Morgunblaðið - 16.06.2001, Síða 24
LISTIR
24 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Rose Bruford College
LEIKLISTARNÁM
Rose Bruford College var stofnaður árið 1950 og er hann einn af helstu
leiklistarskólum Evrópu, sem býður námskeið á öllum sviðum leiklistar
og skyldra listgreina. Við munum hafa hæfnipróf og viðtöl í Reykjavík í
júní vegna eftirfarandi greina, sem hefjast í september 2001:
Einnig munum við veita viðtöl vegna meistara- og doktorsnáms, sumar-
skóla og eins árs alþjóðlegs undirstöðunámskeiðs. Komið og ræðið við
okkur um ævistarf í leikhúsi. Nánari upplýsingar veitir:
Ms. Terri Minto, Admissions Officer, Rose Bruford College,
Lamorbey Park, Sidcup, Kent, DA15 9DF.
Sími +44 (0) 20 8308 2611 Fax +44 (0) 20 8308 0542,
netfang: admiss@bruford.ac.uk
Skoðið heimasíðu okkar: www.bruford.ac.uk
Tónlist leikara
Evrópsk leiklist
Hönnun lýsingar
Leiklist
Búningagerð
Leikmyndalist
Tónlistartækni
Sviðstjórnun
Leikstjórn
Bandarísk leiklist
Hljóð- og ímyndahönnun
Bresk háskólastofnun Skólastjóri: Dr Alastair Pearce
BANDARÍSK feðgin af íslenskum
ættum komu gagngert til Íslands í
lok maí, til að vinna í sjálfboðavinnu
við nýtt sýningarhús við Vestur-
farasetrið á Hofsósi, en þau halda
aftur til Bandaríkjanna innan
skamms.
Vesturfarasetrið á Hofsósi
stækkar stöðugt, en í vikunni hófust
framkvæmdir við 130 fermetra sýn-
ingarhús, sem til stendur að vígja
að ári með sýningu um ferðir Ís-
lendinga til Norður-Dakóta í
Bandaríkjunum og sögu þeirra.
Komu vegna smíðinnar
Feðginin Richard og Mary
Holand hafa verið á Hofsósi síðan í
lok maí vegna nýsmíðinnar. Þau
búa í Park River í Norður-Dakóta,
um 2.000 íbúa bæ skammt fyrir
sunnan Winnipeg í Manitoba í Kan-
ada, en eru af íslenskum ættum og
komu gagngert til landsins ásamt
Lornu, eiginkonu Richards, til að
vinna í sjálfboðavinnu við bygg-
inguna. Feðginin eru húsasmiðir, en
Richard fór á eftirlaun sem kennari
1. júní sl. eftir 45 ára starf og Mary
byrjar sem stærðfræðikennari í 8.
bekk í haust.
Richard kom með leikhópi frá
Norður-Dakóta til Íslands í fyrra og
gisti þá m.a.á Hofsósi þar sem hann
kynntist Valgeiri Þorvaldssyni,
frumkvöðli Vesturfarasafnsins og
framkvæmdastjóra þess. „Valgeir
sagði mér hvað stæði til að gera
hérna og ég vildi leggja mitt af
mörkum,“ segir Richard. „Afi flutti
frá Íslandi til Bandaríkjanna og við
höfum mikinn áhuga á að kynna
okkur sögu og land forfeðranna.
Með þessu fyrirkomulagi getum við
gert það og jafnframt borgað fyrir
upprunann, með því að vinna fyrir
Valgeir og láta gott af okkur leiða
með því að gefa til baka af því sem
við höfum lært í gegnum tíðina. Afi
var bóndi en hann var líka smiður,
smíðaði meðal annars bæinn sinn
sem enn er búið í. Því má segja að
við fetum að nokkru leyti í fótspor
hans með smíðinni hérna. Lorna er
bókasafnsfræðingur á eftirlaunum
og hún hefur notað tímann til að
rannsaka uppruna okkar, en við er-
um ekki í akkorði og njótum þess að
vera til. Í því sambandi má nefna að
við höfum farið í fuglaskoðun, farið
út í Drangey og veitt þorsk.“
Áður en framkvæmdir hófust við
nýju bygginguna smíðuðu feðginin
bókahillur fyrir Vesturfarasetrið, en
hugurinn er greinilega við nýja hús-
ið. „Okkur finnst við tengjast því
sérstaklega vegna fyrstu sýningar-
innar að ári, en svo verða auðvitað
aðrar sýningar þar í framtíðinni,“
segir Richard og bætir við að Setrið
hafi komið þeim verulega á óvart,
ekki síst bókasafnið, þar sem fræð-
ast megi um Ísland og Íslendinga
um aldir.
Mary hefur unnið undanfarin
fimm sumur við húsbyggingar með
föður sínum, en verið í háskóla á
veturna. Hún er yngst af sex systk-
inum og á tvær systur og þrjá
bræður. „Þetta er það besta sem ég
hef gert,“ segir hún.
Þau hafa í hyggju að koma aftur
að ári og taka þá fleiri ættingja
með. „Þátttaka í þessari smíði er
góð leið til að tengjast upprunanum,
en sýningin næsta ár tengir okkur
líka betur við ættjörðina,“ segir
Richard.
Vestur-Íslendingar í sjálfboðavinnu við Vesturfarasetrið á Hofsósi
Tenging við upprunann
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Richard Holand, Lorna, Mary og Valgeir Þorvaldsson, frumkvöðull Vesturfarasafnsins, þar sem nýja húsið rís,
en fyrir aftan þau er Frændgarður, þar sem er m.a. fræðimannsíbúð, bókasafn og fjölnota sýningarsalur.
! !
Á ÞRIÐJU tónleikum sumartón-
leikaraðar veitingahússins Jómfrúr-
innar við Lækjargötu í dag kl. 16
kemur fram tríó söngkonunnar
Kristjönu Stefánsdóttur. Með Krist-
jönu leika Agnar Már Magnússon á
píanó og Gunnar Hrafnsson á
kontrabassa. Tónleikarnir fara fram
utandyra á Jómfrúrtorginu ef veður
leyfir en annars inni á Jómfrúnni.
Aðgangur er ókeypis.
Tríó á
Jómfrúnni
SUMARSÝNING Gallerís Reykja-
víkur verður opnuð þjóðhátíðardag-
inn 17. júní. Á sýningunni eiga verk
Pétur Friðrik, Guðmundur Karl Ás-
björnsson, Jón Reykdal, Kristín
Þorkelsdóttir, Guðmundur Björg-
vinsson, Sigrún Eldjárn, Helgi Vil-
berg, Guðmundur Ármann, Sigurður
Atli, Alda Ármanna, Jóhanna
Sveinsdóttir, Valgerður Hauksdótt-
ir, Sigrid Valtingojer og Ingibjörg
Hauksdóttir. Aðgangur er ókeypis.
Sumarsýning
Gallerís
Reykjavíkur
DISKUR með djasstríóinu Guitar
Islancio kemur út í Winnipeg í
Kanada 18. júní nk. í tengslum
við tónleikaferð íslensku hljóm-
listarmannanna um Manitoba og
Saskatchewan, sem hefst á mánu-
daginn. Þar bætist Kanadamað-
urinn dr. Richard Gillis við hóp-
inn, en hann er af íslenskum
ættum og nýtt fyrirtæki hans í
Winnipeg gefur diskinn út.
Á diskinum eru eingöngu ís-
lensk þjóðlög. „Okkur er sýnd
mikil virðing með útgáfunni, en
Richard Gillis er fjórða hjólið
undir vagninum og hann kom síð-
ast til Íslands í maí til að taka
þennan disk upp með okkur,“
segir Björn Thoroddsen. Hann
bætir við að diskurinn verði að-
eins gefinn út í Kanada, en auk
hans eru Gunnar Þórðarson og
Jón Rafnsson í Guitar Islancio og
Richard Gillis spilar með þeim á
diskinum sem og í ferðinni.
Viðurkenning á íslensku
þjóðlögunum
Richard Gillis er prófessor við
tónlistarskóla Manitoba-háskóla í
Winnipeg, en hann er tromp-
etleikari og kennir á trompet.
Móðir hans var tónlistarkennari,
en þrjú af öfum hans og ömmum
fæddust á Íslandi. Fyrir tveimur
árum hitti hann Svavar Gestsson,
sendiherra, í boði, sem foreldrar
hans héldu fyrir Ólaf Ragnar
Grímsson, forseta Íslands, í Foam
Lake í Vatnabyggð í Saskatchew-
an. Svavar sagði honum að í
tengslum við hátíðahöldin 2000
kæmu íslenskir tónlistarmenn til
Kanada, Richard Gillis bauðst til
að vera til aðstoðar og kynntist
þannig Birni Thoroddsen, en
Kanadamaðurinn skipulagði tón-
leikaferð Guitar Islancio um
sömu slóðir í fyrra.
„Richard Gillis hefur verið okk-
ur afar hjálplegur og við höfum
fundið fyrir góðum stuðningi og
áhuga í Vesturheimi en vegna
margra óska höfum við hugleitt
aðra ferð í haust,“ segir Björn,
en áhugi er að gefa út fleiri diska
vestra með Guitar Islancio.
Björn segir að á dagskrá hjá
þeim séu nær eingöngu íslensk
þjóðlög, rétt eins og á diskinum.
„Það verður spennandi að sjá
hvaða viðtökur diskurinn fær þó
ég efist ekki um viðbrögðin. Boð
um að koma fram mun víðar en
við komumst yfir að þessu sinni
segja sína sögu, en auk þess er
margt á döfinni hjá okkur. Í því
sambandi má nefna að við förum
til Japans í haust, Bandaríkjanna
og Þýskalands. Ég lít á þetta sem
viðurkenningu á íslensku þjóðlög-
unum okkar, að þessi sameig-
inlega eign okkar sé áheyrileg og
fólk um víða veröld hafi áhuga á
þeim.“
Spennandi
verkefni
Félagarnir skemmta á djasshá-
tíðum í Winnipeg og Saskatoon.
Þeir koma tvisvar fram í Winni-
peg miðvikudaginn 20. júní og
daginn eftir verða þeir á Gimli.
Síðan halda fjórmenningarnir til
Saskatchewan, þar sem þeir spila
í Foam Lake 22. júní, Saskatoon
23. og 24. júní, Regina 24. júní og
svo aftur í Winnipeg í Manitoba
mánudaginn 25. júní. „Þetta er
mjög spennandi verkefni, ekki
síst vegna þess að um er að ræða
íslenska hljóðfæraleikara og ein-
göngu íslensk þjóðlög,“ segir
Björn. „Þetta er viss sigur fyrir
okkur vegna þess að Kan-
adamenn hafa beðið okkur um að
koma. Við höfum fundið fyrir því
að fólk er spennt fyrir þessari
tónlist og það er ánægjulegt.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guitar Islancio er á leið til Vesturheims en í tríóinu eru Björn Thorodd-
sen, sem spilar á gítar, Jón Rafnsson á kontrabassa og Gunnar Þórð-
arson á gítar. Í Kanada bætist dr. Richard Gillis við hópinn.
Guitar Islancio í annarri tónleikaferð um Kanada
Diskur
gefinn út
í Winni-
peg
♦ ♦ ♦
RAGNA Hermannsdóttir
myndlistarmaður sýnir bók-
verk sitt Dauðinn í frumskóg-
inum í glugganum Innsýni að
Skólavörðustíg 22c frá og með
deginum í dag.
Ragna er fædd 1924 og byrj-
aði að fást við myndlist árið
1980. Hún lærði á Íslandi, í
Bandaríkjunum og Hollandi og
hefur aðallega fengist við graf-
ík. Hún hefur mikið unnið með
bókina sem miðil og unnið þá
með offsett og silkiprentun. Nú
er tölvan tekin við og eru flest
ný verk hennar unnin með
tölvu og prentara. Verkið
Dauðinn í frumskóginum er
hugleiðing um genabreytingar
og græðgi.
Sýningin stendur fram í
miðjan júlí.
Dauðinn
í frum-
skóginum
Í NÝLISTASAFNINU við Vatns-
stíg stendur yfir dagskrá um þessar
mundir sem ber heitið Pólýfónía. Þar
verður lögð áhersla á að kanna
mörkin og markaleysið á milli tón-
listar og myndlistar.
Í kvöld, laugardagskvöld, kl. 20,
koma fram Sigurður og Arnar Guð-
jónssynir, Vitascope og Club Bevil.
Pólýfónía