Morgunblaðið - 16.06.2001, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EKKERT þokast í átt að samkomu-
lagi í kjaradeilu þroskaþjálfa, en að
sögn Sólveigar Steinsson, formanns
félags þroskaþjálfa, hefur ekki verið
boðaður fundur með samninganefnd
ríkisins til að ræða stöðu þroskaþjálfa
sem vinna hjá ríkinu og þeirra sem
vinna hjá sjálfseignarstofnunum.
Hinsvegar verða fundir með samn-
inganefnd sveitarfélaga og Reykja-
víkurborgar á mánudag. Verkfall
þroskaþjálfa sem starfa hjá Reykja-
víkurborg hefur nú staðið yfir í fjórar
vikur, en verkfall þroskaþjálfa sem
starfa hjá sjálfseignastofnum hófst á
miðnætti á fimmtudag. Sem afleiðing
af því var Lyngási, Lækjarási og
Bjarkarási, sem veita samtals um 112
manns þjónustu, lokað í gær.
„Nú þegar 40 þroskaþjálfar bætast
í verkfallshópinn, missa á annað
hundrað einstaklingar mjög mikil-
væga þjónustu, þar sem þremur dag-
vistarstofnunum hjá styrktarfélagi
vangefinna hefur verið lokað,“ segir
Sólveig. „Fólk hefur engin önnur úr-
ræði og ástandið er mjög erfitt víða.
Þess vegna er óskiljanlegt að ekki
skuli vera setið á fundum núna og leit-
að leiða til lausnar.“
Sólveig segir að foreldrar hafi haft
samband við félag þroskaþjálfa og
lýst áhyggjum sínum, „en sem betur
fer höfum við ekki fundið annað en að
fólk sýni baráttu okkar fullan skiln-
ing,“ segir Sólveig, enda sé um sam-
eiginlegt hagsmunamál að ræða.
„Stöðugleiki skiptir mjög miklu máli í
samskiptum við fatlaða og í uppbygg-
ingu og þróun á faglegu starfi, en
vegna launanna endist fólk ekki í
þessu starfi. Eins eru margir í betur
launaðri aukavinnu og slíkt er að
sjálfsögðu mjög slítandi og erfitt til
lengdar,“ segir Sólveig og bætir því
við að sér þyki sorglegt að faglegt
starf skuli ekki rúmast innan þess
kostnaðarramma, sem samningsaðil-
ar tali sífellt um að ekki megi fara út
fyrir.
„Ástandið hér er hörmulegt, það er
eina orðið sem hægt er að nota til að
lýsa því sem við erum að takast á við,“
sagði Margrét Lísa Steingrímsdóttir
forstöðumaður á Álfalandi, í samtali
fyrr í vikunni. Þar hafa þroskaþjálfar
verið í verkfalli. Álfaland er skamm-
tímavistun fyrir fötluð börn og þar fá
34 börn reglulega vistun, en vegna
verkfalls þroskaþjálfa hefur aðeins
verið unnt að halda úti lágmarksþjón-
ustu. Margrét Lísa sagði að ástandið
færi versnandi dag frá degi. „Foreldr-
arnir sem nýta sér þessa þjónustu eru
í mikilli neyð og verða bæði þeir og
ekki síst börnin fyrir miklum erfið-
leikum og truflunum sem setja vinnu
og daglegt líf verulega úr skorðum.“
Þremur dagvistarstofnunum lokað vegna verkfalls þroskaþjálfa
Á annað hundrað ein-
staklinga missir þjónustu
FLUTNINGAÞYRLA Bandaríkjahers aðstoðaði
við björgun stríðsminja í Hvalfirði í gær. Þyrlan
sem er af gerðinni CH-47 Chinook og tekur þátt í
varnaræfingunni Norðuvíkingur 2001 var notuð
til að flytja gamlan járnbrautarvagn af bryggj-
unni í Hvítanesi í Hvalfirði, en bæði bryggjan og
vagninn eru frá þeim tíma er breski flotinn starf-
rækti þar bækistöð í seinni heimsstyrjöldinni.
Það var hreppsnefnd Kjósarhrepps sem leitaði
aðstoðar við að koma vagninum á land til viðeig-
andi varðveislu en hann lá undir skemmdum þar
sem hann var.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stríðsminjum bjargað í Hvalfirði
Upplýs-
ingaher-
ferð gegn
vændi og
mansali
Vilníus. Morgunblaðið.
JAFNRÉTTISRÁÐHERRAR
Norðurlandanna og Eystrasaltsríkj-
anna ákváðu í gær að vinna að sam-
eiginlegri upplýsingaherferð gegn
mansali og vændi. Málið var kynnt í
ríkisstjórn Íslands fyrr í vikunni og
samþykkt að styðja verkefnið. Fund-
ur ráðherranna var haldinn í
tengslum við fjölmenna kvennaráð-
stefnu sem nú stendur yfir í Vilníus í
Litháen en um 500 þátttakendur
sitja hana. Ráðstefnan er framhald
kvennaráðstefnunnar Konur og lýð-
ræði sem haldin var í Reykjavík fyrir
tæpum tveimur árum.
Mansal og vændi er einmitt eitt af
höfuðefnum ráðstefnunnar en þar
kom fram að vandinn hefur aukist
gríðarlega á síðustu árum. Hefur
sænska stjórnin ákveðið að leggja 5
milljónir ísl. kr. til upplýsingaher-
ferðarinnar en að öðru leyti er enn
óljóst hvert umfang hennar verður.
„Ég vona að hún verði áberandi.
Mansal og vændi er til marks um
kúgun karla á konum og hana verður
að stöðva. Líkami kvenna er ekki
söluvara eins og skóreim eða ísskáp-
ur,“ sagði Margaretha Winberg,
jafnfréttisráðherra Svíþjóðar, sem
lagði tillöguna fram.
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra sat fundinn fyrir hönd Ís-
lands og hóf hún máls á aukinni lög-
reglusamvinnu til að vinna bug á
vandanum. Tóku aðrir ráðherrar
heilshugar undir það og kváðust von-
ast til að hægt yrði að nýta þá nánu
norrænu samvinnu sem er í baráttu
lögreglunnar gegn eiturlyfjum, svo
að hún næði einnig til mansals og
vændis.
Upphaf í Reykjavík
Mikið er vitnað til Reykjavíkur-
ráðstefnunnar og þess hvata sem
hún varð konum til að hefja verkefni
á sviði leiðtogaþjálfunar, fjármögn-
unar og annarra skrefa í átt að aukn-
um réttindum kvenna. Þá hefur
vændi og mansal, sem hafið var máls
á í Reykjavík með eftirminnilegum
hætti, verið í sviðsljósinu á ráðstefn-
unni í Litháen enda vandamálið stórt
þar í landi og fer vaxandi. Það á
reyndar við um nær öll Evrópulönd,
eins og fram kom í gær en þar sagði
fulltrúi bresku lögreglunnar m.a. frá
því að hún merkti breytingar til hins
verra frá mánuði til mánaðar.
Rétt um 40 Íslendingar sækja ráð-
stefnuna, þeirra á meðal Sólveig,
sem stýrir einum vinnuhópa ráð-
stefnunnar, og Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri ís-
lensku ráðstefnunnar, en báðar
ávörpuðu gesti við þingsetningu.
STÓRSKEMMDIR voru unnar á
vélum og vistarverum starfsmanna
í Vatnsskarðsnámum við Sveiflu-
háls á Reykjanesi aðfaranótt föstu-
dags. Að sögn lögreglunnar í Hafn-
arfirði var farið í námurnar og ræst
stór 60 tonna jarðýta ræst. Hún var
síðan notuð til að ýta gröfu ofan í
malargryfju, einnig hafi mal-
arvagni verið velt og rótað til í
kaffiskúr. Þá vorurúður brotnar í
tveimur nýjum gröfum.
Það er mat lögreglu og Alexand-
ers Ólafssonar, eiganda fyrirtæk-
isins sem fyrir skemmdunum varð,
að þarna sé um milljónatjón að
ræða. Alexander segir ljóst að
kunnáttumenn hafi verið að verki
því ekki geti hver sem er gangsett
ýtu eins og þá sem notuð var. „Á
þessum vélum er ekki kveikja eins
og á heimilisbílum,“ segir hann.
Þá segir Alexander að hann fái
tjónið ekki bætt að neinu leyti.
„Þessar vélar eru allar mjög nýleg-
ar og kaskó-tryggðar en það er
hver vél með háa sjálfsábyrgð
þannig að það er ekkert sem kemur
út úr því. Þetta er bara tjón fyrir
mig. Ég fæ ekkert bætt, ekki
krónu,“ segir Alexander Ólafsson.
Skemmdar-
verk í Vatns-
skarðsnámum
Morgunblaðið/Golli
Einar Kristjánsson jarðýtumaður virðist ekki stór við hlið gröfunnar
sem ýtt var ofan í gryfjuna.