Morgunblaðið - 04.04.2001, Blaðsíða 15
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2001 15
EKKI áttu menn sama góða geng-
inu að fagna á bleikjuslóðum og
sjóbirtingsveiðimenn á Suðurlandi.
Bleikjusvæði í Soginu og vestur í
Hítará voru opnuð á sunnudag og
var veiði treg.
„Menn fengu ekkert þarna í
opnuninni. Þeir voru að hækka í
vatninu upp í virkjun og þá fór af
stað ísrek. Vatnið var því rosakalt
og þá dormar bara bleikjan. Þeir
settu þó í fisk í Bíldsfelli, en
misstu. Í Ásgarði urðu menn ekki
varir, en þar var ísskör langt út í
á,“ sagði Ólafur K. Ólafsson sem
fór austur, hitti veiðimenn og
skoðaði veiðiskýrslur á mánudags-
kvöldið. Hann sagði að bleikjan
væri dyntótt og gæti farið að taka
hvað úr hverju. „Það var ótrúlegt
sem menn sáu þegar dregið var á
til að ná klaklaxi í fyrrahaust.
Þarna var slatti af 5 til 7 punda
laxi, en ótrúlegt magn af bleikju
og furðu margar stærri en lax-
arnir. Bleikjunni var allri sleppt
aftur,“ bætti Ólafur við.
Hítará í klakaböndum
Árni Björn Jónasson og félagar
opnuðu Hítará, en þar er stundum
sjóbleikju að hafa svona snemma
vors. Árni sagði ána hins vegar
hafa verið í klakaböndum.
„Hún var að byrja að brjóta af
sér og gæti orðið góð á næstu dög-
um. Fyrir okkur var hún hins veg-
ar illveiðandi og að auki var há-
vaðarok og kuldi þótt veðrið hafi
verið fínt í höfuðstaðnum,“ sagði
Árni.
Stirð veiði á
bleikjuslóðum
Vænum sjóbirtingi landað í neðsta veiðistað Hörgsár á Síðu.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
GALLUP hefur birt niður-
stöður skoðanakönnunar á því
hvort og hvernig neysla á
kjöti, fiski og pasta hafi
breyst á undanförnu ári. Til-
efnið var umræða um kúariðu
í Evrópu og mögulegar breyt-
ingar á neyslumynstri fólks í
kjölfarið.
Spurt var hvort og hvernig
neysla á kjöti, fiski og pasta
hefði breyst. Um 60% við-
mælenda sögðu að hún væri
svipuð og á síðasta ári. Næst-
um 27% sögðust borða minna
af kjöti nú en fyrir ári, en
11% hafa aukið kjötneyslu.
Konur frekar en karlar, eldra
fólk frekar en yngra og íbúar
höfuðborgarsvæðis frekar en
landsbyggðarfólk sögðust nú
borða minna af kjöti.
Tæplega fjórðungur sagðist
borða meira af fiski nú en
fyrir ári, en rösklega 17%
borða minna af fiski. Helst
voru það karlar og yngra fólk
sem juku fiskneyslu sína.
Neysla á pasta er mjög
svipuð og á síðasta ári.
Borða
meira af
fiski en
minna af
kjöti
LÖGREGLAN í Vestamanna-
eyjum fékk tilkynningu um eld
í Elliðaey frá báti á móts við
eyna aðfaranótt sunnudags.
Lögreglan kannaði málið, sá
engan eld en hafði samband við
aðstoðarslökkvistjórann í Vest-
mannaeyjum og björgunar-
sveitarmenn voru settir í við-
bragðsstöðu.
Áður en gripið var til frekari
aðgerða náðist samband út í
Elliðaey og reyndust sex menn
þar hafa verið að brenna rusli
en gleymt að láta lögreglu vita.
Að sögn lögreglu skapaðist
aldrei nein hætta af eldinum og
kom málið upp fyrir misskiln-
ing milli mannanna sex og lög-
reglunnar.
Rusli
brennt í
Elliðaey
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Silhouette