Morgunblaðið - 16.06.2001, Page 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 45
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGURINN, 17.
júní, er á morgun og verður hann að
venju haldinn hátíðlegur um allt land
með ýmsum hætti. Víða verða farnar
skrúðgöngur, ávörp flutt og hljóm-
sveitir leika fyrir dansi, og að auki
verður ýmislegt í boði fyrir yngstu
kynslóðina. Hér fara á eftir atriði úr
dagskrá hátíðahaldann á höfuborgar-
svæðinu og nokkrum öðrum stöðum:
Reykjavík
Í Reykjavík hefst dagskráin við Aust-
urvöll kl. 10.00 er forseti borgar-
stjórnar, Helgi Hjörvar, leggur blóm-
sveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns
Sigurðssonar í kirkjugarðinum við
Suðurgötu. Hátíðardagskrá við Aust-
urvöll hefst kl. 10.40 með ávarpi for-
manns þjóðhátíðarnefndar, Stein-
unnar V. Óskarsdóttur. Því næst
leggur forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, blómsveig frá íslensku
þjóðinni að minnisvarða Jóns Sig-
urðssonar og forsætisráðherra, Dav-
íð Oddsson, flytur ávarp. Þá verður
ávarp fjallkonunnar sem flytur nýtt
hátíðarljóð eftir Matthías Johannes-
sen. Kvennakór Reykjavíkur syngur,
Lúðrasveit Svanur leikur og skátar
standa heiðursvörð. Guðsþjónusta fer
fram í Dómkirkjunni og þar predikar
sr. Hjalti Hugason.
Eftir hádegið leggja skrúðgöngur
af stað frá Hlemmi kl. 13:40 og frá
Hagatorgi kl 13:45. Lúðrasveitir og
skátar, götuleikhús og danshópar
taka þátt í göngunni. Að því loknu
hefst barna- og fjölskyldudagskrá í
Miðbænum.
Stærsta sviðið verður við Arnarhól.
Þar verður barna- og fjölskyldudag-
skrá sem hefst kl. 14.00. Flutt verða
atriði úr leikritunum Lómu og Kuggi
og Málfríði og lög úr söngleikjunum
Syngjandi í rigningunni og Wake me
up before you go go. Hljómsveitin
Guitar Islancio leikur íslensk þjóðlög,
Krakkasönghópurinn Kiðlingarnir
tekur lagið og einnig Two Tricky hóp-
urinn. Freestyle-danshóparnir Eld-
móður og Textíl, koma fram, Fifth
Element sýnir break-dans og hópur
frá Kramhúsinu sýnir afríska dansa.
Kynnar á skemmtuninni á Arnarhóli
verða Ásta Hrafnhildur úr Stundinni
okkar og Lóa ókurteisa (Helga Braga
Jónsdóttir).
Á Ingólfstorgi hefst dagkráin kl.
14.00 á leik Lúðrasveitar verkalýðs-
ins en flytjendur annarrar dagskrár-
atriða eru börn, unglingar eða ungt
fólk. Meðal þeirra sem koma fram
eru Götuleikhús Hins hússins, Götu-
danshópurinn, Tónaflokkurinn, dans-
hóparnir Fifth Element, Textíl og
Eldmóður, danshópur úr Frosta-
skjóli, krakkasönghópurinn Kiðling-
arnir og rappararnir Frikki, Rakel og
Pési.
Í Tjarnarsal Ráðhússins syngur
Skagfirska söngsveitin í Reykjavík
ásamt einsöngvaranum Jóhanni
Friðgeiri Valdimarssyni, ungir fiðlu-
leikarar úr Suzuki-skólum á Íslandi
og í Þýskalandi leika og Hjörleifur
Valsson og Reynir Sigurðsson leika
íslensk lög á fiðlu og píanó. Dag-
skránni lýkur með leik léttsveitar
Harmónikufélags Reykjavíkur.
Sýningar Brúðubílsins verða við
Menntaskólann í Reykjavík kl. 14.00
og 14.30 og fjöllistamaðurinn The
Mighty Gareth treður upp víðsvegar
um miðborgina.
Leiktæki, spákonur, tjaldbúðir
skáta, fallhlífastökk, fimleikar, glíma
og skylmingar verða í Hallar- og
Hljómskálagarði og 17. júnílestin ek-
ur frá Vonarstræti eins og venjulega.
Fornbílar verða sýndir við Miðbakka
Reykjavíkurhafnar og þar fer einnig
fram keppni aflraunamanna. Að
venju verður hægt að róa á árabátum
á Nauthólsvíkinni eða fara í skemmti-
siglingu á Jónasi feita.
Hjá Listasafni Reykjavíkur verða
opnar sýningar í Hafnarhúsi, á Kjar-
valsstöðum og í Ásmundarsafni og í
Hafnarhúsi verður hátíðardagskrá
þar sem útnefndur verður borgar-
listamaður. Sérstök dagskrá verður í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í
Laugardal.
Um kvöldið verða tónleikar og
dansleikir á tveimur sviðum í Mið-
bænum. Á stóra sviðinu á Arnarhóli
verða tónleikar þar sem fram koma
hljómsveitirnar Buttercup, Sóldögg,
Jagúar, Nýdönsk, Ensími og Andlát
og einnig verða flutt lög úr söngleikn-
um Hedwig sem Leikfélag Íslands
tekur brátt til sýninga. Tónleikarnir á
Arnarhóli hefjast kl 20.00 og lýkur kl.
24.00
Á Ingólfstorgi hefst dansleikur kl.
21.00 en þar leika Milljónamæring-
arnir og söngvararnir Páll Óskar,
Ragnar Bjarnason og Bjarni Arason
og Ludo sextett og Stefán fyrir dansi
til miðnættis.
Skipulagt hátíðasvæði er Austur-
völlur, Kirkjustræti, Templarasund,
Ingólfstorg, Arnarhóll, Tjarnargarð-
ur, Reykjavíkurhöfn og Nauthólsvík.
Umferð bíla er takmörkuð um þessi
svæði. Umsjón með dagskrá þjóðhá-
tíðar í Reykjavík hefur þjóðhátíða-
nefnd á vegum Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur.
Árbæjarsafn
Sérstök hátíðardagskrá verður í Ár-
bæjarsafni þjóðhátíðardaginn 17.
júní. Í tilefni dagsins eru gestir hvatt-
ir til að mæta í eigin þjóðbúningum.
Fólk af erlendum uppruna er sér-
staklega boðið velkomið og hvatt til
að mæta í þjóðbúningum síns heima-
lands. Leiðsögumenn safnsins munu
klæðast fjölbreyttum búningum í
eigu safnsins. Klukkan 14.00 geta
gestir fylgst með hvernig faldur, fald-
blæja og spöng eru sett upp og borin
við skautbúning. Í húsinu Suðurgötu
7 munu gullsmiðir sýna búningasilf-
ur, einnig verður kniplað og balderað.
Félagar í Þjóðdansafélagi Reykjavík-
ur sýna þjóðdansa kl. 15.30 mun Karl
Jónatansson spila á harmoníku og
handverksfólk verður í húsunum. Í
Dillonshúsi verður boðið upp á
þjóðhátíðarkaffi.
Seltjarnarnes
Dagskráin á Seltjarnarnesi hefst
kl.12.50 en þá mun fólk safnast saman
við dælustöð á Lindarbraut. Kl 13.00
hefst skrúðganga undir stjórn Lúðra-
sveitar Seltjarnarness. Gengið verð-
ur frá dælustöð á Lindarbraut að
Eiðistorgi þar sem hátíðarhöldin fara
fram. Skrúðgangan mun koma að
Eiðistorgi kl 13.40.
Kl. 13.45 mun formaður Æskulýðs-
og íþróttaráðs Seltjarnarness, Ás-
gerður Halldórsdóttir setja hátíðina.
Að því loknu, kl. 13.50 mun Lúðra-
sveit Seltjarnarness leika nokkur lög
og kl. 13.55 mun fjallkonan ávarpa
samkomuna.
Skemmtidagskrá hefst kl. 14.00 og
mun þar kenna ýmissa grasa. Þar
verður Stoppleikhúsið með Kugg og
Málfríði, Fimleikadeild Gróttu verð-
ur með fimleikasýningu, tvö pör frá
dansfélaginu Gulltoppi munu stíga
sporið, Leikfélag Seltjarnarness flyt-
ur Þjár óskir og einnig verður sýndur
freestyle-dans. Fimleikadeild Gróttu
sér um blöðrusölu við Eiðistorg.
Mosfellsbær
Í Mosfellsbæ hefst dagskráin kl 10.00
með sundmóti í Varmárlaug á vegum
sunddeildar UMFA. Á eftir verður
brugðið á leik í lauginni. Kl. 13.30 fer
skrúðganga frá miðbæjarsvæðinu og
frá 13.30–16.00 verður hátíðardag-
skrá við Íþróttamiðstöðina að Varmá.
Þar verður bæjarlistamaður Mos-
fellsbæjar 2001 útnefndur og ýmis-
legt í boði, svo sem leiktæki, kassak-
lifur, andlitsmálun, smábílasýning,
töframaður, leikrit, dans og veitinga-
sala. Milli 16.00 og 17.00 fer fram
keppnin „Sterkasti maður Íslands“.
Um kvöldið verða vímuefnalausir
tónleikar í Íþróttamiðstöðinni að
Varmá frá kl. 20.30–23.30. Þar munu
koma fram Fake Disorder, Spildog,
DNA, XXX Rottweiler hundar og að
auki verður danssýning í boði.
Kópavogur
Í Kópavogi mun morgundagskrá há-
tíðardagsins standa frá kl. 10.00–
12.00 en þá munu brassbönd aka um
bæinn og vekja bæjarbúa til hátíð-
arhalda. Púttmót eldri borgara á
túninu við Salinn og hið árlega 17.
júní hlaup frjálsíþróttadeildar
Breiðabliks á Kópavogsvelli fyrir
börn á aldrinum 6–12 ára verður frá
10.00–10.50. Keppt verður í hverjum
árgangi. Að hlaupinni loknu fer
skrúðganga frá Kópavogsvelli að
Digraneskirkju.
Kl. 11.00 mun hefjast barnasam-
koma í Digraneskirkju. Gunni og Fel-
ix heilsa upp á börnin, helgileikir og
fleiri atriði verða í boði. Kl. 13.00
verður svo farið í aðra skrúðgöngu,
frá Menntaskólanum í Kópavogi að
Rútstúni en dagskráin þar mun
standa til kl 17.00. Örn Árnason og
Karl Ágúst Úlfsson stjórna dag-
skránni. Ýmis skemmtiatriði verða í
boði, Skólahljómsveit Kópavogs leik-
ur ættjarðarlög, bæjarstjóri Kópa-
vogs, Sigurður Geirdal, ávarpar sam-
komuna, flutt verður ávarp
nýstúdents, ættjarðarljóð verða flutt,
Jóhanna Guðrún tekur lagið og Guit-
ar Islancio flytur þjóðlög. Þá munu
íbúar Latabæjar heimsækja túnið,
Borgardætur syngja, trúðar
skemmta og einnig verða söngatriði á
boðstólum.
Kl. 16.20 fer fram vináttuleikur á
Vallargerðisvelli v/Skólagerði, en þar
munu stúlkur úr Breiðablik og HK
leika. Á Rútstúni verða ýmis leiktæki
í boði, auk andlitsmálunar og sýning-
ar á búnaði Hjálparsveitar skáta í
Kópavogi. Kaffisala og sölutjöld
verða á vegum íþróttafélaganna í
Kópavogi.
Milli kl. 16.30 og 17.30 verður dag-
skrá í Gjábakka. Kvæða- og vísna-
menn fara með gamanmál, leikið
verður á harmonikku, söngatriði
verða í boði og verðlaunaafhending
fyrir púttmót. Kaffisala verður á
staðnum.
Kvölddagskrá verður á Rútstúni
frá 20.30–23.30. Kynnir verður Logi
Bergmann Eiðsson. Þátttakendur úr
Söngvakeppni félagsmiðstöðva í
Kópavogi syngja, Búdrýgindi, KK og
Magnús Eiríksson, Verslógengið,
hljómsveitin Fönkmaster 2000, Á
móti sól og Sálin hans Jóns míns og
Stefán Hilmarsson taka lagið.
Garðabær
Garðbæingar hefja þjóðhátíðardag-
inn með morgundagskrá kl. 10.00 en
þá fer fram víðavangshlaup 5–12 ára
barna við Hofsstaðaskóla.
Kl. 13.00 verður hátíðarhelgistund
í Vídalínskirkju og kl. 14.00 fer skrúð-
ganga frá kirkjunni.
Síðdegisdagskrá hefst kl 14.20 með
ávörpum bæjarstjóra, forseta bæjar-
stjórnar og ávarpi fjallkonunnar. Þá
fer fram afhending starfsstyrks lista-
manna. Skemmtidagskrá verður í
boði við Garðaskóla, trúðar, Málfríð-
ur og Kuggur, KK, hestar fyrir börn,
þrautabrautir skáta og fleira verðu á
boðstólum. Kaffihlaðborð Kvenfélags
Garðabæjar verður í Garðalundi frá
kl 15.00–17.00. Kynnir verður Magn-
ús Magnússon.
Kl 17.00 verður dagskrá í íþrótta-
húsinu við Ásgarð, þar verður fim-
leikasýning, Latibær og Örn Árnason
ásamt undirleikara.
Kvölddagskrá verður í Garðalundi
frá 20.00–22.00 en þar mun diskótek-
ið Dísa halda uppi skemmtun.
Hafnarfjörður
Dagskrá þjóðhátíðardagsins í Hafn-
arfirði hefst kl. 10.00 með Frjáls-
íþróttamóti leikjanámskeiða í Kapla-
krika og á sama tíma verður
knattspyrna yngri flokka drengja og
stúlkna á Víðistaðatúni. Frá 11.00–
17.00 verður boðið upp á ýmis leik-
tæki á Víðistaðatúni. Kaffisala
Skátafélagsins Hraunbúa verður í
skátaheimilinu við Víðistaðatún. Kl.
13.15 verður helgistund í Hellisgerði,
prestur verður sr. Kristín Þórunn
Tómasdóttir. Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar leikur og karlakórinn Þrestir
syngja. Síðan verður farin skrúð-
ganga frá Hellisgerði að Víðistaða-
túni þar sem fjölskylduskemmtun
hefst kl. 14.30. Gissur Guðmundsson,
formaður þjóðhátíðarnefndar, setur
hátíðina og flutt verða hátíðarávörp
Magnúsar Gunnarssonar bæjar-
stjóra, auk ávarps fjallkonu. Ýmis
söng- og skemmtiatriði verða í boði,
Karlakórinn Þrestir, Leikskólinn
Hjalli, Söngvaborg, Sigga Beinteins.
og Grétar Örvars, Siggi sæti og Solla
stirða koma fram. Milli 13.00 og 17.00
verður hægt að kynna sér sögu fyrri
tíma í Smiðjunni, Strandgötu 50, Ás-
bjarnarsal, í Sívertsens-húsi áVestur-
götu 6 og Siggubæ á Kirkjuvegi 10.
Kl. 17.00 verður dagskrá í Íþrótta-
húsinu við Strandgötu, leikur FH og
Hauka og fimleikasýning frá Björk í
leikhléi. Kl. 20.00 hefst fjölskyldu-
skemmtun við Hafnarfjarðarkirkju.
Þar verða ávörp og skemmtiatriði frá
Ómari Ragnarssyni, Jóhönnu Guð-
rúnu, Páli Rósinkrans, Erni Árnasyni
og Karli Ágústi Úlfssyni, dansatriði
og hljómsveitirnar Halim, Írafár og
Birgitta Haukdal. Kl. 21.00 verða
gömlu dansarnir í Félagsheimili aldr-
aðra, Hraunseli, kl. 22.00 verða Jazz-
tónleikar í Hafnarborg, Jakobsson og
Möller Kvintett leika. Dagskrárlok
eru kl. 23.30.
Selfoss og nágrenni
Hátíðarhöld í Sveitarfélaginu Ár-
borg, á Selfossi, Eyrarbakka og
Stokkseyri hefjast klukkan 10.00 með
því að fánar verða dregnir að húni við
Ráðhús Árborgar. Brunavarnir Ár-
nessýslu og Björgunarfélag Árborga
sýna búnað sinn og sýning verður á
verkum barna í Leikskólanum Ás-
heimum. Á Selfossi sér Ungmenna-
félag Selfoss um framkvæmd hátíð-
arhaldanna. Hestamannafélagið
Sleipnir býður börnum á hestbak við
hesthús að Vallartröð 4 og 9 á Sel-
fossi. Þá verða flugmódelaáhuga-
menn með sýningu og kynningu í
félagsheimili Umf. Selfoss og UMFÍ
vagninn verður kynntur eldri borg-
urum á íþróttavallarsvæðinu á Sel-
fossi.
Hátíðarmessa verður í Selfoss-
kirkju kl. 11.00–12.00. Prestur verður
sr. Úlfar Guðmundsson.
Frá 13.00–17.00 verður sýning á
bílastæðinu við Fjölbrautaskóla Suð-
urlands á ýmsum gerðum farartækja
auk bifhjóla verða einnig til sýnis. Þá
verður handverks- og myndlistarsýn-
ing opin hjá Eyvindi Erlendssyni í
Miðgarði á Austurvegi 4.
Skrúðganga verður farin kl. 13.00
frá Hótel Selfossi og verður gengið að
íþróttavallasvæði Selfoss. Þar fer
fram hátíðardagskrá með ávörpum
og lúðraþyt. Þórir Haraldsson flytur
hátíðarræðu, Leikfélag Selfoss verð-
ur með gamanmál og nýstofnuð ung-
mennahljómsveit spilar nokkur lög.
Kynnir verður Jón Bjarnason. Stræt-
isvagnar verða á ferð um Selfoss og
Flugklúbbur Selfoss með útsýnisflug
frá klukkan 13.00.
Kl. 14.30 verður fallhlífarstökks-
sýning á aðalvellinum. Hefðbundin
kaffisala Frjálsíþróttadeildar Selfoss
verður í Sólvallaskóla eftir dagskrána
á íþróttavellinum. Þar verður ýmis-
legt í boði fyrir yngstu kynslóðina.
Skemmtiatriði og gamanmál verða
við Sundhöllina klukkan 15.30 og ball
fyrir yngstu kynslóðina verður klukk-
an 17.00–19.00 í tjaldi á íþróttavalla-
svæðinu og mun hljómsveitin Á móti
sól leika.
Um kvöldið hefst hátíðardagskrá
klukkan 20.30 á Hótel Selfossi þar
sem verða Leikfélag Selfoss, fim-
leikasýning, Unglingakór Selfoss-
kirkju og Sex í sveit syngja nokkur
lög. Kynnir verður Þóra Grétarsdótt-
ir. Harmonikkuball hefst í hótelinu
klukkan 21.30. Loks verður dansleik-
ur á íþróttavallasvæðinu klukkan
22.00–01.00 þar sem hljómsveitin Á
móti sól leikur.
Á Eyrarbakka verður hátíðardag-
skrá við Sjóminjasafnið og hefst
klukkan 14.00 með ávarpi fjallkon-
unnar og hátíðarræðu Rannveigar
Önnu Jónsdóttur. Leikskólabörn
munu syngja, leikþáttur verður flutt-
ur og leynigestur kemur fram. Þá
verða leikir og í lokin diskótek í umsjá
Jóns Bjarnasonar. Kvenfélag Selfoss
sér um framkvæmd hátíðarhaldanna
á Eyrarbakka.
Á Stokkseyri hefst dagskráin í
tjaldi klukkan 13.00 með andlitsmál-
un barna. Klukkan 14.00 flytur
Margrét Frímannsdóttir hátíðar-
ræðu, fjallkonan kemur fram og Pét-
ur Pókus einnig. Þá verður nælon-
sokkasöngur og skyrát með
tilþrifum. Við sundlaugina fá allir
sem vilja að fara á hestbak og leikir
verða fyrir alla. Hljómsveitin Fídus
mun sjá um tónlist í tjaldinu í dag-
skrárlok. Einnig verða kaffiveitingar
í tjaldinu.
Dagskrá hátíðarhalda
á þjóðhátíðardaginn
Morgunblaðið/Billi
Börn á leikskólum í Breiðholti héldu hátíð í tilefni þjóðhátíðardagsins í
gær og var mikið um dýrðir.
Á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, Hrafnseyri,
verður haldin hátíðarmessa í Minningarkapellu
Jóns Sigurðssonar klukkan 14.00. Prestur er sr.
Guðrún Edda Gunnarsdóttir. Davíð Oddsson, for-
sætisráðherra, flytur ræðu dagsins klukkan 15.00
og sönghópurinn Vestan fjögur syngur.
Á eftir þessum dagskráratriðum verður gestum
boðið í veislukaffi í burstabæ Jóns Sigurðssonar.
Kaffið verður framreitt utandyra ef veður leyfir.
Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri verður opn-
að á morgun, þjóðhátíðardaginn, að venju og
verður það opið alla daga í sumar til 1. september
frá klukkan 13.00–20.00 og á öðrum tímum eftir
samkomulagi.
Forsætisráðherra flytur
ræðu á Hrafnseyri