Morgunblaðið - 20.03.2001, Side 67
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 67
Árni Steinar Jóhannsson
er fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í iðnaðarnefnd og
forsætisnefnd Alþingis. Árni Steinar verður
til viðtals á skrifstofu flokksins í
Hafnarstræti 20, 3. hæð, kl. 16 – 18
miðvikudaginn 21. mars.
Allir velkomnir.
Árni Steinar
Jóhannsson
Viltu öðlast
meiri víðsýni?
Langar þig til að kynnast
annarri menningu?
Viltu kanna ókunn lönd?
Ingólfsstræti 3 2. hæð sími 552 5450 www.afs.is
Viltu alþjóðlega menntun? Viltu auka
starfs- og menntunarmöguleika þína?
Ertu á aldrinum 15-18 ára?
Umsóknarfrestur vegna brottfara í júní
til september 2001 rennur út á bilinu
15. mars -15. apríl. Fer eftir löndum.
Ennþá er möguleiki á ársdvöl, hálfsársdvöl
og sumardvöl í nokkrum löndum.
Alþjóðleg fræðsla
og samskipti
UNDIRRITAÐAN tekur það sárt
að þurfa að svipta mikilhæfan hug-
sjónamann ráðherratitli, en minn-
ugur kenningarinnar, að ávallt
beri að draga það fram, sem sann-
ara reynist, leyfi ég mér að koma
með eftirfarandi ábendingu:
Í nýjasta hefti „Skagfirskra ævi-
skráa“, sem út kom á síðasta ári,
skrifar hinn vandvirki og að jafn-
aði óljúgfróði rithöfundur og
fræðimaður Árni Gunnarsson frá
Reykjum á Reykjaströnd, meðal
annars þátt um Friðrik Júlíusson
verslunarmann á Sauðárkróki.
Friðrik var, eins og fram kemur
hjá Árna, föðurbróður hins þekkta
stjórnmálamanns Einars Olgeirs-
sonar (1902-1993). – Í þættinum
nefnir Árni Einar alþingismann og
ráðherra.
Hið fyrra er rétt, sem alkunnugt
er, en eigi hefi ég annars staðar
séð né heyrt þess getið, að Einar
hafi nokkru sinni borið ráðherra-
titil. Tel ég útilokað, að slíkt hefði
farið fram hjá samtíðarmönnum
hans eða heimildarritum, sem um
slík mál fjalla. – Sé ég mig því til-
neyddan að svipta hinn látna dánu-
mann ráðherranafnbótinni.
Framkvæmi ég þó þá athöfn
með allmikilli eftirsjá, því ég álít
Einar með hæfileikamestu og
áhrifamestu stjórnmálamönnum
íslenskum á 20. öld, þótt pólitískar
skoðanir hans væru ávallt um-
deildar og þyki ekki mikill fagn-
aðarboskapur um þessar mundir,
að því er virðist. Er þó vandséð,
hvað framtíðin ber í skauti sér í
þeim efnum.
Hvað sem um það er, þá tel ég
að Einar hafi verið mannvinur,
sem ávallt starfaði í þeirri góðu
trú, að hann væri að stuðla að
bættum hag hinna efnaminni og
raunar þjóðarinnar í heild. Hann
mun einnig hafa átt mörg önnur
áhugamál, því maðurinn var fjöl-
hæfur. Hann var meðal annars í
hópi mestu mælskumanna, sem
setið hafa á Alþingi.
Einar mun hins vegar aldrei
hafa sóttst eftir hinum virðulega
ráðherratitli, þótt stundum hefði
sú upphefð eflaust verið innan seil-
ingar.
Þetta leiðir hugann að því, að á
síðari árum hefur talsvert verið
um það rætt, að hæfileikamenn
séu tregir til að gefa sig að stjórn-
málum hérlendis. Er nú svo komið
að jafnvel sjálfir ráðherrarnir eru
farir að kvarta um „atgervisflótta“
úr stéttinni.
Slíkar kvartanir boða kannski
gott, því enginn mun alvitlaus, sem
gerir sér grein fyrir eigin hæfn-
iskorti.
SVEINN KRISTINSSON,
Þórufelli 16, Rvk.
Mikilhæfur maður
sviptur ráðherratign
Frá Sveini Kristinssyni:
MIG rak satt best að segja í roga-
stans þegar ég sá að Indriði bóndi á
Skjaldfönn, sá ágæti hagyrðingur,
hafði heldur betur ruglast í ríminu í
dálkinum „Bréf til blaðsins“ 11.
mars síðastliðinn.
Indriði heldur því fram að ég og
Skotveiðifélag Íslands séum í and-
stöðu við skógrækt. Þetta er alls
ekki rétt. Við viljum hins vegar að
aðgát sé höfð við stórfellda ræktun
barrskóga í varplöndum rjúpunnar.
Barrskógarnir eru rjúpunni ónýtan-
legir, bæði sem fæða og sem varp-
stöðvar. Við teljum að stórfelld
skógrækt eigi að fara í umhverfis-
mat eins og aðrar framkvæmdir
sem orsaka rask í náttúrunni. Við
teljum að ræktun laufskóga, og jafn-
vel barrskóga, þar sem það á við sé
af hinu góða. Þá er það einnig rang-
minni hjá Indriða að Skotveiðifélag
Íslands hafi farið fram á að murkað
verði lífið úr hrossagaukum. Hið
sanna í málinu er það að á sínum
tíma spurðist félagið fyrir um það
hjá Náttúrufræðistofnun hvaða
fuglar þyldu veiðar frá líffræðilegu
sjónarmiði, aðrir en þeir sem nú má
veiða. Í svari Náttúrufræðistofnun-
ar kom meðal annars fram að ís-
lenski hrossagauksstofninn þyldi
vel veiðar, enda er hann vinsæl
veiðibráð erlendis. Skotveiðifélagið
taldi að ekkert væri því til fyrir-
stöðu að það mál yrði athugað frek-
ar. Greip þá um sig mikill múgæs-
ingur og átöldu margir okkur fyrir
þetta. Forvitnilegt var að lesa það
sem vinir smáfuglanna skrifuðu um
þetta mál. Við stjórnarmenn
SKOTVÍS lékum okkur að því að
setja orðið hvalur í stað hrossa-
gauks í þeim greinum þar sem höf-
undar átöldu okkur fyrir að láta
okkur detta í hug að kanna veiðar á
hrossagauk.
Um skoðanir Indriða um aðgerðir
til varnar rjúpunni er margt gott að
segja. Meðal þeirra hugmynda sem
hafa komið upp innan Skotveið-
félagsins er að setja bann við sölu
villibráðar til veitingahúsa og versl-
ana. Þykist ég vita að veiðimaðurinn
og náttúruverndarsinninn Indriði á
Skjaldfönn telji þessar hugmyndir
áhugaverðar.
Þegar ég þáði veitingar í eldhús-
inu hjá Indriða og fjölskyldu hans
fyrir tveimur haustum hafði Indriði
bóndi verið við ritstörf. Indriði hef-
ur líklegast verið þreyttur því
hvergi kom fram í annars fjörugum
og skemmtilegum samræðum okkar
að ég væri helsti foringi framsókn-
armanna í umhverfismálum og
handgenginn Siv. Sem formaður
Skotveiðifélags Íslands þarf ég að
hafa töluverð samskipti við um-
hverfisráðuneytið og hafa þau sam-
skipti að mestu verið afar góð. Höf-
um við t.d. átt mjög gott samstarf
við ráðherrann um verkefni sem við
stöndum nú að ásamt OLÍS og kall-
ast „Láttu ekki þitt eftir liggja“.
Miðast það að því að fá veiðimenn til
að taka með sér notuð skothylki –
sín og annarra – til byggða. Þetta
verkefni okkar hefur skilað frábær-
um árangri því 700 veiðimenn hafa
komið með hátt í 100.000 notuð skot-
hylki til byggða eftir veiðiferðir.
Öllum þeim sem það vilja vita er
kunnugt um að Framsóknarflokkur-
inn hefur ekki leitað til mín eða
SKOTVÍS um ráðleggingar í um-
hverfismálum, því miður. Indriði
þarf t.d. ekki annað en að kynna sér
umræðuna um Fljótsdalsvirkjun og
Eyjabakka til að komast að hinu
sanna í því máli.
Að lokum, frændi sæll, vona ég að
þú hafir það sem best og komir vel
undan vetri. Áður en þú ferð að
birta einhverjar dylgjur um mig í
blöðunum ættir þú bara að taka upp
símtólið, hringja í mig og fá réttar
upplýsingar – það er alltaf hress-
andi að spjalla við þig.
SIGMAR B. HAUKSSON,
formaður Skotveiðifélags
Íslands.
Skjaldfannarbóndi
ruglast í ríminu
Frá Sigmari B. Haukssyni:
HEILSUHRINGURINN
VILT ÞÚ FRÆÐAST?
Tímarit um holla næringu og
heilbrigða lífshætti.
Áskriftarsími 568 9933
Síðumúla 27 • 108 Rvík
Veffang: http:www.simnet.is/heilsuhringurinn/
Gól fe fn i á v innustað inn
Ármúla 23, sími 533 5060
mbl.isFRÉTTIR