Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 46

Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 46
UMRÆÐAN 46 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ATKVÆÐAGREIÐSLAN um framtíðarnýtingu Vatnsmýrarinnar markar ákveðin tímamót í sögu borgarinnar. Aldrei áður hafa jafn- margir borgarbúar látið í ljós vilja sinn í tilteknu borgarmáli með jafnafgerandi hætti. Ríflega þrjátíu þúsund borgarbúar gerðu upp hug sinn og mættu á kjörstað eftir að hafa kynnt sér rök þeirra fjölmörgu aðila sem létu málið til sín taka. Vísast hafa þó mun fleiri myndað sér á því skoðun, og notið þess að taka þátt í stefnumörkuninni með einum eða öðrum hætti. Um það vitnar sá áhugi sem fram kom í skoðanakönnun- um og þau ítarlegu skoðanaskipti sem áttu sér stað í aðdraganda at- kvæðagreiðslunnar. Frjó umræða og framtíðarstefnumótun Umræðufundir voru haldnir í ráð- húsinu síðustu daga með þátttöku fjölda einstaklinga, félagasamtaka og hagsmunahópa, og ótal greinar birtust á síðum dagblaðanna. Um- ræðu- og kynningaþættir voru í út- varpi og sjónvarpi, netmiðlar létu málið til sín taka, sérstakar vefsíður voru settar upp af þessu tilefni og Morgunblaðið fjallaði mjög ítarlega um málið í sérstökum greinaflokki. Sú málefnalega og frjóa umræða sem þarna átti sér stað um þróun byggðar og atvinnuhátta á nýrri öld, hlutverk höfuðborgar í bráð og lengd, skynsamlega landnýtingu, borgarumhverfi og borgaralýðræði skilur eftir sig mikla innstæðu hjá borgarbúum sem á eftir að nýtast þeim og borgaryfirvöldum í stefnu- mótun á komandi árum. Óhætt er að fullyrða að aldrei áður hafi átt sér stað jafnumfangsmikil umræða um þróun og skipulag borgarinnar. Er full ástæða til að þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn og miðluðu af þekkingu sinni og reynslu. Skoðanakannanir og kjörsókn Í aðdraganda kosninganna urðu til miklar væntingar um það hlutfall borgarbúa sem myndi láta þetta mál til sín taka og mæta á kjörstað. Þessar væntingar voru bornar uppi af tveimur skoðanakönnunum sem gáfu til kynna að kjörsókn yrði mjög mikil. Það kom á daginn að þær voru óraunsæjar og hugmyndir þeirra sem stóðu að undirbúningi kosninganna, um 30–50% kjörsókn, reyndust mun nær lagi. Eins og við öll vitum þá er eitt að ætla sér eitt- hvað og annað að framkvæma það. Því hefði verið ástæða til að gjalda varhug við þeirri samþykkishneigð sem oft kemur fram í skoðanakönn- unum. Eina ferðina enn er okkur kennd sú þarfa lexía að skoðana- kannanir eru eitt og kosningar ann- að. Leikreglur lýðræðisins Það má alltaf um það deila hvort og þá hvenær eigi að efna til al- mennrar atkvæðagreiðslu, um hvað eigi að spyrja og hverja, hvar eigi að kjósa og hvernig, sem og önnur misklíðarefni sem atkvæðagreiðslur bjóða upp á. Á endanum verða menn þó að sætta sig við leikreglur lýðræðisins enda höfum við engar aðrar betri. Til atkvæðagreiðslunn- ar var boðað með lýðræðislegum hætti af til þess bærum yfirvöldum. Öllum var tryggður aðgangur að greinargóðum upplýsingum, kost- irnir sem um var kosið voru skýrir og allir borgarbúar áttu jafna möguleika á því að nýta sér atkvæð- isréttinn. Þrjátíu þúsund borgarbú- ar gerðu það og tóku efnislega af- stöðu til málsins. Líta verður svo á að hinir sem ekki fóru á kjörstað, hafi ákveðið að láta sig málið ekki varða og þ.a.l. lagt það í hendur annarra að taka ákvörðun. Þannig framseldu þeir rétt sinn, en það er fráleitt að í því felist réttur einhverjum til handa til að slá eign sinni á eða túlka skoðanir þessa hóps. Í aðdraganda at- kvæðagreiðslunnar var ákveðið að hún yrði bindandi fyrir borgar- stjórn Reykjavíkur að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Þau skil- yrði voru ekki uppfyllt og þ.a.l. er borgar- stjórn, sem stjórnvald, ekki bundin af niður- stöðunni. Það breytir ekki því að einstakir borgarfulltrúar verða að gera það upp við samvisku sína og lýðræð- isvitund með hvaða hætti þeir ætla að bregðast við niðurstöðunni. Ætla þeir að virða að vettugi vilja þess meirihluta sem fram kom í at- kvæðagreiðslunni en lúta vilja minnihlutans? Hvaða rök geta menn fært fram fyrir slíkri afstöðu? Hvernig má það líka vera að menn sem stóðu andspænis 12,8% þátt- töku í atkvæðagreiðslu um hunda- hald í borginni árið 1988, en töldu sig samt verða að lúta þeirri nið- urstöðu sem þar fékkst, geti nú komið fram á sjónarsviðið og gert lítið úr þeim meirihlutavilja sem endurspeglaðist í atkvæðagreiðsl- unni um Vatnsmýrina? Er það vegna þess að viljinn er þeim ekki þóknanlegur? Niðurstaðan endurspeglist í svæðisskipulagi Ég sagði fyrir kosningar að ég væri tilbúin til að hlíta niðurstöðu þeirra á hvorn veginn sem þær færu. Þetta stendur. Ég leitaði eftir leiðsögn borgarbúa og hef nú fengið hana. Ég hef engar forsendur til að ætla annað en að atkvæðagreiðslan gefi raunsanna mynd af skoðun borgarbúa á þessu máli. Engar skoðanakannanir breyta þeirri af- stöðu minni enda eru þær bara vís- bending en ekki mæling eins og at- kvæðagreiðslan óneitanlega er. Ég tel því að niðurstaða kosninganna verði að endurspeglast í því svæð- isskipulagi höfuðborgarsvæðisins sem gilda á til ársins 2024. Hitt verða menn svo að horfast í augu við að það eru ekki mörg atkvæði sem skilja að meiri- og minnihlut- ann í þessu máli. Það leggur okkur þá skyldu á herðar að gæta hófs í því sem við gerum og reyna að ná sátt um það hvernig flugvöllurinn fái sem best þrifist í Vatnsmýrinni meðan hann er þar og eins hvert og í hvaða áföngum flugvallarstarfsem- in verði flutt úr Vatnsmýrinni þegar fram líða stundir. Bæði borgar- og samgönguyfirvöld eiga þeim fjöl- mörgu, sem unnu að málstað sem þeir trúðu á fyrir kosningarnar, skuld að gjalda. Sú skuld verður best greidd með því að ná sæmilegri sátt í málinu. Að atkvæða- greiðslu lokinni Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Höfundur er borgarstjóri. Kosning Ég tel því, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, að nið- urstaða kosninganna verði að endurspeglast í því svæðisskipulagi höf- uðborgarsvæðisins sem gilda á til ársins 2024. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa í neðri safnaðarsal kl. 10–14 í umsjá Þórönnu Þórarinsdóttur. Skemmtiganga kl. 10.30. Júlíana Tyrfingsdóttir leiðir gönguhópinn. Bæna- og fyrirbænastund í kirkj- unni kl. 12 í umsjá Guðrúnar K. Þórsdóttur, djákna. Léttur hádegis- verður á vægu verði eftir stundina. Samvera foreldra ungra barna kl. 14–16 í neðri safnaðarsal. Tólf spora hóparnir hittast kl. 19 í neðri safn- aðarsal. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í há- degi kl. 12.10. Orgelleikur, ritning- arlestur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheim- ilinu eftir stundina. Æfing barna- kórs kl. 17–19. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Passíusálmalestur kl. 12.15. Háteigskirkja. Fermingarfræðsla kl. 16. Fundur í Æskulýðsfélaginu Vináttu kl. 20. Hvað langar okkur að gera í sumar? Langholtskirkja. Kirkjan er opin til hljóðrar bænagjörðar í hádeginu. Endurminningafundur karla í Guð- brandsstofu kl. 14–15.30. Nærhópur um úrvinnslu sorgar kl. 20. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–7.05. Fullorðinsfræðsla kl. 20. Hið nýja hirðisbréf herra Karls Sig- urbjörnssonar, biskups, lesið og rætt. Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðarstund þar sem Þor- valdur Halldórsson leiðir söng við undirleik Gunnars Gunnarssonar. Sr. Bjarni Karlsson flytur guðs orð og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í umsjón bænahóps kirkjunn- ar. Neskirkja. Tíðasöngur kl. 12. Litli kórinn, kór eldri borgara, kl. 16.30– 18. Stjórnandi Inga J. Backman. Foreldramorgunn miðvikudag kl. 10–12. Seltjarnarneskirkja. Foreldramorg- unn kl. 10–12. Kaffi og spjall. Verið öll hjartanlega velkomin. Fríkirkjan í Reykjavík. Bænastund í kapellunni í safnaðarheimilinu 2. hæð kl. 12. Koma má bænarefnum á framfæri áður en bænastund hefst eða með því að hringja í síma 552 7270 og fá bænarefnin skráð. Safnaðarprestur leiðir bænastund- irnar. Að bænastund lokinni gefst fólki tækifæri til að setjast niður og spjalla. Allir eru hjartanlega vel- komnir til þátttöku. Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnaðarheimilinu kl. 10–12. Hvern- ig getum við sýnt börnunum okkar skilyrðislausan kærleika? Vilborg Schram. Hittumst, kynnumst, fræð- umst. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænarefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Æsku- lýðsstarf á vegum KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldr- aðra. Leikfimi ÍAK kl. 11.20. Sam- vera, léttur málsverður, kaffi. Æsku- lýðsstarf KFUM&K og Digraneskirkju fyrir stúlkur (10–12 ára) kl. 17.30. Spilakvöld safnaðar- félagsins kl. 20.30. Félgsvist. Allir velkomnir. Fella- og Hólakirkja. Foreldra- stundir kl. 10–12. Starf fyrir 11–12 ára stúlkur kl. 17–18. Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30. Helgistund, handavinna, spil og spjall. Alltaf eitt- hvað gott með kaffinu. Kirkjukrakk- ar í Rimaskóla kl. 18–19 fyrir börn á aldrinum 7–9 ára. Hjallakirkja. Bænar- og kyrrðar- stund kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag kl. 10–12 í safnaðarheimilinu Borgum. Seljakirkja. Foreldramorgnar. Opið hús milli kl. 10–12. Kaffi og spjall. Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyrirbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í Vonarhöfn, Strand- bergi, kl. 17–18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl. 17–18.30 fyrir 7–9 ára börn. Vídalínskirkja. Helgistund í tengslum við félagsstarf aldraðra kl. 16. Starf fyrir stúlkur 10–12 ára í samstarfi við KFUK kl. 17.30 í safn- aðarheimilinu. Lágafellskirkja. Fjölskyldumorg- unn í safnaðarheimili Þverholti 3, 3. hæð frá kl. 10–12. Fundur hjá kirkjukrökkum frá kl. 17.15–18.15. Safnaðarheimilið opnað kl. 17. Keflavíkurkirkja. Kirkjulundur op- inn kl. 13–16 með aðgengi í kirkjunni og Kapellu vonarinnar eins og virka daga vikunnar. Gengið inn frá Kirkjuteig. Starfsfólk kirkjunnar verður á sama tíma í Kirkjulundi. Jákvætt námskeið um hjónaband og sambúð í Kirkjulundi kl. 19.30–22.30. Fyrirlesari sr. Þórhallur Heimisson. Grindavíkurkirkja. Foreldramorg- unn kl. 10–12. Borgarneskirkja. TTT, tíu – tólf ára starf, alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15– 19. Útskálakirkja. Safnaðarheimilið Sæborg. NTT (9–12 ára) starf er hvern þriðjudag í vetur kl. 17. Allir krakkar 9–12 ára hvattir til að mæta. Hvalsneskirkja. Safnaðarheimilið Sandgerði. NTT (9–12 ára) starf er hvern þriðjudag í vetur kl. 17 í safn- aðarheimilinu. Allir krakkar 9–12 ára hvattir til að mæta. Ytri-Njarðvíkurkirkja. TTT-starf í dag kl. 17 í umsjá Ástríðar Helgu Sigurðardóttur og undirleikari er Tune Solbakke. Starfið er ætlað börnum 10–12 ára. Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10–12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16.30 KKK, Kirkjuprakkarar 7–9 ára, eiga góða stund með Sigurlínu og hressum leiðtogum. Hvammstangakirkja. Æskulýðs- fundur í kvöld kl. 20 í Hrakhólum. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomn- ir. Boðunarkirkjan. Námskeið dr. Steinþórs Þórðarsonar, Lærum að merkja Biblíuna, kl. 20 miðvikudags- kvöld. Mörg spennandi efni verða tekin fyrir. Efni hvers kvölds er sjálfstætt og því hægt að byrja hve- nær sem er. Biblían verður aðgengi- legri. Allir velkomnir. KFUK. Fundur í kvöld kl. 20:00 á Holtavegi 28. Anna G. Hugadóttir og Ingibjörg Ingvarsdóttir segja frá ferð til Ísrael. Allar konur velkomn- ar. Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu- skóli í kvöld kl. 20. Safnaðarstarf Morgunblaðið/Ómar Grindavíkurkirkja KIRKJUSTARF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.