Morgunblaðið - 27.04.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 9
Í sumarbústaðinn
Stretsbuxur, peysur
bolir og gallafatnaður
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Lagersala á Bíldshöfða 14
Opið alla föstudaga milli kl. 16 og 19,
laugardaga milli kl. 12 og 16.
www.sokkar.is oroblu@.sokkar.is
TÍSKUSÝNING Í KRINGLUNNI
LAUGARDAG KL. 14.00
LAUGAVEGI 95 - KRINGLUNNII I I
Hverfisgötu 78, sími 552 8980
Mikið úrvall
af
Fallegir litir
gallafatnaðill i
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík
sími 562 2862
Ný
sending
frá
HVALFJARÐARGÖNGIN hafa
verið lokuð síðustu fjórar nætur,
frá miðnætti til sex á morgnana,
vegna framkvæmda. Verið er að
setja upp öfluga stálbita við báða
gangamunnana sem koma eiga í
veg fyrir skemmdir á göngunum
þegar of hár farmur flutningabíla
rekst upp í göngin. Brögð hafa
verið að því að flutningabílar með
of háan farm hafi keyrt niður og
brotið viðvörunarskiltin beggja
vegna ganganna og stórskemmt
göngin sjálf. Ennfremur verða
göngin þrifin, ljós hreinsuð og yf-
irborðsmerkingar endurnýjaðar.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Unnið að endurbótum í
Hvalfjarðargöngunum
ÞEIR sem hyggja á ferðalög í út-
löndum þurfa í mörgum tilfellum
að láta bólusetja sig gegn ýmsum
sjúkdómum en Helgi Guðbergsson,
yfirlæknir Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur, segir Íslendinga
mjög misduglega við slíkt.
„Það eru margir sem gera sér
ekki grein fyrir því að það getur
borgað sig að vera bólusettur ef
ferðast er um Austur-Evrópu,“
segir Helgi. Þetta er misjafnt eftir
borgum og svæðum en í A-Evrópu
eru m.a. líkur til þess að smitast af
lifrarbólgu A, blóðmauraheilabólgu
og barnaveiki. Blóðmauraheila-
bólgan er einnig í Mið-Evrópu.
Lifrarbólga A getur smitast með
mat og drykk en barnaveiki með
úða. Við þessum sjúkdómum er til
bóluefni.
Í fæstum tilfellum þarf bólusetn-
ingar áður en lagt er í ferðalög um
Vestur-Evrópu, Bandaríkin, Kan-
ada, Japan eða Ástralíu. Helgi ráð-
leggur þeim sem ætla í ferðalög til
annarra svæða í heiminum að
kanna við hverju þeir eru bólusett-
ir og láta endurnýja bólusetningar
eða bæta við þær eftir þörfum.
Hann segir nokkuð algengt að fólk
fari til eyja í Karíbahafinu eða
Mexíkó án þess að huga fyrst að
bólusetningum. Helgi bendir á að í
flestum tilfellum sé hægt er að fá
bólusetningar á heilsugæslustöðv-
um.
Þá sé ástæða fyrir þá sem hafa
dvalið á helstu berklasvæðum
heims, s.s. í Indlandi og Afríku, að
láta prófa sig gegn berklum.
Börn eru bólusett við mænu-
veiki, stífkrampa og barnaveiki.
Helgi segir að slíkar bólusetningar
þurfi að endurnýja eftir 10 ár
hyggi fólk á ferðalög þar sem fólk
getur smitast af þessum sjúkdóm-
um.
Ferðamenn þurfa að
huga að bólusetningum
EGILL Heiðar Gíslason, sem
verið hefur framkvæmda-
stjóri Framsóknarflokksins
síðustu ellefu ár, hefur tekið
við starfi aðstoðarmanns
Halldórs Ásgrímssonar utan-
ríkisráðherra.
Árni Magnússon, sem var
aðstoðarmaður utanríkisráð-
herra, verður framkvæmda-
stjóri Framsóknarflokksins
eins og komið hefur fram.
Egill Heiðar
aðstoðarmað-
ur utanríkis-
ráðherra
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu þess efnis að Reykjavíkurborg
gerist stofnaðili að einkahlutafélag-
inu Alþjóðahúsinu ehf. með 63%
eignaraðild borgarinnar. Með stofn-
un Alþjóðahúss er verið að skapa
sameiginlegan vettvang fólks af
innlendum og erlendum uppruna.
Í greinargerð með tillögu borg-
arráðs kemur fram að hlutafé sé
áætlað 10 milljónir króna. Seltjarn-
arnes og Kópavogsbær hafa sam-
þykkt aðild að hlutafélaginu og hef-
ur Hafnarfjarðarbær lýst yfir
áhuga. Þá hefur Reykjavíkurdeild
RKÍ tekið ákvörðun um aðild. Hlut-
hafar munu gera fimm ára þjón-
ustusamning við Alþjóðahúsið og er
rekstrarframlag sveitarfélaganna
44 milljónir króna á tilraunatíma-
bilinu. Rauði kross Íslands greiðir
samkvæmt sérstökum þjónustu-
samningi 4 milljónir króna á ári í
fimm ár og verða því föst rekstr-
arframlög eigenda hlutafélagsins 48
milljónir á ári á samningstíma-
bilinu. Þar af leggur Reykjavíkur-
borg til 30,8 milljónir. Áætlað er að
starfsemi Alþjóðahúss hefjist í sept-
ember nk.
Borgin gerist stofnaðili
að Alþjóðahúsinu ehf.
M O N S O O N
M A K E U P
litir sem lífga