Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 76
76 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LEIKRITIÐ Blúndur og blásýra
eftir Joseph Kesselring var frum-
sýnt sl. laugardagskvöld í Borg-
arleikhúsinu.
Sagan er allsérstök og hroll-
vekjandi en þar er fjallað um
læknisfræði, lýtalækningar, girnd-
armorð og greftrunarsýki. Ótrú-
legt en satt þá er leikritið hinn
besti farsi um bæði elskulegar og
hlýlegar persónur sem reyndar
hafa brenglaða siðferðiskennd.
Þar segir frá piparmeyjunum
og systrunum Mörtu og Abbý sem
Guðrún Ásmundsdóttir og Hanna
María Karlsdóttir leika. Þær búa
hjá Tedda bróður sínum, sem
Theodór Júlíusson túlkar, en hon-
um er lýst sem geðsjúkri gæðasál.
Þær leigja út herbergi til ungra
manna og hjálpa þeim gjarna yfir
móðuna miklu ef þeim finnst þeir
eiga eitthvað of bágt í lífinu.
Þannig hafa ófá líkin verið grafin
í kjallara heimilisins.
Leikstjóri sýningarinnar er Ás-
dís Þórhallsdóttir og er Blúndur
og blásýra fyrsta leikritið sem
hún stýrir á fjölum Borgarleik-
hússins. Hún segir leikritið vera
um ástina, en aðalpersónurnar
hafa allar farið á mis við hana.
Blúndur og blásýra er eina verk
höfundarins sem varð vinsælt, og
þá sem misskilinn gamanleikur.
Það var sýnt í Iðnó árið 1947 og
nú 54 árum seinna er leikurinn
endurtekinn og alltaf virðast
áhorfendur skemmta sér jafnvel.
Ekki minnkaði kæti gestanna þeg-
ar þeim var boðið til frumsýning-
arteitis í anddyri Borgarleikhúss-
ins þar sem aðstandendur og
áhorfendur gæddu sér á ljúfum
veitingum.
Blúndur og blásýra í Borgarleikhúsinu
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Kormákur Örn kom að horfa á ömmu sína, Guðrúnu Ásmundsdóttur,
leika Mörtu og það gerði Erna Ragnarsdóttir líka.
Elskulegt fólk með
brenglaða siðferðiskennd
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Katla Mar-
grét Þorgeirsdóttir fengu sér í gogginn eftir sýn-
ingu ásamt Ólafi Steingrímssyni.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Leikstjórinn Ásdís Þórhallsdóttir, leikkonan Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir og leikhússtjórinn Guðjón
Pedersen voru ánægð að frumsýningu lokinni.
JOHN Phillips, forsprakki og
aðallagahöfundur Kaliforníu-
sveitarinnar The Mamas and
the Papas, lést síðasta sunnu-
dag úr hjartaáfalli, 65 ára að
aldri. Phillips hafði þegar
fengið nýja lifur fyrir nokkr-
um árum eftir áfengis- og eit-
urlyfjaofnotkun.
Jafnvel þótt hljómsveitin
hafi aðeins starfað í þrjú ár,
eða frá 1965–68, hafði kvart-
ettinn tekið upp mörg af eft-
irminnilegustu popplögum
aldarinnar einsog „California
Dreamin’“,
„Monday,
Monday“ og
„Creeque
Alley“.
Í hljómsveit-
inni voru einn-
ig fyrrverandi
eiginkona
Phillips, Mich-
elle, Denny
Doherty, og „Mama“ Cass
Elliot, sem lést árið 1974. Eft-
irlifandi meðlimir hennar
komu aftur saman árið 1998
til að flytja lagið „California
Dreamin’“ af því tilefni að þau
voru tekin inn í Rock and Roll
Hall of Fame.
Phillips samdi líka lög fyrir
aðra tónlistarmenn einsog
„San Francisco (Be Sure to
Wear Flowers in Your Hair)“
fyrir Scott McKenzie árið
1967, „Kokomo“ fyrir Beach
Boys sem náði fyrsta sæti á
vinsældalistum árið 1988 og
„Me and My Uncle“ fyrir
Grateful Dead.
Rokk-
hetja látin
John
Phillips
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 14. Vit nr. 209
Gíslataka í frumskógum
S-Ameríku
Russell Crowe og Meg Ryan í magnaðri spennumynd í
leikstjórn Taylor Hackford sem gerði myndirnar Devil´s
Advocate, An Officerand a Gentleman og Against All Odds
www.sambioin.is
Sýnd kl. 3.45.
Ísl tal. Vit nr. 183.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Vit nr. 210.
Sýnd kl. 8 og 10.
Vit nr. 197.
EDDIE GRIFFIN
ORLANDO JONES
Sýnd kl. 5.55. Ísl. tal.
Vit nr.194
Gamanmynd í stíl Who framed Roger
Rabbit með Robert De Niro, Renne
Russo, Randy Quaid, John Goodman og
Whoopi Goldberg í aðalhlutverki
Þeir eru komnir
til að bjarga heiminum!il j i i
Kvikmyndir.is
Spennandi
ævintýramynd
fyrir börn á
öllum aldri
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4. Íslenskt tal.
Vit nr. 169
Sýnd kl. 4 og 6.
Vit nr. 203.
Snilligáfa hans
ÓUMDEILANLEG
Illska hans
ÓLÝSANLEG
Nafn hans...
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
Sýnd kl. 8 og 10.30.
B. i. 16. Vit nr. 203.
Kvikmyndir.is
H.K. DV
Sýnd kl. 4, 8 og 10.45. B. i. 16. Vit nr. 201.
Ein umtalaðasta mynd allra tíma heldur áfram að sópa til sín
verðlaunum og er nú loks komin til Íslands
HK DVHausverk.is
Sýnd kl. 5.45
m y n d e f t i r R O B E R T A L T M A N
h ö f u n d S h o r t c u t s o g T h e
P l a y e r
HELEN HUNT FARRAH FAWCETT LAURA DERN SHELLEY LONG LIV TYLER
RICHARD GERE
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 14.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
GSE DV
HL Mbl
ÓHT Rás 2
ÓFE Sýn
Gíslataka í frumskógum
S-Ameríku
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i.16 ára.
kirikou
og galdrakerlingin
með íslensku tali
Óskar Völundarsson sem Kirikou, Jóhanna Vigdís
Arnardóttir sem galdrakerlingin. Einnig eru raddir þeirra
Stefáns Karls Stefánssonar, Guðmundar Ólafssonar,
Sigrúnar Wagge, Arnars Jónssonar og fleiri.
Sýnd kl. 8 og 10.15.Sýnd kl. 6.
Rás 2
1/2 MBL
1/2 Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8