Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 24
NEYTENDUR
24 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ALLS fást 62 gerðir af DVD-spilur-
um hér á landi og þeir ódýrustu
kosta um 25 þúsund krónur. Þetta
kemur fram í markaðskönnun Neyt-
endasamtakanna sem birtist í nýj-
asta hefti Neytendablaðsins. Svipuð
markaðskönnun var gerð fyrir réttu
ári en þá voru 37 gerðir á markaðn-
um og verðið frá 35 þúsund krónum.
Í markaðskönnuninni var tekið
fyrir 21 atriði, m.a. allir seljendur
hér á landi, öll vörumerki, stað-
greiðslu-, raðgreiðslu- og kredit-
kortaverð, ábyrgðartími, framleið-
andi og hve mörg SCART-tengi væri
að finna. „Yfirleitt er óhætt að kaupa
DVD-spilara í lægri verðflokkum ef
notandinn ætlar aðeins að fá mikil
mynd- og hljómgæði,“ segir Jóhann-
es Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna.
„Dýrari spilarar hafa að jafnaði
fjölþættari búnað og möguleika.
DVD-spilurum í lægri verðflokkum
fylgja til dæmis yfirleitt ekki heyrn-
artól eða myndjuðari fyrir mismun-
andi hraðvirka hrað- og hægspilum
myndefnis. Þá vantar stundum full-
komnustu stafrænu hljóðkerfin.“
Samhliða markaðskönnun Neyt-
endasamtakanna er höfð til hliðsjón-
ar gæðakönnun International Cons-
umer Research and Testing (ICRT).
Af þeim níu DVD-spilurum sem
teknir eru fyrir þar fást fimm hér á
landi. Í gæðakönnuninni er m.a. tek-
ið fyrir spilun diska, mynd og hljóð,
þægindi í notkun, svæðaskipting og
umhverfisþættir. „Niðurstöður þess-
ara tveggja kannana leiða í ljós að
bestu kaupin eru á Sony DVP-S335,“
upplýsir Jóhannes.
„Það er í raun allt sem mælir með
spilaranum en hann fær hæstu
gæðaeinkunnina. Spilarinn er tiltölu-
lega vel búinn og á hagstæðu verði
eða í kringum 40.000 krónur.
Þá er Samsung DVD-511 einnig
úrvalsspilari, bæði mikil myndgæði
og afburða hljómgæði fyrir þá sem
vilja ódýrara tæki en hann kostar í
kringum 25 til 29 þúsund.“
Varað er við að kaupa ódýra DVD-
spilara í stórverslun erlendis eða á
Netinu án vörumerkis en í könnun
ICRT kemur fram að myndgæði
slíkra tækja eru mun lakari en tíðk-
ast í góðum tækjum. Ennfremur er
öruggast varðandi ráðgjöf og þjón-
ustu að kaupa merkjavöru.
Verð fer stöð-
ugt lækkandi
Morgunblaðið/Golli
Markaðskönnun Neytendasamtak-
anna á DVD-spilurum
Á HVERJU ári verða slys á börnum í
barnavögnum m.a. vegna þess að þau
eru ekki í beisli í barnavögnum og
detta úr þeim þegar þau eru að reyna
að standa upp eða vegna þess að
vagnarnir velta í hvassviðri.
Nýlega var tilkynnt um slys til
Herdísar Storgaard, framkvæmda-
stjóra Árvekni, átaksverkefnis um
slysavarnir barna og unglinga, sem
átti sér stað þegar vindhviða feykti
barnavagni. Í vagninum var sex vikna
gamalt barn og við fallið höfuðkúpu-
brotnaði það og þá blæddi inn á heila.
Ekki er enn vitað hverjar afleiðingar
fallsins verða.
„Það er ekki hægt að segja að við
fáum margar tilkynningar vegna
þessa, í fyrra skráðum við tvö slys og
eitt það sem af er árinu 2001,“ segir
Herdís. „Í fyrra slasaðist annað barn-
ið mikið en hitt slapp ómeitt vegna
þess að það var í beisli. Ég vil hvetja
foreldra og forráðamenn til að setja
börn sín í beisli strax í fyrsta skipti
þegar þau eru sett í vagn og hafa það
síðan fyrir reglu. Hér er fyrst og
fremst um nauðsynlegan öryggisbún-
að að ræða.“
Herdís veit dæmi þess að bæði hafi
verið ekið á konu og barn í vagni og
einnig að fólk hafi verið að ganga í
brekku og misst vagna á undan sér.
Réttur öryggisbúnaður getur því
skipt sköpum.
Mikilvægt að göt séu fyrir
festingar á kerrupokum
Aðspurð segist Herdís ekki mæla
með ákveðnu beisli eða kerrupoka
heldur hvetur fólk þegar það er að
velja sér vagna til að athuga hvort í
þeim séu ekki góðar festingar fyrir
beisli. „Þá verður fólk líka að athuga
sérstaklega þegar það velur kerru-
poka að göt séu á þeim fyrir festingar.
Fyrir stuttu átti ég samtal við starfs-
mann verslunar sem selur kerrupoka.
Hann tjáði mér að þeir seldu mest af
dúnkerrupokum með engum götum.“
Herdís hvetur fólk einnig til að
byrgja vagnana vegna katta og ann-
arra dýra og eins að ganga úr skugga
um að bremsubúnaður og annað á
vagninum sé í góðu ástandi.
„Þegar ég vann sem hjúkrunar-
fræðingur á Borgarspítalanum tók ég
einu sinni á móti átta mánaða gömlu
barni sem hafði fallið niður af þriðju
hæð. Vagninum hafði þá verið stillt
upp við svalahandriðið. Þegar barnið
vaknaði stóð það upp og var þá komið
hærra en handriðið og féll niður. Það
skilur enginn enn í dag að barnið skuli
hafa komist ómeitt frá þessu.“
Morgunblaðið/RAX
Börn eiga að vera
með beisli í vagni
B. MAGNÚSSON hf. hefur hafið
innflutning á Rabid White-tannhvít-
unarefni. Í fréttatilkynningu segir að
efnið geri tennur hvítari og minnki
tannkul. Þá megi með reglulegri
notkun minnka bletti í tönnum vegna
kaffis, reykinga eða öldrunar.
Rabid White-tannhvítunarefnið
fæst í apótekum og í Hagkaupi.
Nýtt
Morgunblaðið/Golli
Tannhvítunar-
efni