Morgunblaðið - 20.03.2001, Side 41

Morgunblaðið - 20.03.2001, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 41 SVISSLENDINGAR hafa tæki- færi til að taka afstöðu til ýmissa mála fjórum sinnum á ári. Þeir eru spurðir álits á málefnum sem snerta þjóðina alla, á málefnum sem snerta aðeins einstakar kant- ónur og á málefnum borga og sveitarfélaga. Það er skylda stjórnvalda að halda þjóðarat- kvæðagreiðslu um sum mál, eins og til dæmis vissar lagabreyting- ar. Stjórnir kantónanna og sveit- arfélög geta ekki lagt út í miklar fjárfestingar án leyfis íbúanna. Og þrýstihópar geta safnað undir- skriftum um ákveðin mál og stuðl- að þannig að atkvæðagreiðslu. Þátttaka í kosningum er yfir- leitt lítil. Þó er margt gert til að auðvelda þjóðinni þátttöku. Fólk fær atkvæðaseðlana senda heim í pósti og getur fyllt þá út við eld- húsborðið. Hinum ýmsu tillögum eru gerð góð skil í upplýsingarit- um sem fylgja. Umslag til að senda seðlana á kjörstað fylgir einnig með. Þeir sem vilja geta kosið löngu áður en kosningabar- áttunni lýkur. Hjón mega kjósa hvort fyrir annað. Annað þeirra getur mætt á kjörstað með kjör- gögn beggja. Svisslendingar greiddu síðast atkvæði 4. mars síðastliðinn. Þjóð- in öll tók þá afstöðu til kröfu stuðningsmanna um aðild Sviss að Evrópusambandinu um að ríkis- völd hefji þegar samningaviðræð- ur við Evrópusambandið um aðild Sviss. Undirskriftasöfnun knúði á um atkvæðagreiðsluna og 55% þjóðarinnar tóku þátt í henni. 76% greiddu atkvæði gegn tillögunni og 23% með. Vilja fara hægt í sakirnar varðandi Evrópusambandið 55% er góð þátttaka á sviss- neskan mælikvarða. Yfirleitt er þátttaka milli 30 og 45%. Besta þátttakan á síðustu árum var í desember 1992 þegar 78% þjóð- arinnar greiddu atkvæði um aðild Sviss að Evrópska efnahagssvæð- inu. Tillagan var felld með naumum meirihluta. Fleiri Svisslendingar hafa fyrir því að kjósa þegar þeir telja málefnið skipta verulegu máli. Það verður fróðlegt að sjá hver þátttakan verður þegar þeir greiða atkvæði í þriðja sinn um aðild þjóðarinnar að Sameinuðu þjóðunum. Þjóðaratkvæða- greiðslan verður væntanlega haldin seinna á þessu ári. Svisslendingar greiddu einnig atkvæði um 30 km hámarkshraða í þéttbýli og nýjar reglur um lyfja- sölu hinn 4. mars sl. Báðar tillög- urnar voru felldar. Íbúar Genfar felldu tillögu um kosningarétt útlendinga í kantón- unni og íbúar Schaffhausen til- lögu um breytingar á stjórnar- skrá kantónunnar. Íbúar Zürich-borgar felldu tillögu um afnám gjalda fyrir nýja ríkisborg- ara búsetta í borginni. Þjóðin er íhaldssöm en raunsæ. Svisslendingar samþykktu til dæmis tvíhliða samninga Sviss við Evrópusambandið fyrir nokkru með miklum meirihluta og ákváðu fyrir nokkrum árum að veita háar fjárhæðir í gerð rándýrra ganga í gegnum Alpana. Þeir vilja ekki lögbinda 30 km hraða í þéttbýli en gætu samþykkt frjálsari löggjöf um hassneyslu á næstunni. Stjórnmálamenn kvarta oft undan að það sé þungt í vöfum og það taki langan tíma að fá ein- hverju áorkað. Þeir þurfa að hafa góðan málstað til að fá samþykki þjóðarinnar fyrir hvers kyns breytingum. Svisslendingar kunna að meta kosningarétt sinn þótt tiltölulega fáir nýti sér hann fjórum sinnum á ári. Þegar kosn- ingin snýst um eitthvað bitastætt láta þeir sína skoðun í ljós. Nið- urstaðan er alltaf bindandi og ræður einfaldur meirihluti. Löng hefð fyrir beinu lýðræði Zürich. Morgunblaðið. FRAMKVÆMD fyrstu rafrænu kosningarinnar á Íslandi gekk vel fyrir sig, að sögn Gunnars Eydal, formanns kjörstjórnar, sem sagðist ekki vita til þess að kosið hefði ver- ið með þessum hætti neins staðar í heiminum. Síðustu kjörstöðum var lokað klukkan 20.10 og voru nið- urstöður tilkynntar um 15 mínút- um síðar eða um klukkan 20.25. Hann sagði að ef kosið hefði verið á hefðbundinn hátt hefðu úrslitin lík- legast legið fyrir um klukkan 21. Gunnar sagði að rafræna kosn- ingin hefði almennt séð gengið mjög vel. Engin meiriháttar vanda- mál hefðu komið upp, allavega ekki fleiri en í hefðbundnum kosningum. Hann sagði að viðbrögð frá fólki hefðu almennt verið mjög góð. Nánast engar kvartanir hefðu bor- ist um að kosningarnar væru of flóknar, en þó væri ljóst að ein- hverjir hefðu vegna mistaka eyði- lagt atkvæði sitt með því að klára ekki kosninguna. Staðfesta ekki val sitt. Kosningar stöðvast í rafmagnsleysi Varðandi öryggi kosninganna sagði Gunnar að notast hefði verið við svokallað Skólanet, sem væri algjörlega lokað net og einangrað og því ættu utanaðkomandi aðilar ekki að komast inn á það. Þá sagði hann að miðlarinn hefði verið stað- settur í herbergi í Ráðhúsi Reykja- víkur, sem aðeins tveir menn hefðu haft aðgang að og vaktað hefði ver- ið af lögreglu. Gunnar sagði að í rafrænum kosningum væri vissulega alltaf ákveðin hætta á að rafmagnsleysi hefði áhrif. Hann sagði að í Ráð- húsinu væri hins vegar vararafstöð, en ef það yrði allsherjar rafmagns- leysi myndu kosningarnar stöðvast um tíma, eða þar til rafmagni yrði komið á. Hann sagði að í slíkum til- vikum myndu þau atvkæði sem þegar hefðu verið greidd ekki eyði- leggjast. Að sögn Gunnars er of snemmt að segja nokkuð til um það hvort þessi nýja aðferð er skilvirkari en sú kosningaraðferð sem notuð hef- ur verið. Hann sagði að það ætti eftir að fara betur ofan í saumana á framkvæmdinni í heild sinni. Gunnar sagðist ekki geta sagt til um það hvort kosið yrði með raf- rænum hætti í næstu sveitarstjórn- arkosningum. Til þess þyrfti að breyta lögum um kosningar til sveitarstjórna og lögum um kosn- ingar til Alþingis. Þó ekki yrði kosið með rafræn- um hætti í næstu kosningum sagði Gunnar að vel væri mögulegt að stíga eitt skref, þ.e. gera kjör- skrána rafræna, sem þýddi að fólk myndi kjósa á hefðbundinn hátt en gæti kosið á hvaða kjörstað sem væri innan síns kjördæmis. víkur eða í Kringl- rnesskóla, , 3.591 í ngjaskóla. rstaðarat- best þann hvar sem rra nokk- búar ann- nu hverfi. nýttu sér ga 39% nn en um ga hlutfall ð heildar- við aldur, ga fæstir á u eða um á aldrin- 37 til 38%. m 40 til 49 sendum á u um 50%. m 60 til 79 tt í kosningum um framtíð Vatnsmýrar og staðsetningu Reykjavíkurflugvallar l t Morgunblaðið/Kristinn Kosningarnar á laugardaginn sýna að borgarbúar skiptast í tvær fylkingar í afstöðu sinni til framtíðar Vatnsmýrarinnar og staðsetn- ingar Reykjavíkurflugvallar. &"%$%  %#.)0 ("/&$  %&.&0 Sumir eyðilögðu atkvæði sitt með því að klára ekki kosninguna kill ósigur ur að hafa hluta R- m,“ segir , oddviti garstjórn. dræm og r að hafa í m að baki mikið fjár- róna, hafa umræðu, og í ljósi ð teljast að líkja við aðrar ar um ein- ar jafnvel voru ekki a borgar- þannig að egt ef ver- Auk þess rfram þar stór hluti að fara á ngt undir að Reyk- eru séð í R-listans raun og hluti borg- riðju hlut- þessu.“ rbúið g stórum málið alls vel und- ð verði að anir, með- guleikum en kynnt- . „Þannig, að að mínu mati er það er óánægja með vinnubrögðin og hvernig staðið var að verki sem er stærsta skýr- ingin á því hvers vegna svo margir sátu heima. Ég held að flestir Reyk- víkingar séu þeirrar skoðunar að þetta mál verði ekki slitið úr sam- hengi við innanlandsflugið sjálft og telji að það sé ekki hægt að svara spurningunni fara eða vera án þess að vera búnir að átta sig á því hvað tekur við í framhaldi af því. Það kom sömuleiðis fram í skoðanakönnun- um að langflestir Reykvíkinga telja að það eigi að spyrja alla landsmenn og vinna þetta mál í samvinnu við þá.“ Menn engu nær Hún segir ljóst að borgarstjórn sé ekki bundin af niðurstöðunni. „Það var ákveðið fyrirfram hvaða leik- reglur skyldu gilda varðandi bind- ingu; annarsvegar 75% þátttaka eða að helmingur allra kosningabærra Reykvíkinga kysi á sama hátt. Hvorugt þessara skilyrða var upp- fyllt og það var mjög langt frá því. Þess vegna er borgarstjórn ekki undir neinum kringumstæðum bundin af þessari niðurstöðu. Ég er þeirrar skoðunar að það sé verið að ganga á svig við lýðræðislegan meirihluta í borginni að ætla að þvinga fram einhverja afgreiðslu á grundvelli þessarar atkvæða- greiðslu. Við erum búin að binda þennan flugvöll til 2016 eða stærsta hluta þess skipulagstímabils sem við erum að vinna og það er alls ekki tímabært að fara að skoða það sem tekur við í framhaldi af því. Það gerðist nefnilega í þessari atkvæða- greiðslu að niðurstaðan er engin og menn eru engu nær.“ k óánægt með nubrögðin“ BRYNDÍS Loftsdóttir, formaður samtakanna 102-Reykjavík, sagði að úrslit kosninganna um framtíð Vatnsmýrarinnar og staðsetningu Reykjavíkurflugvallar, væru skýr skilaboð til borgaryfirvalda um að taka á flugvallarmálinu. „Þvert ofan í allar spár þá unnum við þessar kosningar – þetta er sig- ur fólksins,“ sagði Bryndís. „Borg- arstjóri hefur sagt að hennar hend- ur séu siðferðislega bundnar og ég treysti því að aðalskipulag til ársins 2024 verði unnið út frá því að flug- völlurinn fari.“ Bryndís sagðist vera ánægð með þátttökuna. „Ef þessi flugvöllur skiptir tæp- lega 40% Reykvíkinga máli, þá átti þessi kosning alveg rétt á sér. Ef þetta er ósigur fyrir einhvern þá er þetta ósigur fyrir skoðana- kannanir sem spáðu því að við myndum tapa og þátttakan yrði mun meiri.“ Bryndís sagði að kosningin hefði komið af stað mikilli umræðu og að borgarbúar hefðu flestir myndað sér skoðun á málinu. „Það er alltaf verið að kvarta yfir andvaraleysi meðal hinna og þess- ara kynslóða, en ég held að það sé ekki hægt að tala um það í þessu máli. Það sem mér finnst ánægju- legast er að því meir sem fólk kynnti sér málið þá komst fólk á þá skoðun að flugvöllurinn ætti að fara. “ Bryndís sagði að flugvallarmálið hefði komið af stað ákveðinni um- ræðu um skipulagsmál, sem hún sagði vera mjög áhugaverða. Hún sagði að mál eins og t.d. þétting byggðar væri afar mikilvæg fyrir borgarbúa og í raun grundvallarat- riði fyrir aukna velmegun íbúanna. Varðandi framtíð samtakanna sagði Bryndís að þeirra vinnu væri lokið og að hún byggist ekki við því að þau yrðu virk aftur nema til þess kæmi að ákveðið yrði að hafa flug- völlinn áfram í Vatnsmýrinni. Skýr skilaboð til borgaryfirvalda JÓHANN J. Ólafsson, formaður Samtaka um betri byggð, segist vera mjög ánægður með niðurstöður flug- vallarkosninganna og segir úrslitin í þá átt sem samtökin hefðu óskað. „Ég hef marglýst því yfir að verið var að taka geypilega mikla áhættu með þessari kosningu um framtíð- arskipulag borgarinnar og það hefði getað farið mjög illa ef við hefðum tapað henni. En við sluppum fyrir horn og þarna er eiginlega búið að leysa skipulagið úr álögum því nú er miklu meira svigrúm til að gera til- lögur að skipulagi borgarinnar en áður. Áður fyrr var það forsenda að flugvöllurinn yrði að vera og því náð- ist aldrei gott og heilbrigt skipulag á höfuðborgarsvæðið en nú er hægt að skipuleggja höfuðborgarsvæðið án flugvallarins.“ Hann segist ósammála því að þátttakan í kosningunum hafi verið dræm. „Þetta er mesta þátttaka sem hefur verið í kosningum um eitt ákveðið mál og ég held að það hafi alls ekki verið hægt að búast við meiru. Þegar um er að ræða eitt ein- angrað mál kjósa aðeins þeir sem hafa mikinn áhuga á því og í ljósi þess er þetta að mínu mati bara ágæt þátttaka.“ Hann segir þó ljóst að kosningin sé ekki bindandi og því sé ekki úti- lokað að gera ráð fyrir flugvellinum áfram í skipulagi borgarinnar. Hins vegar sé óeðlilegt að láta minnihlut- ann ráða ferðinni. „Búið að leysa skipu- lagið úr álögum“ STAÐAN í flugvallarmálinu er að mati Friðriks Pálssonar, formanns Hollvina Reykjavíkurflugvallar, jafnóljós nú og hún var fyrir kosn- ingar. „Aðalatriðið í mínum huga er að það hefur engin niðurstaða feng- ist í þessari kosningu eða skoðana- könnun eins og dómsmálaráðuneyt- ið vill kalla það,“ segir hann. „Ég get ekki ímyndað mér að mönnum detti í hug að það sé hægt að fara eftir þessari kosningu. Þarna greiða atkvæði sitt á móti vellinum nálægt einn af hverjum sex borgarbúum. Það er innan við 50 % af þeim sem mæta á kjörstað, sem voru þó fáir. Það var gert alveg skýrt að kosningin yrði ekki bind- andi nema að það næðist 75 % þátt- taka eða 50% kysu á sama veg.“ Dræm þátttaka í kosningunum bendir alls ekki til þess að fáir hafi látið málið til sín taka að mati Frið- riks. Fólki hafi einfaldlega þótt illa staðið að kosningunum og talið öruggt að þær yrðu ekki bindandi vegna þess að of fáir myndu taka þátt. „Ég tel að borgarbúar séu að koma þeim skilaboðum til borgaryf- irvalda að þeir hafi kosið þá sem sína fulltrúa í borgarstjórn til þess að leysa svona mál. Því sé aðeins hægt að ætlast til þess að borgarbú- ar geti tekið afstöðu í svona kosn- ingum að kostirnir séu skýrir. Þeir voru hins vegar mjög óskýrir því það lá ekkert fyrir um það til hvers hvaða niðurstaða myndi leiða, til dæmis hvert völlurinn færi ef þú kysir hann út úr Vatnsmýrinni og jafnvel ef þú kysir hann í Vatns- mýrinni, hvernig hann liti út.“ „Niðurstaðan engin“ Stjórnvöldum í Sviss er skylt að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um ákveðin málefni og stjórnir kantóna verða að bera undir atkvæði allar meiriháttar ákvarðanir um fjárskuldbindingar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.