Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
UMSÓKN fyrir starfsleyfi svínabús
Stjörnugríss á Melum í Borgarfirði
var lögð fyrir fund heilbrigðiseftir-
lits Vesturlands á miðvikudag, í kjöl-
far dóms Héraðsdóms Reykjavíkur,
sem hefur fellt úr gildi úrskurð um-
hverfisráðherra um að stækkun bús-
ins þurfi að sæta mati á umhverf-
isáhrifum.
Afgreiðslu málsins var frestað til
næsta fundar heilbrigðiseftirlitsins í
lok þessa mánaðar þar sem ekki
gafst nægilegur tími til að gaumgæfa
þau gögn sem fylgdu umsókninni.
Umsókn
Stjörnugríss
frestað
KARLMAÐUR, sem ríkissaksókn-
ari ákærði fyrir vörslu barnakláms,
samþykkti sátt um að greiðia 200.000
króna sekt til ríkissjóðs.
Maðurinn játaði að hafa haft ljós-
myndir, sem sýna börn á kynferð-
islegan og klámfenginn hátt, á tölvu-
diskum og tölvu og var hvorttveggja
gert upptækt.
Sekt fyrir vörslu
barnakláms
HÓPFERÐABÍLL brann til kaldra
kola skammt austan við Selfoss
snemma á sunnudagsmorgun. Bíl-
stjórinn var einn í bílnum og sakaði
hann ekki að sögn lögreglunnar á
Selfossi.
Rútan var smíðuð árið 1998 og gat
tekið 57 farþega. Ekki er vitað hvað
olli eldinum en eldsupptök voru í vél-
arrúmi í aftanverðri rútunni.
Bílstjórinn varð var við eldinn þar
sem hann ók um Suðurlandsveg,
skammt austur af Þingborg, og kall-
aði eftir aðstoð. Hann freistaði þess
að slökkva eldinn með handslökkvi-
tæki en án árangurs.
Samkvæmt upplýsingum frá
Brunavörnum Árnessýslu voru
slökkviliðsmenn komnir á staðinn
um 8-10 mínútum eftir að útkall
barst frá Neyðarlínu en þá var rútan
alelda.
Rúta eyði-
lagðist í
eldsvoða
BORGARSTJÓRN kaus nýverið
fulltrúa sína í stjórn Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis og Spari-
sjóðs vélstjóra. Í stjórn SPRON
voru endurkjörnir þeir Árni Þór Sig-
urðsson, tilnefndur af R-lista, og
Árni Sigfússon, tilnefndir af D-lista.
Í stjórn Sparisjóðs vélstjóra voru
endurkjörnir þeir Alfreð Þorsteins-
son og Guðmundur Jónsson.
Kosið í stjórn
sparisjóða
VERÐLAGNING rækjuverksmiðju
Nasco í Bolungarvík var að mati Ein-
ars K. Guðfinnssonar, alþingismanns
og formanns sjávarútvegsnefndar
þingsins, frekar of há en of lág í ljósi
þeirra markaðslegu aðstæðna sem nú
eru í rækjuiðnaði.
Einar, sem situr í stjórn Byggða-
stofnunar, segir að miðað við þær
verðhugmyndir sem komið hafi fram
í tilboðum frá þeim aðilum sem sýndu
verksmiðjunni áhuga sé ljóst að verð-
ið sem um samdist að lokum hafi ver-
ið viðunandi.
„Mér sýnist Róbert Guðfinnsson,
stjórnarformaður Þormóðs ramma,
hafa algjör endaskipti á máli Nasco í
Bolungarvík. Afstaða veðkröfuhaf-
anna um að dekka a.m.k. 236 milljónir
króna varð til þess að hækka verðið
talsvert frá því sem tilboð eða hug-
myndir höfðu gengið út frá. Rækju-
verksmiðjan varð gjaldþrota með til-
heyrandi kostnaði, ekki síst fyrir það
samfélag sem hún starfaði í, og við
gjaldþrot rýrna verðmæti eignar. Í
söluferlinu var einfaldlega farið eftir
þeim leikreglum sem gilda í okkar
samfélagi þannig að ég tel það algjör-
lega óskiljanlegt af hálfu Róberts að
tala með þeim hætti sem hann hefur
gert í fjölmiðlum,“ sagði Einar og
benti á að rækjuiðnaðurinn á Íslandi
væri alþjóðlegur og meirihluti þess
hráefnis sem tekið var til vinnslu í
rækjuverksmiðjum á Íslandi í fyrra
hefði komið frá erlendum hafsvæðum
og barist hefði verið um hráefnið á al-
þjóðlegum markaði. „Það er því alveg
ljóst að þótt einhverjar verksmiðjur
fari úr rekstri hér á Íslandi skapast
ekkert endilega endilega svigrúm
fyrir aðrar verksmiðjur hér á landi
heldur getur það ekkert síður orðið til
þess að auka svigrúm verksmiðja
annars staðar í heiminum, t.d. í Nor-
egi eða Danmörku. Þannig að ég tel
að hafi það vakað fyrir stjórnarfor-
manni Þormóðs ramma að skapa auk-
ið svigrúm fyrir aðrar verksmiðjur
hér á landi sé það mikil skammsýni.“
Verðlagning á verksmiðju Nasco í Bolungarvík
Þarf ekki að hafa áhrif á
stöðu annarra verksmiðja
VIÐBRÖGÐ þeirra sem hafa viljað
vernda laxastofna í íslenskum ám
eru misjöfn vegna þeirrar ákvörð-
unar landbúnaðarráðherra að friða
ákveðin svæði við landið fyrir lax-
eldi í sjókvíum. Formaður Lands-
sambands veiðifélaga, Óðinn Sig-
þórsson, fagnar ákvörðun
ráðherrans en Orri Vigfússon, for-
maður Verndarsjóðs villtra laxa-
stofna, NASF, telur ekki nóg gert
og lítur ekki svo á að um áfanga-
sigur verndunarsinna sé að ræða.
Um leið gagnrýnir hann þau leyfi
sem stjórnvöld hafa veitt að und-
anförnu fyrir sjókvíaeldi í Mjóafirði,
Berufirði og Eyjafirði.
Orri sagði við Morgunblaðið að
friðunin hefði takmarkað gildi þar
sem laxinn færi hratt og kæmi víða
við.
„Ég vil ekki fá erlenda laxastofna
inn í íslenska náttúru og með þessu
laxeldi er verið að taka óþarfa
áhættu, þótt hún sé örlítið minnkuð
með þessari friðun. Það er verið að
skerða ímynd íslensks hreinleika á
laxveiðistofninum á Íslandi. Við
þetta mun eftirspurn minnka eftir
veiðileyfum og tekjur bænda
minnka. Ég tel að ráðherrann hafi
átt að ganga lengra,“ sagði Orri.
Umhverfisvöktun dýr
Hann benti á að umhverfisvöktun
með því sjókvíaeldi sem búið væri að
heimila kostaði miklar fjárhæðir.
Engir hefðu reynslu í slíkri vöktun
hér á landi og íslenskir embættis-
menn hefðu ekki kunnáttu í að setja
reglugerðir um þetta eldi. Orri sagði
verndarsjóðinn ekki hafa gefist upp
í sinni baráttu og ætti eftir að fylgja
málinu eftir á ýmsum sviðum innan
stjórnkerfisins.
Óðinn Sigþórsson sagði ákvörðun
landbúnaðarráðherra um friðun til-
tekinna svæða vera hárrétta miðað
við núverandi aðstæður þegar verið
væri að heimila stórfellt eldi í
nokkrum fjörðum. Með friðuninni
væri verið að gæta ákveðinna var-
úðarsjónarmiða sem veiðifélögin
hefðu haldið fram.
„Við erum mjög ánægðir með
þetta framtak ráðherrans. Að vísu
má segja að við hefðum viljað sjá
stærra svæði friðað úti fyrir Austur-
landi, til að mynda að Dalatanga, en
sjálfsagt hefur ráðherrann haft sín-
ar málefnalegu ástæður til að
byggja á. Miðað við stöðu mála get-
um við verið sæmilega sáttir,“ sagði
Óðinn.
Hann sagði veiðifélögin treysta á
stjórnvöld að í framtíðinni verði
sjókvíaeldið stöðvað komi veruleg
skaðleg áhrif þess í ljós á lífríki laxa-
stofnanna.
Seyðisfjörður og Loðmund-
arfjörður ekki friðaðir
Landbúnaðarráðherra breytti í
gær reglugerð um friðunarsvæði
fyrir sjókvíaeldinu eftir að upp
komu mistök í upphaflegu útgáf-
unni, sem gefin var út í fyrradag. Þá
náði svæðið frá Glettinganesi á
Austurlandi að Dalatanga en átti að-
eins að ná að Glettinganesi. Seyð-
isfjörður og Loðmundarfjörður
lenda því utan friðunarsvæðisins
eftir þessa breytingu en í Seyðisfirði
hafa verið áform uppi hjá heima-
mönnum um sjókvíaeldi í samvinnu
við Færeyinga.
Friðunarsvæði fyrir laxeldi í sjó
Misjöfn viðbrögð
eru við ákvörðun
ráðherrans
GRILLSKÁLINN í Ólafsvík gjör-
eyðilagðist í eldi sem upp kom í skál-
anum um klukkan 12:30 á sunnudag.
Þar kviknaði í steikingarfeiti og
barst eldurinn fljótt í húsið. Um 10
manns voru þá inni í húsinu en þeim
tókst að forða sér út á hlaupum. Talið
er að tjónið nemi um tveimur tugum
milljóna króna.
„Það varð eldsprenging í steiking-
arpotti. Ég var með slökkviteppi en
það vann ekkert á eldinum og síðan
sprautaði ég með slökkvitæki en það
gerðist ekki neitt. Við hringdum í
Neyðarlínuna og hröðuðum okkur
svo út en þá voru eldtungurnar komn-
ar fram í salinn,“ sagði Sigurður Sig-
urðarson, annar eigandi skálans sem
nýlega hafði fengið nafnið Prinsinn.
Allt brann sem brunnið gat í skál-
anum og öll tæki ónýt. Talið er að tjón
á sjálfu húsinu, sem er í eigu spari-
sjóðsins, sé um 8-10 milljónir en tjón á
tækjum og innréttingum er metið á
annan tug milljóna. Mikill reykur var
af eldinum og barst hann inn í bakarí
við hliðina og fataverslunina Vík.
Talsverðar skemmdir urðu í báðum
fyrirtækjunum. Sömuleiðis smaug
reykurinn inn í gistiheimili á efri hæð
grillskálans og þar varð einnig nokk-
urt tjón.
Slökkvilið Ólafsvíkur réð niðurlög-
um eldsins en naut við það dyggrar
aðstoðar slökkviliðsmanna úr Grund-
arfirði.
Morgunblaðið/Erna A. Aðalsteins
Þegar Slökkvilið Ólafsvíkur kom á staðinn lagði þykkan reyk frá húsinu.
Verulegt tjón varð vegna elds í Grillskálanum í Ólafsvík
Breiddist hratt út eftir
eldsprengingu í potti
GUÐMUNDUR Gunnarsson,
formaður Rafiðnaðarsambands
Íslands, lýsir yfir ánægju með
aðgerðir ríkisstjórnarinnar
vegna endurskoðunar á for-
sendum kjarasamninga. „Mér
finnst aðgerðirnar jákvæðar og
við getum ekki annað en verið
ánægðir með þær. Við höfum
barist fyrir fjölþrepaskattkerfi í
verkalýðshreyfingunni mörg
undanfarin ár. Þess vegna hljót-
um við að líta þetta jákvæðum
augum,“ segir Guðmundur.
Hann segir talsverð tímamót
fólgin í því að nú skuli vera léð
máls á því að tekið verði upp
fjölþrepaskattkerfi því stjórn-
völd hafi verið því algerlega
mótfallin fram að þessu.
Hann kveðst líta svo á að að-
gerðir ríkisstjórnarinnar séu já-
kvætt skref í þá átt að tryggja
að forsendur kjarasamning-
anna standist. Hann ítrekar þó
þá skoðun Rafiðnaðarsam-
bandsins að niðurstöður launa-
nefndar Samtaka atvinnulífsins
og ASÍ hvað varðaði desember-
og orlofsuppbót hefðu aðeins
farið til þeirra sem voru með
lægstar tekjur. „Það er ekki
nema tæplega helmingur
félagsmanna í Rafiðnaðarsam-
bandinu sem fær þær bætur
sem voru ákvarðaðar,“ segir
Guðmundur.
Rafiðnaðarsamband
Íslands
Aðgerðir
ríkisstjórn-
arinnar
jákvæðar
ÞESSAR stelpur voru sumarlegar
að sjá þar sem þær spókuðu sig á
sunnanverðu Seltjarnarnesinu.
Eitthvað virðast þær vera óákveðn-
ar með hvert förinni er heitið en
hitt er ljóst að þær leggja höf-
uðáherslu á öryggið – allar með
hjálmana á réttum stað.
Morgunblaðið/Ómar
Öryggið á oddinn
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦