Morgunblaðið - 27.04.2001, Page 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 37
Í Morgunblaðinu í
gær, fimmtudaginn 26.
apríl, er grein eftir Ey-
dísi K. Sveinbjarnar-
dóttur, þar sem hún
titlar sig sem stjórnar-
formann Geðhjálpar. Í
þeirri grein er rétti-
lega gagnrýnd hin nei-
kvæða fjölmiðlaum-
ræða sem orðið hefur
um málefni Geðhjálp-
ar. Hún segir jafn-
framt að Geðhjálp sé
sjúklingafélag, ekki
starfsmannafélag. Ey-
dís gagnrýnir þar að
undirritaður skuli
bjóða sig fram til for-
mennsku Geðhjálpar þar sem hann
er fagmaður, launaður geðlæknir, og
geti ekki setið báðum megin borðs-
ins.
Ábyrgð stjórnar Geðhjálpar
Því er til að svara að hin neikvæða
umræða um Geðhjálp að undan-
förnu í fjölmiðlum er fyrst og fremst
runnin undan rótum stjórnar Geð-
hjálpar, frá formanni sjálfum, Ey-
dísi K. Sveinbjarnardóttur og fram-
kvæmdastjóra félagsins, Sveini
Magnússyni. Stuðningsþjónusta
Geðhjálpar er alfarið á ábyrgð
stjórnar Geðhjálpar og fram-
kvæmdastjóra. Þegar hún var sett á
laggirnar 1994 laut hún eftirliti og
stjórn svonefnds samstarfshóps en
við síðustu endurnýjun samnings
um stuðningsþjónustuna við Svæð-
isskrifstofu um málefni fatlaðra,
félagsmálaráðuneyti og Félagsþjón-
ustuna í Reykjavík í ársbyrjun 1999
fór stuðningsþjónustan beint undir
stjórn Geðhjálpar og stjórn fram-
kvæmdastjóra og frá þeim tíma hef-
ur enginn samstarfshópur verið
starfandi.
Það húsnæði sem Geðhjálp hefur
haft fyrir skjólstæðinga, sem mest
er gagnrýnt nú, hefur verið í notkun
í mörg ár. Það var tekið í notkun
með vitund og vilja stjórnar Geð-
hjálpar á sínum tíma. Núverandi
stjórn Geðhjálpar og framkvæmda-
stjóri hafa hins vegar ekkert gert í
því á síðustu misserum að lagfæra
þar ástandið. Að framkvæmd stuðn-
ingsþjónustunnar hafi ekki verið
með eðlilegum hætti á síðustu miss-
erum er algerlega á ábyrgð stjórnar
Geðhjálpar og framkvæmdastjóra.
Stjórnin og framkvæmdastjóri hafa
ekki sinnt skyldu sinni þar. Allt frá
því að Eydís og félagar í stjórninni
ráku fyrrverandi framkvæmda-
stjóra félagsins á síðasta ári hefur
ríkt ófremdarástand hjá Geðhjálp
og stuðningsþjónustan hefur ekki
notið þess styrks sem hún þarfn-
aðist hjá stjórninni. Ítarleg úttekt
var gerð á starfsemi Stuðningsþjón-
ustunnar í ágúst 1999 af dr. Sig-
urlínu K. Davíðsdóttur og þá var
framkvæmd stuðningsþjónustunnar
í góðu lagi og skýrsla hennar jákvæð
í alla staði varðandi starfsemina.
Það að ekki hafa verið gerðar úr-
bætur hvað húsnæði varðar, það að
ekki hafa verið ráðnir fagaðilar til að
veita stuðningsþjónustunni forystu
eða starfa hjá henni er alfarið á
ábyrgð stjórnar Geðhjálpar og
framkvæmdastjóra. Framkvæmda-
stjórinn hefur endurtekið í fjölmiðl-
um gert þessa starfsemi tortryggi-
lega og látið að því liggja að
dauðsföll hafi orðið vegna vanrækslu
starfsfólks. Þetta eru alvarlegar og
ljótar ásakanir, meiðandi bæði fyrir
starfsmenn og eins aðstandendur
þeirra látnu. Vitað er að andlát þau
sem hér um ræðir tengdust á engan
hátt nokkurri vanrækslu hjá stuðn-
ingsþjónustu Geðhjálpar.
Báðum megin borðsins
Það er ankannalegt að sjá það í
blaðagrein hjá Eydísi K. Svein-
bjarnardóttur, æðsta stjórnanda
geðhjúkrunar á Íslandi, sviðsstjóra
geðhjúkrunar á Landspítala – há-
skólasjúkrahúss að það sé neikvætt
fyrir félag eins og Geðhjálp að fá til
forystu fagmann, þ.e. geðlækni.
Sjálf hefur hún setið í stjórn árum
saman og nú upp á síðkastið sem
formaður, áður vara-
formaður, þó svo hún
væri á sama tíma fram-
kvæmdastjóri hjúkrun-
ar á Barna- og ung-
lingageðdeild og síðar
sviðstjóri hjúkrunar á
geðsviði. Henni hefur
greinilega ekki fundist
hún sitja báðum megin
borðs. Forveri hennar,
Pétur Hauksson, geð-
læknir sat sem formað-
ur í mörg ár og var far-
sæll í starfi og ekki
komu fram neinar
kvartanir um að hann
sæti báðum megin
borðsins. Og undan
honum sat sálfræðingur sem for-
maður Geðhjálpar. Þannig hafa fag-
aðilar í langan tíma veitt Geðhjálp
forystu. Því miður hefur núverandi
stjórn og framkvæmdastjóri ekki
haft skilning á starfi þeirrar þjón-
ustu sem Geðhjálp er að veita veik-
asta fólkinu. Þeir hafa ýtt þeirri
þjónustu til hliðar og gert hana tor-
tryggilega í augum fólks. En þeir
mörgu aðilar sem nota þjónustu
stuðningsþjónustu Geðhjálpar eru
margir hverjir alvarlega veikir og ef
ekki væri stuðningsþjónustan þyrftu
þeir að dveljast innilokaðir á sjúkra-
deildum og eða væru í reiðileysi og
húsnæðisleysi á götunni. Með stofn-
un stuðningsþjónustunnar var gert
átak í þjónustu við þá sem alvarleg-
ast eru veikir og með góðum ár-
angri.
Lokaorð
Þó að Geðræktarverkefnið hafi
tímabundið verið fært frá Geðhjálp
er ljóst að þeir aðilar sem njóta nú
þjónustu stuðningsþjónustu Geð-
hjálpar þarfnast mikillar þjónustu
áfram. Ekki er hægt að ýta þeim frá
því þá bíður þeirra aðeins gatan eða
innlögn á lokaðar sjúkradeildir.
Gleymum því ekki að margir þeirra
sem njóta stuðningsþjónustu Geð-
hjálpar í dag áttu áður fyrr hvergi
höfði að halla og voru í miklu hús-
næðishraki og oft á götunni.
Undirritaður hvetur félagsmenn í
Geðhjálp til að mæta á aðalfundinn
til að styrkja stöðu félagsins með því
að kjósa undirritaðan sem formann
svo halda megi áfram uppbyggingu
og góðu starfi hjá Geðhjálp. Hér er
átt við kröftugt félagsstarf, hags-
munagæslu, stuðningsþjónustu fé-
lagsins og geðræktarstarf til hags-
bóta fyrir landsmenn alla. Mikil-
vægt er að halda uppi öflugri starf-
semi og sérstök nauðsyn að byggja
upp þjónustuna á ný eins vel og
hægt er því þeir sem njóta þjónust-
unnar í dag eiga ekki í önnur hús að
venda.
Bætum hag geðsjúkra
Kristófer
Þorleifsson
Geðheilbrigði
Sérstök nauðsyn er að
byggja upp þjónustuna
á ný, segir Kristófer
Þorleifsson, eins vel og
hægt er því þeir sem
njóta þjónustunnar í
dag eiga ekki í önnur
hús að venda.
Höfundur er geðlæknir og í fram-
boði til formanns Geðhjálpar.
Szymon Kuran
REQUIEM
Tónleikar í Landakotskirkju
og geisladiskur gefinn út á 50 ára afmæli
Krabbameinsfélags Íslands
Kammersveit Reykjavíkur, Karlakór
Reykjavíkur, Kvennakór Reykjavíkur og
Drengjakór Laugarneskirkju
• Tónleikar í Landakotskirkju sunnudaginn
29. apríl kl. 20.00: UPPSELT
• Tónleikar í Landakotskirkju þriðjudaginn
1. maí kl. 20.00.
Forsala í bókabúðum Máls og menningar,
Laugavegi 18 og Síðumúla 7-9
Verkið vekur með okkur samkennd með öllum
þeim sem þessi sjúkdómur vitjar og með ættingjum
og vinum sem standa nærri. Gildi tónlistar er
ótvírætt í öllu andstreyminu. Hún gefur okkur
styrk til að trúa á sigur lífsins.
fyrrverandi forseti Íslands
og verndari Krabbameinsfélagsins
Allur ágóði af útgáfu geisladisksins rennur til
Krabbameinsfélags Íslands og verður nýttur til
verkefna sem tengjast stuðningshópum sjúklinga.
Geisladiskurinn er seldur í verslunum Hagkaups
og á hagkaup.is
HRÍFANDI LISTAVERK
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík