Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 33

Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 33 kvennaþing samfylkingarinnar 24.-25. mars Kostnaður er kr. 6.500, matur og gisting innifalið. Grænmetisætur eru beðnar að tilkynna það við skráningu. í Munaðarnesi Vinsamlegast tilkynntu þátttöku fyrir 21. mars til Aðalheiðar Franzdóttur í síma 421-3840 eða 694-4456. Einnig má tilkynna sig með tölvupósti á samfylking@samfylking.is eða til undirritaðra: Aðalheiður Franzdóttir adalheidurf@hotmail.com , Elsa S. Þorkelsdóttir austurbr28@islandia.is, Hólmfríður Sveinsdóttir holmfridur@iti.is, Katrín Júlíusdóttir katrin@innn.is, Margrét Frímannsdóttir margretf@althingi.is, Sigrún Jónsdóttir pes@li.is, Svanfríður Jónasdóttir sij@althingi.is Allar Samfylkingarkonur velkomnar og hvattar til að mæta. Dagskrá: Laugardagur 24. mars: Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi, setur þingið að loknum léttum hádegisverði klukkan 12:00. Þá gerir Elsa S. Þorkelsdóttir, formaður hóps um stofnun kvennahreyfingar, grein fyrir stofnun hópsins, störfum hans og hugmyndum um starfið framundan. Í framhaldi af því fjallar Katrín Júlíusdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, um ungar konur í stjórnmálum og Oktavía Jóhannesdóttir, bæjarfulltrúi, fer yfir stöðu mála varðandi sveitarstjórnir. Að því loknu verða almennar umræður þar sem fundaritarar, Svanfríður Jónasdóttir, alþingismaður og Hólmfríður Sveinsdóttir, stjórnmálafræðingur, taka niður hugmyndir og tillögur þátttakenda. Að loknu kaffihléi stjórnar Kristín Á. Ólafsdóttir, leikari, umræðum um samstöðu kvenna og þvínæst verður dagskrá í höndum Bríetanna, félags ungra feminista. Formlegri dagskrá laugardagsins lýkur með sameiginlegum kvöldverði. Veislustjóri verður Ragnhildur Vigfúsdóttir, deildarstjóri. Ávarp flytur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri. Sunnudagur 25. mars: Að loknum morgunverði fara Svanfríður Jónasdóttir og Hólmfríður Sveinsdóttir yfir hugmyndir og niðurstöður úr umræðum laugardagsins. Þá stýrir Sigrún Jónsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, almennum umræðum. Kristín Á. Ólafsdóttir, leikari fjallar um framkomu í fjölmiðlum og ræðustól. Að loknum hádegisverði, klukkan 14:00 verður samantekt þingsins og þingslit í höndum Margrétar Frímannsdóttur, varaformanns Samfylkingarinnar. göngu um útlendinga að ræða. Það getur alveg eins verið að Íslend- ingur hafi framið brot erlendis án þess að við höfum um það vitn- eskju, sem gæti komið fram í Schengen upplýsingakerfinu,“ seg- ir Smári. Hægt er að rekja allar uppflettingar í kerfinu Spurður um þá gagnrýni sem fram hefur komið erlendis um ör- yggi persónuupplýsinga í kerfinu segist Smári telja að sá ótti manna sé ástæðulaus. „Mín skoðun er sú að það hafi aldrei verið til upplýs- ingakerfi sem sætir jafngríðarlegu eftirliti eins og þetta og er jafn- gegnsætt. Hver og einn sem hefur einhvern minnsta grun um að hann sé skráður inn í kerfið, getur gert kröfu um að fá að vita ná- kvæmlega hvað um hann er skráð og ef lögregla kýs að hafna þeirri beiðni hans, þá ber henni að rök- styðja það. Þetta kerfi er þannig gert að hægt er að sjá nákvæm- lega hvaða notandi var að fletta upp hvaða einstaklingi eða hlut í kerfinu, hvenær það var gert og hvort hann prentaði eitthvað út o.s.frv. Annað eins kerfi hefur aldrei verið til hér á landi, svo mér sé kunnugt um,“ segir hann. Þurfum að breyta um hugarfar „Þetta er að mínu mati virkilega góð viðbót sérstaklega vegna þess að við búum orðið við svo breyttar aðstæður. Eftir að búið er að fella niður landamæraeftirlit verðum við að breyta svolítið um hugarfar og hætta að reikna með því að allir þeir sem við höfum afskipti af séu bara góðir og gegnir einstaklingar. Ef þeir eru eitthvað grunsamlegir þá eigum við að nota Schengen- upplýsingakerfið og fletta þeim upp. Með aðild Íslands að Scheng- en-samstarfinu eru lagðar auknar skyldur á lögregluna að halda uppi eftirliti. Hún gæti ekki sinnt þessu útlendingaeftirliti sem hún ber skyldu til nema hafa afnot af þessu kerfi,“ segir Smári ennfremur. Hann segir að strangar örygg- iskröfur séu gerðar til notkunar kerfisins. Eftirlitsnefndir sem hingað komu lögðu mikla áherslu á að öryggiskröfum væri fullnægt á allan hátt. Tóku þær m.a. út hús- næði SIRENE-skrifstofunnar og Skráningarstofunnar, þar sem ís- lenski hluti gagnagrunnsins er vistaður. Persónuvernd hefur eingöngu ráðgefandi hlutverk Persónuvernd hefur eftirlit með því að skráning og meðferð per- sónuupplýsinga í upplýsingakerf- inu sé í samræmi við lög um per- sónuvernd og friðhelgi einkalífs. ,,Þarna höfum við eingöngu eft- irlits- og ráðgjafarhlutverki að gegna,“ segir Páll Hreinsson, en bætir við að Persónuvernd muni hafa virkt eftirlit með upplýsinga- kerfinu og notkun þess. Þó sé ljóst að fáir Íslendingar verði skráðir í kerfið á ári hverju. Eftirlitsstofnanir með upplýs- ingakerfinu í Schengen-löndunum leggja mikla áherslu á að almenn- ingur verði upplýstur um rétt sinn. Í íslensku lögunum er auk þess mælt fyrir um að einstaklingar eigi rétt á skaðabótum ef þeir verða fyrir tjóni vegna mistaka eða ef í ljós kemur að skráningin hefur ekki verið í samræmi við reglur. Allir eiga einnig rétt á að fá upplýsingar um hvort þeir eru á skrá í gagnagrunni Schengen-upp- lýsingakerfisins. Ber þeim að snúa sér til Ríkislögreglustjóra og ef hann synjar um leiðréttingu er hægt að kæra málið til dómsmála- ráðherra, að sögn Páls Hreinsson- ar. „Reglubundið eftirlit verður haft með kerfinu svo og skráningu í það. Upplýsingarnar má aðeins geyma í kerfinu í tiltekinn tíma og munum við fylgjast með að þær verði afmáðar að þeim tíma liðn- um,“ segir hann. „Það eru haldnir reglubundnir fundir hjá persónuverndarstofnun- um Schengen-landanna og þær skiptast á um að tilnefna tækni- menn og lögfræðinga sem taka reglulega út miðlæga gagnagrunn- inn í Strassborg. Kerfið er undir sívirku eftirliti og sætir breyting- um eftir því sem tækninni fleygir fram.“ „Ef eitthvað kemur upp, sem menn eru ekki ánægðir með, er það okkar hlutverk að koma með ábendingar,“ segir Páll. Tryggilega verður að vera frá því gengið að óviðkomandi fái ekki aðgang að útstöðvum kerfisins hér á landi. Lögreglumenn og aðrir sem hafa aðgang að kerfinu og geta flett upp í því fá sérstök lyk- ilorð sem veita þeim aðgang að kerfinu og er hægt að rekja allar uppflettingar í kerfinu og hver þar var að verki, að sögn Páls. Að sögn hans á hætta á mis- skráningu í kerfið að vera í algeru lágmarki, þar sem skýrar reglur hafa verið settar um hvað má skrá í kerfið og hvað þarf að staðreyna áður en hægt er að færa nýjar upplýsingar inn í kerfið. Persónuvernd getur komið at- hugasemdum við starfrækslu kerf- isins og tillögum um úrbætur á framfæri við ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneyti. Ber þessum stofnunum skylda til að fara að til- lögum og athugasemdum Persónu- verndar? „Nei, samkvæmt lögum um Schengen-upplýsingakerfið er álit Persónuverndar á þessu sviði ekki bindandi,“ svarar Páll. Mikill tæknilegur undirbúningur Umfangsmikill undirbúningur var að uppsetningu upplýsinga- kerfisins hér á landi. Norðurlöndin viðhöfðu sameiginlegt útboð á N.SIS-búnaðinum og sömdu sam- eiginlega við IBM í Danmörku. Nýherji sá svo um þann hluta upp- lýsingakerfisins hér á landi sem viðkemur uppflettingum og skrán- ingum í Í.SIS, að sögn Vigfúsar Erlendssonar. Verk- og kerfisfræðistofan sá um þróun og uppsetningu SIR- ENE- og VISION-kerfanna og hönnun og forritun. „Ýmis fleiri fyrirtæki hafa svo komið að þessu, m.a. varðandi ýmiss konar vélbún- að og hugbúnað sem tengist þessu. Teymi hf. lagði til Oracle-gagna- grunn, Einar J. Skúlason og Ný- herji útveguðu vélbúnað, Tæknival netbúnað og svo kaupum við þjón- ustu af fyrirtækjum eins og Landssímanum varðandi fjarskipti í kerfinu. Þetta eru ekki bandvídd- arfrek sambönd því ekki er um mikla gagnaflutninga að ræða í þessu kerfi, heldur sendar skeyta- sendingar í texta. En það er mjög mikilvægt að samböndin séu traust og það eru varaleiðir til staðar. Schengen-grunnurinn hef- ur sérstakt aðalsamband og einnig er annað varasamband til staðar en SIRENE- og VISION-kerfin tengjast inn á ákveðið net, sem er í dag í umsjá símafyrirtækisins Global One. Þá er stefnt að teng- ingu við SIDA Equant-netþjón- ustu á árinu, þar sem notaður verður IP samskiptastaðall. Þessir hlutar eru í hraðri þróun og er verið að taka upp nýtt aflokað net með ýmsum öryggisþáttum,“ segir hann. Eiga tölvuþrjótar einhverja möguleika á að brjótast inn í kerf- ið? „Nei, það er allt gert til þess að koma í veg fyrir það, með ýms- um búnaði,“ segir Vigfús. Undirbúningur er hafinn að framtíðaruppfærslu á upplýsinga- kerfinu vegna væntanlegrar stækkunar Evrópusambandsins. Núverandi útgáfa ræður ekki við fleiri en 18 aðildarlönd og ef litið er til stækkunar ESB til aust- urs í þessu sambandi sjá menn fram á að ekki verði hægt að koma að löndum eins og Tékklandi, Pól- landi o.fl. nema kerfið verði upp- fært, að sögn Vigfúsar. Bretland og Írland eru líka á leiðinni inn og lausleg áætlun tæknimanna gerir ráð fyrir að þau gætu hugsanlega tengst kerfinu í lok árs 2003 eða 2004. 2005 gætu fyrstu Austur-Evrópulöndin svo fengið aðgang að SIS. Á morgun Framkvæmd landamæraeftirlits í Keflavík. Embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli annast hert eftirlit á ytri landamærum Schen- gen-ríkjanna. Miklar framkvæmdir standa yfir við stækkun Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar, sem opn- uð verður til bráðabirgða 25. mars. Keflavíkur- flugvöllur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.