Morgunblaðið - 27.04.2001, Blaðsíða 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 59
ÁLFASTEINN HF. á Borgarfirði
eystra varð 20 ára á mánudaginn
var, en fyrirtækið var stofnað á
sumardaginn fyrsta árið 1981, sem
þá bar upp á 23. apríl.
„70% söluaukning varð hjá Álfa-
steini fyrstu þrjá mánuði ársins,
miðað við sama tíma í fyrra og stórir
viðskiptavinir hafa aukið við pant-
anir sínar. Ekki er þó við svona mik-
illi aukningu að búast allt þetta ár,
en ljóst er að það horfir í umtals-
verða söluaukningu,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Sem dæmi um verkefni framund-
an, er Álfasteinn að framleiða á
fjórða hundarð verðlauna- og minja-
gripi fyrir Landsmót ungmenna-
félaganna, sem haldið verður á
Austurlandi í sumar. Fimm til sex
manns munu starfa hjá Álfasteini í
sumar, en þrír fastir starfsmenn eru
hjá fyrirtækinu allt árið.
Aðalstarfsemi Álfasteins felst í
framleiðslu og sölu á margs konar
vörum úr steini, auk þess sem í
verslun Álfasteins er fjölbreytt
steinasafn með flestum þeim stein-
tegundum sem fundist hafa í Borg-
arfjarðarhreppi. Síðasta árið hefur
einnig verið unnið talsvert við
skiltagerð, einkum merkingar fyr-
irtækja og skilti fyrir ferðaþjón-
ustuna og er það vaxandi þáttur í
starfseminni, segir í fréttatilkynn-
ingunni.
Álfasteinn 20 ára
AÐALFUNDUR Evrópusamtak-
anna á Íslandi var haldinn fyrir
skömmu þar sem ný stjórn var kjörin.
„Samtökin sem voru stofnuð í maí ár-
ið 1995 eru þverpólitískur vettvangur
áhugamanna um Evrópusamvinnu
sem vilja stuðla að upplýstum og for-
dómalausum umræðum á Íslandi um
samstarf Evrópuríkja, auk þess að
vinna að því að Ísland sæki um aðild
að Evrópusambandinu,“ segir m.a. í
fréttatilkynningu frá samtökunum. Á
nýliðnum aðalfundi Evrópusamtak-
anna voru eftirtaldir kjörnir í aðal-
stjórn: Einar Skúlason, formaður
Sambands ungra framsóknarmanna,
Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórn-
málafræðingur og formaður Félags
frjálslyndra jafnaðarmanna, Katrín
Júlíusdóttir, formaður Ungra jafnað-
armanna, Kristján E. Guðmundsson
framkvæmdastjóri, Ólöf G. Soebech,
umhverfisfræðingur og verkefnis-
stjóri hjá Evrópumiðstöð Impru, Úlf-
ar Hauksson, Evrópufræðingur, –
formaður.
Evrópusam-
tökin vilja for-
dómalausar
umræður
NÁM, líf og starf í Viðskiptahá-
skólanum á Bifröst verður kynnt
laugardaginn 28. apríl nk. Um-
sækjendur, velunnarar háskólans
og aðrir eru hvattir til að heim-
sækja Bifröst af þessu tilefni. Boð-
ið verður upp á leiðsögn um svæð-
ið.
Allar deildir Viðskiptaháskólans
verða með kynningu og bjóða um-
sækjendum og öðrum áhugasömum
aðilum upp á viðtöl við rektor, að-
stoðarrektor, kennara og deildar-
stjóra.
Kynnt verður nám, námsefni,
verkefnavinna í tengslum við at-
vinnulífið, möguleikar til fram-
haldsnáms og störf að námi loknu.
Nemendagarðar Viðskiptahá-
skólans sýna íbúðir, herbergi og
aðra aðstöðu. Upplýsingamiðstöð
háskólans sýnir upplýsingaöflun og
nýtingu gagnagrunna.
Líkamsræktarstöð og baðsvæði
verða opin gestum. Leikskólinn
Hraunborg sýnir aðstöðu og leik-
skólastjóri verður til viðtals.
Varmalandsskóli mun einnig
kynna starfsemi grunnskólans.
Skólastjóri verður til viðtals og
tekur á móti umsóknum.
Á Bifröst búa, nema og starfa
um 400 manns. Í fréttatilkynningu
frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst
segir að skólinn leitist við að veita
hæfum einstaklingum sem búa yfir
sköpunargleði, frumkvæði og sam-
skiptahæfni tækifæri til að beina
kröftum sínum og hæfileikum á
svið viðskipta og rekstrar. „Við-
skiptaháskólinn stefnir að því að
skapa nemendum sínum sam-
keppnisyfirburði á vinnumarkaði
að námi loknu. Við inntöku nýrra
nemenda leitast háskólinn við að
veita jöfn tækifæri til náms, óháð
kynferði, aldri, efnahag, fötlun eða
búsetu og skapa þannig fjölbreytt-
an nemendahóp með ólíkan bak-
grunn, menntun og reynslu.“
Kynning á háskóla-
þorpinu á Bifröst
WALDORF-leikskólinn Ylur og
Waldor-skólinn Lækjarbotnum
fagna 10 ára starfsafmæli um þessar
mundir. Af því tilefni verður kynning
á starfsemi skólanna á Borgarbóka-
safni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15,
dagana 28. apríl til 6. maí. Skólarnir
starfa út frá hugmyndum Rudolf
Steiners, þar sem listrænt, verklegt
og bóklegt nám er lagt að jöfnu.
Sýningin verður opnuð laugardag-
inn 28. apríl kl. 13.30 með uppákomu
nemenda. Allir eru velkomnir.
Waldorf-skólinn
kynntur
SJÁLFBOÐALIÐASAMTÖK um
náttúruvernd efna til óvissugöngu
laugardaginn 28. apríl. Lagt verður
af stað kl. 11 frá strætisvagnaskýlinu
í Mjódd. Gangan tekur 3–4 tíma og
eru allir velkomnir. Tilgangur Sjálf-
boðaliðasamtaka um náttúruvernd
er að vernda náttúruna, veita fólki
tækifæri til að vinna að náttúru-
vernd, auðvelda því umgengni um
náttúruna, fræðast um hana og njóta
náttúrufegurðar.
Óvissuganga
náttúruunnenda
♦ ♦ ♦
K
O
R
T
E
R
Bjóðum nú
mikið úrval af mjög
vönduðum borðstofuhúsgögnum frá Skovby á frábæru verði!
B O R Ð S T O F U H Ú S G Ö G N
Sími 581-2275 568-5375 Fax 568-5275
húsgögn
Ármúla8-108Reykjavík
Fáanlegt í Kirsuberjavið
Mahogny
Beyki
Ask
Eik
FERÐASKÓLI Flugleiða útskrifaði nýlega 24 nem-
endur af ferðabraut og var meðaleinkunnin að þessu
sinni 8.91. Þetta er níunda útskrift skólans frá stofnun
hans árið 1992.
Útskrift Ferðaskóla Flugleiða