Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 44

Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 44
HESTAR 44 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ R eykjavík er stundum kölluð borg og stundum bær. Talað er um að fara „í bæ- inn“ þegar förinni er heitið í miðborgina og stundum er Reykjavík ekki kölluð höfuðborg heldur höfuðstaður (sem óneit- anlega dregur úr virðuleikanum). Í ljóðabókinni sem gjarnan er talin marka uppgötvun fegurðarinnar í íslensku borgarlífi, Fögru veröld, er Reykjavík oftar nefnd bær en borg – enda var hún einmitt kannski mitt á milli á fjórða áratug liðinnar aldar. Tómas Guðmunds- son orti um húsin í bænum, um flugvélar sem bruna yfir bæinn, um húmið sem hnígur á bæinn, en einnig um unga, rísandi borg og borgina sem ljómar. Þar sem nú hafa verið nefnd til sögunnar lykilhugtökin „flug- vélar“ og „borg“ kynnu einhverjir að halda að pistill þessi fjallaði um blessað flugvallarmálið, sem trufl- aði víst fleiri en það gladdi. Svo er þó ekki. Hér er sjónum beint að skipulagi al- mennt, en það besta sem flugvallar- kosningabar- áttan gerði var einmitt að vekja umræð- ur og hugsanir um skipulagsmál. Vonandi munu þær lifa áfram og þá um fleiri atriði en flugvöll og mýrar. Það er nefnilega þannig að Reykjavík er ung borg, ung og rís- andi, og því er rétta tækifærið núna til þess að móta aðferðir við farsæla uppbyggingu hennar. Ým- is mistök hafa auðvitað verið gerð frá því fyrsta hallamálið fór á loft við Sundin, en með rannsóknum, umræðum, hugmyndavinnu og áætlanagerð má forðast fleiri slík í framtíðinni. Þetta er óskatími arkitektanna, skipulagsfræðing- anna og húsbyggjendanna. Víða með vina- og nágranna- þjóðum munu menn vera í heldur annarri stöðu en skipulagsyfirvöld Reykjavíkurborgar. Þeir eru ekki í því að finna upp – þeir eru í því að breyta og laga. Þeir standa frammi fyrir vandamálum eins og að fella umfangsmikið nútíma- miðborgarlíf í þröngar skorður aldagamalla bygginga og öng- stræta. Lappa upp á ljót úthverfi sem enginn vill heimsækja og enn færri búa í. Flytja tré og gróður inn í hverfi þar sem steinsteypa hefur útrýmt allri náttúru. Grafa holur fyrir lestarkerfi og bílastæði þar sem umferðarþungi hefur slig- að gatnakerfin. Og síðast en ekki síst standa þeir frammi fyrir því stóra verkefni að verja sögufræg- ar byggingar, listaverk og íbúana sjálfa fyrir skemmandi áhrifum þeirrar mengunar sem tæknivætt stórborgarlífið veldur. Iðn- aðarmengun í úthverfum, útblást- ursmengun í miðborgum. Þannig líta verkefnin út í evr- ópskum og bandarískum borgum og öðrum sem fjær liggja. Elstu borgirnar búa við flest meinin – dæmi: Aþena og Róm – en þar er líka oft fallegasti arkitektúrinn, mesta sagan og ríkasta borgarlífið. Vandinn stafar af því að eðli og umfang hversdagslífsins í dag er allt annað en þess lífs sem borg- irnar voru byggðar utan um. Slík stökkbreyting kann að kallast framþróun, en veldur mörgum og stórum árekstrum í samlífi fólks og umhverfis. Sums staðar hafa hugmynda- fræðingar brugðið á það ráð að reyna að færa miðborgarlífið úr sínum gömlu kjörnum á rúmbetri svæði í stækkandi borgum. Gjarn- an undir þak. Þetta hefur tekist misjafnlega, sennilega af þeirri ástæðu að miðborg á ævinlega hlutverk sitt að þakka sögu og hefð. Eða eins og maður nokkur sagði í sjónvarpinu um daginn: Hjartað verður alltaf vinstra meg- in, sama hvað maður bætir á sig mörgum kílóum. Þetta hefur líka verið reynt á Ís- landi, að færa miðbæi til. Sumir segja að það hafi gerst óvart á Ak- ureyri þegar Ráðhústorgið var steinlagt og skömmu síðar opnuð verslunarmiðstöð með endinguna „-torg“ í nafninu. Sumir segja að það hafi verið reynt á Akranesi fyrir þónokkrum árum, þegar stórmarkaður var reistur á auðu svæði fjarri Akratorgi og skráður með heimilisfangið „Miðbær 3“. Sumir segja að það hafi verið reynt í Reykjavík með því að reisa í óþekktu hverfi stóra versl- unarmiðstöð, leikhús og útvarps- hús, ásamt háskóla. En fólkið er tilfinningasamt og það vill halda tryggð við miðbæina sína og miðborgarkjarnana. Þess vegna hefur aldrei tekist að færa hjarta borga og bæja út í handlegg eða upp í háls, eins og rakið hefur verið á í lærðum greinum og fyr- irlestrum á síðustu misserum. Kannski myndast erill á ákveðnum tímum á nýju stöðunum, en um leið og búðum er lokað slokknar lífið. Í miðborgum heldur lífið áfram því þar byggir umferðin á fleiru en bissness. Það er líka kannski af þeim sökum sem út- hverfi eru jafn líflaus og oft er raunin. Þar er reist íbúðarbyggð annars vegar og hins vegar versl- anir og þjónustustaðir undir einu þaki. Þangað á fólk erindi til klukkan sex, í mesta lagi til níu, og svo er allt dáið. Með þeim hætti myndast ekki raunveruleg torg til samveru og samfunda, iðandi líf eða aðdráttarafl fyrir fólk á rölti. Það læðist að leikmanni sá grun- ur að hægt væri að mynda líf- vænlegra hverfalíf ef reynt væri annað skipulag við uppbyggingu úthverfa. Þannig mæltist félaga mínum í dægurspjalli um daginn og ég sé að hann hefur rétt fyrir sér. Og hún hefur líka talsvert til síns máls, samstarfskona mín sem fer akandi frá Kringlunni 1 út í verslunarmiðstöðina Kringluna með þeim rökum að „Kringlan sé hönnuð fyrir bíla en ekki fólk“. Eins og verslunarmiðstöðvarnar í úthverfunum; reistar á opnum svæðum með bílastæðum í kring, og ekki ráð fyrir öðru gert en að fólk komi þangað akandi. Borgarlíf verður ekki búið til með því einu að reisa byggingar. Jafnvel ekki fallegar byggingar. Fegurð borga liggur í lífinu sem í þeim iðar, eins og Tómas benti á með Fögru veröld. Þar er ekki púkkað upp á arkitektúr einan og sér. Þar er athygli vakin á því að hvers kyns borgarumhverfi getur verið fallegt, svo lengi sem þar finnst fólk og líf, minningar og saga. Við höfum söguna á ákveðn- um blettum, en ef vel er haldið á spöðum geta myndast aðstæður til sögusköpunar í fleiri hverfum – borgin er jú ung og sagan er að mestu leyti framundan. Því lífið heldur áfram, Austurstræti, og önnur kynslóð tekur við af hinni, sem forðum daga fór með þys og læti og fagnaði og hló á gangstétt þinni. Borg fyrir fólk I Bærinn er skrítinn. Hann er fullur af húsum. VIÐHORF Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sith@mbl.is – Tómas Guðmundsson HVORKI fleiri né færri en níu hestamót voru haldin um helgina. Þar ber án efa hæst stjörnutöltið í skautahöllinni á Akureyri á laug- ardagskvöldið þar sem valinkunnir gæðingar geystust um frera hall- arinnar. Hans Kjerúlf mætti þar með sinn kunna Laufa frá Kolla- leiru og hafði sigur en þeir fengu harða keppni frá Gísla Gíslasyni og Birtu frá Ey sem hafði að sögn salinn með sér. Þá kom í þriðja sæti Baldvin Ari Guðlaugsson á Golu frá Ysta-Gerði en síðan voru það tveir Húnvetningar sem fylltu úrslitin, þeir Jón K. Sigmarsson á Freydísi frá Glæsibæ í fjórða sæti og Tryggvi Björnsson á Snekkju frá Bakka. Nokkrir stóðhestar voru sýndir á ísnum og að öðrum ólöstuðum þóttu tveir hafa stolið senunni, þeir Glampi frá Vatnsleysu sem er síður en svo með lækkandi fóta- burði og svo Hróður frá Refsstöð- um sem var þarna einnig í feikna- stuði. Vetrarleikar Gusts voru haldnir í Glaðheimum á laugardag við frekar slæmar aðstæður á þungum velli og blautum. Eigi að síður var vel mætt bæði í keppnina og sömu- leiðis var óvenju góð mæting í áhorfendabrekkuna. Hestakostur „heldrimanna“ þótti athygliverður og ljóst að þeir gætu skákað ýms- um í karlaflokknum veldu þeir þann kostinn að tefla gæðingum sínum fram þar. Dómarar voru Sigurður V. Matthíasson og Edda Rún Ragnarsdóttir. Á Selfossi var Sleipnir með sitt annað mót á árinu og var þátttaka góð að undanskildum barna- og unglingaflokkum og sagði Steindór Guðmundsson það vissulega áhyggjuefni hversu illa gengi að fá krakkana til að taka þátt í þessum mótum. Vandamálið væri ekki það að krakkar stunduðu ekki hesta- mennsku þar eystra heldur snerist það um að fá þau út á völlinn. Að öðru leyti tókst mótið vel enda veður eins og best var á kosið og hrossin góð að sögn Steindórs. Hjá Mána á Suðurnesjum var haldið svokallað Matarlystarmót. Ekki hefur það neitt með hrossa- kjötsát að gera heldur var það fyr- irtækið Matarlyst sem styrkti mótið og meira en það því kokkar þess sáu um að elda ofan í Mána- félaga á árshátíð þeirra um kvöld- ið. Mótið tókst hið besta enda að- stæður prýðilegar og þátttakan góð og hestakosturinn sömuleiðis. Dómarar voru þeir Sigurður Óli Kristinsson og Ingi Björn Guðna- son. Hefð hefur skapast fyrir einni töltkeppni hjá Fáki í Reiðhöllinni í Víðidal á hverjum vetri og á laug- ardagskvöldið var blásið til leiks. Fimmtíu og sex keppendur skráðu sig til leiks að þessu sinni en auk þess voru sýndir tíu stóðhestar, níu þeirra í reið en einn þeirra, Hergill frá Oddhóli, fékk að valsa frjáls um salinn á svifmiklu og rúmu brokki. Hinir voru Straumur frá Hóli, Höfgi frá Ártúnum, Hreggur frá Sauðafelli, Hegri frá Glæsibæ, Jöfur frá Syðra-Lang- holti, Djákni frá Votmúla, Ófeigur frá Tóftum, Fálki frá Sauðárkróki og Leiknir frá Laugarvöllum sem þótti öðrum fremur bera af. Í töltkeppninni var keppt í þremur flokkum, tveimur styrk- leikaflokkum og svo 19 ára og yngri í sér flokki. Á Gaddstaðaflötum héldu Geysismenn annað mótið í sinni Níu hestamót haldin um helgina Stjörnur á ísn- um á Akureyri Vetrarmót Gusts haldið í Glaðheimum Pollar 1. Guðný B. Guðmundsd. á Litla-Rauð, 10 v. rauðum, frá Svignaskarði 2. Guðlaug R. Þórsdóttir á Blesa, 9 v. rauðbles., frá Bjarnastöðum 3. Berta M. Hreiðarsdóttir á Bleik, 8 v. bleikum, frá Nefsholti 4. Charlotta R. Sigmundsdóttir á Kolbrúnu, 10 v. brúnni, frá Syðra- Langholti Börn 1. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson á Tommu, 8 v rauðri, frá Feti 2. Freyja Þorvaldardóttir á Teklu, 8 v móbrúnni, frá Reykjavík 3. Emilía Gunnarsdóttir á Kolskeggi, 20 v jörpum, frá Minni-Borg 4. Sigrún Sigurðardóttir á Degi, 8 v leirljósum, frá Búðarhóli 5. Kristín H. Guðmundsd. á Glaumi, 10 v móálóttum, frá Búðarhóli Unglingar 1. Reynir A. Þórsson á Krossfara, 8 v. rauðbles., frá Syðra-Skörðugili 2. Elka Halldórsdóttir á Baron, 7 v. frá Kópavogi 3. Tryggvi Tryggvason á Hlekk, 9 v. jörpum, frá Sandfelli 4. Hrefna B. Jónsdóttir á Storku, 13 v. rauðtvístj., frá Hólsseli 5. Anna Jónsdóttir á Kolfinnu, 7 v. brúnni, frá Hellishólum Ungmenni 1. Berglind R. Guðmund. á Sjöstjörnu, 10 v. brúnstj., frá Svignaskarði 2. Guðrún E. Þórisdóttir á Glæsi, 10 v. brúnstj., frá Reykjavík 3. Kata Óðinsdóttir á Gusti, 10 v. gráum, frá Litlu-Gröf 4. Pála Hallgrímsdóttir á Elju, 8 v. svartri, frá Gunnarsholti 5. Sigríður Þorsteinsdóttir á Garpi, 9 v. brúnum, frá Skammbeins- stöðum Konur 1. Hulda G. Geirsdóttir á Dimmu, 10 v. svartri, frá Skagaströnd 2. Björg M. Þórsdóttir á Feng, 12 v. móskjóttum, frá Kópavogi 3. Birgitta D. Kristinsd. á Tollfríði, 5 v. bleikálóttri, frá Vindheimum 4. Helga Júlíusdóttir á Hrannari, 11 v. jörpum, frá Skeiðháholti 5. Þóra Ásgeirsdóttir á Vaski, 7 v. brúnum, frá Vallanesi Heldri menn 1. Svanur Halldórsson á Gúnda, 8 v. mósóttum, frá Kópavogi 2. Ásgeir Guðmundsson á Herkúles, 7 v. rauðum, frá Glóru 3. Viktor Ágústsson á Hrímu, 5 v. grárri, frá Birtingarholti 4. Hilmar Jónsson á Toppi, 18 v. rauðbles., frá Skíðbakka 5. Sæmundur Guðmundsson á Bjarti, 8 v. bleikálóttum, frá Ölvalds- stöðum II Karlar 1. Steingrímur Sigurðsson á Sörla, 8 v. rauðbles., frá Kálfhóli 2. Kristinn Valdemarsson á Birtu, 8 v. bleikálóttri, frá Hvolsvelli 3. Ríharður F. Jensen á Júpíter, 8 v. jörpum, frá Kalastaðakoti 4. Haraldur Gunnarsson á Emblu, 8 v. grárri, frá Akurgerði 5. Þorvarður Guðmundsson á Milljón, 8 v. rauðblesóttum, frá Indr- iðastöðum Árshátíðarmót Mána og Matarlystar á Mánagrund Pollar 1. Ásmundur E. Snorrason á Glóð 10 v. rauðri frá Keflavík 2. Hafliði Brynjarsson á Eldingu 9 v. brúnni frá Áshildarholti 3. Una M. Unnarsdóttir á Perlu 10 v. jörp 4. Ólöf Guðmundsdóttir á Yljari 11 v. brúnum frá Grundarfirði 5. Guðbjörg Gunnarsdóttir á Þrym 6 v. bleikálskjóttum frá Keflavík 6. Marsibil Sveinsdóttir á Rover 19 v. brúnum Börn 1. Camilla P. Sigurðardóttir á Takti 8 v. leirljósum frá Stóra-Hofi. 2. Guðmunda Gunnarsdóttir á Vöndu 9 v. brúnni 3. Margrét Margeirsdóttir á Svarti 16 v. svartur frá Sólheimagerði 4. Hinrik Albertsson á Funa 10 v. rauðum frá Árbæjarhelli 5. Magnús Guðmundsson á Djarfi 6 v. rauðstjörnóttum frá Stóra Vatnsskarði 6. Sigríður Sveinsdóttir á Glæsi 8 v. jörpum frá Melabergi Unglingar 1. Rut Skúladóttir á Klerki 8 v. brúnskjóttum frá Laufási 2. Gunnhildur Gunnarsdóttir á Snót 8 v. brúnskjóttri frá Keflavík 3. Birgir J. Olsen á Loftfara 8 v. rauðum frá Litla Kambi 4. Róbert Guðnason á Hauki 14 v. brúnum frá Akureyri 5. Heiða R. Guðmundsdóttir á Orku 8 v. rauðri frá Meðalfelli Ungmenni 1. Rúnar Ó. Einarsson á Halifax 10 v. rauðblesóttum frá BreiðaBólstað 2. Arnar Dór Hannesson á Sleipni 8 v. jarpur frá Höfn 3. Guðmundur Ó. Unnarsson á Braga 6 v. rauðum frá Þúfu 4. Hrafnhildur Gunnarsdóttir á Prins 13 v. brúnum frá Ketilsstöðum 5. Gunnar Örn Einarsson á Glófaxa 10 v. frá BreiðaBólstað Konur 1. María Guðmundsdóttir á Mósa 10 v. mósóttum frá Múlakoti 2. Gunnhildur Vilbergsdóttir á Sunnevu 6 v. sótrauðri frá Votmúla 3. Helena Guðjónsdóttir á Hrafni 10 v. brúnum frá Reynifelli 4. Svala R. Jónsdóttir á Hugi 7 v. brúnum frá Feti 5. Eygló Einarsdóttir á Lokki 7 v. brúnskjóttum frá Hamraendum Karlar 1. Jón B. Olsen á Glanna 8 v. rauðstjörnóttum frá Skógum 2. Halldór Ragnarsson á Hamri 14 v. rauðglófextum frá Ólafsvík 3. Jóhann Jónsson á Skugga 12 v. brúnum frá Skeljabrekku 4. Atli G. Jónsson á Keili 11v. Rauðblesóttum frá Dalsmynni 5. Jónas Ragnarsson á Erpi 12 v. jörpum frá Fornustekkum 100 metra flugskeið 1. Sigurður Kolbeinss. á Fölva 6 v. bleikur frá Hafsteinsstöð., 9,40 sek. 2. Gunnar Eyjólfsson á Lukku 8 v. leirljósri frá Kjarnholtum, 9,76 sek. 3. Guðmundur Hinriksson á Blika 11 v. rauðum frá Torfunesi 4. Jón B. Olsen á Skúmi 8 v. brúnum frá Hnjúkahlíð Opið töltmót Fáks var haldið í Reiðhöllinni í Víðidal I. flokkur 1. Leo G. Arnarson, Fáki, á Stóra-Rauð, 7 v. frá Hrútsholti 2. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Byl 8 v. frá Skáney 3. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Núma 8 v. frá Miðsitju 4. Tómas Ragnarsson, Fáki, á Jódísi 5 v. frá Reykjavík 5. Vignir Jónasson, Fáki, á Randver 6 v. frá Nýjabæ II. flokkur 1. Maríanna Gunnarsdóttir, Fáki, á Kópi 6 v. frá Kílhrauni 2. Katrín Stefánsdóttir, Andvara, á Adam 9 v. frá Ketilsstöðum 3. Ólöf Guðmundsdóttir, Fáki, á Krapa 8 v. frá Miðhjáleigu 4. Þóra Þrastardóttir, Fáki, á Fönix 11 v. frá Tjarnarlandi 5. Þórður Kristleifsson, Andvara, á Tristan 9 v. frá Hvanneyri 19 ára og yngri 1. Silvía Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á Garpi 11 v. frá Krossi 2. Eyjólfur Þorsteinsson, Sörla, á Óríon 15 v. frá Litla-Bergi 3. Árni B. Pálsson, Fáki, á Teiti 6 v. frá Teigi 4. Halldór F. Ólafsson, Andvara, á Rómi 10 v. frá Hala 5. Signý Á. Guðmundsdóttir, Fáki, á Straumi 11 v. frá Hofstaðaseli Vetrarmót Geysis haldið á Gaddstaðaflötum Opinn flokkur, atvinnumenn 1. Ísleifur Jónasson á Syrpu 5 v. frá Kálfholti 2. Elvar Þormarsson á Vöku 7 v. frá Hvolsvelli 3. Vignir Siggeirsson á Gný 6 v. frá Stokkseyri Úrslit hestamótanna um helgina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.