Morgunblaðið - 27.04.2001, Blaðsíða 2
YFIRBRAGÐ h t skunnar hefur ekki arsins og handt skur af msu tagi ber
TÖSKUTÍSKA
með óvæntu sniði Öruggur sigur KA í fyrsta
úrslitaleiknum /C2
Slæmt að sjá ekki leiki
Íslands beint /C4
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
8 SÍÐUR
Sérblöð í dag
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FULLTRÚI Alþýðusambands Íslands í svonefndri
grænmetisnefnd landbúnaðarráðherra hefur í sam-
ráði við fulltrúa Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja og Samtaka atvinnulífsins krafist þess að eng-
ar frekari hækkanir á tollum á innflutt grænmeti
taki gildi, nýlegar tollahækkanir verði afturkallaðar
og allir tollar verði felldir niður á grænmeti sem
ekki sé framleitt hér á landi.
Þetta gerðist á síðasta fundi nefndarinnar á
þriðjudag, en hún hefur verið boðuð aftur til fundar
á mánudaginn kemur. Guðmundur Sigþórsson, for-
maður nefndarinnar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að tillaga ASÍ yrði þar til umfjöllunar, en
fram hefur komið að ASÍ muni endurskoða starf
sitt með nefndinni og frekara samstarf komi ekki
fram skýr vilji til aðgerða fyrir næstu mánaðamót.
Tillaga launþegasamtakanna og Samtaka at-
vinnulífsins er þríþætt. Í fyrsta lagi vill ASÍ að
álagningu magntolla á papriku sem átti að taka gildi
29. apríl verði frestað ótímabundið, en tollarnir áttu
þá að hækka úr 199 kr. í tæpar 300 kr. á hvert kíló. Í
öðru lagi er þess krafist að hækkun tolla á tómötum
frá 22. apríl verði felld úr gildi tafarlaust. Loks er
lagt til að lögum verði breytt þannig að tollar á
grænmeti sem ekki er framleitt hér á landi verði
felldir niður. Um er að ræða tegundir á borð við
jöklasalat, lauk, kúrbít, eggaldin og fleiri sem ekki
hafa verið framleiddar hérlendis. Fram kemur að
þessar tegundir beri að minnsta kosti 30% verðtoll
og magntolla að auki í mörgum tilfellum.
Hefur fundað tvisvar sinnum
Halldór Grönvold, skrifstofustjóri ASÍ, sagði að
því hefði verið lýst yfir þegar nefndin hefði verið
sett á laggirnar að markmið hennar væri að lækka
verð á grænmeti til neytenda og það væri ástæðan
fyrir tillögu samtakanna. Nefndin hefði hafið starf-
semi fyrir páska. Hún hefði fundað tvisvar sinnum,
en á sama tíma hefðu tollar og magngreiðslur á
grænmeti hækkað einu sinni mjög umtalsvert um
20. apríl og nú stæði til önnur hækkun vegna
grænnar papriku um mánaðamótin.
„Við einfaldlega segjum við ráðherra og ráðu-
neytið og þess vegna bændurna; þetta er ekki það
sem við töluðum um. Þið verðið að sýna einhvern lit.
Þið verðið að sýna að þið meinið eitthvað með því
sem þið eruð að segja,“ sagði Halldór.
Hann sagði að einfaldasta aðgerðin, meðan skoð-
uð væri einhver endanleg niðurstaða, sem að þeirra
mati gæti aðeins orðið ein, þ.e.a.s. að fella niður
þessa tolla og magngreiðslur og eftir atvikum skoða
með hvaða hætti hægt væri að styðja garðyrkju-
bændur í eðlilegri samkeppni við að framleiða vörur
sem fólk vildi kaupa, væri að breyta reglugerðinni
og ráðherra hefði fulla heimild til þess. Hins vegar
gæti verið flóknara að afnema tolla á þær tegundir
sem ekki hefðu neina samkeppni innanlands vegna
þess að það gæti kallað á endurskoðun tollalaganna.
Það hefði ekki verið hægt að rökstyðja það með
nokkrum hætti á hverju þeir tollar byggðust.
Fulltrúar launþega og vinnuveitenda í grænmetisnefndinni
Engar frekari tolla-
hækkanir taki gildi
MIKLAR framkvæmdir standa nú
yfir við nýja höfn sem standa mun
við Gleðivík í Berufirði. Ólafur
Ragnarsson, sveitarstjóri Djúpa-
vogs, sagði að bryggjan myndi nýt-
ast fiskimjölsverksmiðjunni Gauta-
vík, sem og nýrri laxeldisstöð Salar
Islandica, sem verið væri að koma á
laggirnar. Áætlaður heildarkostn-
aður við hafnarframkvæmdirnar
væri um 180–190 milljónir. Ólafur
sagði að framkvæmdir hefðu hafist í
mars og að áætlað væri að ljúka
fyrri áfanga verksins í ágúst, en á
næsta ári yrði lokið við seinni áfang-
ann, en þá yrði m.a. steypt þekja á
bryggjuna og tengt rafmagn.
Að sögn Ólafs verður hægt að
nota bryggjuna strax í haust, en
dýpið við hana verður um 9 metrar,
en til samanburður er dýpið við
gömlu höfnina 5,5 metrar. Hann
sagði að nýja höfnin myndi þannig
gjörbreyta allri aðstöðu. Stærri
skipum yrði gert auðveldara að
koma til hafnar og að það opnaði
möguleika fyrir meiri umsvif á
svæðinu.
Hafnarfram-
kvæmdir í
Berufirði
Morgunblaðið/RAX
NIÐURSTAÐA fékkst ekki á fundi
Þjórsárveranefndar í gær varðandi
umsögn um áform Landsvirkjunar
um Norðlingaöldulón og sjötta
áfanga Kvíslaveitu. Boðað var til
nýs fundar í næstu viku þar sem
stefnt er að því að nefndin skili af
sér sameiginlegu áliti, að sögn for-
manns hennar, Gísla Más Gísla-
sonar prófessors. Hann sagði við
Morgunblaðið að nefndarmenn
hefðu viljað kynna sér gögn í mál-
inu betur áður en þeir kæmust að
endanlegri niðurstöðu.
Nefndinni er ætlað að vera Nátt-
úruvernd ríkisins til ráðgjafar um
málefni Þjórsárvera. Gísli Már er
fulltrúi Náttúruverndar ríkisins í
nefndinni en að auki eiga Lands-
virkjun, Gnjúpverjahreppur, Afrétt-
arfélag Flóa- og Skeiðamanna og
Ásahreppur þar fulltrúa.
Gísli Már er andvígur áformum
Landsvirkjunar og telur að virkj-
unarkostir fyrirtækisins á svæðinu
við Þjórsárver séu nú þegar full-
nýttir. Gísli Már lagði fram tillögu
á fundinum í gær um að nefndin
legðist gegn áformum Landsvirkj-
unar en hún var ekki afgreidd.
Fleiri hugmyndir komu fram á
fundinum og m.a. kynnti fulltrúi
Landsvirkjunar áform fyrirtækis-
ins. Fulltrúar sveitarfélaganna
lögðu ekki fram tillögur í gær.
Að sögn Gísla Más komu sér-
fræðingar fyrir nefndina í gær og
kynntu rannsóknir sem þeir hafa
gert á Þjórsárverum og nágrenni á
undanförnum árum. Fundurinn
hefði af þeim sökum verið afar
gagnlegur.
Boðað til nýs fundar
í Þjórsárveranefnd
Jón er annar umsjónarmaður út-
varpsþáttarins Tvíhöfða. Maðurinn
gaf sig fram í afgreiðslu útvarpsstöðv-
arinnar og óskaði eftir því að koma í
viðtal. Jón tjáði honum þá að það væri
ómögulegt þar sem þættinum væri
lokið og óskaði maðurinn þá eftir því
að verða ráðinn til starfa við þáttinn.
„Ég sagði honum þá að það væru eng-
ar lausar stöður í augnablikinu,“ sagði
Jón sem gekk við svo búið út.
Maðurinn elti Jón út úr húsinu og
þegar út var komið tók hann upp
sleggju og gerði sig líklegan til þess
að slá hann. Jón hljóp þá undan og
tókst að hlaupa manninn af sér. Mað-
urinn mun fljótlega hafa kastað
sleggjunni frá sér en tók í staðinn upp
grjóthnullung. Jón hljóp þá inn í
bókaverslun í Austurstræti og til-
kynnti um málið til lögreglu.
Ráðist að Jóni
Gnarr í Aðalstræti
MAÐUR réðst að útvarpsmanninum og skemmtikraftinum Jóni
Gnarr fyrir utan útvarpsstöðina Radíó-X í Aðalstræti um klukkan 11
í gærmorgun og gerði sig líklegan til að slá hann með sleggju.
ELDUR kom upp í spónagámi við
timburverksmiðju BYKO við
Skemmuveg í Kópavogi síðdegis í
gær. Starfsmenn BYKO réðust til at-
lögu við eldinn og á meðan Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins var á leiðinni á
staðinn náðu þeir að slökkva eldinn að
mestu. Við það fengu þeir snert af
reykeitrun og þurfti að senda fimm
þeirra til aðhlynningar á slysadeild.
Að sögn vakthafandi læknis var eng-
inn þeirra með alvarleg einkenni
reykeitrunar.
Skemmdir af eldinum reyndust
óverulegar enda starfsmennirnir
sagðir hafa komið í veg fyrir stórtjón.
Morgunblaðið/Þorkell
Slökkviliðsmenn voru fljótir að
klára það verkefni sem starfs-
menn BYKO í Kópavogi hófu.
Starfsmenn
fengu reyk-
eitrun
Eldur í BYKO
ENGINN árangur varð á fundi sjó-
manna og útgerðarmanna í gær en
að sögn Þóris Einarssonar ríkis-
sáttasemjara létti yfir viðræðunum í
kjölfar frétta um breytingu á afstöðu
samgönguráðherra til frumvarps um
áhafnir á íslenskum skipum. Fundur
er boðaður í dag.
Háskólakennarar funduðu í gær-
morgun með viðsemjendum og komu
síðan aftur á fund seinnipartinn. Þá
voru kennarar í Kennarafélagi
Kennaraháskóla Íslands á fundi með
viðsemjendum í gær en þeir hafa
boðað verkfall frá 7. maí nk.
Léttara yfir
viðræðunum
♦ ♦ ♦