Morgunblaðið - 16.06.2001, Síða 15

Morgunblaðið - 16.06.2001, Síða 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 15 LEIKSKÓLINN Ásar við Bergás var vígður við hátíð- lega athöfn í gær. Ásdís Halla Bragadóttir, bæjar- stjóri Garðabæjar, segir að með opnun leikskólans sé þeim áfanga náð að hægt sé að bjóða öllum börnum í bæn- um sem verða tveggja ára á árinu leikskólapláss. Ásdís Halla segir að þrátt fyrir þetta séu ennþá laus rými í leikskólunum og að meta þurfi hvernig þau verði notuð. Hún segir að varlega verði farið í það mat til að koma í veg fyrir að biðlistar myndist meðal eldri barna. Næsta skref sé hins vegar að færa markið enn neðar og stefnan nú sé að geta boðið öllum börnum sem verða 18 mán- aða á árinu leikskólapláss í framtíðinni. „Í leikskólunum í haust verða allmörg börn, sem eru bara eins og hálfs árs og við erum mjög stolt af því en þetta leiðir líka til þess að þjónustan í leikskólunum muni breytast og það þarf að taka meira tillit til þarfa yngstu barnanna. Það þarf að kaupa stærri kubba og það þarf að hafa vagna- geymslur og svo framvegis. Þannig að reksturinn breytist líka,“ segir Ásdís Halla. Leikskólinn Ásar er einkarekinn og er þetta í fyrsta sinn sem leikskóla- rekstur er boðinn út í bæn- um. Að sögn Ásdísar Höllu fékk Garðabær mörg áhugaverð tilboð við útboð reksturs leikskólans og gekk á endanum til samn- inga við Hjallastefnuna ehf. Með þessu sé verið að stíga nýtt skref í rekstri leik- skóla í Garðabæ því verið sé að auka fjölbreytileika þjónustu við leikskólabörn. Öll tveggja ára börn með leikskólapláss Garðabær Morgunblaðið/Jim Smart Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri spjallar við káta krakka á vígsluhátíð hins nýja leikskóla, Ása, í gær. NÝTT eimbað verður tekið í notkun í Sundhöll Reykjavíkur í dag. Að sögn Erlings Jó- hannssonar íþróttafulltrúa hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur var hluti svæðis- ins, þar sem heitu pottarnir eru, ekki nýttur undir neitt og þótti upplagt að koma þar upp eimbaði. Eimbaðið er liður í að koma upp meiri þjónustu við gesti Sundhallarinnar. Fyrir eru eimböð meðal annars í Laugardalslaug og í Vestur- bæjarlaug, en það var opnað í fyrra. Erlingur segir að eimbað Sundhallarinnar verði þó held- ur minna. Lokanir vegna viðgerða í sumar Einhverjar lokanir vegna viðgerða á sundstöðum borgar- innar eru fyrirhugaðar í sumar. „Engar fastar dagsetningar eru fyrir hendi, nema á áætlun er að loka Árbæjarlaug 27. ágúst til 1. september næst- komandi,“ segir Erlingur og bendir á að erfitt sé að fastsetja dagsetningar með miklum fyr- irvara því það ráðist af iðnaðar- mönnum hvenær hægt sé að ráðast í framkvæmdir. Eimbað í Sund- höllina Miðborg Tvíbreiðar sængur og sængurverasett Skólavörðustíg 21, sími 551 4050 Njálsgötu 86, s. 552 0978 Handklæði með nafni 1.500 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.