Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 25
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 25
SMÁBÁTAR af öllu landinu hafa
fengið mjög góðan afla síðustu daga,
enda hafa þeir setið einir að mið-
unum vegna sjómannaverkfallsins,
sem nær ekki til báta minni en 12
tonn.
Mjög vel gaf til sjósóknar um allt
land í gær og voru um 400 smábátar
á sjó, samkvæmt upplýsingum Til-
kynningaskyldunnar.
Smábátar á Vestfjörðum hafa
fengið mjög góðan steinbítsafla línu
síðustu daga, sem og reyndar annars
staðar á landinu. Algengt er að smá-
bátar komi með 5–7 tonn að landi
eftir daginn. Netabátar hafa fengið
góðan afla fyrir Suðurlandi síðustu
daga. Að sögn Viktors Jónssonar,
skipstjóra á Maron GK frá Grinda-
vík, hefur aflinn farið upp í 10 tonn í
daginn, í aðeins 54 net. Maron GK er
9,9 tonna bátur og því nær verkfallið
ekki til hans. „Netin eru bókstaflega
bunkuð af fiski. Þetta er nokkuð
blandaður fiskur, meðalvigtin um
sex til tíu kíló, sem er ágætt en við
höfum oft fengið betri fisk á þessum
árstíma, allt upp í tólf kílóa með-
alvigt. Tíðin hefur auk þess verið
einstök síðustu daga og það er marg-
ir bátar á þessum slóðum, þrátt fyrir
verkfallið. Samt þykir okkur slæmt
að stærri bátarnir geti ekki tekið
þátt í mokinu. Það er mikið pláss á
miðunum fyrir okkur hina núna og
vantar allan hasar, maður getur lagt
nánast hvar sem er án þess að hafa
áhyggjur af því leggja yfir aðra,“
sagði Viktor í samtali við Morgun-
blaðið í gær en hann var þá að draga
netin í Litlu Sandvík við Reykjanes.
Hann segir að þorskurinn sé út-
belgdur af loðnu á þessum slóðum og
því séu línubátar að veiðum nokkuð
dýpra þar sem minna er af loðnu.
„Algjör veisla“
„Við fengum 8,3 tonn á sunnudag í
50 net,“ sagði Jónas Árnason, skip-
stjóri á Elsu SU, í samtali við Morg-
unblaðið í gær en hann var þá að
draga netin við Stafnes á Reykja-
nesi. „Það hefur verið mjög gott fisk-
irí frá því um helgi enda mátti búast
við því á þessum árstíma. Við erum
vanalega tveir um borð en fengum
þriðja manninn á meðan aflabrögðin
eru svona góð. Það er slæmt að það
skuli vera verkfall einmitt á meðan
mokveiðist alls staðar í öll veiðar-
færi. Við löndum í föstum viðskipt-
um og fáum mjög gott verð fyrir
fiskinn, 208 krónur fyrir kílóið. Það
er því ekki hægt að kvarta yfir af-
komunni þessa dagana, þetta er al-
gjör veisla,“ sagði Jónas.
Upp í 500 kíló á balann
Línutrillur frá Þórshöfn og
Bakkafirði hafa fengið mjög góðan
afla í Lónafirði síðustu daga, nánast
í hafnarmynninu á Þórshöfn. Að
sögn Jóns Hafliðasonar, á Digranesi
NS frá Bakkafirði, hafa fengist allt
upp í 500 kíló á balann, af ágætum
þorski. Bátarnir hafi því verið að
landi allt upp í 6,4 tonnum eftir dag-
inn. Aflanum er landað á Þórshöfn
en honum síðan ekið til vinnslu hjá
Gunnólfi efh. á Bakkafirði.
Ljósmynd/Þorgrímur Kjartansson
Marínó Jónsson á Digranesi NS frá Bakkafirði landaði um 4,9 t á Þórshöfn en aflinn fékkst á aðeins 10 bala.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Verkfall sjómanna nær ekki til skipa undir 12 tonnum og hafa smábátar mokfiskað í netin undanfarna daga.
Elsa SU landaði um 8,3 tonnum í Sandgerði á sunnudag.
Mokveiði hjá smábátum um allt land
Fá upp í 10
tonn á dag
SMÁBÁTAR hafa fengið
mjög góðan og mikinn afla
undanfarna daga og hefur
verið mikil sala á innlendum
fiskmörkuðum en vegna mik-
ils framboðs hefur orðið vart
einhverrar verðlækkunar, að
sögn Ragnars Kristjánssonar,
framkvæmdastjóra Fisk-
markaðar Suðurnesja.
Í gærmorgun seldust sam-
tals rúmlega 210 tonn á fisk-
mörkuðum landsins og segir
Ragnar að áhrifa sjómanna-
verkfallsins hafi ekki farið að
gæta. Menn hafi birgt sig upp
af fiski fyrir helgi og það hafi
áhrif á verðið í þessari viku.
„Kælarnir eru víða mjög þétt
setnir í augnablikinu og því
eðlilegt að menn haldi aðeins
að sér höndum, þó allt seljist,“
segir hann.
Ragnar segir að smá verð-
lækkun hafi orðið á þorski. Þá
kom mikið inn af steinbít fyrir
vestan í gærmorgun og fór
verðið aðeins niður.
Engin breyting á
kaupendahópnum
Að sögn Ragnars varð eng-
in breyting á kaupendahópn-
um á mörkuðunum þrátt fyrir
verkfallið. Stór fyrirtæki
kaupi mikið til að halda uppi
vinnu, búðir kaupi gjarnan
mikið af ýsu á mánudögum,
saltfiskverkendur kaupi stóra
þorskinn sem fyrr og svo
framvegis. „Stóri þorskurinn
hefur lækkað eitthvað smá-
vegis en verðið hækkar
örugglega fljótlega.“
Ragnar segir að sú stað-
reynd að allir geti verið á sjó
sem megi vera á sjó hafi mikið
að segja, því fyrir bragðið sé
nægt framboð. „En þó sumar
tegundir hafi lækkað í verði
hefur til dæmis langa hækkað
aftur. Hins vegar hefur mikið
magn af steinbít lækkað verð-
ið.“
Mikið
framboð
lækkar
fiskverð