Morgunblaðið - 16.06.2001, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 9
Fallegur þjóðhátíðarfatnaður
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Opið í dag, laugardag,
frá kl. 10-15
Gleðilegan þjóðhátíðardag!
Neðst við Dunhaga
sími 562 2230
Opið í dag frá kl. 10-14
Sól og sumartilboð í dag
Tveir bolir fyrir einn
www.oo.is
Ungbarnafötin
fást hjá okkur
sumarkjólar — stuttermabolir — buxur — sundföt
!" # $%#&&
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn-
ismála staðfesti í gær með úrskurði
niðurstöðu samkeppnisráðs um að
Fengur hf., Sölufélag garðyrkju-
manna svf. (SVG), Bananar ehf.,
Ágæti hf. og Mata ehf. hafi brotið
gegn ákvæðum samkeppnislaga. Í
nokkrum tilvikum fellst áfrýjunar-
nefndin þó ekki á ákvörðunarorð
samkeppnisráðs að ólögmætt sam-
ráð hafi átt sér stað eða teljist
sannað. Þannig fellst nefndin t.d.
ekki á með samkeppnisráði að í að-
gerðunum hafi falist sérstakt sam-
særi gegn hagsmunum neytenda.
Sektir lækkaðar úr
105 í 47 milljónir
Þá lækkar nefndin sektir sem
félögunum er gert að greiða úr 105
milljónum í 47 millj. kr., eða um
55%.
Er sekt Fengs, Sölufélags garð-
yrkjumanna og Banana í ríkissjóð
lækkuð úr 40 milljónum í 25 millj-
ónir, sekt Ágætis er lækkuð úr 35
millj. kr. í 17 milljónir og Mötu úr
30 millj. í 5 milljónir.
Áfrýjunarnefndin segir m.a. í
niðurstöðu sinni að telja verði
sannað að fyrirtækin hafi beitt
verðsamráði, framleiðslustýringu,
markaðsskiptingu og öðrum þeim
aðgerðum til að skipta markaði
varðandi viðskipti með grænmeti,
kartöflur og ávexti, draga úr fram-
boði og halda uppi verði. Í heild
verði að telja sannað að Sölufélag
garðyrkjumanna og aðildarfélög
þess hafi komið á kvótakerfi í úti-
ræktuðu grænmeti þar sem fram-
leiðslumagn var takmarkað og því
skipt milli framleiðenda. Einnig að
gripið hafi verið til aðgerða til að
takmarka framleiðslu á ylræktuðu
grænmeti innan aðildarfélaga SFG.
Þessi háttsemi brjóti í bága við
10. og 12. gr. samkeppnislaga. Seg-
ir nefndin að stjórnendum um-
ræddra fyrirtækja hafi hlotið að
vera ljóst að í aðgerðum þeirra
fælist brot á samkeppnislögum og
að af þeim leiddi, vegna stærðar
fyrirtækjanna, markaðsstöðu
þeirra og eðlis þeirra vara sem hér
um ræðir, alvarleg röskun á sam-
keppni.
Áfrýjunarnefndin segir að við
ákvörðun viðurlaga á hendur SFG
sé meðal annars lagt til grundvall-
ar að brotin hafi sum hver staðið
yfir í langan tíma. Fallist er á með
samkeppnisráði að SFG sé öflugt
fyrirtæki á markaði fyrir ylræktað
grænmeti og útiræktað grænmeti
og banana og að það hafi einnig
gegnt lykilhlutverki í hinu ólög-
mæta verðsamráði dreifingarfyrir-
tækjanna. Segir nefndin að aðgerð-
ir SFG og samráðið sem slíkt hafi
verið af þeim sökum til þess fallið
að hafa neikvæð áhrif á samkeppni
og valda neytendum tjóni. Þá er
tekið tillit til þess að ekki hafi
sannast samráð SFG og Mötu um
viðskipti með banana á Suðurnesj-
um og við Nóatúnsverslanirnar og
heldur ekki varðandi garðyrkju-
stöðina að Sólbyrgi.
Varðandi Ágæti segir áfrýjunar-
nefndin að ekki sé fallist á að félag-
ið hafi átt aðild að ætluðu ólög-
mætu verðsamráði og
markaðsskiptingu í viðskiptum
félagsins við Mötu og heldur ekki
varðandi garðyrkjustöðina að Sól-
byrgi.
Sannað þykir að
aðgerðum var beitt til að
skipta markaðnum
„Telja verður sannað að fyrir-
tækin sem hér koma við sögu
beittu verðsamráði, framleiðslu-
stýringu, markaðsskiptingu og öðr-
um þeim aðgerðum sem nefnd eru í
hinni áfrýjuðu ákvörðun til að
skipta markaðnum, draga úr fram-
boði og halda uppi verði,“ segir í
úrskurðinum. „Í heild verður að
telja sannað að SFG og aðildar-
félög þess hafi komið á kvótakerfi í
útiræktuðu grænmeti þar sem
framleiðslumagn var takmarkað og
því skipt milli framleiðenda. Einnig
að gripið hafi verið til aðgerða til
að takmarka framleiðslu á ylrækt-
uðu grænmeti innan aðildarfélaga
SFG. Rétt er einnig að líta svo á að
háttsemin brjóti í bága við 10. og
12. gr. samkeppnislaga,“ segir þar
ennfremur.
Markaðir lengst af háðir
innflutningshöftum
Í umfjöllun um ákvörðun við-
urlaga segir áfrýjunarnefndin m.a.:
„Við ákvörðun viðurlaga ber fyrst
og fremst að hafa í huga hversu al-
varlegs eðlis brot eru. Þar má m.a.
taka tillit til þess skaða sem sam-
keppnishömlur hafa haft í för með
sér. Líta ber einnig til stærðar
þeirra fyrirtækja sem teljast brot-
leg, þess tíma sem brot hefur stað-
ið, huglægrar afstöðu stjórnenda
og fleiri atriða. Loks verður að
hafa í huga þann ávinning sem
samkeppnishömlur hafa haft í för
með sér. Í máli þessu hafa þó ekki
verið glögglega leidd í ljós þau
verðáhrif sem samráðið hefur haft í
för með sér á umræddum markaði.
Í máli þessu má og líta til þess
að þeir markaðir sem hér um ræðir
hafa lengst af verið háðir innflutn-
ingshöftum og er svo enn. Eins og
fram er komið varðar mál þetta at-
vik sem gerðust skömmu eftir gild-
istöku samkeppnislaga en þau
gjörbreyttu réttarreglum um sam-
keppni. Verður þetta haft í huga
þegar huglæg afstaða stjórnenda
umræddra fyrirtækja er metin. Í
liðum 13)–16) er nánar að því vikið
að hve miklu leyti það samkomulag
sem um er að tefla hefur komið til
framkvæmda og hversu lengi það
hefur staðið eftir því sem upplýst
er í málinu. Slík atriði skipta máli
við ákvörðun viðurlaga. Að framan
hefur verið rakið að fyrirtækin
SGF, Ágæti hf. og Mata ehf. höfðu
með sér ólögmætt samráð um verð
og skiptingu markaða varðandi við-
skipti með grænmeti, kartöflur og
ávexti. Var þar um að ræða samráð
sjálfstæðra fyrirtækja til þess að
koma fram sameiginlegum mark-
aðshagsmunum sínum. Stjórnend-
um umræddra fyrirtækja hlaut að
vera ljóst að í aðgerðum þeirra
fælist brot á samkeppnislögum og
að af þeim leiddi, vegna stærðar
fyrirtækjanna, markaðsstöðu
þeirra og eðlis þeirra vara sem hér
um ræðir, alvarleg röskun á sam-
keppni. Þó verður ekki fallist á
með samkeppnisráði að í aðgerð-
unum hafi falist sérstakt samsæri
gegn hagsmunum neytenda enda
er lögfræðileg merking þessa orða-
sambands óljós,“ segir í niðurstöð-
um nefndarinnar.
Er fyrirtækjunum gert að greiða
sektirnar í ríkissjóð innan þriggja
mánaða frá dagsetningu úrskurð-
arins. Áfrýjunarnefndina skipa
Stefán Már Stefánsson, prófessor
(formaður), Magnús H. Magnús-
son, hrl. og Anna Kristín Trausta-
dóttir, löggiltur endurskoðandi.
Talið sannað að
fyrirtækin hafi beitt
ólögmætu samráði
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfestir úrskurð
um ólögmætar aðgerðir grænmetisheildsala
Nefndin fellst ekki á að í aðgerðum fyrirtækjanna hafi
falist sérstakt samsæri gegn hagsmunum neytenda
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála telur að grænmetisfyrirtækin hafi gerst sek um brot á samkeppnislögum,
en í nokkrum tilvikum fellst nefndin ekki á að ólögmætt samráð hafi átt sér stað eða teljist sannað.