Morgunblaðið - 27.04.2001, Side 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AGE FITNESS
Áhrifaríkur kraftur ólífutrjáa - Yngri húð á 8 dögum.
Age Fitness inniheldur hreint efni
unnið úr laufblöðum olífutrjáa sem eykur
teygjanleika húðarinnar og verndar hana gegn
utanaðkomandi áreiti.
Útsölustaðir:
Andorra Hafnarfirði, Bjarg Akranesi, Bylgjan
Kópavogi, Fína Mosfellsbæ, Hjá Maríu Akureyri,
Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi,
Snyrtivöruverslunin Glæsibæ.
FORMENN Vélstjórafélags Ís-
lands og Farmanna- og fiskimanna-
sambands Íslands telja að það geti
greitt fyrir lausn kjaradeilu sjó-
manna og útgerðarmanna að felldur
verður út kafli um sjómenn í frum-
varpi Sturlu Böðvarssonar sam-
gönguráðherra um áhafnir íslenskra
skipa. Að óbreyttu hefði frumvarpið
haft í för með sér fækkun stýri-
manna og vélstjóra um borð í fiski-
skipum hér á landi. Formennirnir
fagna þessari niðurstöðu málsins.
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélagsins, kveðst fagna þessu
og segir að ráðherrann hafi farið
rétta leið. „Það er mikil óeining um
þann þátt sem varðar fiskimennina.
Þetta mun liðka fyrir kjarasamn-
ingum. Nú mun frumvarpið ein-
göngu hafa áhrif á mönnun á far-
skipum og það var orðin eining um
þann þátt vegna alþjóðlegra reglna.
Við höfðum undanþágu frá því að
taka upp ákvæði samkvæmt þeim
reglum fram til miðs þessa árs.
Þetta er því mjög eðlileg lausn á
málinu,“ segir Helgi.
„Við vélstjórarnir höfum alltaf
sagt að við getum ekki réttlætt það
að laun hækki með færra fólki og
við erum tilbúnir að ræða um það
við LÍÚ. Krafa útgerðarmanna um
þetta er því mjög eðlileg. Það er
engin leið að lifa við það að laun
hækki verulega við fækkun í áhöfn
og við höfum tekið undir það með
útgerðarmönnum,“ segir Helgi.
Grétar Mar Jónsson, formaður
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins, fagnar sömuleiðis niður-
stöðu samgönguráðherra. „Ef sam-
gönguráðherra leggur ekki fram
annað frumvarp að nokkrum mán-
uðum liðnum þá tek ég minn hatt
ofan fyrir honum,“ segir Grétar
Mar.
Hann segir að að óbreyttu hefði
frumvarpið leitt til þess að 70–80
störf annarra stýrimanna hefðu tap-
ast og vélstjórar hefðu tapað 350
störfum. Hann er þeirrar skoðunar
að þetta muni auðvelda mjög við-
ræður sjómanna og útgerðarmanna.
Geti menn gengið út frá því að
þetta haldist óbreytt út samnings-
tíma í væntanlegum kjarasamningi
sjómanna og útgerðarmanna þá sé
mikið unnið. Slík trygging myndi
liðka mjög fyrir því að samningar
gætu náðst. Almennt varðandi
mönnunarmálin segir Grétar Mar
að þau séu erfiður þröskuldur. Af-
staða útgerðarmanna sé sú að þeir
vilji ekki ræða nein önnur mál fyrr
en búið er að semja um mönnunar-
málin. Aðspurður hvort til greina
kæmi af hálfu sjómanna að gefa eft-
ir í þessu máli og fá þá hugsanlega
öðrum kröfum framgengt sagði
Grétar Mar: „Já, við erum tilbúnir
að ræða mönnunarmálin en hvað
það er að gefa eftir er erfitt að
segja til um í svona samningum. Við
eigum samt ekki að þurfa að borga
fyrir þær kjarabætur sem við ætl-
um að sækja með einhverju öðru.
Auðvitað erum við þó tilbúnir að
skoða alla þætti málsins,“ segir
Grétar Mar.
Forystumenn sjómanna um breytingar á frumvarpi samgönguráðherra
Telja breytingarnar geta
greitt fyrir lausn deilunnar
ÁKÆRA ríkissaksóknara gegn
rúmlega tvítugum karlmanni
sem sakaður er um nauðgun og
líkamsmeiðingar á fyrrverandi
sambýliskonu sinni var þing-
fest fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur á miðvikudag. Atvikið átti
sér stað sumarið 1999 en þegar
birta átti manninum ákæru
hafði hann komist undan til Sví-
þjóðar.
Handtökuskipun var gefin út
á hendur manninum og lögð
drög að því að fá hann til lands-
ins ef hann næðist. Nýlega
hafði sænska lögreglan uppi á
honum og kom maðurinn til
landsins á miðvikudag og var
ákæran þá þegar þingfest.
Aðalmeðferð í málinu verður
um miðjan maí.
Ákærður
við kom-
una til
landsins
SAMRÆMDU prófunum lauk í gær og hefur það orðið til
siðs meðal margra nemenda að fagna próflokum og það
jafnvel með áfengisdrykkju. Af þessu tilefni heimsótti
Bubbi Morthens tónlistarmaður nemendur í Fellaskóla
og miðlaði þeim af reynslu sinni. Hann spjallaði við nem-
endur um mikilvægi þess að velja rétt í lífinu, velja líf án
áfengis og vímuefna. Heimsókn Bubba var liður í for-
varnaverkefni Bubba Morthens og Olíufélagsins Essó.
Morgunblaðið/Kristinn
Bubbi heimsótti nemendur Fellaskóla
CYRIL Ramaphosa sem nú sætir
rannsókn vegna meints pólitísks
samsæris um að steypa Thabo
Mbeki, forseta Suður-Afríku, af stóli
hefur verið aðalræðismaður Íslands í
Jóhannesarborg undanfarin ár.
Greint var frá ásökunum á hendur
Ramaphosa í Morgunblaðinu í gær.
„Þetta mál er okkur allsendis óvið-
komandi,“ segir Eiður Guðnason sem
er sendiherra Íslands gagnvart Suð-
ur-Afríku með búsetu á Íslandi.
Utanríkisráðuneytið muni fylgjast
með þróun mála en ekki verði gripið
til neinna ráðstafana enda aðeins um
ásakanir að ræða. Ráðuneytið beri
fullt traust til Ramaphosa.
„Ég sá í erlendum blöðum á Net-
inu í morgun að margir fréttaskýr-
endur hallast að því að hér sé um póli-
tískar erjur fyrrverandi samherja að
ræða frekar en að einhverjar sakir
liggi að baki enda hefur ekkert slíkt
komið fram,“ segir Eiður. Í haust
verður haldin ráðstefna hér á landi
fyrir ræðismenn Íslands og býst Eið-
ur við að Ramaphosa taki þátt í
henni.
Ramaphosa er fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Afríska þjóðarflokks-
ins ANC. Hann var virkur í barátt-
unni gegn aðskilnaðarstefnunni og
var á tímabili talinn líklegur arftaki
Nelsons Mandela á forsetastóli en
varð að láta í minni pokann fyrir
Mbeki sem tók við forsetaembættinu
árið 1999.
Í vefútgáfu dagblaðsins Internati-
onal Herald Tribune segir að Ramap-
hosa hafi lengi verið talinn keppi-
nautur Mbekis um völd þrátt fyrir að
hann hafi látið af stjórnmálaþátttöku.
Þá hafi vinsældir Mbekis dalað þar
sem hann er talinn hafa klúðrað ýms-
um málum, m.a. baráttunni gegn út-
breiðslu alnæmis sem herjar á íbúa
Suður-Afríku. Þá er hefur glæpum
fjölgað mjög í landinu á síðustu árum.
Málið hefur vakið mikla athygli í
S-Afríku enda er Ramaphosa og þeir
Tokyo Sexwale og Matthews Phosa
sem sakaðir eru um þátttöku í sam-
særinu allir valdamiklir innan ANC.
Þeir hafa allir snúið sér að viðskipt-
um og efnast á þeim og eru taldir
einna áhrifamestir blökkumanna í
viðskiptalífi S-Afríku.
Cyril Ramaphosa sætir rannsókn s-afrískra stjórnvalda
Aðalræðismaður Íslands
sakaður um samsæri
AP
Ramaphosa hefur m.a. gegnt stöðu óháðs eftirlitsmanns með afvopnun
á N-Írlandi. Hér er hann ásamt þeim Martti Ahtisaari (t.v.), fyrrverandi
forseti Finnlands, og kanadíska hershöfðingjanum John De Chastelain.
Flugslysið
í Skerjafirði
Vill sjá
dagbók-
arfærslur
EINN aðstandenda fórnar-
lamba flugslyssins í Skerjafirði,
Jón Ólafur Skarphéðinsson,
hefur í bréfi til Flugmálastjórn-
ar ítrekað fyrri beiðni um afrit
af dagbókarfærslum flugturns-
ins í Reykjavík frá 4. til 8. ágúst
sl. Flugslysið varð sem kunn-
ugt er hinn 7. ágúst á frídegi
verslunarmanna.
Jón Ólafur, sem er faðir
piltsins sem lifði slysið af, sendi
beiðnina 2. apríl sl. til fram-
kvæmdastjóra flugumferðar-
sviðs Flugmálastjórnar með
vísan til upplýsingalaga. Hann
fékk engin svör fyrr en 23. apríl
og þá staðfestingu frá upplýs-
ingafulltrúa Flugmálastjórnar
um að beiðnin hefði borist.
Ítrekar beiðnina
Í ítrekunarbréfinu í gær,
sem fjölmiðlar fengu afrit af,
segist Jón Ólafur vera orðinn
langþreyttur á seinagangi
Flugmálastjórnar og fer fram á
tafarlaus viðbrögð.
Áður hefur Jón Ólafur fengið
ljósrit af dagbókarfærslum
flugturnsins í Vestmannaeyj-
um.
HANNES Karlsson, deildarstjóri í
Nettó, segir að nú sé hægt að fá
íslenska tómata og græna papr-
iku og ástandið hafi breyst frá
því sem var í byrjun vikunnar.
Í Morgunblaðinu á miðvikudag
var deilt um það hvort framboð
af íslenskum tómötum og grænni
papriku væri nægilegt. Kolbeinn
Ágústsson, gæðastjóri hjá Sölu-
félagi garðyrkjumanna, segir
hins vegar í Morgunblaðinu í gær
að framboð af þessum tegundum
sé nægilegt.
Segjast sjá fram
á verðlækkun
Hannes sagði að íslenskir tóm-
atar og græn paprika væru kom-
in núna sem ekki hefði verið til-
fellið í upphafi vikunnar, eins og
komið hefði fram hjá þeim aðilum
sem spurðir voru í Morg-
unblaðinu. Þeir sæju nú fram á
að varan færi að lækka þannig að
þeir horfðu bara bjartsýnir fram
á sumarið.
Haraldur Haraldsson hjá Fjarð-
arkaupum sagði að græn paprika
væri ekki til hjá sínum birgja
sem væri Mata. Hann hefði ekki
reynt að fá íslenska papriku ann-
ars staðar enda væri hann að
klára erlenda papriku sem væri
ódýrari.
Nú er
hægt að fá
tómata og
papriku