Morgunblaðið - 16.06.2001, Page 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 25
ÚT ER komin ljósmyndabókin
Menning í myndum, samstarfsverk-
efni Reykjavíkur – menningarborg-
ar, Morgunblaðsins og prentsmiðj-
unnar Odda. Í bókinni eru birtar
nálægt tvö hundruð myndir eftir
ljósmyndara Morgunblaðsins, sem
var blað menningarborgarársins.
Dagskrá Menningarborgar var
unnin undir yfirskriftinni „menning
og náttúra“ og teygði hún anga sína
um allt land með nærfellt þrjú
hundruð verkefnum. Myndefnið er
því fjölbreytt og undirstrikar, að
sögn Svanhildar Konráðsdóttur,
kynningarstjóra Menningarborgar-
innar, þann mikla fjölda fólks sem
menningarborgarárið snerti með
einum eða öðrum hætti. „Frumkraft-
arnir eldur, jörð, vatn og loft tengd-
ust dagskrá ársins og bregða þeir
einnig á leik í þessari litríku heimild
um gott ár og menningarlegt mann-
líf í Reykjavík menningarborg Evr-
ópu árið 2000.“
Texti bókarinnar er á íslensku og
ensku og rita Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri, Björn Bjarnason
menntamálaráðherra og Páll Skúla-
son formaður stjórnar Menningar-
borgarinnar í hana ávörp.
Menning í myndum er gefin út í
takmörkuðu upplagi og verður bókin
notuð til kynningar á Íslandi og ís-
lenskri menningu erlendis, auk þess
sem hún mun liggja frammi á völd-
um stöðum, svo sem hjá menning-
arstofnunum landsins.
Mynd Menningarborgarinnar eft-
ir Sigurð Árna Sigurðsson prýðir
kápu bókarinnar. Umsjón hafði
Svanhildur Konráðsdóttir, mynd-
stjórn var í höndum Einars Fals Ing-
ólfssonar, myndstjóra Morgunblaðs-
ins, og prentsmiðjan Oddi sá um
hönnun og prentun.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Flutningur 2000 leikskólabarna á Þúsaldarljóði eftir Sveinbjörn og
Tryggva M. Baldvinssyni á Arnarhóli var einn þeirra viðburða sem
vöktu mikla athygli á menningarborgarárinu.
Ljósmyndabók frá menningarborgarári
Litrík heimild
Í DAG er opnunardagur myndlist-
arsýningar á Skriðuklaustri í Fljóts-
dal sem ber heitið Austfirsku meist-
ararnir. Sautján verk eru á
sýningunni sem eiga það sammerkt
að vera eftir myndlistarmenn, sem
eru fæddir eða aldir upp á Austur-
landi. Sýningin er tekin saman af
Listasafni Íslands og eru öll verkin í
eigu safnsins. Á sýningunni eru verk
eftir: Jóhannes S. Kjarval, Svavar
Guðnason, Finn Jónsson, Jón Þor-
leifsson, Nínu Tryggvadóttur, Gunn-
laug Scheving, Ingiberg Magnússon,
Elías B. Halldórsson, Tryggva
Ólafsson, Höskuld Björnsson og
Dunganon.
Í dag verður einnig opnuð sýning
Ólafar Bjarkar Bragadóttur í Gallerí
Klaustri að Skriðuklaustri. Á sýn-
ingunni eru ljósmyndir í lit teknar á
flóamarkaðnum í Montpellier í Suð-
ur-Frakklandi.
Sýningin Austfirsku meistararnir
er opin alla daga vikunnar til 13.
ágúst á sama tíma og hús skáldsins,
frá kl. 11 til 17. Sýning Ólafar Bjark-
ar er opin alla daga til 1. júlí.
Tvær sýningar
á Skriðuklaustri
Á „RAUÐA veggnum“ í Japis
Laugavegi 13 hanga nú verk eftir
Björgu Sveinsdóttur. Þar sýnir hún
myndir af íslenskum tónlistarmönn-
um í tilefni af opnun ljósmyndavefjar
hennar, BSmyndir.com. Sýningin er
opin á opnunartíma verslunarinnar
til 1. júlí.
Myndir á Rauða
veggnum
GUNNAR Gunnarsson opnar sýn-
ingu í Veislugallery og Listacafé í
Listhúsinu í Laugardal í dag. Hann
sýnir 27 málverk frá árunum1994 -
2001. Sýningin er opin alla daga frá
kl. 9 –19. Sunnudaga kl. 12-17.
Gunnar Gunn-
arsson sýnir
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
„DJÁSN og dýrðleg sjöl“ heitir sýn-
ing sem opnuð verður í dag kl. 16, hjá
Handverki og hönnun í Aðalstræti
12, 2. hæð. Þar sýna 30 aðilar skart-
gripa- og textílhönnun.
Sýningin stendur til 8. júlí og verð-
ur opin alla daga nema mánudaga
frá kl. 12–17.
Aðgangur er ókeypis.
Sýning á
skartgripum
NEMENDADANSFLOKKUR
Listdansskóla Íslands heldur sýn-
ingu í íslensku óperunni í dag kl. 20.
Nemendadansflokkurinn saman-
stendur af nemendum úr framhalds-
deild listdansskólans en þeir leggja
stund á klassískan og nútímaballett
sem og jazzballett. Sýningin endur-
speglar það sem nemendur hafa ver-
ið að fást við í vetur.
Alls eru 8 verk flutt og munu um
30 manns taka þátt í sýningunni. 4
þessara verka verða frumflutt á sýn-
ingunni en 2 þeirra voru samin sér-
staklega í tilefni af móti norrænna
dansnemenda sem haldið var í Ósló í
febrúar síðastliðnum.
Meðal danshöfunda eru Chad
Adam Bantner og Lára Stefánsdótt-
ir. Einnig semja bæði kennarar og
nemendur skólans dansverk.
Sýning Nem-
endadans-
flokksins