Morgunblaðið - 20.03.2001, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.03.2001, Qupperneq 20
VIÐSKIPTI 20 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Alvöru flotefni H ön nu n: G ís li B . Smiðjuvegur 72, 200 Kópavogur Sími: 564 1740, Fax: 554 1769 I Ð N A Ð A R G Ó L F Efni frá: ABS 147 ABS 147 ABS 154 ABS 316 Nokkur fyrirtæki 1. Verktakafyrirtæki sem byggir á vor- og sumarvinnu. Er kominn með fasta samninga í vor og sumar sem fylgja með. Vörubíll fylgir. 2. Lítið innrömmunarfyrirtæki til sölu. Er í stóru og glæsilegu plássi og hægt að hafa ýmislegt annað með. Gott fyrir hjón eða tvær vinkonur. 3. Nýjasta og glæsilegasta þjónustumiðstöðin á höfuðborgarsvæð- inu til sölu. Nýjustu og fullkomnustu vélar sem til eru. Sælgæti, skyndibitar, íssala og stór myndbandaleiga og tvær bílalúgur. Stór unglingaskóli við hliðina. Er í algjörum sérflokki. Mikil verslun og fer vaxandi. Hótel - höfum kaupendur Höfum sterka kaupendur sem eru að leita að gistiheimilum eða jafnvel hótelum upp að 50 herbergjum í höfuðborginni. Vinsamlega hafið samband. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. EINKAVÆÐING Landssíma Ís- lands hf. er talin stærsta einkavæðing sem hérlendis hefur verið fram- kvæmd, að því er fram kom í máli Friðriks Pálssonar, stjórnarfor- manns félagsins. Hann segir margt benda til að áhugi á að eignast hlut í Símanum verði mikill og að hlutafjár- eign í félaginu verði mjög dreifð með- al almennings. Því sé brýnna en ella að tryggt verði að samkeppnin fái að þróast eðlilega og opinberir aðilar tefji ekki eða trufli mikilvægan fram- gang hennar. Þetta kom fram í máli Friðriks á aðalfundi Landssíma Ís- lands í gær. Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri Símans, sagði á aðalfundinum að Sím- inn væri eitt fárra íslenskra fyrir- tækja sem hafi náð því að vera al- þjóðlega samkeppnisfært og jafnframt hafa ásættanlega afkomu. Hann sagði ekki hægt að fullyrða hver niðurstaða þessa árs verði varð- andi afkomu félagsins, því margt sé enn á huldu um aðstæður í efnahags- lífinu. Áætlanir félagsins miði við að EBITA-hlutfallið, hagnaður fyrir af- skriftir og fjármagnsliði, verði áþekkt eða ívið lægra en verið hafi síðustu tvö ár og að hagnaður eftir skatta verði til jafnaðar rúmar 100 milljónir á mánuði. Sturla Böðvarsson, samgönguráð- herra og handhafi eina hlutabréfs Símans hf., sagðist gera ráð fyrir að á næstunni verði veitt tilraunaleyfi til stafrænna sjónvarpssendinga. Komið sé að því að stokka upp spilin og út- hluta leyfum fyrir slíkar rásir til sjón- varpsfyrirtækja, en í dag séu rásir til sjónvarpssendinga takmarkaðar. Með stafrænu tækninni muni verða mikil breyting og því eðlilegt að und- irbúa mjög vel úthlutun þeirra leyfa. Ráðherra sagðist telja eðlilegt að Landssíminn hafi frumkvæði að sam- starfi við allar sjónvarps- og útvarps- stöðvar í landinu í þeim tilgangi að koma á tilraunasendingum sem væru undanfari þess að sjónvarpsstöðvarn- ar veldu sér þá kosti sem þær teldu hagstæðasta við dreifingu á stafræn- um sendingum. Meiri breytingar standa fyrir dyrum en nokkru sinni fyrr Engar forsendur eru til að draga þá ályktun að nú sé ekki rétti tíminn til að selja Símann að mati Friðriks Pálssonar. Hann telur að margt bendi frekar til þess að verðmæti félaga al- mennt sé nú nær lagi en fyrir einu ári og byggist meira á raunhæfum vænt- ingum um hagnað af rekstri en minna á óraunhæfum væntingum um stöð- uga hækkun verðs á hlutabréfum í félögum, eins og mjög hafi veri í tísku um nokkurra missera skeið. Friðrik sagði að hjá Símanum standi fyrir dyrum meiri breytingar en nokkru sinni fyrr í nærfellt 100 ára sögu félagsins, þegar eignarhald þess færist úr höndum íslenska ríkisins til einkaaðila. Einkavæðingarnefnd rík- issjórnarinnar hafi til gærdagsins tekið við tilboðum frá sérfræðingum á fjárfestingarsviði í það verkefni að setja verðmiða á Símann, leggja á ráðin um val á kjölfestufjárfesti og á annan hátt að leiðbeina um sölu á þeim 49% hlutafjár, sem selja skuli á næstunni. Nefndin ætli sér skamman tíma til að velja úr þá aðila sem til verksins verði fengnir og megi því ætla að mjög fljótlega verði hafist handa við undirbúning útboðs og sölu. Efasemdir um þriðju kynslóð farsíma Skuldabaggi vegna fjárfestinga í leyfi fyrir þriðju kynslóð farsíma hefði neikvæð áhrif á fyrirhugaða sölu Símans, að mati Friðriks. Hann sagði engan vita fyrir víst hvenær hægt verði að fara að nota þetta leyfi. Nokkrar efasemdir séu um að tæknin reynist jafngóð og vonir hafi staðið til. Stöðugar endurbætur á GSM- tækninni hafi jafnframt fært hana mun nær þriðju kynslóðartækninni, eins og hún sé skilgreind í dag, og því bendi margt til að samkeppnin á milli þessara kynslóða tækni verði harðari en búist hafi verið við í upphafi. Hann sagði hins vegar sjálfsagt að leyfum fyrir þriðju kynslóðina verði ekki út- hlutað án endurgjalds. Orkukerfið beri nýju fjarskiptafélögin ekki uppi Að sögn Friðriks gekk rekstur Símans með miklum ágætum á síð- asta ári. Niðurstaða ársreiknings félagsins markist alfarið af þeirri ákvörðun stjórnarinnar að afskrifa í einu lagi og að fullu viðskiptavild vegna endurmats félagsins. Á undan- förnum árum hafi verið unnið mjög markvisst að því að breyta félaginu úr ríkisstofnun í þjónustulundað fyrir á samkeppnismarkaði. Samkeppninni sé smátt og smátt að vaxa fiskur um hrygg og hafi Síminn gegnt lykilhlut- verki við það að skapa samkeppnis- fyrirtækjunum starfsgrundvöll meðal annars með því að semja um innkomu þeirra á dreifinet félagsins með svo- kölluðum reikisamningum í farsíma- þjónustu, um leið og félögin eigi í harðri samkeppni. Hann sagði að samkeppni við Tal á farsímamarkaði hafi verið í eðlilegum farvegi. Íslandssími sé styttra á veg kominn en vænta megi þess að þar ríki sama stefna og að samskipti og samkeppni við hann verð á sama veg. Öðruvísi sé hins vegar farið með fyr- irtækið Línu Net hf., sem sé að stærstum hluta í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Af störfum þess félags hingað til sé erfitt að trúa að arðsemi þess fjármagns, sem þar sé bundið, skipti miklu máli. Orkuveita Reykja- víkur sé eitt af sárafáum fyrirtækjum sem eftir séu í landinu sem hafi al- gjöra einokunarstöðu á sínu sviði, en eins og kunnugt sé hafi hún einkaleyfi á sölu á heitu vatni, köldu vatni og rafmagni til stærsta hluta höfuðborg- arsvæðisins. „Nú þegar einkavæðing Lands- síma Íslands hf. stendur fyrir dyrum hlýtur að verða gerð sú krafa til borg- aryfirvalda í Reykjavík, að hlutur borgarinnar í Línu Neti verði seldur svo að þaðan megi vænta eðlilegrar samkeppni. Allt annað er óviðunandi fyrir eigendur allra annarra síma- félaga. Landsvirkjun hefur nánast einokunarstöðu á framleiðslu og sölu rafmagns á heildsölustigi, en ræður jafnframt yfir býsna umfangsmiklu símaneti. Samsvarandi krafa hlýtur að vera gerð til þess, að sá hluti rekstrar félagsins sem hefur verið skilinn frá verði seldur, ef félagið á annað borð hyggst nýta það net til dreifingar símaþjónustu í samkeppni við aðra aðila á markaðnum. Meginat- riðið er að þessi nýju fjarskiptafélög beri allan sinn fjárfestingar- og rekstrarkostnað sjálf og orkukerfið sé ekki á nokkurn hátt látið bera það uppi,“ sagði Friðrik. Tilraunaleyfi til stafrænna sjónvarpssendinga Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra sagði að frumvarp verði lagt fyrir Alþingi á næstunni þar sem leit- að verði heimildar til að selja hlut rík- isins í félaginu. Hann sagðist leggja ríka áherslu á að starfsmenn Símans geti eignast hlut og telja það raunar til þess fallið að auka verðgildi félags- ins að sem flestir starfsmenn verði hluthafar og sýni þannig í verki að þeir hafi trú á fyrirtækinu og framtíð þess. Fram kom í máli ráðherra að eitt af stærri verkefnum Símans á næstunni væri að tileinka sér nýjungar við dreifingu myndefnis með gagnvirkri sjónvarpstækni og við uppbyggingu kerfa vegna þriðju kynslóðar farsíma. Hann beindi því til Símans að fyrir- tækið beiti sér fyrir átaki sem hafi það að markmiði að efla útbreiðslu sjónvarpssendinga. Símanúmer í farsímakerfinu fleiri en virk númer í fastlínukerfinu Þórarinn V. Þórarinsson sagði að Síminn hafi notið velgengni á mark- aðnum á síðasta ári og að það sjáist í tekjum félagsins sem hafi aukist um 17,7% frá fyrra ári. Hann sagði al- menna talsímaumferð hafa verið að færast af fastlínukerfinu yfir á far- símakerfin og sú þróun haldi sýnilega áfram. Nú sé svo komið að fjöldi símanúmera í farsímakerfunum hér á landi sé kominn vel fram úr virkum númerum í fastlínukerfinu. Raunar hafi viðtökurnar við GSM-þjónustu Símans verið langt umfram áætlanir félagsins síðustu árin og svo hafi einnig verið á síðasta ári. Þórarinn sagði að talið væri að Síminn hafi fengið liðlega 6 af hverjum 10 nýjum notendum í hóp viðskiptavina sinna. Fram kom í máli Þórarins að félag- ið hafi fjárfest á síðustu þremur árum fyrir rúma 13 milljaða króna og þar af séu um 90% í uppbyggingu í þágu kjarnastarfsemi innanlands. Þannig hafi fyrirtækið þurft að binda mjög mikið fé í tækjum, búnaði og aðstöðu til að ná markmiðum um tæknilega getu og þjónustu. Af einstökum þátt- um starfseminnar hafi mest verið fjárfest í þágu GSM-þjónustunnar enda hafi vöxturinn verið mestur á því sviði. Þær fjárfestingar hafi num- ið tæpum 1.300 milljónum króna á síðastliðnu ári, m.a. í stórfelldu dreifi- kerfi á landsbyggðinni. Dreifikerfi Símans GSM nái nú til yfir 98% þjóð- arinnar. Þórarinn gerði á aðalfundi grein fyrir miklum afskriftum Símans á síð- asta ári og hvernig þær hafi afgerandi áhrif á afkomu félagsins. Afskriftirn- ar breyti engu um raunverulega stöðu Símans, en geri reikninginn skýrari og eignahliðina öruggari. Hagnaður Landssíma Íslands hf. áætlaður rúmar 100 milljónir á mánuði Brýnt að sam- keppnin fái að þróast eðlilega Morgunblaðið/Jim Smart Sturla Böðvarsson samgönguráðherra heilsar Þórarni V. Þórarinssyni, forstjóra Landssíma Íslands, á aðalfundi fyrirtækisins. Á milli þeirra stendur Friðrik Pálsson, stjórnarformaður Landssímans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.