Morgunblaðið - 20.03.2001, Qupperneq 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NÚ er hún Snorrabúð stekkur, segir
í þekktu kvæði Jónasar Hallgríms-
sonar. Það eru margar Snorrabúð-
irnar á landsbyggðinni orðnar að
stekkjum á síðustu árum vegna að-
gerða meirihluta þingmanna, það eru
jú þeir sem setja okkur lögin og regl-
urnar, þótt þeir viti sjaldnast hvernig
þau virka og geti ekki breytt þeim
þótt þau virki þveröfugt við það sem
ætlast var til. Það eru ekki bara fisk-
vinnsluhúsin á landsbyggðinni sem
orðin eru að stekkjum, það eru líka
flestir héraðsskólar landsins með öll-
um sínum glæsilegu byggingum upp-
hituðum með heitu vatni úr iðrum
jarðar. Það er ekki lengur þörf fyrir
slík mannvirki að mati þeirra sem
ráða ferðinni. Reykjanesskólinn í
Ísafjarðardjúpi er til sölu með öllum
gögnum og gæðum. Við sem ólumst
upp í næsta nágrenni Reykjanesskól-
ans og hlutum okkar menntun þar
fáum sting í hjartað við þessar fréttir.
„Hún amma þín er til sölu,“ gæti
næst hljómað í eyrum vorum. Allt er
falt fyrir peninga, þar sem Mammon
hefur tekið völdin. Að selja ömmu
sína hefur aldrei þótt merkilegt at-
hæfi og menn sem slíkt gera fyrirlitn-
ir. Saga Reykjanesskólans er afar
merkileg, eins og eflaust saga flestra
héraðsskólanna, hún verður ekki
rakin hér. Reykjanesskólinn var
glæsileg menningarmiðstöð í blóm-
legu og fögru héraði um áratuga-
skeið. Þá riðu hetjur um héruð, svo
aftur sé vitnað í Jónas Hallgrímsson,
þá stjórnuðu hugsjónamenn landinu
sem breyttu Íslandi úr einu af fátæk-
ustu löndum heims í eina af ríkustu
þjóðum heims, með bestu lífskjör
sem þekktust. Þeir menn sem þar
stóðu að verki komust ekki á blað
sem mestu stjórnmálamenn aldar-
innar í nýlegri skoðanakönnun. Það
voru afkomendurnir sem hrepptu
þann titil. Mikið er vanþakklæti
heimsins. „Ekki skal gráta Björn
bónda heldur safna liði,“ sagði kona
Björns þá hann var veginn. Ástæðan
fyrir því að ég skrifa þetta er ekki að
gráta örlög Reykjanesskólans eða
það, að þetta mikla menningarsetur
skuli selt hæstbjóðanda á torgum,
heldur benda væntanlegum kaup-
endum og fjárfestum á þá möguleika
sem staðurinn hefur upp á að bjóða.
Þessi skrif mín geta því virst sem
auglýsing til að hvetja hugsjóna-
menn, sem ekki elska peningana sína
of mikið, til að fjárfesta í Kristallón-
inu í Hveravík, þar sem heita vatnið
bullar upp undir yfirborði sjávar í
fjöruborðinu.
16. maí sl., um það leyti sem Ís-
landsbanki og F.B.A. sameinuðust og
verðmæti bankanna sveifluðust um
nokkra tugi milljarða frá mánuði til
mánaðar, fannst okkur hjá Félagi
bjartsýnismanna á Vestfjörðum kjör-
ið tækifæri til að freista þess að fá lán
hjá hinum nýsameinaða banka, að
upphæð einn milljarður, til að byggja
upp sjóbaðsaðstöðu í Reykjanesi að
fyrirmynd Bláa lónsins í Svartsengi.
Ástæðan fyrir því að þessi upphæð
var valin var sú að fjármálaspekingar
bankans fóru svo frjálslega með tölur
að okkur fannst að einn milljarður til
eða frá skipti ekki máli fyrir bank-
ann. Nú hefur komið í ljós að þessi
skoðun okkar var ekki út í hött, það
sannar dæmið um Landssímann. Sl.
sumar var hann metinn af sérfróðum
matsmönnum á 40 til 72 milljarða,
sumir töldu verðmæti hans nær 100
milljörðum. Nú í dag, 29. janúar, er
hann metinn á 30 milljarða og sér-
fræðingar á fjármálasviði ráðleggja
að selja strax áður en hann lækkar
enn meir en samgönguráðherra vill
fá a.m.k. 50 milljarða. Hér er verið að
leika sér með 70 milljarða til eða frá
eins og um einhverja smáaura sé að
ræða. Hver er að spila með hvern?
Þeim sem vilja sannreyna að ég fari
með réttar tölur skal bent á texta-
varp Sjónvarps og kvöldfréttir nú 29.
janúar. Þar liggja þessar upplýsingar
fyrir. Til að útskýra fyrir væntanleg-
um fjárfestum möguleika Reykja-
ness birti ég hér með umsókn okkar
ásamt greinargerð.
Íslandsbanki F.B.A.,
Reykjavík.
F.h. Félags bjartsýnismanna á
Vestfjörðum sæki ég hér með um
víkjandi lán með breytilegum vöxtum
að upphæð krónur 1.000.000.000 –
einn milljarður íslenskar krónur. Lán
þetta hyggjumst við nota til að
byggja upp sjóbaðsaðstöðu í Reykja-
nesi við Ísafjarðardjúp að fyrirmynd
Bláa lónsins í Svartsengi. Staður
þessi hefur fengið nafnið Kristallónið
vegna þeirrar litadýrðar sem er að
finna á botni lónsins, sem fyrirhugað
er að baðstaðurinn verði í.
Reykjanes hefur flesta kosti sem
til þarf fyrir svona starfsemi.
Skammt frá fjöruborðinu eru heitar
uppsprettur sem koma upp úr sjón-
um á fjöru en eru annars undir sjáv-
arborði. Auðvelt mun vera að hefta
þetta vatn og blanda saman í hæfileg-
um hlutföllum. Í Reykjanesi er rekið
hótel með yfir 100 gistirúmum, mat-
sal og öllu tilheyrandi. Þar er 50
metra sundlaug og gufuböð. Þar er
einnig bryggja, flugvöllur og frábær
aðstaða fyrir sportbáta. Ef af þessum
framkvæmdum verður skapast
þarna frábær aðstaða fyrir ferða-
menn og mun eflaust verða fjölsóttur
staður fyrir ferðamenn innlenda og
ekki síður erlenda dvalargesti. Þá
yrði þarna ákjósanlegur staður fyrir
þreytt fólk, sem njóta vildi hvíldar og
hressingar í lok vinnuviku og slappa
af með helgardvöl í Reykjanesi.
Vona að hin nýkjörna stjórn bank-
ans sjái sér fært að veita þetta lán,
þar sem hér er um krefjandi og
spennandi verkefni að ræða.
Með vinsemd og virðingu,
Ísafirði 16. maí 2000.
F.h. félagsins: Jón F. Þórðarson.
Svar bankans var því miður neit-
andi en ég vil þakka þeim hér með
fyrir kurteislegt svar.
Þar sem skólinn er nú til sölu eins
og aðrar eigur ríkisins, vonumst við í
Félagi bjartsýnismanna á Vestfjörð-
um til þess að einhverjir fjárfestar,
innlendir eða erlendir, sjái möguleika
á því að hrinda þessum hugmyndum
eða öðrum hliðstæðum í framkvæmd.
Á þann hátt yrði þessu fyrrverandi
menntasetri sómi sýndur og yrði
lyftistöng fyrir ferðamannaiðnaðinn
á Vestfjörðum. Vona að þessar upp-
lýsingar um Reykjanesskóla verði
þeim sem íhuga kaup að einhverju
gagni.
JÓN F. ÞÓRÐARSON,
kt.: 100233-3559.
Skóli til sölu
Frá Jóni F. Þórðarsyni: