Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 28
ERLENT
28 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VINSTRIMENN í Frakklandi
fögnuðu því í gær, að þeim skyldi
hafa auðnast að ná völdum í ráðhús-
inu í París í fyrsta sinn í 130 ár, en
ósigrar frambjóðenda vinstriflokk-
anna í flestum öðrum bæjarfélögum
landsins í síðari umferð sveitar-
stjórnarkosninganna sem fram fóru
á sunnudag spilltu sigurgleðinni.
Sigur frambjóðenda sósíalista í
París og í Lyon, annarri stærstu
borg Frakklands þar sem hægri-
menn hafa einnig jafnan átt öruggan
meirihluta, var persónulegt pólitískt
áfall fyrir Jacques Chirac forseta og
leiðtoga Gaullistaflokksins RPR, ári
fyrir þing- og forsetakosningar, en
fastlega er gert ráð fyrir að í for-
setakosningunum muni etja kappi
þeir Chirac og Lionel Jospin, núver-
andi forsætisráðherra og leiðtogi
sósíalista.
Í forystugreinum franskra dag-
blaða voru í gær sósíalistar og sam-
starfsflokkar þeirra í vinstristjórn
Jospins varaðir við því að þeir
stefndu í að tapa völdum ef kjós-
endur verða svipað stemmdir í þing-
kosningunum að ári eins og þeir
voru í sveitarstjórnakosningunum.
Spáðu blöðin því að nú myndi Chirac
berjast af alefli fyrir því að tryggja
að þingkosningarnar verði haldnar á
undan forsetakosningunum, en
Jospin hefur beitt sér fyrir því á
þingi að kosningadagskrá ársins
2002 verði breytt þannig, að forseta-
kosningarnar fari fram á undan
þingkosningunum, þar sem hann
reiknar sér og sínum pólitískan
ávinning af þeirri tilhögun.
Vinstrimenn töpuðu völdum í
fleiri en 30 bæjum og borgum um
helgina, þar á meðal í Strassborg og
Avignon, sem var þeim mikið áfall.
Samstaða hægri-
manna styrkist
Talsmenn flokkanna lásu mis-
munandi skilaboð út úr niðurstöð-
unum.
„Þessar kosningar lofa góðu fyrir
hægrimenn með tilliti til þingkosn-
inganna að ári,“ sagði Patrick De-
vedjian, talsmaður RPR. „Við unn-
um í 41 bæ með yfir 30.000 íbúa og
það hefur mikið að segja. Kosninga-
baráttan fyrir þingkosningarnar er
hafin.“
En Francois Fillon, stjórnmála-
ráðgjafi RPR, sagði hægrimenn
verða að læra sína lexíu af sveit-
arstjórnakosningunum ef þeir sjá
vonir um gott gengi í þing- og for-
setakosningunum ganga eftir.
„Kosningarnar á sunnudaginn báru
með sér þrenn skilaboð; ríkisstjórn-
in veiktist, vinstrimenn eru sundr-
aðri en nokkru sinni áður og hægri-
menn hafa endurheimt vonina, en
það er þó aðeins von en ekki nein
bein braut til valda,“ hefur AFP eft-
ir honum.
Francois Hollande, formaður
Sósíalistaflokksins, sagði niðurstöð-
ur sveitarstjórnakosninganna
„skilja dyrnar eftir galopnar fyrir
kosningarnar 2002“. Hann viður-
kenndi að vinstrimenn yrðu að
draga lærdóma af úrslitum sunnu-
dagsins. „Við þurfum ekki að breyta
stjórnarstefnunni, en við verðum að
aðlaga okkur nýjum stjórnarhátt-
um,“ sagði Hollande er talsmenn
RPR lýstu því yfir að hægrimenn
hefðu nú meirihluta á landsvísu.
Staðreyndin er sú, að samtals fengu
hægrimenn 51,85% atkvæða á
sunnudaginn og vinstrimenn
48,15%.
Franskir hægrimenn hafa verið
sundraðir frá því árið 1997, þegar
Chirac gerði þá skyssu að boða til
þingkosninga sem varð til þess að
hægristjórnin sem þá var við völd
tapaði og vinstistjórn Jospins tók
við. Að hægriflokkunum – Gaullista-
flokknum RPR, miðju-hægri-flokkn-
um UDF og frjálslynda flokknum
DL – skyldi takast að standa saman
að baki sameiginlegra frambjóðenda
í síðari umferð sveitarstjórnakosn-
inganna og sú staðreynd að innri
klofningur hefur svipt þjóðernis-
sinna, sem áður fylktu sér um Jean-
Marie Le Pen, áhrifum, hefur hleypt
nýjum krafti í hófsama hægrimenn
og styrkt vonir þeirra um að komast
aftur að stjórnartaumunum.
Niðurstöður kosninganna á
sunnudaginn voru mikill skellur fyr-
ir kommúnista. Frambjóðendur
þeirra urðu undir alls staðar þar
sem þeir voru áður sterkir. Svo virð-
ist sem fylgi kommúnista hafi færzt
að miklu leyti yfir á græningja, sem
fengu gegnumsneitt um 12% at-
kvæða í sveitarstjórnakosningunum
og munu á þeim grundvelli geta
krafizt meiri áhrifa innan sam-
steypustjórnar Jospins. Víða sneru
kjósendur sér að frjálsum kosninga-
bandalögum vinstrimanna sem ekki
vildu láta kenna sig við neinn þeirra
flokka sem eru við völd í París.
Tímamót í París
Parísarbúar sýndu hins vegar
óánægju sína með spillingu þá sem
viðgengizt hefur í ráðhúsi borgar-
innar á síðustu árum með því að
kjósa Bertrand Delanoë, frambjóð-
anda sósíalista og græningja, til
borgarstjóra, en hann er einn fárra
stjórnmálamanna „í fremstu víg-
línu“ í Frakklandi sem er yfirlýstur
hommi. Hann fékk í síðari umferð-
inni 49,6% atkvæða. 92 af 163
fulltrúum í borgarstjórninni verða
vinstrimenn, sem tryggir Delanoë
formlegt kjör til borgarstjóra nk.
sunnudag. „Úrslitin voru góð í París
og Lyon, en við urðum líka fyrir
hnekki annars staðar, sem er alvar-
legt íhugunarefni fyrir okkur,“ sagði
Lionel Jospin er hann mætti til að
óska vini sínum Delanoë til ham-
ingju með sigurinn.
Vinstrimenn hafa ekki stjórnað
París frá því í Parísarkommúnunni
árið 1871. Jacques Chirac var borg-
arstjóri Parísar í 18 ár áður en hann
varð forseti 1995, en eftirmaður
hans, Jean Tiberi, missti allar vin-
sældir vegna spillingarmála. Hann
var útilokaður frá RPR er hann
ákvað að bjóða fram í eigin nafni,
sem klauf fylgi hægrimanna í borg-
inni og auðveldaði eftirleikinn fyrir
Delanoë.
Síðari umferð sveitarstjórnarkosninga í Frakklandi
Bæði vinstri- og hægri-
mönnum veitt lexía
AP
Verðandi borgarstjóri Parísar gengur hjá ráðhúsi borgarinnar í gær.
París. AFP, Reuters.
Borpallur-
inn hélt
áfram að
sökkva
Macae, Rio de Janeiro. Reuters, AFP.
BRASILÍSKUR olíuborpallur, sá
stærsti í heimi, tók að sökkva aftur í
gær en þá hamlaði vont veður til-
raunum til að bjarga honum. Mikil
sprenging varð í pallinum síðastlið-
inn fimmtudag og varð hún 10
mönnum að bana. Í pallinum eru 1,5
milljónir lítra af olíu.
Um helgina tókst brasilískum og
erlendum sérfræðingum að koma í
veg fyrir, að pallurinn, sem er 40
hæða hár, hallaðist meira en í fyrri-
nótt jókst hallinn aftur og pallurinn
sökk meira í sjó. Var það kennt
vondu veðri á þessum slóðum.
Bandarískir og hollenskir sér-
fræðingar með mikinn tækjabúnað
komu Brasilíumönnunum til hjálpar
og dældu þeir köfnunarefni og lofti
inn í hólf, sem fyllst höfðu af vatni
við sprenginguna. Við það minnkaði
hallinn á pallinum úr 30 gráðum í
24. Hann jókst síðan aftur er veðrið
versnaði með 1,5 metra ölduhæð.
Smíði pallsins kostaði um 30 millj-
arða ísl. kr. en hann er 125 km und-
an brasilísku hafnarborginni Macae.
Ekki er vitað hvað olli sprenging-
unum og ekki hefur tekist að finna
nema eitt lík. Hinna mannanna níu
er saknað og eru þeir taldir af.
Sökkvi pallurinn alveg munu um
1,5 milljónir lítra af olíu í tönkum
um borð og í leiðslum undir honum
berast út í sjóinn.
Pallurinn er í eigu brasilíska rík-
isolíufélagsins Petrobras en það er
að reyna að hasla sér völl sem eitt af
mestu olíufélögum í heimi. Af því
fer þó misjafnt orð hvað öryggis-
málin varðar, bæði hvað viðkemur
mengunarslysum og slysum á fólki.
Á síðustu þremur árum hefur 81
starfsmaður þess látið lífið við vinnu
sína.
STJÓRNVÖLD í Makedóníu sendu
í gær fjóra skriðdreka inn í næst-
stærstu borg landsins, Tetovo og
virðast staðráðin í kveða niður upp-
reisn skæruliða úr röðum fólks af
albönskum uppruna. Drekarnir
komu á vettvang skömmu fyrir há-
degi en þá hafði dregið nokkuð úr
átökunum við borgina sem voru
hörð um nóttina. Með þeim voru
brynvarinn liðsflutningavagn og
tveir vörubílar, annar hlaðinn her-
mönnum. Varalið hersins var kallað
inn á sunnudag.
Stjórnin hefur að sögn útvarps-
stöðvarinnar B-92 í Júgóslavíu sent
fótgöngulið á staðinn og er það búið
brynvögnum, fallbyssum og
sprengjuvörpum. Stöðin sagði að
skæruliðar hefðu reynt að taka
borgina um morguninn en orðið frá
að hverfa og hörfað til virkja sinna í
fjöllunum í grennd við Tetovo.
Hörðust voru átökin í þorpinu
Drenoec í útjaðri Tetovo, skæru-
liðar gerðu árásir á íþróttaleikvang
borgarinnar. Einnig var mikil skot-
hríð í hverfunum Teke, Mala Recica
og Gajire. Útgöngubann var í Tet-
ovo um nóttina og umferð var lítil
þegar dagaði í gær, flestar verslanir
voru lokaðar.
Óljóst er hve fjölmennir skæru-
liðar eru, sennilega skipta þeir
hundruðum og heimildarmenn segja
að nýir liðsmenn bætist við á hverj-
um degi. Carl Bildt, fyrrverandi for-
sætsiráðherra Svíþjóðar og nú
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna á Balk-
anskaga, sakaði í gær Atlantshafs-
bandalagið (NATO) um að gera af
ásettu ráði of lítið úr umsvifum
skæruliðanna; hann sagðist álíta að
takmarkað borgarastríð geisaði nú
þegar í Makedóníu. Enn væri hægt
að grípa í taumana en tíminn væri
naumur. Bildt sagði að Vesturveld-
unum bæri „siðferðisleg skylda“ til
að aðstoða Makedóníustjórn og
minnti á mikilvægt hlutverk lands-
ins er albanskt flóttafólk frá Kosovo
hraktist þangað undan herjum Slo-
bodans Milosevic Júgóslavíuforseta
1999. Hann sagði það hneisu fyrir
NATO og SÞ að skæruliðar skyldu
geta notað Kosovo sem miðstöð fyr-
ir hryðjuverkaárásir á Makedóníu.
Rudolf Scharping, varnarmála-
ráðherra Þýskalands, sagði í út-
varpsviðtali í gær að átökin gætu
breiðst út á Balkanskaga en vildi
ekki taka undir orð Bildts. „Ég held
að ekki sé réttlætanlegt að nota orð-
ið stríð,“ sagði ráðherrann. Hann
sagðist vera viss um að skæruliðar
myndu senn binda enda á árásirnar
en Þjóðverjar hafa styrkt friðar-
gæsluliða sína í landamærahéraðinu
milli Kosovo og Makedóníu með
skriðdrekum.
Skæruliðar eru margir sagðir
vera reyndir bardagamenn eftir að
hafa tekist á við herlið Júgóslavíu á
sínum tíma í Kosovo og hafa á að
skipa mjög snjöllum foringjum.
Landslagið er afar vel fallið til
skæruhernaðar, mikið er um skógi
vaxin fjöll á landamærunum og
helstu vegir eru malarvegir er
liggja oft um þröng skörð og henta
því ekki vel stórum farartækjum.
Víða eru auk þess snjóalög í fjall-
lendinu. Undanfarna daga hafa það
einkum verið vopnaðar lögreglu-
sveitir sem hafa tekist á við skæru-
liðana.
Í fastaher Makedóníu eru um
20.000 manns og á sunnudag voru
kallaðir inn varaliðsmenn að auki.
Talið er að þeir séu allt að hundrað
þúsund. Herinn er hins vegar illa
búinn vopnum, aðallega er um að
ræða búnað sem keyptur var fyrir
um tíu árum frá Albaníu. Þriðjung-
ur flughersins varð óvígur á laug-
ardag er þyrla hrapaði.
Um tíu þúsund manns komu sam-
an á mótmælafundi í höfuðborg
Makedóníu, Skopje, á sunnudag og
kröfðust þess að ráðið yrði niðurlög-
um uppreisnarmanna. Embættis-
maður í lögreglunni í Tetovo fullyrti
að stjórnvöld dreifðu nú með leynd
vopnum til karla úr röðum þeirra er
tala makedónísku sem er slavnesk
tunga, náskyld búlgörsku og serbó-
króatísku. Albanar eru að líkindum
um þriðjungur íbúa Makedóníu og
viðkoma þeirra á Balkanskaga er
meiri en annarra þjóðarbrota.
Carl Bildt segir NATO gera of lítið úr átökunum við albanska skæruliða
Makedóníumenn kalla
út varalið hersins
Tetovo, Baden-Baden. The Daily Telegraph, AP, AFP, Reuters.
Efnahags-
samdráttur
efst á baugi
Washington, Tókýó. AFP, AP.
YOSHIRO Mori, forsætisráðherra
Japans, átti viðræður í gær við
George W. Bush Bandaríkjaforseta í
Washington. Snerust þær aðallega
um efnahagsmál og um leiðir til að
bæta það erfiða ástand, sem verið
hefur undanfarið varðandi samstarf
ríkjanna í öryggismálum
Gengi japanska jensins hækkaði
allnokkuð í gær þegar japanski
seðlabankinn tók upp aftur núll-
stefnu í vaxtamálum en frá henni var
horfið í ágúst á síðasta sumri. Hefur
þessum ráðstöfunum verið vel tekið
en margir efast þó um, að þær
hrökkvi til að losa japanskt efna-
hagslíf við doða síðustu tíu ára.
Sumir fjármálasérfræðingar tóku
raunar svo djúpt í árinni að segja, að
ákvarðanir seðlabankans myndu
engin áhrif hafa, hann væri bara til-
neyddur til að gera eitthvað. Líktu
þeir japönsku efnahagslífi við vagn-
skrifli, dregið af örmagna húðarjálk-
um, sem fyndu ekki lengur fyrir
svipuhöggum eða annarri slíkri örv-
un. Það væri því tilgangslaust að
lækka vexti, sem væru næstum engir
fyrir. Það segir sína sögu um ástand-
ið, að ríkisstjórnin tilkynnti síðastlið-
inn föstudag, að verðhjöðnunarskeið
væri hafið í Japan í fyrsta sinn frá
stríðslokum.
Vaxtalækkun í
Bandaríkjunum?
Gengi evrunnar hækkaði einnig í
gær en margir búast við, að banda-
ríski seðlabankinn muni á næstunni
lækka vexti um allt að 0,75 prósentu-
stig til að vega upp á móti samdrætt-
inum vestra.
♦ ♦ ♦