Morgunblaðið - 16.06.2001, Síða 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 19
EINN af sumarboðunum í Ólafsvík
er opnun Pakkhússins við Ólafs-
braut. Pakkhúsið er í senn upplýs-
ingamiðstöð fyrir Snæfellsbæ og
byggðasafn svæðisins. Starfsmenn
Pakkhússins í sumar eru þær Lilja
Dögg Gunnarsdóttir og Karen Ol-
sen, báðar frá Hellissandi, og hófu
þær störf 1. júní sl. Þær segja að-
sóknina fara betur af stað en í fyrra
og að mikið sé um að útlendingar
komi við og afli sér upplýsinga um
svæðið. Að sögn Lilju og Karenar
er mest sótt í upplýsingar um af-
þreyingu og virðist mikill áhugi
bæði á hvalaskoðun og skoðunar-
ferðum á Snæfellsjökul.
Pakkhúsið í Ólafsvík var reist ár-
ið 1844 af Hans A. Clausen kaup-
manni. Húsið var friðað árið 1971
og árið 1987 hófust endurbætur á
því. Á safninu sem komið hefur ver-
ið fyrir í Pakkhúsinu getur að líta
m.a. gamlar myndir úr Ólafsvík,
gamla kirkjumuni og brugðið er
upp munum sem tengjast alþýðu-
heimili frá fyrri hluta 20. aldar.
Einnig má á sýningunni sjá gömul
veiðarfæri og aðra muni tengda sjó-
mennsku fyrri tíðar. Ekki má svo
gleyma sérstökum skáp sem helg-
aður er minningu Jóhanns Jóns-
sonar skálds sem ólst upp í Ólafs-
vík.
Pakkhúsið í Ólafsvík verður opið
út ágústmánuð.
Ljósmynd/Elín Una Jónsdóttir
Lilja Dögg Gunnarsdóttir og Karen Olsen fyrir utan Pakkhúsið.
Pakkhúsið opnað –
sumarið kemur
Ólafsvík
ÁBÓTINN EHF. og Lína.Net ehf.
hafa skrifað undir samning um ljós-
leiðaratengingu í gegnum Landsnet
Línu.Nets. Samningurinn kveður á
um 10–100 Mb/s ljósleiðaratengingu
inn í Gnúpverjaskóla en þaðan verð-
ur ljósleiðaranum dreift um ná-
grennið, um streng eða loftnet.
Verkið hófst formlega 12. júní en
áætluð verklok eru 1. september
2001. Með ljósleiðaratengingunni
opnast nýir möguleikar fyrir íbúa og
nemendur í Gnúpverjahreppi þar
sem þeim gefst nú í fyrsta sinn kost-
ur á almennri netþjónustu með há-
hraðatengingu eins og best þekkist
sem nýtist meðal annars vel til fjar-
náms, fjarfunda, tölvukennslu og IP-
símaþjónustu.
Ábótinn ehf. er lítið fyrirtæki,
stofnað 1992 og staðsett í Gnúp-
verjahreppi. Ábótinn hefur búið til
gagnagrunna og vefsíður sem hafa
meðal annars þjónað þjóðkirkjunni á
margvíslegan hátt.
Landsnet Línu.Nets er framleng-
ing á IP-Borgarnetinu til lands-
byggðarinnar en öll sú þjónusta sem
í boði verður á IP-Borgarnetinu, s.s.
stafrænt sjónvarp, stendur einnig
þeim til boða sem munu tengjast
Landsnetinu.
Þetta er fyrsti áfanginn í lands-
byggðarsókn Línu.Nets í samstarfi
við Fjarska og er hann um ljósleið-
ara fyrirtækisins til Vestmannaeyja.
Ljósleiðarinn er ofinn í jarðstrengs-
línu háspennulínunnar Búrfell 3.
Ljósleiðarinn er tekinn niður á sam-
setningu strengsins í Hofsheiði
skammt frá Árnesi og þaðan er graf-
inn strengur í jörð og dreginn inn í
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Arnar Már Ottósson, fyrirtækjaráðgjafi Línu.Nets, Árni Árnason, starfs-
maður Ábótans, og sr. Axel Árnason, einn eigenda Ábótans. Fyrir aftan
standa Bjarni Einarsson oddviti og Jóhanna Steinþórsdóttir skólastjóri.
Gnúpverjaskóla sem verður dreif-
ingarmiðstöð fyrir hreppinn og
næsta nágrenni. Slíkir einfaldir
möguleikar eru fyrir hendi alls stað-
ar þar sem samtengingar eru á lín-
unni sem er á 5 – 10 km bili.
Ábótinn hefur ráðist í það verk í
samstarfi við Línu.Net að koma á
ljósleiðaratengingu við Gnúpverja-
hrepp til að stuðla að tækifærum fyr-
ir einstaklinga og fyrirtæki til að
nýta sér stafræna tækni við að skapa
sér verðmæta atvinnu. Ljósleiðara-
tengingin þúsundfaldar netsam-
bandið sem sveitin hefur getað notað
og býður því upp á mikla möguleika
á stafrænni tækni. Nú þegar liggur
Ljósleiðaratenging í
skólann og nágrennið
Gnúpverjahreppur
ljósleiðari frá Landsímanum um
Gnúpverjahrepp.
Tenging við hann hefur staðið til
boða en kostað það mikið að þessi
leið í samstarfi við Línu.Net var val-
in. Bjarni Einarsson oddviti Gnúp-
verjahrepps sagði hér um einka-
framtak að ræða sem hann kvaðst
fagna en áhrif þess fyndust strax því
eftirspurn eftir lóðum hefði strax
tekið kipp enda eftirsótt hjá fólki að
geta verið í góðri nettengingu hvort
sem væri í íbúðarhúsnæði eða sum-
arhúsum. „Þetta veitir okkur enda-
laus tækifæri,“ sagði Bjarni þegar
framkvæmdaaðilar höfðu undirritað
samstarfssamninga sína.
FYRIR skemmstu stóð Ræðu-
klúbbur Sauðárkróks fyrir sam-
komu í félagsheimilinu Bifröst, þar
sem minnst var þess að á árinu hefði
rithöfundurinn og skáldið Indriði G.
Þorsteinsson orðið sjötíu og fimm
ára, og einnig að fimmtíu ár voru nú
liðin frá því að fyrsta bók hans, smá-
sagnasafnið Sæluvika, kom út.
Bar dagskráin yfirskriftina
„Krókurinn í verkum Indriða G.“ og
var hún tekin saman og stjórnað af
Jóni Ormari Ormssyni á fágaðan og
smekklegan hátt.
Sérstakur gestur á þessu kvöldi
var Kári Jónasson, blaðamaður og
fyrrum fréttastjóri, og rakti hann í
stórskemmtilegu erindi kynni sín af
ritstjóranum og blaðamanninum
Indriða, sem hann sagði að fengið
hefði mesta umfjöllun sem skáld, en
hinsvegar litla sem blaðamaður og
ritstjóri, en sá þáttur í lífi Indriða
sagði Kári að væri ekki síður at-
hyglisverður.
Þá lásu félagar í Leikfélagi Sauð-
árkróks valda kafla upp úr verkum
Indriða, sem snertu „Krókinn“ og
sögðu frá skemmtilegu mannlífi
staðarins.
Að lokum lék Bifrastarband
Rögnvalds Valbergssonar ásamt
Guðbrandi Ægi Ásbjörnssyni lög
frá þeim gömlu og góðu árum þegar
sögurnar gerast.
Ræðuklúbbur Sauðárkróks
Afmælishátíð til minningar um
Indriða G. Þorsteinsson skáld
Kári Jónasson fjallaði um rit-
stjórann og blaðamanninn
Indriða G. Þorsteinsson.
Sauðárkrókur
Morgunblaðið/Björn Björnsson
BYGGINGAVERKTAKARNIR
Ágúst og Flosi á Ísafirði eru að
hefja byggingu verslunarmið-
stöðvar í miðbæ Ísafjarðar og er
áætlað að fyrsti hlutinn verði
tilbúinn fyrir næstu jól. Húsið er
reist að hluta á uppfyllingu og á
lóðum gamalla verslunar- og þjón-
ustuhúsa sem nú voru rifin. Í
gömlu húsunum voru Arngrímur
Fr. Bjarnason og kona hans, Ásta
Eggertsdóttir, lengi með blóma-
og listmunabúð, við hlið þeirra
var Jónas Magnússon með mat-
vöruverslun en við hina hlið hans
var Harrý Herlúfsen og síðan Vil-
berg Vilbergsson með rakara-
stofu. Við hlið þeirra var svo raf-
tækjaverkstæðið og verslunin
Neisti lengst af. Þar var áður
útibú frá Nathan og Olsen í
Reykjavík. Nú þegar húsin voru
rifin voru einungis eftir með
starfsemi fataverslunin Do re mi í
gamla Neistahúsinu og Vilberg
Vilbergsson og Samúel Einarsson
á rakarastofunni.
Nýja húsið verður á þremur
hæðum. Neðst er 1580 fermetra
verslunarhæð þar sem Samkaup
verða með stærstu búðina. Á ann-
arri hæð verður Héraðsdómur
Vestfjarða til húsa en á þriðju
hæðinni ein til tvær þakíbúðir.
Búið er að skipta um jarðveg í
lóðinni og á bílastæðum en vegna
tafa við afhendingu lóðarinnar og
ákvörðunar um stærð bygging-
arreits mun vinna við bygginguna
tefjast um nokkrar vikur, en þó er
fastlega vonast til að takist að
ljúka við verslunarhæðina fyrir
næstu jólavertíð.
Að sögn Ágústs Gíslasonar
byggingameistara er mikill áhugi
fyrir verslunarhúsnæðinu og virð-
ist honum að brýn þörf hafi verið
að ráðast í þessa framkvæmd sem
mun styrkja mjög miðbæinn sem
miðstöð verslunar og þjónustu fyr-
ir Ísafjarðarbæ og nágranna-
byggðir.
Samkaup eru nú til húsa í
gamla kaupfélagshúsinu við sömu
gatnamótin. Ekki er vitað hverjir
fá það húsnæði en á efri hæðunum
er grunnskólinn með starfsemi.
Ný verslunar-
miðstöð
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Gömul verslunarsamstæða víkur fyrir nýrri. Í Neistahúsinu sem þarna
er verið að rífa var lengi stærsta raftækjaverkstæði á Vestfjörðum og
verslun. Á blómatíma verslunarinnar áttu námsmeyjar Húsmæðraskól-
ans Óskar þar leynilegt afdrep.
Ísafjörður