Morgunblaðið - 20.03.2001, Page 6

Morgunblaðið - 20.03.2001, Page 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ lagt til að því yrði frestað til mán- aðamóta. Í nefndaráliti minnihluta sjávarút- vegsnefndar lýsir stjórnarandstaðan andstöðu sinni við það að enn á ný skuli ríkisstjórnin beita sér fyrir því að Alþingi setji lög á kjaradeilu sjó- manna og útvegsmanna. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fyrir liggi telji stjórnarandstaðan fulla ástæðu til að óttast að inngrip ríkisstjórnar- innar leiði til þess að samningar dragist enn frekar á langinn en ella hefði orðið, því nokkur skriður virðist hafa verið kominn á viðræðurnar. Samkvæmt upplýsingum frá deiluað- ilum virðist sem ekkert samráð hafi verið haft við þá þegar ríkisstjórnin hafi tekið ákvörðun um að leggja frumvarpið fyrir Alþingi. Meginregl- an í vinnurétti sé sú að aðilar fái frið fyrir ríkisvaldinu til að semja um kaup og kjör. Það sé ábyrgðarhluti að grípa inn í kjaradeilur og í raun lítils- virðing við samningsaðila að gefa þeim ekki svigrúm til samninga. Að- ferð ríkisstjórnarinnar við núverandi aðstæður sé sérstaklega ámælisverð þar sem hún sé tekin í algeru tóma- rúmi og án tengsla við þann veruleika að hreyfing var komin á viðræður. Guðjón Arnar Kristjánsson, þing- maður Frjálslynda flokksins, sagði að á síðustu fjórtán árum hefðu sjó- menn verið samningslausir sex og hálft ár. Þegar liðnir væru þrír sólar- hringar í verkfalli væri talið tíma- bært að setja lög á kjaradeiluna og menn hlytu að spyrja sig hvers vegna fiskimenn væru teknir öðrum tökum í þessum efnum en aðrir. Skemmst væri að minnast kjaradeilu kennara í því sambandi. Guðjón sagði einnig að sjómenn hefðu ekki beitt verkfallsvopninu ótæpilega og iðulega liðið mánuðir áður en þeir hefðu gripið til þess. Hann hefði orðið fyrir afar mikum vonbrigðum með það hvernig þessi mál hefðu þróast nú. Þessi niðurstaða væri algerlega óviðunandi. Útgerðin ætti það ævinlega víst að geta fengið sett lög. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði að það væri grundvallarréttur vinnandi fólks að geta gripið til aðgerða til að bæta kjör sín. Ríkisstjórnin gengi erinda útvegsmanna aftur og aftur og hvernig ætti að vera hægt að ná samningum ef annar aðilinn gæti treyst á lagasetningu. Hann sagði að erfitt væri að segja annað en það væri verið að setja lög á verkfallið. Þó í orði kveðnu væri verið að fresta verkfallinu væri þrýsting- urinn úti vegna þess að vertíðin væri frá. Nöturlegt væri að þegar verkfall hefði ekki staðið í fjóra sólarhringa og þegar heyrst hefði að það væri að rofa til í samningum kæmi ríkis- stjórnin að málinu með þessum hætti og sliti í sundur verkfallið með lögum. Steingrímur Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, sagði að verkfall á fiski- skipaflotanum ylli ævinlega miklu tjóni og dró í efa þá röksemdafærslu sem færð væri fram í frumvarpinu að verkfall nú ylli miklu þjóðhagslegu tjóni. Yrði það eitthvað öðru vísi síðar í vor? Hann sagði að sjómenn hefðu aftur og aftur mátt þola lagasetningar í þessum efnum og það væri að skap- ast hefð fyrir inngripum af þessu tagi. Velta mætti því fyrir sér hvers virði samnings- og verkfallsréttur sjómanna væri ef þeir þyrftu að sæta þessu aftur og aftur. Væru þá ekki viðsemjendurnir í því skjóli að vita að fyrr eða síðar yrðu þeir leystir frá þeirri ábyrgð að semja við starfs- menn sína? Steingrímur sagði að þarna væru enn á ferðinni að hluta til að minnsta kosti sömu óleystu deilumálin og strandað hefði á aftur og aftur á und- anförnum árum, þ.e. átök um það hvernig staðið skuli að verðmyndun aflans. Að einhverju leyti væri einnig um að ræða átök vegna viðskipta með veiðiheimildir og að sjómenn væru látnir taka þátt í kostnaði við kaup eða leigu veiðiheimilda. Þá væri farið að bera á þriðja ágreiningsatriðinu í vaxandi mæli og þar bæru stjórnvöld nokkra ábyrgð, en þar væri um að ræða mönnum á fiskiskipaflotanum. Guðmundur Hallvarðsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, sagði mikil vonbrigði hvernig málum væri komið. Vinnubrögð útvegsmanna væru ekki eðlileg í þessum efnum. Þeir gætu stólað á að svona væri farið að. Þetta væri vont fyrir þessa rík- isstjórn sem hefði frelsi og lýðræði að leiðarljósi. Hann myndiekki greiða atkvæði með þessum lögum. Þreifingar um frestun Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð- herra, sagði í samtali við Morgun- blaðið að það hefðu verið í gangi þreifingar um að fresta verkfallinu. Auðvitað hefði verið miklu betra ef deiluaðilar hefðu sjálfir getað staðið að því, en um það hefði ekki náðst samstaða. Þeim væri sagt að það væri kominn skriður á málið. Það sé mikil vinna eftir en það séu líkur til þess að það sé hægt að ljúka því á þeim tíma sem þarna sé til stefnu og þar af leiðandi sé rétt að standa að málum með þessum hætti. „Ég vona að það reynist rétt og það verði til góðs en ekki ills. Það er mikið í húfi. Vertíðin hér sunnan lands var rétt að fara í gang og þar er mikið í húfi fyrir vertíðarbátana og saltfisk- markaðina. Það er eftir töluvert að loðnukvóta, en ég lít svo að það sé áframhaldandi pressa eða þrýstingur í málinu á deiluaðila,“ sagði Halldór. Hann sagði að upphaflega hefði verið rætt um það að fresta málinu í heilan mánuð, en margir hefðu litið þannig á að þá myndi koma hlé í samningaviðræðurnar og þess vegna væri betra að sá tími sem gæfist yrði miklu styttri og það hefði orðið nið- urstaðan, m.a. eftir samtöl við for- ustumenn aðila. „Það er ekki gott að grípa til þess- ara aðgerða. Menn hafa aldrei verið glaðir að gera það. Ég minnist þess hér fyrr á árum að þá var gripið til þess sem algers neyðarúrræðis. En hér er um grundvöll þjóðarbúsins að ræða og gífurlegt hagsmunamál byggða sem standa margar hverjar illa. Hér er verið að fjalla lífsbjörgina og þessi mál brenna á mönnum með áhrifaríkari hætti en mörg önnur,“ sagði Halldór. frestun verkfallsins og tilsvarandi verkbanns útvegsmanna sé gerð til- raun til að bjarga þessum verðmæt- um sem ella væru landsmönnum að fullu glötuð. Jafnframt benti hann á að stöðvun veiða og vinnslu þegar vetrarvertíð standi sem hæst hefðu alvarlegar af- leiðingar fyrir sjómenn, fiskvinnslu og sveitarfélög sem byggi á sjávar- útvegi. Hluti vertíðarbáta hafi uppi- stöðu tekna sinna á þessum árstíma, auk þess sem stöðvun veiða á þessum tíma hafi alvarlegar afleiðingar á saltfiskmörkuðum. Í frumvarpinu var gert ráð fyrir því að verkfallinu yrði frestað um einn mánuð, til 19. apríl en sjávarút- vegsráðherra kynnti í framsögu sinni að horfið hefði verið frá því og væri HART var deilt á frumvarp ríkis- stjórnarinnar um frestun á verkfalli sjómanna til 1. apríl næstkomandi á Alþingi í gærkvöldi, en frumvarpið varð að lögum skömmu fyrir klukkan 22 með 33 atkvæðum stjórnarliða gegn 23 atkvæðum stjórnarandstöð- unnar. Stjórnarliðar sögðu að með frestuninni væri þess freistað að bjarga verðmætum sem annars væru að fullu glötuð þjóðarbúinu, jafn- framt því sem deiluaðilum gæfist tækifæri til að leysa deiluna áður en verkfall skylli á á nýjan leik, en stjórnarandstæðingar gagnrýndu inngrip stjórnvalda í deiluna harð- lega eftir aðeins þriggja daga verk- fall og töldu það verða til þess að tor- velda lausn. Árni M. Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra, mælti fyrir frumvarpinu og sagði að ef ekkert yrði að gert myndi verkfallið hafa í för með sér mikinn skaða fyrir atvinnulíf landsmanna og óbætanlegt tjón fyrir þjóðarbúið í heild. Sérstaklega þar sem ekki hefði tekist að ljúka veiðum á öllum loðnu- kvótanum. 130 þúsund tonn hafi ver- ið óveidd af loðnukvóta landsmanna þegar verkfallið hófst og megi ætla að það samsvari um 1,5 milljörðum króna í útflutningsverðmætum. Með Alþingi samþykkir lög um frestun á verkfalli sjómanna til 1. apríl næstkomandi Frumvarpið harð- lega gagnrýnt hann viljað skoða innan sinna raða hvort ekki væri rétt að stíga skrefið sjálfir. „Við ákváðum því í samninga- nefnd okkar að fresta þessu sjálfir, auðvitað vegna þessarar pressu, því það er skárra að ráða ferðinni sjálfir.“ Hann segir að lagasetningin seinki samningaviðræðunum, en bót í máli sé að frestun verkfallsins sé til 1. apríl en ekki 19. apríl eins og fyrst stóð til. Að sögn Helga virðist þurfa aðgerð eins og verkfall til að eitthvað gerist. „Við höfum staðið í þessu í 10 mánuði án þess að nokkuð hafi gerst.“ Aldrei friður Sævar Gunnarsson, formaður Sjó- FULLTRÚAR sjómanna eru allt annað en ánægðir með lagasetn- inguna um frestun sjómannaverk- fallsins til 1. apríl, en útvegsmenn segja jákvætt að reynt sé að bjarga verðmætum. Viðsemjendur eru hins vegar sammála um að mikilvægt sé að nýta tímann vel og reyna að ná samn- ingum áður en verkfall skellur aftur á. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, segir að LÍÚ hafi ekki komið að lagasetningunni á einn eða annan hátt heldur heyrt af henni í útvarpsfréttum. „Við pöntuðum þetta ekki eins og ýjað hefur verið að, en að- alatriðið er að lagasetningin verði ekki til að raska viðræðunum. Með þessu er verið að bjarga verðmætum í loðnu og bolfiski, stóra fiskinum, og það er jákvætt. Síðan þurfum við að nota tímann vel og leitast við að ljúka samningum fyrir 1. apríl en það er mjög margt eftir.“ Að sögn Friðriks er langt á milli viðsemjenda í ýmsum málum. Hann segir að útvegsmenn hafi boðið ým- islegt í verðmyndunarmálum, til dæmis að lækka lægstu verðin, setja lágmarksverð og vissa tengingu við fiskmarkaðina. „Við höfum líka boðið miklar umbætur í slysatryggingum og boðið verulega hækkun í kaup- tryggingu en samt er langt á milli.“ Friðrik segir að ekki sé ástæða til að ætla að lagasetningin hafi neikvæð áhrif á samningaviðræðurnar. Seinkar samningaviðræðum Helgi Laxdal, formaður Vélstjóra- félags Íslands, segir að sér lítist illa á lagasetninguna og að hún hafi komið sér mjög á óvart. „Við vorum búnir að vera þrjá og hálfan sólarhring í verk- falli og það er fullfljótt að setja lög,“ segir hann og bætir við að þegar ráð- herra hafi tilkynnt áform sín hafi mannasambands Íslands, segir að það sé óviðunandi að sjómenn skuli aldrei fá frið til að ljúka sínum málum án þess að stjórnvöld hafi afskipti af því. Hann segir að um helgina hafi verið farið þess á leit við sjómenn að þeir frestuðu verkfalli en hann hafi bent sáttasemjara á að ekki væri hægt að fresta verkfalli út á veðrið, einhverjar efnislegar ástæður yrðu að vera fyrir hendi. Ráðherra hefði kall- að sig á fund í gær og hann hefði skýrt honum frá því að samninganefnd Sjó- mannasambandsins væri ekki reiðubúin að fresta verkfalli. Tveimur tímum seinna hefði hann kallað alla talsmennina á sinn fund og tilkynnt að verkfalli yrði frestað í 30 daga. „Ég leyni því ekki að ég var bæði sár og leiður og sagði ráðherra það strax að þetta væru gersamlega óásættanleg vinnubrögð.“ Að sögn Sævars er það heilög skylda samningamanna að reyna að ljúka samningum. „Ég hef ásett mér að fara ekki í fýlu við þessar aðstæður og ásetti mér það í upphafi að vinna af heilindum að því að ljúka þessum mál- um. Fresturinn bæði særir og gerir menn vonda en við megum ekki láta tímann fara til spillis.“ Móðgun og óvirðing Grétar Mar Jónsson, formaður Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, segir að lagasetningin sé ekki gott innlegg í samningaviðræðurnar. „Það er móðgun og óvirðing við okkur sjómenn að eftir þrjá og hálfan dag í verkfalli skuli vera sett á okkur lög. Síðan er verið að tala um einhverja loðnu og búa til loðnukvóta en það veiðist engin loðna. Það eru tvö skip að veiðum undir grænlenskum fána og þau hafa ekkert fengið. Þetta er búið og það er verið að sigla undir fölsku flaggi.“ Að sögn Grétars hefur verið ljós í viðræðunum að undanförnu en hann telur að lagasetningin valdi aukinni stífni og stirðleika í viðræðunum þó reynt verði að láta hana ekki hafa áhrif. „En félagarnir hringinn í kring- um landið, baklandið, eru alveg æfir,“ segir hann. Samt sem áður segir hann að ekki þurfi mikinn tíma til að semja. „Við þurfum ekki nema einn til tvo daga ef menn fara að vinna eins og menn. Það þarf bara að hjóla í það.“ Mikilvægt að nýta tímann Morgunblaðið/Þorkell Fulltrúar Farmanna- og fiskimannasambandsins bera saman bækur sín- ar á Austurvelli í gær. Frá vinstri: Aðalsteinn Valdimarsson Eskifirði, Grétar Mar Jónsson formaður, Guðjón Ármann Einarsson Reykjavík og Benedikt Valsson, framkvæmdastjóri sambandsins. Viðsemjendur í sjómannadeilunni ekki á eitt sáttir um lagasetninguna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.