Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 57
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 57 ÞAÐ var aldrei siður norrænna sækonunga að murka lífið úr horn- sílum og lækjarlontum, eins og forfeður þínir gerðu í Galíleu þegar þeir ýttu á flot skjálf- andi og skíthræddir og báðu Guð að hjálpa sér ef gerði ofurlitla tíkar- gjólu. Þessi orð við- hafði sálin hans Jóns við Pétur í himnahlið- inu. Sjálfbirgingshátt- urinn og ósvífnin upp- máluð og skilningur á eigin stöðu víðsfjarri. Lýðræði býður uppá frjálsræði í skoðunum og gerir fólki mögulegt að koma þeim á framfæri og það jafnvel í fjölmiðlum sem eru þeim ósammála. Það er ekki langt síðan slíkt var óhugsandi og ber því vott um auk- inn þroska sem hefur skilað sér til flestra. Greinar þær sem fólk sendir blöð- unum gefa þeim engu síður sál en frásagnir og fréttir því þar er þjóð- arsálin í hnotskurn. Ritstjóri blaðs hringdi til mín vegna greinar sem ekki féll í kramið og spurði mig hvort ég vissi hvað kostaði að birta grein. Þegar ég spurði á móti hvers virði blaðið væri án greina, var hann það réttsýnn að birta greinina án frekari málalenginga. Fólk verður að gæta sín að ofbjóða ekki fjöl- miðlum og lesendum með grófu og ósmekklegu rit- og orðmáli sem mér sýnist reyndar flestum meðvitað. En fólk er síður með á nótunum hvað varðar rétt og rangt í málflutningi um menn og málefni og ber við sem erfitt er að varast, að sumir laum- ast bakdyramegin. Íslenskt mál er öll- um hugsandi Íslend- ingum í blóð borið að vernda og virða. Ein- hverju sinni fór belg- ískur stjórnmálamaður háðulegum orðum um smæð íslensku þjóðar- innar. Þegar landinn sem háðinu var beint að spurði Belgann hvert væri þeirra tungumál varð fátt um svör. Hér heima hafa æðstu menn gert það til háðungar einu ástsæl- asta skáldi þjóðarinnar, manninum sem flestum fremur vakti hana til meðvitundar um mátt og fegurð ís- lenskunnar, að verðlauna eina manninn sem níðskældi líf Jónasar og er þar að auki ótalandi á íslenska tungu. Tungumál okkar sem Jónas Hallgrímsson verndaði með svo meistarlegum og listrænum hætti, er í reynd hornsteinn sjálfstæðis okkar. Landið sem Jónas kvað svo fagurlega til, þjóðin og tungumálið okkar, eiga honum meira að þakka en svo að liðið sé að galgopar og gárungar níði minningu hans í skjóli sljórra stjórnvalda. Mér er ljóst að tjáningarfrelsið má ekki skerða, enda óæskilegt, en það þarf ekki að verðlauna með fé almennings saur- mennsku í kveðskap. Fegurðin má ekki víkja fyrir ljótleikanum eins og nú gerist víða í þjóðfélaginu. Eflaust voru mistök að leyfa ekki höfundum vinningslags að ráða ekki á hvaða máli var sungið. Útvarps- ráði gekk gott eitt til og þegar and- staðan varð augljós dró flutnings- maður tillöguna til baka. Þó Mörður brygðist svona vel og drengilega við, varð mikið fjaðrafok hjá þeim sem þarna töldu sig geta komið höggi á andstæðing í stjórnmálum og engu líkara en ágæti mannsins hafi verið þeim þyrnir í augum. Mér sýnist Mörður vera kjarkmikill mað- ur og réttsýnn og sem blæs á heimsku og hugleysi. Ef lagið er tví- sungið, væri gaman ef höfundur væri svo djarfur og frumlegur að láta annan hlutann vera á íslensku. En trúlega mundu fáir þora slíku þó þeir eigi að vita að keppnin er löngu orðin pólitískur hráskinnaleikur. Þar gilda kaup kaups, annars hefði Selma unnið og mörg fleirri dæmi. Það væri gaman að hlusta á mál hverrar þjóðar fyrir sig því boð- skapur textanna er oftast sáralítill. En þarna eru peningarnir og frægð einstaklinganna aðalatriðið. Ekki hverju fólk hefur gaman af. Að murka lífið úr hornsílum Albert Jensson Þjóðfélagsmál Fegurðin, segir Albert Jensen, má ekki víkja fyrir ljótleikanum. Höfundur er byggingameistari. Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.