Morgunblaðið - 16.06.2001, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 37
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Menntaskólinn að Laugarvatni
auglýsir
eftirtalin störf
til umsóknar frá og með 1. ágúst nk.:
● Starf námsráðgjafa, hálft starf.
● Starf aðstoðarskólameistara.
● Starf skólaritara, hálft starf.
Nánari upplýsingar í símum 486 1156 og
486 1258.
Umsóknir berist skólameistara, Menntaskólan-
um, Laugarvatni, eða formanni skólanefndar,
Sigurði Inga Jóhannssyni, Syðra-Langholti,
845 FLÚÐUM, fyrir 27. júní nk.
Frá Kvennaskólanum í Reykjavík
Kennarar
Laus eru til umsóknar kennslustörf við skólann
næsta vetur í eftirtöldum greinum:
● Fjölmiðlafræði 9 tímar á viku.
● Sálfræði 15 tímar á viku.
Einnig vantar stundakennara:
● Danska 6 tímar á viku.
● Félagsfræði 303 (stjórnmálafræði)
3 tímar á viku.
● Lögfræði 3 tímar á viku.
Umsóknarfrestur er til 29. júní nk.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, berist skólanum á Fríkirkjuvegi 9.
Ekki þarf sérstakt umsóknareyðublað.
Ráðningartími kennara í fjölmiðlafræði og sál-
fræði er frá 1. ágúst nk., en stundakennara frá
23. ágúst.
Launakjör eru skv. samningum KÍ og ríkisins.
Skólameistari og aðstoðarskólameistari veita
nánari upplýsingar í sím 562 8077.
Skólameistari.
Félagsvísindadeild
Verkefnastjóri í félagsráðgjöf
Við félagsvísindadeild Háskóla Íslands er laust
til umsóknar 50% starf verkefnisstjóra í
félagsráðgjöf. Starfið felur í sér umsjón með
starfsþjálfun nemenda í félagsráðgjöf, sam-
skipti við stofnanir á vettvangi auk ýmissa
skipulagsverkefna, leiðbeininga fyrir nemendur
og umsjón með kynningarstarfi. Auk þess að-
stoðar verkefnisstjóri við rannsóknir kennara,
m.a í tengslum við rannsóknartengt fram-
haldsnám í félagsráðgjöf.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi háskólapróf
og framhaldsnám (meistarapróf) á sviði félagsvís-
inda, reynslu af rannsóknarvinnu og innsýn í
starfssvið félagsráðgjafar auk traustrar tölvu- og
íslenskukunnáttu.
Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem allra fyrst. Umsóknir um starfið berist
til starfsmannasviðs Háskóla Íslands, Aðal-
byggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík fyrir
30. júní nk. Öllum umsóknum verður svarað
og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun
starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Launakjör eru skv. samningi fjármálaráðherra
og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veita Sigrún Júlíusdóttir,
prófessor í félagsráðgjöf, sími 525 4505,
tölvupóstfang sigjul@hi.is, Guðný Eydal, lekt-
or í félagsráðgjöf, sími 525 4258 tölvupóst-
fang ge@hi.is og Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir,
skrifstofustjóri, sími 525 4503, tölvupóstfang
sigurada@hi.is
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er
tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans.
http://www.starf.hi.is.
Háskóli Íslands
Félagsvísindadeild
Við félagsvísindadeild Háskóla Íslands er laust
til umsóknar starf lektors í félagsráðgjöf.
Ráðið verður í starfið til fimm ára frá 1. janúar
2002. Starfið er auglýst á grundvelli samnings
á milli Háskóla Íslands og Félagsþjónustunnar
í Reykjavík.
Sérsvið lektorsins skal tengjast greiningu og
sérhæfðri ráðgjöf ásamt rannsóknum á
félagsþjónustu sveitarfélaga. Sviðið snertir
velferðarmál einstaklinga og fjölskyldna ásamt
framkvæmd og þróun notendamiðaðrar
félagsþjónustu. Sérstök áhersla verður á þróun
og rannsóknir innan verksviðs Félagsþjónust-
unnar í Reykjavík.
Umsækjendur skulu hafa, að lágmarki, lokið
meistaraprófi eða sambærilegu prófi í félags-
vísindum, hafa reynslu af vinnu með einstakl-
ingum, fjölskyldum og hópum og unnið að
rannsóknar- og sérfræðistörfum í félagsráð-
gjöf. Gert er ráð fyrir að lektorinn hafi starfsað-
stöðu bæði hjá félagsvísindadeild Háskóla
Íslands og Félagsþjónustunni í Reykjavík.
Um hæfi umsækjenda og meðferð umsókna
fer eftir ákvæðum laga um Háskóla Íslands nr.
41/1999 og reglugerðar um Háskóla Íslands
nr. 458/2000.
Umsókn þarf að fylgja greinargóð skýrsla um
vísindastörf umsækjanda, rannsóknir og rit-
smíðar (ritaskrá), svo og yfirlit um námsferil
og störf (curriculum vitae) og eftir atvikum
vottorð. Með umsókn skulu send þrjú eintök
af vísindalegum ritum og ritgerðum, birtum
og óbirtum, sem umsækjandi óskar eftir að
tekin verði til mats. Þegar höfundar eru fleiri
en umsækjandi skal hann gera grein fyrir hlut-
deild sinni í rannsóknum sem lýst er í ritverkun-
um. Ef um er að ræða mikinn fjölda ritverka
skal innsending af hálfu umsækjanda og mat
dómnefndar takmarkast við 20 helstu fræðileg
ritverk sem varða hið auglýsta starfssvið. Æski-
legt er að umsækjendur geri grein fyrir því
hverjar rannsóknarniðurstöður sínar þeir telja
markverðastar. Ennfremur er óskað eftir grein-
argerð um þær rannsóknir sem umsækjandi
vinnur að og hyggst vinna að verði honum veitt
starfið (rannsóknaráætlun) og þá aðstöðu sem
til þarf. Loks er ætlast til þess að umsækjandi
láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórn-
unarstörf sín eftir því sem við á.
Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðherra og raðast starf
lektors launaramma B.
Umsóknarfrestur er til 16. júlí 2001 og skal
umsóknum og umsóknargögnum skilað í þrí-
riti til starfsmannasviðs Háskóla Íslands, Aðal-
byggingu, við Suðurgötu, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækj-
endum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar
ákvörðun hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar gefur Sigrún Júlíusdóttir,
prófessor í félagsráðgjöf, sími 525 4505, net-
fang sigjul@hi.is .
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er
tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans.
http://www.starf.hi.is.
Trésmiðir
Vegna aukinna verkefna vantar okkur trésmiði.
Áhugasamir hringi í síma 8 247 247.
Tuttugu og fjórir - sjö, TFS, er ungt, framsækið verktakafyrirtæki
í byggingariðnaði. Sérsvið okkar eru heildarlausnir á öllum stigum
framkvæmda.
Starfsmaður
í hlutastarf
Breska sendiráðið óskar eftir að ráða
starfsmann til heimilisstarfa
Um er að ræða hlutastarf á heimili breska
sendiherrans. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf fljótlega, vera enskumælandi og hafa
reynslu af samskonar störfum, t.d. við hótel
eða sendiráð.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir, helst
á ensku, ásamt persónulegum upplýsingum
og upplýsingum um fyrri störf til Breska sendi-
ráðsins, Laufásvegi 31, 101 Reykjavík.
Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 30. júní
næstkomandi. Skrifstofumaður
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki óskar
eftir að ráða starfsmann í móttöku.
Vinnutími er frá 9.00—15.00.
Starfsvið:
● Símsvörun.
● Móttaka viðskiptavina og afgreiðsla.
● Almenn skrifstofustörf.
Við leitum að einstaklingi sem býr yfir:
● Almennri tölvukunnáttu.
● Ríkri þjónustulund, sjálfstæði og skipulögð-
um vinnubrögðum.
● Hæfni í mannlegum samskiptum.
Starfið er laust frá 1. júlí 2001.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna.
Umsóknir óskast sendar til sýslumanns merkt-
ar „skrifstofumaður“ fyrir 30. júní 2001.
Kennarar! Kennarar!
Kennara vantar við Grunnskólann á Bakkafirði
næsta skólaár. Kennslugreinar eru almenn
kennsla yngri barna, enska og danska á
miðstigi.
Í skólanum eru 14 nemendur í 1.—7. bekk.
Aðstaða í skólanum er góð og býður upp á
ánægjulegan vinnustað.
Húsnæðisfríðindi og flutningsstyrkur!
Umsóknarfrestur er til 25. júní.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá skólastjóra,
Sigríði Hlöðversdóttur, í símum 473 1636 og
473 1618.