Morgunblaðið - 20.03.2001, Side 63
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 63
Nú færir nýjasta tækni þér
húðina sem þig langar í.
Finndu hana. Ótrúlega mjúk og slétt. Sjáðu hana.
Ótrúlega björt og jafnlit. Og þá eru líka öll smá-
vandamál húðarinnar - svitaholur, fínar línur,
flögnun og roðablettir - úr sögunni með þessari
nýju náttúrulegu aðferð. Skin-Refinishing Comp-
lex. Idealist. Húðumhirða í æðra veldi.
Estée Lauder útsölustaðir: Clara Kringlunni, Sara Bankastræti, Lyfja Lágmúla,
Lyfja Garðatorgi, Lyfja Laugavegi, Lyfja Hamraborg, Lyfja Setbergi, Hagkaup
Kringlunni, Hagkaup Smáranum, Hagkaup Spönginni, Lyf og heilsa Austurstræti,
Apótek Keflavíkur, Hjá Maríu Hafnarstræti og Glerártorgi Akureyri.
Draumahúðin þín. Sjáðu, finndu, fáðu hana.
Estée Lauder kynnir Idealist Skin Refinisher
TILTÖLULEGA friðsamt var í
miðborginni um helgina og ölvun
ekki mjög mikil. Afskipti voru höfð
af fimm unglingum vegna aldurs
og þeir færðir á aðalstöð en síðan
sóttir af forráðamönnum. Tveir
menn voru handteknir hvorn dag-
inn og tveir fluttir á slysadeild á
sunnudag.
Um helgina voru 10 ökumenn
grunaðir um ölvun við akstur en 31
um of hraðan akstur. Þrátt fyrir
góða veðrið urðu 48 umferðar-
óhöpp með eignatjóni sem tilkynnt
voru til lögreglu.
Síðdegis á föstudag féll farmur
af vörubifreið á gatnamótum
Reykjanesbrautar og Breiðholts-
brautar með þeim afleiðingum að
skemmdir urðu á fjórum bifreið-
um.
Með stúlku í skottinu
Á föstudagskvöld var bifreið
stöðvuð á Miklubraut austan
Kringlumýrarbrautar vegna þess
að stúlka var í skotti bifreiðarinn-
ar. Slíkt er ólöglegt og hættulegt
auk þess sem farþeginn í skottinu
er ótryggður ef eitthvað kemur
fyrir.
Rétt eftir miðnætti aðfaranótt
laugardags var tilkynnt um opið
ræsi á miðri Sæbraut. Bifreið var
ekið á brunnlokið og við það
skemmdist hún en lokið þeyttist á
aðra bifreið sem einnig skemmdist.
Snemma á laugardagsmorgun
var bifreið ekið aftan á aðra bifreið
í Geirsgötu. Þegar ökumaður ætl-
aði að ræða við tjónvaldinn ók hann
á brott. Bifreiðin sást stuttu síðar á
gatnamótum Mýrargötu og Ægis-
götu en þar var henni ekið gegn
rauðu ljósi. Bifreiðin náðist í Vest-
urbænum þar sem ökumaður var
handtekinn en hann er grunaður
um ölvun við akstur.
Eftir hádegi á laugardag var
kvartað yfir akstri vélsleða í og við
fólkvanginn í Bláfjöllum. Rætt var
við nokkra vélsleðamenn og reynt
að fá þá til að fara eftir reglum.
Síðdegis á föstudag féll kona og
slasast á höfði í Faxafeni. Hurð
verslunar lokaðist á konuna með
þeim afleiðingum að hún féll í göt-
una. Konan fékk skurð við vinstra
gagnauga og var flutt á slysadeild.
Þá var tilkynnt um það eldur logi
í fjörunni við Gufunes en ekki sé
fyllilega ljóst hvað sé að brenna.
Þarna hafði verið kveikt í gömlum
rotþróm og ónýtum vinnuskúr.
Greiðlega gekk að slökkva og tjón
var óverulegt.
Vopnaður leikfangabyssum
Um miðnætti var tilkynnt um
mann sem hafi komið inn í söluturn
í Seljahverfi vopnaður tveimur
byssum. Maðurinn fannst eftir
talsverða leit og reyndist þá vera
með leikfangabyssur. Hann var
handtekinn og fluttur á lögreglu-
stöð. Það eru margir sem ekki átta
sig á því að bannað er að vera með
eftirlíkingar af vopnum og geta
menn orðið fyrir verulegum óþæg-
indum ef þeir gera slíkt.
Maður varð fyrir líkamsárás ut-
an við veitingastað í Þingholts-
stræti aðfaranótt laugardags.
Hann var sleginn í andlitið með
flösku þannig að gleraugu brotn-
uðu og maðurinn skrámaðist í and-
liti.
Kona datt niður stiga á veitinga-
stað í Hafnarstræti. Hún hlaut
nokkra áverka á andliti og var flutt
með sjúkrabíl á slysadeild. Eftir
hádegi var tilkynnt um mann sem
væri að æla blóði á Hlemmtorgi.
Þarna hafði maður dottið og fengið
skurð á augabrún og blóðnasir.
Hann var fluttur á slysadeild.
Maður fótbrotnaði í Suðurgili í
Bláfjöllum. Hann var fluttur á
slysadeild með sjúkrabifreið.
Í Víðidal datt 11 ára drengur af
hestbaki og var talinn handleggs-
brotinn. Hann var fluttur á slysa-
deild með sjúkrabifreið.
Á laugardagskvöld fréttist af
fíkniefnaneyslu í húsi í austurborg-
inni. Farið var í húsleit þangað og
voru þrír menn handteknir. Við
húsleit fundust ætluð fíkniefni og
einnig ólöglegt áfengi.
Þá var tilkynnt um innbrot í íbúð
í Árbæjarhverfi. Stolið var mynd-
bandstækjum og skartgripum.
Þá var tilkynnt um að maður
lægi óvígur á gangstétt eftir slags-
mál í Naustunum. Ekki var vitað
um mótaðila. Manninum, sem var
með áverka á nefi og hægri kinn,
var ekið á slysadeild.
Á sunnudagsmorgun var til-
kynnt um aðra brotna rúðu í versl-
un í Holtunum. Þar var stolið
tölvubúnaði.
Þá var tilkynnt um að farið hefði
verið inn í átta bifreiðar í bíla-
geymslu í austurborginni. Frekar
litlu var stolið. Farið var inn í bíl í
annarri bílageymslu og stolið tals-
verðu dóti.
Tilkynnt var um að krakkar
væru saman komnir í herbergi í
austurborginni og að þar væri
fíkniefnaneysla í gangi. Fjórir voru
handteknir og færðir á stöð en ætl-
uð fíkniefni og þýfi fannst í her-
berginu.
Farmur féll af flutninga-
bíl og skemmdi fjóra bíla
16.–18. mars
ÚR DAGBÓK LÖGREGLUNNAR
alltaf á þriðjudögum
NÝVERIÐ flutti Heildverslunin
Gasa starfsemi sína í eigið húsnæði
að Tunguvegi 19, Reykjavík. Hús-
næðið var hannað af Rut Káradóttur
arkitekt en lýsingarhönnun var í um-
sjón Skarphéðins Smith hjá S.G.
Í fréttatilkynningu segir að Gasa
sé ferskt en rótgróið innflutningsfyr-
irtæki á sviði snyrtivara, ilmvatna og
vara tengdra því. Helstu merki séu
m.a. Nina Ricci, Sally Hansen, Sot-
hys, Stendhal, Cee förðunarvörur,
212 Carolina Herrera, I Coloniali
baðvörur, allt þekkt og virt vöru-
merki. Gasa selur vörur sínar í
snyrtivörudeildir Hagkaups, apótek,
snyrtivöruverslanir, snyrtistofur og
Fríhöfnina.
Eigandi hefur verið sá sami frá
stofnun fyrirtækisins, Rósa Matth-
íasdóttir.
Heildverslunin
Gasa flytur
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Rósa Matthíasdóttir eigandi
ásamt tveimur af fjórum starfs-
mönnum sínum, Lovísu Önnu
Pálmadóttur og Elínu Rósudóttir.
ATVINNA mbl.is