Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 11
FLOKKSÞING FRAMSÓKNARFLOKKSINS MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 11 FLOKKSÞING Framsóknarflokks- ins tekur undir þá niðurstöðu auð- lindanefndar að greiða beri gjald fyrir afnot af þeirri auðlind sem fiskistofn- arnir umhverfis landið eru. Þá lagði flokksþingið til að gerð verði ítarleg úttekt á kostum og göllum þeirra tveggja mismunandi leiða sem auð- lindanefnd benti á: veiðigjaldsleið og fyrningarleið. Í ályktun um atvinnumál, sem sam- þykkt var á þinginu á sunnudag, er lagt til að framkvæmdastjórn Fram- sóknarflokksins skipi opinn starfshóp framsóknarmanna sem hafi umsjón með úttektinni og standi fyrir um- ræðum og málefnavinnu um málefni sjávarútvegsins í heild. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili fullmót- aðri álitsgerð til haustfundar mið- stjórnar á þessu ári. Í ályktuninni segir jafnframt að markmið nýrrar löggjafar um stjórn fiskveiða sé með- al annars að tryggja atvinnugrundvöll sjávarbyggða, uppbyggingu fiski- stofna og sjálfbæra nýtingu þeirra og jafnræði aðila í greininni og koma þannig í veg fyrir að stétt leiguliða myndist í henni. Litlar umræður við afgreiðslu Nokkra athygli vakti hversu litlar umræður urðu um sjávarútvegsmálin þegar ályktunin var afgreidd á þinginu. Aðeins Þráinn Valdimars- son, fv. framkvæmdastjóri Fram- sóknarflokksins, lýsti yfir andstöðu við að þingið taki undir auðlindagjald og sagði sjávarútveginn ekki í stakk búinn til að standa undir því. Á bak við tjöldin var hins vegar tek- ist harkalega á um sjávarútvegsmálin og ekki síst tillögu Kristins H. Gunn- arssonar, formanns þingflokks Fram- sóknarflokksins og varaformanns sjávarútvegsnefndar Alþingis, um að farin verði svokölluð fyrningarleið, þ.e. að 3–5% veiðiheimilda verði inn- kölluð á nokkrum árum og endurút- hlutað til nokkurra ára. Í henni felst einnig að sveitarfélögin fengju yfir- ráðarétt yfir 25–33% af veiðiheimild- unum. Magnús Stefánsson, varaþingmað- ur sem stýrði sjávarútvegshópnum, segir að samkomulag hafi verið um þessa niðurstöðu, enda hafi verið mjög góð reynsla af störfum Evrópu- nefndar flokksins. „Menn telja þörf á að fara í mál- efnalega umræðu um sjávarútveginn í heild sinni og því eru tillögur um veiðigjaldsleið og fyrningarleið lagðar til hliðar til frekari umræðu á öðrum vettvangi,“ sagði Magnús og benti á að tillaga Kristins hafi verið óútfærð og því hafi ekki verið hægt að ræða hana með fullnægjandi hætti. Magnús segir að talsverður skjálfti hafi verið um málið í nefndinni til að byrja með, enda hafi margir verið ósáttir við tillögu Kristins. Stuðnings- mann hans hafi hins vegar einnig fylgt málinu fast eftir og því hafi reynst nauðsynlegt að sættast á þá málamiðlun sem starfshópurinn sé. Fjölmargir viðmælendur Morgun- blaðsins lýstu óánægju sinni með framgöngu Kristins H. Gunnarssonar í þessu máli og bentu á að kynning Byggðastofnunar á skýrslu um afleið- ingar kvótakerfisins rétt fyrir flokks- þingið hafi verið í þeim tilgangi að koma höggi á núgildandi stjórn fisk- veiða og um leið auka hugmyndum Kristins fylgi. Magnús kveðst hafa heyrt þessar óánægjuraddir. „Við getum orðað það þannig að mönnum hafi þótt þetta í hæsta máta merkileg tilviljun,“ sagði hann en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Sjálfur sagði Kristinn aðeins hafa verið um tilviljun að ræða að skýrsla Byggðastofnunar var kynnt daginn fyrir flokksþingið. Hún hafi verið lengi í vinnslu og niðurstöður hennar hafi alls ekki verið kynntar í þeim til- gangi að koma höggi á einn eða neinn. Kristinn sagðist sáttur við þá nið- urstöðu að skipa starfshóp og vakti athygli á því að tekin hafi verið aftur tillaga sem fyrir lá og fól í sér stuðn- ing við kvótakerfið í óbreyttri mynd. „Undiraldan gegn óbreyttu kerfi er ákaflega þung og krafa um breyting- ar er mjög sterk. Við höfum nú lagt af stað í þá átt með skipan starfshópsins en einnig með því að samþykkja að gjald verði tekið af auðlindinni, að jafna beri aðstöðu manna inni í grein- inni og afnema leiguliðafyrirkomulag- ið og síðast en ekki síst að auka byggðakvótann,“ sagði Kristinn og kvaðst telja að sín sjónarmið liggi nú fyrir í samþykktum flokksins og kvaðst handviss um að fylgi við hug- myndir sínar muni aukast innan flokksins á næstu vikum og mánuð- um. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, fagnaði sömu- leiðis stofnun starfshópsins og sagði það raunar nauðsynlegt að málin væru rædd í stórum og opnum hópi. „Ég er þeirrar skoðunar að það verði vandalaust að leysa þessi mál innan flokksins, en það er auðvitað ekki nóg, heldur verður að skapa sátt milli flokkanna í landinu,“ sagði hann. Halldór vildi hins vegar sem minnst gera úr ágreiningi sínum við Kristin H. Gunnarsson eða óánægju sinni með tímasetningu á kynningu skýrslu Byggðastofnunar. Hann benti á að þetta væri ekki fyrsta skýrslan um þessi efni og kynning hennar hefði ekki komið að sök nú. Deilur um sjávarútvegsmál settar niður með málamiðlun Vísað til opins starfshóps Sömuleiðis er áhersla lögð á að grunnframfærsla verði hækkuð og tryggt að hún dugi fyrir framfærslu. Jafnframt verði frítekjumark hækk- að og fylgi framvegis launaþróun í landinu. Hörð átök um útvarpsráð Framtíð Ríkisútvarpsins var einn- ig til umræðu undir liðnum menntun og menning. Hörð átök urðu um til- lögu sem gerði ráð fyrir að útvarps- ráð yrði lagt niður í núverandi mynd og í stað mynduð stjórn Ríkisút- varpsins, sem sæti breiður hópur að- ila úr þjóðlífinu. Tillaga þess efnis hafði verið sam- þykkt einróma í menntamálanefnd í morgun en Gissur Pétursson, fulltrúi framsóknarmanna í útvarpsráði, gagnrýndi þá tillögu harðlega þegar hún kom til afgreiðslu á þinginu sjálfu. Bar hann upp breytingartil- lögu þess efnis að umrædd tillaga félli brott en í staðinn yrði samþykkt að stofnað verði til vinnu um stjórn- skipun og stefnu Ríkisútvarpsins sem lokið verði fyrir næsta mið- stjórnarfund flokksins. Tillaga Giss- urar var samþykkt með meirihluta atkvæða þingfulltrúa, en undir hana höfðu þá m.a. tekið Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrverandi mennta- málaráðherra. Árni Magnússon, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, bar upphaflegu tillöguna fram á flokksþinginu í gær og var ósáttur við að hún skyldi ekki borin undir atkvæði allra þingfull- trúa líkt og gert var við tillögu Giss- urar. Þeir miðstjórnarmenn sem Morg- unblaðið ræddi við á flokksþinginu töldu einsýnt að tillaga í átt við hug- myndir Árna Magnússonar og félaga verði lögð fram og samþykkt á næsta fundi miðstjórnar. Þeir sögðu ein- faldlega vera mikinn vilja meðal framsóknarmanna að taka forystu í málefnum Ríkisútvarpsins. Í ályktun um utanríkismál er lýst ánægju með þá stefnu sem ríkis- stjórnin hefur fylgt í utanríkismál- um. Ábyrg, traust og markviss for- ysta Framsóknarflokksins í þessum málaflokki hafi reynst þjóðinni far- sæl og minnt á að frá stofnun lýð- veldsins hafi það verið hlutverk Framsóknarflokksins að hafa afger- andi áhrif á mótun utanríkisstefn- unnar. Þá kemur fram í ályktun um utan- ríkismál að hagsmunagæsla Íslands í auðlindamálum sé eitt mikilvægasta verkefnið sem þjóðin standi frammi fyrir og einnig að tímabært sé að Ís- land gerist á ný aðili að Alþjóða hval- veiðiráðinu svo að hvalveiðar hefjist sem fyrst. Í ályktun um stjórnsýslu er sett í forgang að stjórnsýslan sé gegnsæ og skilvirk. Handhafar stjórnsýslu- valds, sem uppvísir verði að því að misbeita valdi sínu, fari t.a.m. ekki að þeim tímamörkum sem sett eru, skuli sæta ábyrgð. Einnig að ríkis- valdinu verði heimilt að beita viður- lögum gagnvart stjórnsýslubrotum og að komið verði á fót stjórnlaga- dómstól sem starfi líkt og gerist í flestum nágrannalöndum okkar. Um ríkisfjármál segir að rekstur samkeppnisfyrirtækja sé best kom- inn í höndum einstaklinga og sam- taka þeirra nema þar sem aðstæður kalla á ríkisafskipti eða ríkisrekstur. Aukin áhersla verði lögð á ráðdeild í opinberum rekstri, t.d. með aukinni ábyrgð stjórna og stjórnenda. Lögð er áhersla á að skattalög- gjöfin verði tekin til endurskoðunar með það markmið í huga að einfalda skattkerfið, styrkja fjölskylduna og draga úr áhrifum jaðarskatta. Stuðl- að verði að samkeppnishæfu skatta- umhverfi til að efla íslenskt atvinnu- líf og laða að erlenda fjárfesta. Athygli vekur sá áherslupunktur flokksþingsins að stefnt skuli að auknum jöfnuði í skattlagningu allra tekna, hvort heldur þær eru af vinnu eða fjármagni. Jafnframt verði ákveðinn lágmarkshluti vaxtatekna skattfrjáls. Í ályktun flokksþingsins um byggðamál segir að forsendur þess að hægt sé að efla og treysta byggð í landinu séu þær að með markvissum og skipulögðum hætti verði unnið að uppbyggingu verulega öflugra byggðakjarna. Þannig verði til stór atvinnusvæði með miklum vaxtar- möguleikum, fjölbreyttu atvinnulífi, möguleikum til mennta á háskóla- stigi og alhliða þjónustustofnunum. Auknu fjármagni verði varið til starfsemi Byggðastofnunar þannig að stofnunin hafi burði til að taka virkan þátt í uppbyggingu nýrra at- vinnutækifæra á landsbyggðinni, með stofnstyrkjum, hlutafé og víkj- andi lánum. Meðal annars verði hluta af hagnaði af sölu ríkisbank- anna og annarra ríkisfyrirtækja var- ið til að styrkja starfsemi stofnunar- innar. Ekki er tekin afstaða til þess hvort Framsóknarflokkurinn eigi að bera fram lista einn sér eða í kosninga- bandalagi með öðrum í ályktun flokksþingsins um sveitarstjórnar- mál, en um samgöngumál segir að leggja verði áherslu á að samræmd samgönguáætlun verði kynnt á grundvelli byggðaþróunar, atvinnu- mála og hinnar miklu fjölgun ferða- manna sem fyrirsjáanleg er á næstu árum. Þá er skýrt kveðið á um að all- ir landsmenn sitji við sama borð hvað varðar gæði og verð dreifikerfis í fjarskiptum og umtalsverðu fjár- magni verði varið til uppbyggingar á því. Ekki komi til sölu Landssímans fyrr en tryggt hefur verið að þessi markmið nái fram. Í kafla um umhverfismál er í sér- stökum lið kveðið á um að Íslend- ingar stefni að staðfestingu Kyoto- bókunarinnar, jafnframt því sem unnið verði að samningsmarkmiðum Íslands. Nokkur styr stóð um þessa málsgrein og var m.a. gerð um það tillaga í nefnd að hún félli út úr álykt- un flokksþingsins. Það var hins veg- ar fellt og málsgreinin síðan sam- þykkt af þingfulltrúum þegar ályktun byggða- og umhverfisnefnd- ar var afgreidd á þinginu. Um heilbrigðismál segir að standa beri fast gegn óheftri einkavæðingu á sviði heilbrigðisþjónustu, enda megi arðsemissjónarmið ein og sér aldrei ráða ferðinni. Um húsnæðis- mál segir að áfram eigi að vera til staðar öflug sjálfstæð lánastofnun í eigu ríkisins, Íbúðalánasjóður, sem hafi það hlutverk að tryggja lands- mönnum hagkvæm lán til kaupa og bygginga íbúðarhúsnæðis. Í jafnréttisáætlun Framsóknar- flokksins til næstu fjögurra ára er sett það markmið að árið 2005 verði hvorki hlutur karla né kvenna í starfi á vegum flokksins lakari en 40%. Í grundvelli Framsóknarflokksins sem samþykktur var á flokksþinginu eru gerðar talsverðar breytingar frá því sem áður var. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu á laugardag sýndist sitt hverjum um þær breyt- ingar að skilgreina Framsóknar- flokkinn sem miðjuflokk í nýjum grundvelli eins og gerð hafði verið tillaga um og hvergi minnst á hug- takið félagshyggju. Eftir nokkra um- ræðu var á flokksþinginu sjálfu fallið frá þessum áfomum og félagshyggj- an fékk því að halda sér á kostnað miðjunnar. „Framsóknarflokkurinn er frjáls- lyndur félagshyggjuflokkur sem vinnur að stöðugum umbótum á samfélaginu og lausn sameiginlegra viðfangsefna þjóðfélagsins á grunni samvinnu og jafnaðar,“ segir í end- anlegum grundvelli Framsóknar- flokksins. Morgunblaðið/Kristinn Sigurjóna Sigurðardóttir fagnar eiginmanni sínum, Halldóri Ásgríms- syni utanríkisráðherra, eftir að hann var endurkjörinn formaður Fram- sóknarflokksins á þingi flokksins á sunnudag. EINAR Skúlason, formaður Sam- bands ungra framsóknarmanna, gagnrýndi harðlega uppbyggingu flokksstarfs Framsóknarflokksins við almennar umræður á laug- ardag. Sagði hann að því færri fjarri að ungu fólki væri nægilega skipað í ábyrgðarstöður á vegum flokksins úti í þjóðfélaginu, en slíkt væri nauðsynlegt til að styrkja starf flokksins og ásýnd. Einar sagði að ungt fólk yrði að fá tækifæri til að axla ábyrgð og allt of mikið væri af fýlupokum í flokknum sem legðu áherslu á að passa upp á sitt og beittu hótunum um brott- hvarf og fleira til að verja ímyndaða stöðu sína. „Við eigum ekki að hafa áhyggjur af slíkum fýlupokum. Það á enginn að vera áskrifandi að trúnaðastörfum á vegum flokksins – slíkt á ekki að vera til,“ sagði Einar. Formaður SUF benti á að fram- sóknarmenn gætu lært margt af sjálfstæðismönnum í þessu samb- andi. „Sjálfstæðisflokkurinn stend- ur fyrir skipulegu pólitísku uppeldi á ungu fólki og það mættum við framsóknarmenn taka okkur til fyr- irmyndar. Það sjá til dæmis allir hvernig staðið hefur verið að mannaráðningum á ríkisfjölmiðl- unum að undanförnu. Þar hafa upp- áhaldsnemendur Hannesar Hólm- steins úr háskólanum verið teknir markvisst inn og falin ábyrgð,“ sagði Einar og hvatti til þess að framsóknarmenn yrðu beittari að þessu leyti. Hlaut hann kröftugt lófaklapp þinggesta að launum. Ungt fólk verður að fá tækifæri EINKAVÆÐING sem felst í tvenns konar rekstri heilbrigðiskerfisins er ekki í anda stefnu Framsóknar- flokksins og kemur ekki til greina að innleiða hér á landi. Þetta kom fram í máli Ingibjargar Pálmadóttur, heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra, á flokksþinginu á laugardag þegar ráðherrar flokksins sátu fyrir svör- um um störf sín. Ingibjörg sagði að í hugtakinu einkarekstur felist að sett yrðu upp tvö kerfi, annað fyrir þá sem gætu greitt og vildu fá þjónustu strax og hitt fyrir hina sem yrðu að bíða. Hún sagði að Framsóknarflokkurinn væri ekki tilbúinn til að samþykkja slíkt, og fékk langt lófaklapp þingfulltrúa að launum. Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra var m.a. spurður hvort hann ætlaði að leggja íslenskar laxveiðiár í rúst með því að leyfa sjókvíaeldi. Hann sagðist standa með eigendum laxveiðiáa. Hins vegar segði hann eins og Guðmundur góði, að einhvers staðar verði vondir að vera. Hann sagðist ekki hafa getað hafnað því að Íslendingar taki þátt í matvælafram- leiðslu og hann hefði því stutt lífsbar- áttu Austfirðinga með því að leyfa kvíaeldi í Mjóafirði og víðar og enn væru nokkrir firðir opnir ef hann fengi pantanir. Guðni sagðist líka vera alls óhræddur við að takast á við vin sinn Steingrím J. [Sigfússon] „með tung- una miklu“ og kvaðst beinlínis hlakka til að takast á við stjórnar- andstöðuna. Þegar hann var síðan spurður hvort hann væri líka óhræddur við að takast á við Sjálf- stæðisflokkinn, svaraði hann að bragði: „Ég er sérfræðingur í því.“ Hló þá þingheimur vel og lengi. Einkarekstri í heil- brigðiskerfinu hafnað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.