Morgunblaðið - 27.04.2001, Blaðsíða 31
LISTIR/KVIKMYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 31
MALENA (Monica Bellucci) er
mesta fegurðardísin og kynbomban
í ítalska smábænum Castecuto á
Sikiley. Hún er nýflutt í bæinn en
maðurinn hennar er fjarverandi í
stríðinu og í hvert sinn sem hún
skundar í gegnum bæinn á morgn-
ana vekur hún gríðarlega hrifningu
karlpeningsins en kvenpeningurinn
slúðrar um hana endalaust.
Her unglingspilta fylgir hverju
hennar fótmáli og er einn af þeim
Renato Amoroso (Giuseppe Sulf-
aro). Hann tekur að njósna um feg-
urðardísina fótnettu og fylgjast
grannt með öllu því sem hún tekur
sér fyrir hendur og stoðar ekkert
fyrir foreldra hans að draga athygli
hans að öðru; þau reyna að negla
fyrir glugga hans, senda hann til
prestsins, síðan særingamanns og
loks hóru. En ekkert dugar á piltinn.
Þannig er sagan í ítösku myndinni
Malenu eftir einn fremsta leikstjóra
Ítala, Giuseppe Tornatore, en hún
er frumsýnd í Regnboganum í dag.
Með aðalhlutverkin fara Monica
Bellucci, Giuseppe Sulfaro, Luciano
Federico, Matilde Piana og Pietro
Notarianni. Tornatore gerir sjálfur
handritið eftir smásögu Luciano
Vincenzoni en þeir bíóbræður Harv-
ey og Bob Weinstein eru á meðal
framleiðenda myndarinnar.
Tornatore fór að hugsa um Mal-
enu fljótlega eftir að hann lauk við
myndina Cinema Paradiso, sem án
efa er hans þekktasta verk. Hann
rakst á smásögu Vincenzonis, sem
var mikill handritshöfundur og vann
m.a. með Sergio Leone, er fjallaði
um dreng sem verður uppnuminn af
fegurð Malenu. „Malena segir mjög
einfalda sögu,“ er haft eftir leik-
stjóranum. „Hún er þroskasaga
piltsins og stúlkunnar í senn; barn
verður að manni, stúlka verður að
konu. Á endanum fjallar hún um
hina eilífu baráttu á milli góðs og
ills.“
Tornatore geymdi söguna hjá sér
þar til einn daginn að hann hitti leik-
konu sem hann taldi að gæti leikið
Malenu. Hún heitir Monica Bellucci
og þegar hann sá hana fylltist hann
eldmóði og settist niður við skriftir
með hana í huga fyrir hlutverk Mal-
enu, flutti sögusviðið til Sikileyjar
og bjó til óð til kvenlegrar fegurðar.
„Það er allt í þessari sögu sem við
getum búist við frá Giuseppe Torna-
tore,“ segir bandaríski framleiðand-
inn Harvey Weinstein um myndina.
„Leikandi léttur húmor, fegurð Mal-
enu, þroskasaga Renatos og saga
um áhrif stríðsins á smábæinn; allt
kemur það heim og saman í tilfinn-
ingahlaðinni, epískri mynd.“
„Ég er nútímaleg, sjálfstæð
kona,“ er haft eftir Bellucci, „og það
var erfitt fyrir mig að sætta mig við
hvernig farið er með Malenu í
myndinni. En síðan hef ég skilið
hana betur og það sem hún mátti
þola til þess að komast af.“
Leikarar: Monica Bellucci, Giuseppe
Sulfaro, Luciano Federico, Matidle
Piana og Pietro Notarianni.
Leikstjóri: Guiseppe Tornatore (Il Cam-
orrista, Cinema Paradiso, Una Pura
Formalita, L’Uomo delle Stelle, The
Legend of 1900).
Yndisfagra Malena
Monica Bellucci í myndinni Malena.
Regnboginn frumsýnir ítölsku bíómynd-
ina Malenu eftir Giuseppe Tornatore
með Monica Bellucci í aðalhlutverki.
LEONARD Shelby (Guy Pearce) er
klæddur í dýr, evrópsk föt og ekur
nýlegum Jagúar og er með veskið
fullt af seðlum en býr á ódýrum
módelum. Þótt hann líti út fyrir að
vera vel stæður kaupsýslumaður
hefur hann aðeins einu hlutverki að
gegna í lífinu; að hefna sín á þeim
sem nauðguðu og myrtu eiginkonu
hans.
Hann fær enga hjálp frá lögregl-
unni og Leonard er heltekinn af leit-
inni að morðingjanum eða morðingj-
unum. Hann á hins vegar í
talsverðum erfiðleikum vegna þess
að Leonard þjáist af sjaldgæfum
sjúkleika sem ræðst á minni hans.
Þótt hann muni vel líf sitt fyrir árás-
ina á eiginkonu sína, getur hann ekki
munað það sem gerðist fyrir litlum
fimmtán mínútum, hvar hann er
staddur, hvert hann er að fara og
hvers vegna.
Þannig er söguþráðurinn í banda-
rísku spennumyndinni Memento
sem frumsýnd er í Bíóhöllinni og
Nýja bíói Keflavík. Með aðalhlut-
verkin fara Guy Pearce, Carrie Ann
Moss og Joe Pantoliano en leikstjóri
er Christopher Nolan og byggir
hann mynd sína á smásögu eftir
bróður sinn, Jonathan.
„Áhorfendur eru farnir að þekkja
öll brögðin sem beitt er í spennu-
tryllunum,“ segir Jonathan þessi,
„og það verður sífellt erfiðara að
kom þeim á óvart. Spurningin er
alltaf, hvað gerist næst? Memento er
öðruvísi að því leyti að hún snýr sög-
unni við; fyrstu rammarnir í mynd-
inni eru síðustu sekúndurnar í sög-
unni. Spurningin sem áhorfendur
velta fyrir sér er, hvers vegna?
Spurningin í þessari sögu snýst ein-
göngu um ástæðuna að baki morði“.
Memento kostaði ekki mikið í
framleiðslu miðað við það sem geng-
ur og gerist í Hollywood. Hún var
tekin á 25 dögum í Pasadena og San
Fernando dalnum. Christopher Nol-
an hrósar leikurunum sínum sér-
staklega fyrir þeirra frammistöðu.
„Guy gaf sig allan í verkið,“ segir
leikstjórinn. „Hann þurfti stundum
að klára níu síður á dag í tökum, sem
er talsvert afrek þegar hafður er í
huga sá brotakenndi stíll sem er á
frásögninni.“
Moss hefur verið gríðarlega eft-
irsótt í kvikmyndirnar frá því hún
lék eitt aðalhlutverkið í The Matrix.
Hún leikur bardömu í Memento sem
er áhorfendum talsverð ráðgáta. „Er
hún góð eða slæm?“ spyr leikstjór-
inn Nolan. „Er hún að notfæra sér
Leonard eða býr eitthvað annað
undir?“
Og þriðji leikarinn er Pantoliano,
sem vakið hefur athygli í Bandaríkj-
unum að undanförnu fyrir leik sinn í
sjónvarpsþáttunum The Sopranos.
„Við þurftum á leikara að halda sem
gat verið ógnandi en léttur á bárunni
í senn,“ segir leikstjórinn. „Joe var
einmitt rétti leikarinn fyrir okkur.“
Leikarar: Guy Pearce, Carrie Ann Moss
og Joe Pantoliano.
Leikstjóri: Christopher Nolan
(Following).
Hvað kom fyrir Leonard?
Bíóhöllin og Nýja bíó Keflavík frumsýna
spennumyndina Memento með Guy
Pearce og Carrie Ann Moss.
Guy Pearce í hlutverki minnis-
leysingjans í Memento.
Brad Pitt og Julia Roberts lenda í bragðvondu í gamanspennumyndinni
Mexíkóanum, sem frumsýnd er í þremur kvikmyndahúsum í dag.
JERRY Welbach (Brad Pitt) er
smákrimmi sem hefur um tvo kosti
að velja. Annaðhvort heldur hann
til Mexíkó að sækja verðmætan
forngrip, byssu sem kölluð er
Mexíkóinn, eða hljóta verra af.
Skipun þessi kemur frá mafíufor-
ingja hans. Hinn kosturinn er að
gera það sem kærastan hans, Sam-
antha (Julia Roberts), biður hann
um; slíta öll tengsl við mafíuna.
Jerry veltir hlutunum fyrir sér
andartak og telur að það sé betra
að vera á lífi og eiga reiða kærustu
en dauður og eiga enga kærustu.
Svo hann heldur til Mexíkó en hún
lendir í Las Vegas.
Þannig er upphafið á nýjustu
mynd Julia Roberts, Mexíkóanum
eða The Mexican, sem frumsýnd er
í þremur kvikmyndahúsum í dag.
Með helstu hlutverk auk hennar
fara Brad Pitt, James Gandolfini,
J. K. Simmons, Bob Balaban og
Sherman Augustus. Leikstjóri er
Gore Verbinski sem áður gerði
gamanmyndina Mouse Hunt en
handritið gerir J. H. Wyman.
„Ég hafði mjög gaman af því
hvernig sögur Pitts og Roberts
flækjast saman í myndinni,“ er
haft eftir leikstjóranum Verbinski,
„og ekki síst öllum skrautlegu kar-
akterunum sem verða á vegi
þeirra. Einnig var ég spenntur yfir
tökustöðunum í Mexíkó og Las
Vegas og ég vissi að ég gæti leikið
mér svolítið með útlit myndarinn-
ar, litina og andrúmsloftið á þess-
um tveimur ólíku stöðum.“
Í fyrstu var ekki gert ráð fyrir
neinum stórstjörnum í aðalhlut-
verkin en bæði Pitt og Roberts
sýndu handritinu óvænt áhuga.
Þau höfðu verið að leita að verkefni
sem gaf þeim tækifæri til þess að
leika saman. „Við höfum hist í
gegnum tíðina og velt fyrir okkur
hugmyndum,“ segir Pitt, „en það
einhvern veginn gekk aldrei upp.
Þessi saga var okkur hins vegar að
skapi og passaði okkur frábærlega.
Hún bauð upp á rétta efnasam-
bandið.“
„Ég hef þekkt Brad í mörg ár,“
segir hin nýbakaða óskarsverð-
launaleikkona Julia Roberts, „og
við höfum næstum því náð að leika
saman í nokkur skipti en ekkert
orðið úr því. Þegar þetta handrit
rak svo á fjörur okkar vorum við
ekki lengi að hugsa okkur um. Við
erum góðir vinir og það er engin
spenna á milli okkar og okkur líður
vel þegar við erum saman.“
Um persónu sína í myndinni seg-
ir Pitt: „Jerry er ekki svalur, eins
og það er kallað, heldur bara eins
og ég og þú en í stórkostlegum
vandræðum sem hann á erfitt með
að koma sér útúr.“
Um Samantha segir Roberts:
„Hún heldur að Jerry sé laus við
krimmaferilinn en þegar annað
kemur í ljós verður sprenging.“
Leikarar: Julia Roberts, Brad Pitt,
James Gandolfini, J. K. Simmons, Bob
Balaban og Sherman Augustus. Leik-
stjóri: Gore Verbinski (Mouse Hunt).
Pitt og Roberts
í Mexíkó
Laugarásbíó, Háskólabíó og Borgarbíó
Akureyri frumsýna bandarísku bíó-
myndina Mexíkóann eða The Mexican
með Brad Pitt og Julia Robers.
PARKER (Ryan Phillippe) og Longbaugh
(Benicio Del Toro) halda að þeir hafi fengið frá-
bæra hugmynd og setja hana í framkvæmd.
Þeir ræna Robin (Juliette Lewis), sem er svo-
kölluð leigumóðir og gengur með barn, og
heimta lausnargjald af verðandi foreldrum
barnsins.
Þegar hins vegar Parker tekur að verða hrif-
inn af Robin byrjar áætlunin að fara út um þúf-
ur. Ekki batnar það þegar leigumorðingjar á
vegum mafíunnar birtast með lausnargjaldið og
við tekur stjórnlaus óreiða.
Þannig er söguþráðurinn í spennumyndinni
The Way of the Gun, sem frumsýnd er í dag í
Kringlubíói og Nýja bíói Akureyri. Leikstjóri
hennar er Christopher McQuarrie, sá hinn sami
og skrifaði handrit Góðkunningja lögreglunnar
eða The Usual Suspects. Er þetta fyrsta bíó-
myndin sem hann leikstýrir. Með aðalhlutverkin
fara Ryan Phillippe, Benicio Del Toro, James
Caan, Taye Diggs og Juliette Lewis.
Einhverjir hafa líkt frásagnarstíl McQuarrie
við stíl hins ofbeldisfulla Sam Peckinpah. Leik-
stjórinn segist hins vegar hafa byggt nokkuð á
tveimur öðrum annáluðum leikstjórum þegar
hann gerði The Way of the Gun, John Huston og
Sidney Lumet.
„Ég vildi alls ekki að þessari mynd yrði líkt
við myndir Peckinpahs,“ er haft eftir honum.
„Hann var mjög stíliseraður, notaði mikið það
bragð að sýna atburðina hægt, notaði mikið of-
beldi. Í þessari mynd er ofbeldið meira tilfinn-
ingalegt, það er ekkert blóðbað í henni.“
Benicio Del Toro, sem hreppti Óskarinn um
daginn, segist hafa verið ánægður með handritið
sérstaklega. „Það er svo gersamlega óútreikn-
anlegt,“ segir leikarinn, „og það er svo gaman að
því hvernig hann fer að því að segja söguna, hún
er svo þétt og hrynjandin svo góð í henni“.
Ryan Phillippe er ungur leikari á uppleið í
Hollywood. Hans fyrsta mynd var White Squall
en síðan hefur hann leikið í myndum eins og
Cruel Intentions og I Know What You Did Last
Summer. Hann er einnig framleiðandi.
Juliette Lewis vakti fyrst athygli þegar hún
lék kornung í mynd Martin Scorsese, Víghöfða
eða Cape Fear. Hún var útnefnd til Óskarsins
fyrir leik sinn í myndinni og kvikmyndatilboðin
streymdu inn. Hún lék í myndum eins og Hus-
bands and Wives fyrir Woody Allen, What’s
Eating Gilbert Grape eftir Lasse Hallström,
Natural Born Killers eftir Oliver Stone og
Strange Days eftir Bigelow.
Benicio Del Toro er ört vaxandi leikari og eft-
irsóttur eftir að hann hreppti Óskarinn fyrir
Traffic. Hann lék í Góðkunningjum lögreglunn-
ar og kynntist þar McQuarrie en aðrar myndir
hans eru m.a. China Moon, Fearless og Fear
and Loathing in Las Vegas.
Leikarar: Ryan Phillippe, Benicio Del Toro, James
Caan, Taye Diggs og Juliette Lewis. Leikstjóri:
Christopher MCQuarrie.
Mislukkaðir
mannræningjar
Kringlubíó og Nýja bíó Akureyri frumsýna spennu-
myndina The Way of The Gun með Benicio Del
Toro.