Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 23

Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 23
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 23 Bílaland B&L Tilboðsbílar www.bilaland.is bíla land notaðir bílar B&L Grjóthálsi 1 sími 5751230 Peugeot 306 Nýskr. 6.1995, 1400cc vél, 4 dyra, 5 gíra, blár, ekinn 73 þ. Suzuki Baleno Nýskr. 11.1997, 1600cc vél, 4 dyra, 5 gíra, dökkgrænn, 60 þ. Hyundai Sonata Nýskr. 5.1999, 2000cc vél, 4 dyra, sjálfskiptur, brúnn, ekinn 15 þ. Renault Clio VSK Nýskr. 1.1996, 1200cc vél, 3 dyra, 5 gíra, hvítur, ekinn 82 þ. Verð 350 þ. Hyundai Coupe Nýskr. 7.1997, 1600cc vél, 3 dyra, sjálfskiptur, vínrauður, ekinn 56 þ. Tilboðsverð 730 þ. Tilboðsverð 390 þ. Tilboðsverð 1.290 þ. Tilboðsverð 710 þ. Daihatsu Move Nýskr. 9.1997, 900cc vél, 5 dyra, sjálfskiptur, hvítur, ekinn 30 þ. Verð 530 þ. Verð 930 þ. Verð 550 þ. Verð 860 þ. Subaru Legacy GL Nýskr. 8.1992, 2000cc vél, 5 dyra, sjálfskiptur, dökkgrænn, ekinn 156 þ. Hyundai Accent Nýskr. 2.1997, 1500cc vél, 3 dyra, sjálfskiptur, grænn, ekinn 60 þ. Verð 470 þ. Verð 620 þ. Verð 690 þ. Tilboðsverð 490 þ. Verð 590 þ. Tilboðsverð 430 þ. Verð 1.480 þ. Á FÖSTUDAG var FTSE Norex 30-vísitalan sem gerir viðskiptaað- ilum kleift að kaupa og selja viln- anir og framvirka samninga lögð niður. FTSE Norex 30-vísitalan sjálf mun leggjast af í september næstkomandi. Svo virðist sem markaður fyrir vilnanir og fram- virka samninga sem byggjast á vísitölunni hafi ekki verið nægjan- legur. Viðskipti með slíka samninga voru þónokkur í byrjun en vísitalan var kynnt í september 1999. Áhugi fjárfesta hefur síðan farið dvín- andi. Í vísitölunni eru þrjátíu stærstu fyrirtæki á Norðurlöndum. Svo virðist sem OMX-vísitalan í Stokkhólmi, en í henni eru þau þrjátíu sænsku fyrirtæki sem mest er verslað með í sænsku kauphöll- inni, hafi haft vinninginn yfir NOREX-vísitöluna. OMX-vísitalan er meira notuð og töluverð viðskipti eru með vilnanir og framvirka samninga á þeirri vísitölu bæði í London og Stokk- hólmi. Claes-Urban Dackberg, að- stoðarframkvæmdastjóri markaðs- og rannsóknarsviðs OM-kauphall- arinnar í Stokkhólmi, segir að aðal- ástæðan fyrir því að vísitalan legg- ist af sé að verðbréfasalar eigi erfitt með að halda utan um og stjórna áhættu í svona safni. Við- skipti sem byggjast á vísitölunni eru í raun einnig viðskipti með norskar, sænskar og danskar krón- ur og evru sem sé notuð í Finn- landi. Það geri alla útreikninga flókna og áhættan sé of mikil. Þess vegna sé ekki viðunandi markaður fyrir vísitöluna og því verði hún lögð niður. Lítið höndlað með dönsk bréf Sænskir verðbréfasalar segja í umfjöllun Dagens Industri að þeir höndli lítið sem ekkert með til dæmis dönsk hlutabréf. Ef ætlunin sé til dæmis að kaupa og selja á danska markaðinum sé öruggara að gera það frá Danmörku. Þar séu þeir aðilar sem hafa besta þekk- ingu á danska markaðinum og geti tekið bestar ákvarðanir. Það skipti litlu máli að sama viðskiptakerfi sé notað. Viðskiptaaðili í Stokkhólmi hefur ekki eins greiðan aðgang að upplýsingum og samstarfsaðili í Kaupmannahöfn. Þrátt fyrir að nú sé hægt að eiga viðskipti í einu kerfi eru löndin í NOREX samt sem áður fjórar þjóðir með ólík tungumál og mismunandi hagkerfi og gjaldmiðla. Hans-Ole Jochumsen sem er í forsvari fyrir NOREX-samstarfið segir að reynsla Dana af samstarf- inu sé góð. Kerfið hafi verið í gangi nú í tæp tvö ár í Danmörku. Eign- arhald erlendra aðila í skráðum dönskum fyrirtækjum hafi farið úr 24% í 27% og veltan á markaðinum aukist mikið, markaðurinn sé bæði breiðari og seljanleiki bréfa meiri og viðskiptakostnaður hafi lækkað. Hans Ole segir að það hafi aldrei verið markmið NOREX að gera Norðurlöndin að einum markaði heldur að auðvelda aðgang fjár- festa utan Norðurlanda að mörk- uðum Norðurlanda. Þegar hann er spurður um nýtilkomið samstarf kauphallarinnar í Helsinki og Tall- inn segir hann að hann hafi trú á því að Helsinki komi til með að ganga í NOREX. Hann þori hins- vegar ekki að spá um hvenær það verði. HEX group sem rekur kaup- höllina í Finnlandi sé að fara að setja hlutabréf sín á markað og sé núna með hugann við það. Viðskipti dýrari á Norðurlöndum en á meginlandi Evrópu Sameiginlegur gjaldmiðill á markaðssvæðinu myndi auka áhuga stærri fjárfesta utan Norð- urlanda á að fjárfesta í norrænum hlutabréfum. Hins vegar hafi Sví- þjóð og Danmörk ákveðið að standa utan við Efnahags- og myntbandalag Evrópu og Noregur og Ísland hafi að sjálfsögðu sína gjaldmiðla. Norðurlöndin séu í samkeppni við markaði í Evrópu sem hafa hagræði af sameiginlegri mynt. Viðskipti á Norðurlöndum séu fyrir vikið dýrari en sambæri- leg viðskipti á meginlandi Evrópu. FTSE Norex 30- vísitalan lögð niður Stokkhólmi. Morgunblaðið. Í GÆR hófst fyrri lota sölu á hlutabréfum norska ríkisins í Den norske Bank, sem stendur til 30. mars. Seinni lota hluta- fjárútboðsins hefst líklega í haust, að því er fram kemur í Aftenposten. Norska Stórþingið hefur samþykkt að ríkið skuli minnka eignarhlut sinn í DnB úr um 60% í 35% og í þessari fyrri lotu er áætlað að eignarhlutfallið fari allt niður í 47,3%. Útboðið er ætlað einka- og stofnanafjárfestum, norskum og erlendum. Verðið á hluta- bréfunum ákvarðast að tíma- bilinu loknu en gengi hluta- bréfa DnB í Kauphöllinni í Ósló í gær var 42 norskar krónur á hlut og hefur farið lækkandi undanfarið eins og gengi ann- arra hlutabréfa. Haft hefur verið eftir óháð- um sérfræðingum að gengi DnB gæti hækkað í 52 krónur á hlut á næstu sex til tólf mán- uðum. Vaxtaþróun í Bandaríkj- unum er talin hafa mikil áhrif á efnahagslífið í Noregi og þ.m.t. hvernig DnB-útboðið þróast. Jan Willy Hopland, fram- kvæmdastjóri eignarhalds- félags ríkisins um bankahluta- bréfin, telur öruggt að Alan Greenspan seðlabankastjóri í Bandaríkjunum tilkynni um vaxtalækkun þar í landi í dag. Spurningin sé aðeins hversu mikil lækkunin verði. Að sögn Hopland hafa fjárfestar sýnt útboðinu mikinn áhuga og er hann bjartsýnn á að vel takist til. Hann segir þó í samtali við Dagens Næringsliv að ef verð- fall á hlutabréfunum heldur áfram verði ekki eins stór hluti bréfanna seldur og áætlað hafi verið. Hluta- fjárútboð DnB hafið Ósló. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.