerfið sem allra mest og
það verði hluti af daglegum störf-
um lögreglumanna að fletta upp í
því eins og í öðrum upplýsinga-
kerfum sem lögreglan hefur að-
gang að.
„Það er auðvitað markmiðið með
þessu kerfi að það verði notað af
lögreglunni. Lögregan verður að
bregðast við breyttum aðstæðum
með því að auka eftirlitið. Ég hef
stundum orðað það svo að með
niðurfellingu landamæraeftirlits
25. mars þá erum við að færa út-
lendingaeftirlitið út á götuna, til
hinnar almennu lögreglu. Við vit-
um ekki hverjir koma inn í landið
og dveljast hér því menn geta
komið og farið án eftirlits á landa-
mærum. Það er í raun og veru
hlutverk lögreglu að fylgjast með
og ef hún af einhverjum ástæðum
þarf að hafa afskipti af fólki sem
hún hefur grunað um eitthvað, þá
er ætlast til að lögreglan noti
þetta kerfi,“ segir Smári.
Hann telur það geta verið mjög
gagnlegt við löggæslu að hafa að-
gang að upplýsingakerfi Schengen.
„Lögreglan hefur ekki haft svona
beinan aðgang að upplýsingum af
þessu tagi. Til þess að vega upp á
móti afnámi landamæraeftirlits á
innri landamærum Schengen-land-
anna, sem hefur í för með sér að
menn geta ferðast frjálsir á milli
landa innan svæðisins án þess að
sæta nokkru eftirliti, er Schengen-
upplýsingakerfið tæki fyrir lög-
regluna í landinu til þess að fylgj-
ast betur með. Hún getur fengið
upplýsingar um hvort t.d. maður
sem hún þarf að fást við er ólög-
legur í landinu eða skráður af ein-
hverjum öðrum ástæðum inn í
kerfið. Sá möguleiki er auðvitað
fyrir hendi að þar sé ekki ein-
7 ;
A
9
=B/?
CDDD
+,-./
0(
$
0'''
+,-. 1/
2&' 3%&
.
&444
E$FGH$DHI
HJJ$HFF
GCK
EH$
+
ICK
EF$
;
*
EE$
CDK
*
LCK
EJ$
;
*
EM$
<
N
*
O
4
$
!
CGK
LMK
<
FRELSI TIL FERÐA Í 15 LÖNDUM
M
IKIL gagnrýni
hefur komið fram
á Schengen-upp-
lýsingakerfið
(SIS) í nokkrum
Evrópulöndum á
undanförnum árum. Bresku mann-
réttindasamtökin Justice, sem vinna
að umbótum í réttarfari, gáfu út
skýrslu í desember sl. sem inniheld-
ur ítarlega úttekt á Schengen-upp-
lýsingakerfinu. Setja samtökin fram
harða gagnrýni á stjórnun og notkun
upplýsingakerfisins í aðildarlöndum
Schengen í skýrslu sinni.
Segja SIS notað sem
tæki gegn innflytjendum
Meginniðurstaða skýrslunnar er
sú að úttektin hafi leitt í ljós að veru-
legir brestir séu á Schengen-upplýs-
ingakerfinu, m.a. hvað varðar varð-
veislu persónuupplýsinga og ábyrgð
á skráningu og notkun upplýsinga í
gagnagrunninum. Þetta veki alvar-
legar spurningar um hvort grund-
vallarmannréttindi séu brotin við
notkun kerfisins í einstökum aðild-
arlöndum.
Justice telur m.a. að mikil hætta
sé á misnotkun viðkvæmra persónu-
upplýsinga og bent er á að mjög
skorti á að óháð eftirlitsstofnun
Schengen-ríkjanna (JSA) og per-
sónuverndarstofnanir í aðildarlönd-
unum geti sinnt því hlutverki sínu að
fylgjast með kerfinu. Hlutverk
þeirra sé eingöngu að gera tillögur
um úrbætur en yfirvöldum sé ekki
skylt að fara eftir þeim.
Bent er á að þrátt fyrir að meg-
intilgangur upplýsingakerfisins hafi
verið sá að auðvelda lögreglu að hafa
hendur í hári afbrotamanna komi í
ljós, þegar persónuskráningar í kerf-
ið eru skoðaðar, að langflestar
skráningar séu á svonefndum óæski-
legum útlendingum, sem synja á um
komu til Schengen-landa, óháð því
hvort þeir tengjast afbrotum á nokk-
urn hátt. Upplýsingakerfi Schengen-
ríkjanna hafi þannig þróast yfir í að
vera fyrst og fremst tæki yfirvalda í
einstökum löndum til að sporna gegn
innflytjendum í Evrópu.
Fram kemur í skýrslunni að
óæskilegir útlendingar séu 89% allra
skráninga yfir einstaklinga í gagna-
banka upplýsingakerfisins. Aðeins
7% skráninga í kerfinu séu einstak-
lingar sem lögregla vill hafa upp á í
tengslum við afbrot og glæpi og þar
af séu eingöngu 2%, sem grunuð eru
um aðild að alvarlegum glæpum.
,,Það er því ljóst hvað upplýsingar
um einstaklinga varðar og notkun
þeirra, að SIS er ekki fyrst og síðast
tæki í baráttunni við alvarlega glæpi,
það er notað til að koma í veg fyrir
mögulegan innflutning ólöglegra
innflytjenda og hafa uppi á munum
sem hafa týnst eða verið stolið,“ seg-
ir í niðurstöðum skýrslunnar.
Telja samtökin að mjög sé á reiki
hvaða reglum sé fylgt við skráningu
upplýsinga um einstakling í upplýs-
ingakerfið og dæmi séu um að fólki
sem hefur glatað skilríkjum sínum
hafi verið synjað um komu inn á
Schengen-svæðið af þeirri ástæðu að
nöfn þeirra eru skráð í gagnagrunn-
inn.
Tekið er dæmi af einstaklingi frá
Eþíópíu sem stöðvaður var á landa-
mærum Frakklands þegar nafn hans
kom fram í upplýsingakerfinu við
vegabréfaskoðun. Athugun málsins
leiddi í ljós að nafn hans hafði verið
skráð í upplýsingakerfið í Þýska-
landi eftir að hann hafði tilkynnt að
vegabréf hans hefði glatast. Tók átta
mánuði að fá skráninguna afmáða úr
Upplýsingakerfinu, að því er segir í
skýrslunni.
Handtekinn með gögn úr
SIRENE-skrifstofu í Belgíu
Einnig er fjallað um atvik sem átti
sér stað í Belgíu árið 1997 en þá kom
í ljós að skjöl og upplýsingar höfðu
lekið út af SIRENE-skrifstofu
dómsmálaráðuneytisins í Belgíu.
Fundust gögnin á lestarstöð og var
starfsmaður ráðuneytisins handtek-
inn í kjölfarið með fleiri gögn úr
gagnabankanum undir höndum, sem
talið var að hann hafi ætlað að selja
glæpaflokki.
Fram kemur í ársskýrslu Óháðrar
eftirlitsstofnunar Schengen-land-
anna (JSA) á seinasta ári að í fram-
haldi af þessu atviki hafi verið gerðar
ýmsar ráðstafanir til að herða á ör-
yggi SIRENE-skrifstofanna. Jafn-
framt kemur fram í skýrslunni að út-
tekt sem gerð var á miðlæga
gagnagrunni upplýsingakerfisins í
Strassborg (C.SIS) hafi leitt í ljós að
það væri vel viðunandi í öllum aðal-
atriðum. Stofnunin gerir hins vegar
fjölmargar athugasemdir við öryggi
kerfisins í einstökum löndum.
Í skýrslu Justice-samtakanna er
einnig vísað í mál nýsjálensku kon-
unnar Stephanie Wills, sem vakti
mikla athygli árið 1998. Var hún
stöðvuð á landamærum Hollands þar
sem í ljós kom að Frakkar höfðu
skráð nafn hennar í upplýsingakerf-
ið árið 1995 sem „óæskilegan útlend-
ing“. Ákvarðanir um slíka skráningu
byggjast m.a. á að viðkomandi sé tal-
inn ógnun við almannaöryggi og alls-
herjarrelgu eða þjóðaröryggi.
Stephanie Mills var snúið við og fékk
ekki að koma til Hollands en þar
hafði hún ætlað á fund Greenpeace-
samtakanna.
Ýmis fleiri samtök hafa vakið at-
hygli á þessu máli í tengslum við
gagnrýni á Schengen-upplýsinga-
kerfið, m.a. norsku lögmannasam-
tökin (den Norske Advokatforen-
ing). Í gagnrýnni álitsgerð samtak-
anna um SIS er varað við að
stjórnvöld noti heimild til þess að
skrá óæskilega útlendinga á pólitísk-
um forsendum en þar segir að
ástæða þess að frönsk stjórnvöld
skráðu Mills í kerfið hafi verið sú að
hún tók þátt í mótmælaaðgerðurm
gegn kjarnorkutilraunum Frakka á
Mururoa.
Miklar umræður hafa verið í Nor-
egi um Schengen allt frá því málið
komst fyrst á dagskrá þar í landi.
Ráðherrar fengu á annað hundrað
fyrirspurnir um einstaka þætti, m.a.
persónuverndarmál og SIS þegar
Schengen-samningurinn var til með-
ferðar á norska Stórþinginu.
Athygli vakti í fréttum sl. haust
þegar Bart De Schuttet, þáverandi
formaður óháðu eftirlitsstofnunar-
innar JSA, gagnrýndi harðlega að
persónuvernd væri ófullnægjandi í
upplýsingakerfinu. Haft var eftir
honum í fjölmiðlum að mikil hætta
væri á misnotkun skráðra upplýs-
inga þar sem ekki lægju fyrir nægi-
lega skýrar reglur um hverja mætti
skrá og hvernig upplýsingarnar
væru notaðar. Fleiri sérfræðingar
hafa tekið í sama streng. Haft er eft-
ir Thomas Mathiesen, prófessor í
réttarfélagsfræði, í Aftenposten í
Noregi í seinustu viku, að Schengen
sé ógnun við einkalífsvernd og rétt-
aröryggi borgaranna vegna hættu á
misnotkun og leka viðkvæmra per-
sónuupplýsinga úr gagnagrunni SIS.
55.000 uppflettingar
skiluðu árangri á einu ári
Upplýsingakerfi Schengen er í
stöðugri notkun allan sólarhringinn
og skilar árangri ef marka má yfirlit
Eftirlitsstofnunarinnar JSA. Var
einstaklingum eða týndum munum
flett upp í kerfinu í samtals 55 þús-
und skipti í aðildarlöndum Schengen
á árinu 1999. Þar af komu óæskilegir
útlendingar fram í tæplega 22 þús-
und tilvikum en einstaklingar sem
eftirlýstir hafa verið fyrir afbrot náð-
ust í um 2.500 tilvikum.
Alvarlegir brestir í
upplýsingakerfinu
Mannréttindasamtökin Justice gagnrýna SIS í nýútkominni skýrslu
Ljósmynd/Vigfús Erlendsson
Miðlægur gagnagrunnur Schengen-upplýsingakerfisins er til húsa og kyrfilega var-
inn í þessari byggingu í Strassborg í Frakklandi.