Morgunblaðið - 04.08.2001, Síða 1

Morgunblaðið - 04.08.2001, Síða 1
176. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 4. ÁGÚST 2001 OTTO Schily, innanríkisráðherra Þýzkalands, lagði í gær fram tillögur að breytingum á löggjöf um innflytj- endur sem hugsaðar eru til að hjálpa til við að uppfylla þarfir þýzks at- vinnulífs fyrir hæfa starfsmenn en jafnframt að herða á reglum um að- flutning flóttamanna og hælisleit- enda til Þýzkalands. Er tilgangurinn ekki sízt sá að ná sátt um þetta um- deilda mál áður en kosningabaráttan hefst fyrir næstu þingkosningar, sem verða haustið 2002. Schily, sem er í Jafnaðarmanna- flokki Gerhards Schröders kanzlara (SPD), hefur lagt sig fram um að rata inn á hinn gullna meðalveg í leit- inni að lausnum í þessum viðkvæma málaflokki og hefur í því skyni lagt mikla vinnu í að taka tillit til óska stjórnarandstöðuflokkanna og ým- issa hagsmuna- og þrýstihópa við samningu hinnar nýju innflytjenda- stefnu þýzku stjórnarinnar. Lykilatriði í tillögum Schilys er að tekið verði upp punktakerfi, sem um- sækjendur um atvinnuleyfi í Þýzka- landi yrðu metnir eftir. Tegundum dvalarleyfa fyrir útlendinga yrði fækkað í aðeins tvær – tímabundið og til frambúðar. Hert yrði hins veg- ar á skilyrðum fyrir hælisveitingum. Fyrstu viðbrögð talsmanna bæði stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka voru jákvæð og sama má segja um samtök vinnuveitenda og fulltrúa kirkjunnar. Einstaka atriði tillagn- anna sættu þó gagnrýni. Þannig sögðust talsmenn mannréttindasam- takanna Amnesty International og Pro-Asyl (þýzk samtök sem beita sér fyrir réttindum flóttamanna) telja að réttindi flóttamanna væru ekki nægilega vel tryggð eins og tillög- urnar litu út nú. Talsmenn kristilegra demókrata (CDU), stærsta stjórnarandstöðu- flokksins, fögnuðu tillögunum, eink- um og sér í lagi að þær skyldu inni- halda ákvæði um skylduþátttöku innflytjenda sem hyggja á frambúð- ardvöl í Þýzkalandi í þýzkunám- skeiðum. Talsmenn flokksins lýstu aftur á móti vonbrigðum með að í til- lögunum skyldi ekki getið um hve marga innflytjendur yrði reynt að fá inn í landið. Árleg skömmtun á leyf- um fyrir innflytjendur voru lykilat- riði í tillögum um innflytjendamál sem stjórnarandstaðan lagði fram í vor. Lýðfræðileg nauðsyn Um 7,3 milljónir útlendinga hafa nú fasta búsetu í Þýzkalandi, 9% íbúa landsins. Þessi staðreynd, að við- bættu fjöldaatvinnuleysi (um fjórar milljónir manna eru á atvinnuleys- isskrá í Þýzkalandi), hefur gert inn- flytjendamál í hæsta máta spennu- þrungið málefni í stjórnmála- umræðunni. Af lýðfræðilegum ástæðum – vegna lækkaðrar fæðingartíðni og aukinna ævilíkna er merkir að hlut- fallslega færri verða á starfsaldri – sér þýzkt atvinnulíf fram á skort á hæfu starfsfólki á næstu árum og áratugum. Til að forðast vandamál af völdum hærra hlutfalls útlendinga í samfélaginu vilja stjórnmálamenn reyna að tryggja viðunandi aðlögun innflytjenda en þá greinir á um leiðir að því marki. Tillögur að nýrri innflytjendastefnu í Þýzkalandi Þarfir atvinnulífs- ins hafi forgang Berlín. AFP, AP. HITABYLGJA hefur gengið yfir stærstan hluta meginlands Evrópu síðustu daga. Hér kæla feðgar í Míl- anó á Norður-Ítalíu sig niður í gos- brunni í miðborginni en hitinn þar náði 37 stigum á Celsíus í gær og fyrradag. Um sunnanvert Bretland og víða í Þýzkalandi var hitinn í kringum 30 stig í vikunni og í Frakklandi náði hann 35°. Þar sem hitabylgjan fell- ur einmitt saman við upphaf mesta sumarleyfatímans í þessum löndum sátu hundruð þúsunda, ef ekki millj- ónir, manna og svitnuðu í umferð- arteppu. Á baðstrandarstöðum á Suður-Englandi var boðið upp á ókeypis sólvarnaráburð. AP Hitabylgja í Evrópu UM 15.000 manns báðust fyrir í moskum gamla borgarhlutans í Jerúsalem í gær á bænadegi músl- ima en ekki kom til alvarlegra átaka eins og óttast hafði verið. Ísraelsk stjórnvöld bönnuðu körlum undir fertugu að fara í moskurnar og takmörkuðu umferð um götur er liggja inn í borgarhlutann en þar er Al Aqsa-moskan. Hart er lagt að Ísraelsstjórn að samþykkja að al- þjóðlegt eftirlitslið verði sent til Vesturbakkans og Gaza og sagði breska blaðið Guardian að Banda- ríkjamenn hefðu þegar gert áætlun þess efnis sem Ísraelar myndu sætta sig við með semingi. Þúsundir lögreglu- og hermanna voru til taks í gær. Hér miða hermenn á Palest- ínumenn í borginni Hebron þar sem kastað var grjóti að Ísraelum. Reuters Við öllu búnir FÆREYINGAR og Grænlendingar vilja fá að stýra samningaviðræðum fyrir hönd danska ríkisins hjá Al- þjóðahvalveiðiráðinu, IWC, og ætla að ræða málið á fundi með forsætis- ráðherra Dana, Poul Nyrup Ras- mussen, í september. Jørgin Nicla- sen, sjávarútvegsráðherra Færeyja, bendir á að Danir veiði hvorki hvali né seli. „Þegar við Færeyingar verð- um fullvalda þjóð ætlum við að verða sjálfstæður aðili að IWC en þangað til er sanngjarnt að Færeyingar og Grænlendingar annist samningana hjá IWC – Danir geta haft áheyrn- arfulltrúa,“ sagði Niclasen. Samstarf við Íslendinga Ráðherrann sagði að Alþjóðahval- veiðiráðið hefði upprunalega verið stofnað af hvalveiðiþjóðum til að ræða eftirlit með veiðunum en sagði ráðið vera að breytast í hvalfriðunar- samtök og gagnrýndi þá þróun. Niclasen segist hafa samið við sjávarútvegsráðherra Íslands um samstarf ef til þess komi að þjóðirn- ar hefji aftur hvalveiðar. Segir hann að Færeyingar myndu ef til vill veiða fáeinar hrefnur og nota afurðirnar „fyrst og fremst“ til neyslu innan- lands. Árni Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra staðfesti í samtali við Morgunblaðið að rætt hefði verið að þjóðirnar reyndu að vera samstíga. „Við höfum ekki haft tækifæri til að ræða stöðuna eftir ársfund Alþjóða- hvalveiðiráðsins í London en munum gera það í haust,“ sagði Árni. Vilja fá sæti Dana Þórshöfn. Morgunblaðið. Alþjóðahvalveiðiráðið ÁFORM eru nú uppi um að stjórn- völd í Norður-Kóreu greiði upp skuldir sínar við Rússa með því að út- vega þeim vinnuafl. Þetta hafði fréttastofan RIA Novosti eftir heim- ildarmanni í rússneska efnhagsmála- ráðuneytinu. Ef til kemur munu verkamennirnir starfa launalaust í vinnubúðum í Síberíu en á þennan hátt greiddu yfirvöld í Norður-Kóreu 90% afborgana af skuldum sínum við Rússa í fyrra. Þá dugði vinna fólksins fyrir afborgunum sem jafngilda tæp- lega fimm milljörðum króna. Í fréttinni kom ekki fram hversu marga verkamenn þurfti til að greiða þessa upphæð en þeir vinna við skóg- arhögg í lokuðum vinnubúðum sem norður-kóreskir og rússneskir öryggisverðir gæta. Yfirvöld í Norð- ur-Kóreu samþykktu í gær að greiða á þennan hátt upp skuldir sínar við Sovétríkin fyrrverandi á næstu 30 árum. Skuldirnar nema tæpum 500 milljörðum króna. „Neyðarástand“ á lestarstöðvum í Moskvu Níu daga lestarferð Kim Jong-Il, leiðtoga Kóreu, um Síberíu til Moskvu lauk í gær. Miklar öryggis- ráðstafanir voru viðhafðar á lestar- stöðinni þar sem brynvörð lest hans nam staðar í gær en sprengjuhótun barst snemma í gærmorgun. Ekki voru leyfðar myndatökur og flæking- ar sem venjulega hafast við á stöð- inni voru reknir burt. Öll umferð lesta inn í Moskvuborg var stöðvuð í fjórar klukkustundir vegna komu leiðtogans og komust um 25.000 gramir lestarfarþegar ekki leiðar sinnar. Valerí Borstjov, þingmaður á rússneska þinginu, sagði stefna í að neyðarástand skapaðist vegna að- gerðanna. Annar þingmaður, Sergei Ívanenko, tók í sama streng. „Þess- ari tilgerðarlegu lestarferð svipar til þess sem maður sér í gömlum kvik- myndum um Stalín,“ sagði hann. Upplýsingar um það sem Vladímír Pútín Rússlandsforseti og Kim munu ræða á fundum sínum um helgina eru óljósar. Þó telja fréttaskýrendur að þeir muni skrifa undir sameiginlega stuðningsyfirlýsingu við ABM-gagn- flaugasáttmálann frá 1972. Járnbraut um Kóreuskaga Þá er talið að á fundum sínum með norður-kóreska leiðtoganum vilji rússnesk yfirvöld tryggja að hann styðji áform þeirra um að leggja járnbrautarteina milli Síberíujárn- brautarinnar og brautar sem áform- að er að leggja milli Norður- og Suð- ur-Kóreu. Járnbrautin myndi tryggja Rússum tekjur vegna mikilla viðskipta sem Suður-Kóreumenn eiga við Evrópuþjóðirnar. Rússum greitt með vinnu Moskvu. AFP. Ríkisskuldir Norður-Kóreumanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.