Morgunblaðið - 16.06.2001, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ráðstefna Lux-Evrópu
Lýsing og
heilsufar
LUX-EVRÓPA erusamtök sem saman-standa af fimmtán
Evrópuþjóðum, þau halda
ráðstefnu fjórða hvert ár
um lýsingu og tengt efni.
Slík ráðstefna verður hald-
in hér dagana 18., 19. og 20
júní í Háskólabíói og hefst
klukkan 9 hinn 18. júní nk.
Egill Skúli Ingibergsson
rafmagnsverkfræðingur er
formaður undirbúnings-
nefndar fyrir hönd Ljós-
tæknifélags Íslands. Hann
var spurður hver væri til-
gangur svona ráðstefnu?
„Tilgangur með ráð-
stefnunni að þessu sinni er
að fjalla um lýsingu í
tengslum við heilsufar og
áhrif á fólk við störf og leik
og ýmsar aðstæður. Það
verður m.a. fjallað um skammdeg-
isþunglyndi og rannsóknir sem á
því hafa verið gerðar, bæði með
ljósum og fleiru sem það mál snert-
ir. Þá verður fjallað um áhrif lýs-
ingar á fólk í störfum og að hvað
miklu leyti lýsing geti haft áhrif á
vellíðan við störf, en vellíðan og
góður árangur fara oft saman. Að
baki liggja miklar rannsóknir enda
hefur afstaða fagmanna til þess
hvað sé góð lýsing breyst mikið.“
– Fáið þið marga fyrirlesara?
„Alls verða flutt um 120 erindi
og koma höfundar erinda frá um
28 löndum. Í þessu sambandi má
nefna að t.d. fulltrúar arkitekta frá
nánast öllum löndum fjalla um lýs-
ingu og byggingar og eru erindin
allt frá því að vera mjög tæknileg
þannig að lýst er hvernig dags-
birtu má flytja inn í stórar bygg-
ingar, allt til þess að gera grein
fyrir þeim áhrifum sem t.d. mis-
munandi stýring á birtu tengd úti-
birtu eða klukku getur haft á vel-
líðan fólks við störf. Einnig er
fjallað um birtu úti í náttúrunni,
bæði það sem kallað er mengun og
líka þá útibirtu sem er til þess að
skapa öryggi svo sem á göngugöt-
um, í umferð og í bæjum yfirleitt.“
– Er tækni við lýsingu mjög
breytt frá því sem var t.d. fyrir
tuttugu árum?
„Sumt af tækninni hefur mikið
breyst en sérstaklega hefur þó
breyst afstaðan til tækni. Í dag er
innilýsingu gjarnan hagað svo að
hún er breytileg, ekki þessi gamla
fasta lýsing sem talin var góð og
var barn síns tíma fyrir t.d. 20 ár-
um, heldur er nú meira horft til
þess að lýsingin sé breytileg, ekki
föst, og breytingunum sé hægt að
stýra í takt við útibirtuna og jafn-
vel komið inn á að gera vissar
breytingar á litum.“
– Hver er helsta nýjungin í lýs-
ingu sem fjallað verður um á ráð-
stefnunni?
„Ég tel að það sé þessi afstaða til
stýringar á birtu inni og svo að í
dag er tekið langtum meira mið af
líðan fólks sem þarf að vinna við
gervibirtu og það lagt upp sem
mælikvarði á hvort lýsing sé góð
eða ekki, hvernig fólk bregst við.
Lýsing og lýsingarbúnaður er
kostnaðarsöm í öllum
byggingum. Það að
gera lýsingarkerfi vel
úr garði þannig að fjöl-
breytilegir möguleikar í
þeim efnum komi til
kostar ekki mikið meira
en áður var, ef tekið er tillit til þess
frá byrjun að stefna að slíku.“
– Hvað margar svona Lux-Evr-
ópuráðstefnur hafa verið haldnar?
„Þetta er sú níunda sem haldin
er. Við Íslendingar komum inn í
þetta fyrir tíu árum. Ég var þá for-
maður Ljóstæknifélags Íslands og
rakst á upplýsingar um svona ráð-
stefnu sem haldin var í Edinborg
1993. Ég hafði samband við for-
ráðamenn og tók í framhaldi af því
upp samvinnu við Lux-Evrópu og
höfum við í Ljóstæknifélagi Ís-
lands verið í því sambandi síðan.
Það var svo prófessor Gísli heitinn
Jónsson sem var formaður Ljós-
tæknifélags Íslands fyrir fjórum
árum sem sá möguleika á að þessi
ráðstefna kæmi hingað og tók
skrefið, að bjóða til ráðstefnunnar,
það var samþykkt af stjórn Lúx-
Evrópu að þiggja þetta boð og þess
vegna er ráðstefnan haldin hér.“
– Höfum við mikinn hag af
svona ráðstefnum?
„Við höfum af þessu mikinn hag,
án efa, bæði vegna samvinnunnar
og hinna persónulegu kynna sem
skapast á svona ráðstefnu og svo
beinum tengslum Lux-Evrópu við
CIE, sem eru alþjóðlegu ljós-
tæknisamböndin.“
– Mennta Íslendingar sig víða í
þessum fræðum?
“Við erum svo heppin að vera
mitt á milli Bandaríkjanna og Evr-
ópu og sækjum menntun í báðar
áttir og fáum því margvísleg áhrif.
Við erum því kannski opnari fyrir
því að skoða nýjungar en ella væri.
Það er eigi að síður nauðsynlegt
fyrir okkur að fylgjast vel með því
sem er að gerast í ljós-
tæknimálum, ekki síst
af því að við erum ekki
með neinn iðnað á þessu
sviði, það gerir það enn
nauðsynlegra að skoða
hvað verið er að gera
annars staðar. Við skiptum mikið
við Norðurlönd, Þýskaland, Aust-
urríki, Bretland og Holland í lýs-
ingarmálum, auk Bandaríkjanna.
Margt er líkt hjá okkur og Norð-
urlöndunum en við höfum þó sér-
stöðu vegna hins langa og dimma
vetrar og áhrif þessa eru eitt af
meginviðfangsefnum ráðstefnunn-
ar.“
Egill Skúli Ingibergsson
Egill Skúli Ingibergsson fædd-
ist í Vestmannaeyjum 23. mars
1926. Hann lauk stúdentsprófi frá
Verslunarskóla Íslands 1948 og
prófi í rafmagnsverkfræði í árs-
byrjun 1954 frá Tækniháskól-
anum í Kaupmannahöfn. Hann
starfaði hjá Orkumálastofnun,
Rafmagnsveitu ríkisins, varð fyr-
ir þá stofnun rafveitustjóri á Vest-
fjörðum til 1962, og síðan yf-
irverkfræðingur í Reykjavík, árið
1969 varð hann aðstoðarrekstr-
arstjóri hjá Landsvirkjun og síðan
staðarverkfræðingur við Búr-
fellsvirkjun og svo Sigölduvirkj-
un. Var borgarstjóri í Reykjavík
1978 til 1982, eftir það hefur Egill
unnið hjá fyrirtæki sínu, Raf-
teikningu, og gerir enn. Hann er
kvæntur Ólöfu Elínu Davíðs-
dóttur húsmóður og eiga þau
fjögur börn og 14 barnabörn.
Sérstaða
vegna hins
langa, dimma
vetrar
Ó, afsakið.
MÁLÞING var haldið fyrr í vikunni
á vegum umhverfisráðuneytisins og
Rannsóknastofnunar byggingariðn-
aðarins og var tilgangur þess m.a.
að kynna verkefni sem hófst seinni
hluta ársins 1999 og fjallar um
byggingarúrgang á Íslandi en
fyrsta hluta verkefnisins, upplýs-
ingaöflun, er nýlokið. Þetta er í
fyrsta sinn sem slík könnun fer
fram hér á landi.
Þátttakendur í verkefninu eru
Rannsóknastofnun byggingariðnað-
arins, Sorpa, ERGO-ráðgjöf á sviði
jarðverkfræði, Iðntæknistofnun Ís-
lands og Samtök iðnaðarins. Í fram-
sögu Eddu Lilju Sveinsdóttur,
deildarstjóra hjá Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins og verkefnis-
stjóra, kom fram að niðurstöðurnar
sýna að miklu magni af bygging-
arúrgangi er hent hér á landi án
þess að hugsað sé um að nýta hann.
Því til staðfestingar benti hún á að
alls væri hent um 860.000 rúmmetr-
um af jarðefnum á ári á Reykjavík-
ursvæðinu.
Víða erlendis er að finna endur-
vinnslustöðvar fyrir steypu, grjót,
möl og fleiri byggingarúrganga en
slíkar stöðvar er ekki að finna hér á
landi og segir Edda Lilja að það
megi líklega rekja til þess að hingað
til hafi það ekki þótt nauðsynlegt.
Niðurstöður sýna að einungis 3%
byggingarúrgangs skilar sér til
Sorpu en ástæðan er m.a. sú að fyr-
irtækið tekur skilagjald fyrir losun.
Þá er nokkuð um að rekstrarúr-
gangur sé fluttur austur fyrir fjall
þar sem sorplosun á byggingarefn-
um er ókeypis.
„Við erum 10 til 20 árum á eftir
öðrum Evrópuþjóðum hvað varðar
endurvinnslu á byggingarúrgangi
kannski vegna þess að hér á landi
eru frekar ungar byggingar. Þá eig-
um við nóg landsvæði til að henda
þessu og nota til að mynda í uppfyll-
ingar. Um 50% af byggingarúrgangi
er endurnýttur í Evrópu og nú er
verið að setja markmið um allt að
75% endurnýtingu árið 2005 og allt
að 85% nýtingu árið 2010.“
Vantar umhverfismarkmið
í byggingargeiranum
Í niðurstöðum kemur fram að
64% byggingarúrgangs hér á landi
sé steinsteypa og 22% malbik en
þessi efni hafa lengi verið endurnýtt
víða erlendis. Edda Lilja segir að
það sem vantar hér á landi séu um-
hverfismarkmið í byggingargeiran-
um eins og tíðkast víða erlendis.
Þrátt fyrir að Íslendingar séu
langt á eftir öðrum Evrópuþjóðum
hvað endurnýtingu á byggingarúr-
gangi varðar segir Edda Lilja að
nokkuð af byggingarúrgangi sé nýtt
í annað. Þá fari hluti af því timbri
sem kemur til Sorpu upp á Grund-
artanga þar sem það er notað í
framleiðslu á kísiljárni. Í kringum
2.500 tonn af timbri fara síðan ár-
lega til Vestmannaeyja þar sem það
er brennt og notað í hitaveituna.
Að sögn Eddu Lilju er markmiðið
með könnuninni fyrst og fremst að
hafa tölulegar upplýsingar til sam-
anburðar við önnur lönd, stilla upp
mögulegum endurvinnsluleiðum og
gera umhverfismat fyrir nokkur
valin ferli. Hagkvæmismat mun síð-
an leiða í ljós hvort af endurvinnslu
verður.
Skýrslan frá fyrsta áfanganum
kemur út síðar í sumar en verkefn-
inu mun ljúka árið 2002 með ráð-
stefnu um haustið.
Um 3% af byggingarúr-
gangi skila sér til Sorpu
IÐNSKÓLINN í Hafnarfirði og
fleiri aðilar hafa tekið höndum
saman um að skipuleggja námskeið
í eldsmíði. Með því á að tryggja að
handverkið týnist ekki enda þarft
að vita hvernig þeir smíðagripir
fornmanna sem annað veifið finnast
hér á landi hafa orðið til. Nám-
skeiðið er ætlað fyrir fagmenn í
miðaldaeldsmíði frá öllum Norð-
urlöndunum og hlaust til þess
styrkur frá Norræna menning-
arsjóðnum.
Í opnu húsi í nýja Iðnskólanum í
Hafnarfirði og mátti berja eldsmið-
ina augum sem og handverk þeirra.
Eldsmíði að
hætti forn-
manna
Morgunblaðið/Arnaldur